Morgunblaðið - 30.11.2006, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
BÖRN
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
eeee
DV
eeee
Davíð Örn Jónsson – Kvikmyndir.com
eeeee
Jón Viðar – Ísafold
eeeee
Hallgrímur Helgason
– Kastljósið
5 Edduverðlaun
besta mynd ársins, besti leikar ársins, besti leikstjórinn,
besti aukaleikarinn og besta tónlistin (Mugison)
- ÍTÖLSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ -
23. nóv - 3. des.
NATIVITY STORY FORSÝNING kl. 8 B.i. 16 ára
THE DEPARTED kl. 9 B.i. 16 ára
MÝRIN kl. 5:50 - 7 - 9 B.i. 12.ára
BÖRN kl. 7 B.i.12.ára
A SCANNER DARKLY ÓTEXTUÐ kl. 10:15 B.i. 16.ára
kvikmyndir.is
eeee
H.J. Mbl.
ROFIN PERSÓNUVERND
eeee
T.V. KVIKMYNDIR.IS
eee
H.J. MBL
FRÁFÖLLNUHINIR
/ KEFLAVÍK
POSTO DELL'ANIMA, IL Sýnd kl. 5:50 & 10:10
(staður sálarinnar)
FATE COME NOI Sýnd kl. 8
(Gerið eins og við)
Sýningartímar
HAGATORGI • S. 530 1919 WWW.HASKOLABIO.IS
eeee
V.J.V. Topp5.isM.M.J. Kvikmyndir.com
eeee
Blaðið
eeee
Þ.Þ. Fbl.
eeee
S.V. Mbl.
eeee
H.Ó. MBL
eee
LIB Topp5.isAsnakjálkar : númer tvö
á allar myndir sem sýndar eru
á ítölsku kvikmyndahátíðinni
Gegn framvísun miða sem var framan
á morgunblaðinu Á laugardaginn
Býður áskrifendum sínum
í bíó1fyrir2
CASINO ROYALE kl. 7 - 10 B.I. 14
SANTA CLAUSE 3 kl. 8 LEYFÐ
FLYBOYS kl. 10:10 B.I. 12
/ AKUREYRI
THE GRUDGE 2 kl. 8 - 10 B.I. 16
SANTA CLAUSE 3 kl. 6 - 10 LEYFÐ
DA ZERO A DIECI
(Frá einum upp í tíu) kl. 6 LEYFÐ
MIRACOLO, IL
(Kraftaverkið) kl. 8 LEYFÐ
eee
A.S. MBL
FORSÝNING
KL. 8
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Bestur þakkir til FEB
ÉG VILDI bara fá að koma á fram-
færi bestu þökkum til Félags eldri
borgara fyrir að halda á dögunum
tölvunámskeið fyrir félagsmenn.
Það er ekki auðvelt að vera gamall
á tækniöld, en við eldri borgarar
nutum góðrar leiðsagnar Þórs G.,
tölvusérfræðings, á dögunum er
hann kenndi okkur helstu undir-
stöðuatriði í að vafra um alvefinn og
leggja kapal.
Því hef ég nú sjálfur keypt mér
eina af þessum svokölluðu tölvum og
get nú nálgast gríðarlegt upplýs-
ingamagn í frístundum. Einnig var
okkur kennt að búa til veffang, og vil
ég þakka aðstandendum Vísis fyrir
að bjóða upp á frábæra frípóstsþjón-
ustu.
Einn þakklátur.
Ég mun ekki kjósa
Sjálfstæðisflokkinn ef …
ÉG HEF alltaf kosið Sjálfstæðis-
flokkinn hingað til en ég mun ekki
gera það í næstu alþingiskosningum
ef tiltekinn maður fer þá í framboð
fyrir hann í Suðurlandskjördæmi
eða annars staðar. Þessi maður hef-
ur gert sig sekan um alvarlegan
auðgunarglæp í opinberu trúnaðar-
starfi eins og alkunna er. Þó svo
hann hafi verið dæmdur fyrir þetta
og afplánað refsingu ásamt ítrekuð-
um afsökunar- og fyrirgefningar-
beiðnum af hans hálfu upp á síðkast-
ið breytir það engu.
