Morgunblaðið - 30.11.2006, Page 45

Morgunblaðið - 30.11.2006, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 45 dægradvöl 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. Bg5 Re4 5. Bh4 Rxc3 6. bxc3 dxc4 7. e3 Be6 8. Db1 Dd5 9. Rf3 Rd7 10. Be2 Bf5 11. Db2 Bg7 12. 0–0 Rb6 13. a4 a5 14. Rd2 Bd3 15. Bxd3 cxd3 16. Hfb1 Dc6 17. Da3 0–0 18. c4 Rxc4 19. Rxc4 Dxc4 20. Bxe7 Hfe8 21. Hd1 Hac8 22. Bg5 c5 23. Dxd3 cxd4 24. exd4 Staðan kom upp á minningarmóti Mikhails Tals sem lauk fyrir skömmu í Moskvu. Rússneski stórmeistarinn Peter Svidler (2.750) hafði svart gegn armenskum kollega sínum Levon Aronjan (2.741). 24. … He1+! og hvít- ur gafst upp enda drottningin að falla í valinn. Svidler er um þessar mundir fjórði stigahæsti skákmaður heims en Aronjan er í sjöunda sæti. Aronjan lét þennan ósigur ekki á sig fá og varð efstur á mótinu ásamt Leko og Pono- marjov. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. Honolúlú. Norður ♠ÁD5 ♥942 ♦ÁD74 ♣D105 Vestur Austur ♠K107 ♠8642 ♥KG10763 ♥85 ♦6 ♦KG10953 ♣842 ♣7 Suður ♠G93 ♥ÁD ♦82 ♣ÁKG963 Suður spilar 6G og fær út spaðasjöu. Í suðursætinu var ein af ungstjörn- um Bandaríkjamanna, Joe Grue, sem íslenskir spilarar muna kannski eftir frá síðustu Flugleiðahátíð. Grue er atvinnuspilari og keppir auðvitað á Hawaii. Slemman er vond, en útspilið hagstætt og Grue tók strax tvo slagi á spaða með svíningu. Vestur hafði opn- að á veikum tveimur í hjarta, svo Grue vissi að báðar svíningar í rauðu litun- um væru dæmdar til að misheppnast og ákvað að reyna að endaspila austur í tígli. Hann tók laufslagina og skildi eft- ir spaðaásinn í borði, eitt hjarta og ÁD7 í tígli. Austur varð að halda í þrjá tígla (annars er tígull dúkkaður) og fór því niður á einn spaða og eitt hjarta. Grue tók þá hálitaásana og dúkkaði tígul yfir á austur, sem varð að spila upp í gaffalinn í lokin. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Krossgáta Lárétt | 1 sjóðvitlaus, 8 sporið, 9 svali, 10 endir, 11 setja í óreiðu, 13 nið- urfelling, 15 viðlags, 18 reiðar, 21 streð, 22 ósönnu, 23 smágerði, 24 handavinna. Lóðrétt | 2 ákvað, 3 ávöxtur, 4 tæla, 5 snag- inn, 6 ólmar, 7 tölustafur, 12 hrós, 14 illmenni, 15 gleðskap, 16 ráfa, 17 frétt, 18 duglegar, 19 dáni, 20 sleit. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 Sævar, 4 borða, 7 féllu, 8 lagin, 9 fes, 11 ræða, 13 saur, 14 kaggi, 15 fána, 17 frek, 20 fró, 22 lifur, 23 lof- ar, 24 sætum, 25 Ránar. Lóðrétt: 1 sófar, 2 volað, 3 rauf, 4 bols, 5 rugga, 6 agnar, 10 elgur, 12 aka, 13 Sif, 15 felds, 16 nefnt, 18 rófan, 19 kærar, 20 fróm, 21 ólar. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 1 Deilt er um fjárhæðir vegnaendurgerðar fyrsta forsetabíls- ins sem er mjög fágætur. Af hvaða gerð er bíllinn? 