Eitt tapað atkvæði skiptir kannski
ekki miklu fyrir flokkinn. En drop-
inn holar steininn.
Reynir Eyjólfsson,
Eyrarholti 6, Hafnarfirði.
Léleg þjónusta
ÉG FÓR til Skraddarans á horninu
á Vatnsstíg fyrir viku til þess að láta
gera við kápuna mína. Ég bað mann-
inn að skipta um rennilásinn fyrir
mig. En þegar maðurinn minn sótti
kápuna á laugardagsmorgni viku
síðar var búið að stytta rennilásinn,
sem ég bað aldrei um. Þá var hringt
til Skraddarans til að kvarta en mað-
ur fékk bara dónaskap, hroka og
yfirgang framan í sig. Er þetta þjón-
usta sem kúnninn á að fá?
Barbara Helgason.
Hvar fæst fiskur á
viðráðanlegu verði?
HVAR í ósköpunum er hægt að fá
fisk á viðráðanlegu verði? Þarf fisk-
verð að vera svona hátt? Mér blöskr-
aði svo í gær þegar ég fór í fiskbúð
eina, sem er ein af þessum fisk-
búðarkeðjum svokölluðu, því verðið
er orðið svo óheyrilega hátt. Ég
spurði afgreiðslumanninn hvort fólk
væri ekki undrandi á verðinu og
svaraði hann því játandi og margir
hættu við að kaupa sem og ég gerði
og hafði annað í matinn.
Gott væri að fá verðkönnun til að
sjá hvar hægt er að kaupa fisk á hag-
stæðasta verðinu því ég ákvað að við
þessa fiskverslunarkeðju myndi ég
ekki versla framar og ég er viss um
að þeir sem halda verðinu í lágmarki
munu fá þá kúnna sem ekki vilja
borga þetta okurverð fyrir soðn-
inguna.
Miðaldra húsmóðir.
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Demantsbrúð-
kaup | Í dag, 30.
nóvember, eiga
hjónin Jón
Svavar Björg-
vinsson og Anna
Margrét Elías-
dóttir 60 ára
brúðkaups-
afmæli. Jón
Svavar er frá
Kirkjubóli í Reykjavík en Anna Mar-
grét (Lilla) er frá Garðshorni á Ísafirði.
Þau hafa verið búsett í Bandaríkjunum
síðan 1953. Þau búa nú í Clearwater í
Flórída.
Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur,
Ásthildur Margrét Jóhannsdóttir og
Elva Rún Valgeirsdóttir, héldu tom-
bólu og söfnuðu þær kr. 1.628 til
styrktar Rauða krossi Íslands.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira lesendum sín-
um að kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og mánudags-
blað. Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-1100 eða
sent á netfangið ritstjorn-
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla, Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.
Víkverji er áhyggju-fullur núna. Hann
er að kaupa sína fyrstu
íbúð og þarf því að
taka lán.
Íbúðin var dýr að
mati Víkverja en ekki
dýrari en gengur og
gerist núna á
fasteignamarkaðinum.
Víkverji er einn á báti
og því er strembið að
taka lán, aðeins einar
tekjur að spila úr.
Gjöldin sem leggjast
ofan á íbúðarverðið eru
líka endalaus, svo ekki
sé talað um pappírs-
vinnuna sem fylgir
þessu. Það er ekki verið að gera
ungu fólki (sem vill ekki drukkna í
skuldum) auðvelt fyrir að koma und-
ir sig fótunum í þessu þjóðfélagi þar
sem allt er rándýrt með ofurvöxtum.
Það er ekki langt síðan Víkverji
kom úr námi og því ekki úr digrum
sjóðum að taka, hann skuldar þó lítið
því með náminu vann hann alltaf
mikið til að eiga til hnífs og skeiðar.
Úr því að Víkverji var sparsamur á
námsárum sínum á hann líka lítið í
nýju íbúðina. Hann þarf að kaupa
sér ísskáp, þvottavél, sófasett, rúm,
eldhúsborð, stóla, skáp og gardínur
auk margs fleira. En Víkverji er
ekki nýjungagjarn og þakkar því
fyrir búðir eins og Góða hirðinn sem
mun eflaust bjarga
honum. Auk þess sem
Víkverji sér ekki að
hann þurfi að kaupa
þetta allt strax í einni
lotu.
Víkverji er samt
glaður yfir að hafa
keypt sér íbúð og vera
kominn með samastað.
Hann var orðinn mjög
leiður á því að þvælast
á milli leiguíbúða á
okurverði, því eins og
með fasteignaverðið er
leiguverðið sprengt í
loft upp, og sér fyrir
sér náðuga daga í nýju
íbúðinni þar sem hann
getur neglt í veggi og valið málningu
eins og honum sýnist.
x x x
Víkverji fær grænar af sumumjólaauglýsingum sem óma nú í
útvarpinu og þá sérstaklega einni
frá bílasölu hér í bæ.
Í auglýsingunni er þekkt jólalag
tekið en í staðinn fyrir hefðbundna
textann er sungið nafnið á bílasöl-
unni og hvar hún er til húsa, aftur og
aftur og aftur.
Víkverja finnst þetta svo leiðinleg
auglýsing að hann skiptir alltaf um
stöð þegar hún er spiluð og finnst að
útvarpsstöðvar ættu ekki að spila
hana ef þær vilja halda í hlustun.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er fimmtudagur
30. nóvember, 334. dag-
ur ársins 2006
Orð dagsins : Daníel tók til máls og sagði: „Lofað
verði nafn Guðs frá eilífð til eilífðar, því hans er
viskan og mátturinn.“ (Daníel 2, 20.)
ÞRIÐJA myndin um hinn truflaða Jigsaw og ráðabrugg
hans verður frumsýnd á morgun. Myndin nefnist Saw III
og er stranglega bönnuð innan 16 ára og þykir alls ekki
fyrir viðkvæma.
Téður Jigsaw gengur enn laus en hann er þekktur fyrir
að láta fórnarlömb sín leysa afar óhugnan-
legar og oft óhugsandi þrautir til þess eins
að halda lífi. Í þetta sinn hefur Jigsaw
fengið sér til fulltingis lærlinginn Amöndu
og saman halda þau uppteknum hætti.
Saw III verður sýnd í Laugarásbíói,
Sambíóunum í Álfabakka og Borgarbíói á
Akureyri.
Frumsýning | Saw III
Saw III Jigsaw hafur fengið lær-
linginn Amöndu í lið með sér.
Jigsaw snýr aftur
Erlendir dómar
The Hollywood Reporter: 70/100
Metacritic: 48/100
Variety: 60/100
The New York Times: 40/100
Allt skv. Metacritic.
YFIRSTÉTTARMÚSIN Robbi
(Roddy) hefur það gott sem uppá-
halds gæludýr í fínu húsi í Kensing-
ton hvefinu í Lundúnum. Rót kemst
á tilveru hans þegar rottan Siddi
(Sid) skolast uppúr vaskinum og inn
á hið fína heimili. Robbi reynir að
losna við félagann úr íbúðinni og
freistar þess að sturta honum niður
um klósettið. Sú aðgerð fer þó ekki
betur en svo að Robbi endar sjálfur í
klósettskálinni og sturtast niður í
holræsaborgina Ratropolis. Í leið
sinni aftur í fínu íbúðina lendir
Robbi í ýmsum ævintýrum og kynn-
ist meðal annars henni Rítu.
Skolað í burtu (Flushed Away) er
frumsýnd á morgun í Sambíóunum í
Reykjavík, Keflavík og á Akureyri,
Laugarásbíói og Selfossbíói.
Myndin er sýnd bæði með ensku
og íslensku tali. Með aðalhlutverk í
þeirri fyrrnefndu fara Hugh Jack-
man, Kate Winslet, Ian McKellen,
Jean Reno, Bill Nighy og Andy
Serkis en í þeirri íslensku þau Felix
Frumsýning | Flushed Away
Skolað í burtu