2 Sýslumannsembættið á Kefla-víkurflugvelli hefur gengið ötul- lega fram í því að gera upptæk fíkni- efni á leið inn í landið. Hver er sýslu- maður þar? 3 Friðrik Rafnsson fjallaði í fyrir-lestri hjá Stofnun Vigdísar Finn- bogadóttur um þýðingu sína á frægri bók Milans Kunderas. Hvað bók er það? 4 Veitingahúsinu Naustinu verðurbreytt í annars konar matsölu- stað með nýjum innréttingum. Hvers konar veitingahús? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Þekktur leikari lék í íslenskri auglýsingu á vegum UNICEF. Hver er hann? Svar: Roger Moore. 2. Kolbrún Baldursdóttir varaþingmaður hefur lagt til á þingi að ökuleyfisaldurinn verði hækkaður. Í hvað? Svar: Í 18 ár. 3. Kvikmyndin Blóðbönd hlaut verðlaun á kvikmyndahátíð í Þýska- landi. Hver leikstýrði myndinni? Svar: Árni Ólafur Ásgeirsson. 4. Eiður Smári er með markahæstu leikmönnum á Spáni. Hversu mörg mörk hefur hann skorað? Svar: 5 mörk. Spurt er … ritstjorn@mbl.is    JÓLASVEINNINN Santa Clause hefur orðið með ólík- indum vinsæll í höndunum á Tim Allen. Þriðja myndin er komin í hús og malar gull sem þær fyrri. Áhorfendur eiga örugglega eftir að sjá meira til Jóla því þeim fellur alltaf eitthvað til til að hressa upp á leiðindin, hjá Disney. Nú er það Martin Short sem bjargar sýningunni í hlut- verki kuldaskröggsins Jacks Frost. Hann gerir byltingu í Jólasveinaveldinu á Norðurpólnum og breytir því í stóran skemmtigarð og verslanaklasa. Græðgin er búin að leggja undir sig síðasta vígi sakleysisins á Jarðríki. Jóli, sem á í upphafi myndar í tilvistarkreppu með nýju konunni (Mitchell) fær tengdaforeldrana í heimsókn rétt fyrir jólin. Þá er þessi vinalegi tengdasonur, en tvöfaldi í roðinu, önnum kafinn í aukavinnunni sem nýi tengdapabbi (Alan Arkin) og tengdamamma (Ann-Margret) hafa ekki hugmynd um. Heimilisvinurinn Jack Frost rekur einnig inn frosið nefið, trítilóður undir niðri af öfund út í hinn vin- sæla Santa Claus, og linnir ekki látum fyrr en hann hefur platað út úr honum starfið. En Claus gefst ekki upp. Dálítið kaldhæðnisleg hugmynd hjá framleiðandanum að gagnrýna peningabruðlið og kaupmennskuna kringum jólin því það er vafamál hvort nokkurt fyrirtæki á jarðríki græðir jafnmikið á hátíðunum og Disney. Það er önnur saga. Þriðji þáttur er líflegri en þeir fyrri og það er Short að þakka, hann fær besta bitann, ódáminn Frost, og gerir honum góð skil. Short er nánast horfinn af sjónarsviðinu en ekki eru mörg ár síðan hann var í annarri hverri gamanmynd frá Hollywood og átti magnaða spretti, líkt og í Father of the Bride og Three Fugitives. Vonandi verður frammistaða hans hér til þess að hann kemst aftur á blað – þó það þýði fleiri Jólasveinamyndir með þeim Allen. Valdarán í Jólasveinalandi KVIKMYNDIR Sambíóin Leikstjóri: Michael Lembeck. Aðalleikendur: Tim Allen, Eliza- beth Mitchell, Martin Short, Judge Reinhold. 98 mín. Bandarík- in 2006. Jólasveinninn 3 – The Santa Clause 3: The Escape Clause  Jólasveinninn Gagnrýnandi segir þriðju myndina um jólasveininn vera líflegri en þær fyrri. Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.