Morgunblaðið - 03.12.2006, Page 60
60 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
EU
EUROCONFORTO
HEILSUSKÓRNIR HAFA SLEGIÐ
Í GEGN Á ÍSLANDI
Hlý og þægileg jólagjöf.
12 fallegir litir.
St. 35-43. Verð: 4.400 kr.
Útsölustaðir: Xena Glæsibæ -
Mjódd - Spöngin - Borgarnes
Fylltur og flottur fyrir nettu brjóstin
í BCD skálum á 3.990 kr.
Rosalegur fyrir stóru brjóstin í CDEF
skálum á 3.990 kr.
Náttfatasett í stíl, mjög fallegt í
S,M,L,XL, kjóll 5.990 kr. og sloppur
7.650 kr.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
H
HÚFUR, TREFLAR OG
VETTLINGAR
Skarthúsið, Laugavegi 12
sími 562 2466
Múrverktakar: Tökum að okkur.
Anhydrit ílagnir. Vélslípun. Flotun.
Steypusögun. Slípum gömul og
skemmd gólf. Allt múrverk - vönduð
vinna. Sími 8919193/8925309
Mjúkur draumur
Náttföt, náttkjólar, sloppar.
Stærðir S-XXXL
Meyjarnar, Austurveri
sími 553 3305
Byggingavörur
580 7820
Persónuleg
dagatöl
ERLAVIS ÞUL – A -
FRÉTTA
FYRR VAR OFT í KOFUNUM
ANNAN KáTT
KRAKKARNIR LéKU SéR
SUNDUR OG SAMAN
ÞAR VAR LAUNGUM HLEGIð
HáTT OG DáTT OG LáGT
ANZANS áRI MöRGU
GAMAN.
ÚT UM STéTTARNAR URðU
þAR EINAR SKRýTNAR
FURðUSöGUR
ÞEGAR SABBNAST SAMAN
VAR SUMARKVöLDIN
LJóSFöGUR.
EINS VIð BRUGGUðUM
OKKUR þá OFT á MILLI
Bæ-ANNA
TIL Að KáNKAST E-ð á
EðA TIL Að HLæ-ANNA.
MARTEINN KVöLD OG
MARGAN DAG
MáTTUM VIð í NæðINU
ÆVA SAMAN E-T LAG
EðA SYNGJA KVæðABáLK.
STúDENTAKVEðJA,
E-MM – OGGI
ÁRNI BSVEINSAR
Bílar
Árg. '02, ek. 92.000 km. BMW 530
dísel árg. 2002, ek. 92.000. Ljóst
leður, toppl. 2 dekkjagangar á felg-
um, sjónvarp, innbyggður gsm-sími,
Xenon, 193 hestöfl. Eyðir 7,5-10,5.
2,8 millj. staðgr. Uppl. 844 4386.
Einn magnaður. Toyota Avensis árg.
2005, 2.4 lítra vél, 163 hestöfl. 5
þrepa sjálfskipting, leðurinnrétting,
metalgrár, Cruise control, 17” álfelg-
ur. Aðeins ekinn 14.600 km. Eins og
nýr. Tilboð óskast í síma 894 4910 og
840 9105.
Frábær Toyota 4runner Sport 2005
V8. Eyðsla 12-17 lítrar, 270 hö vél. Ek.
13 þ. Stendur hjá bill.is, s. 577 3777.
Reynsluakstur mun koma verulega á
óvart! Bilanafríasti jeppi í USA 3 ár í
röð. Gott staðgreiðsluverðverð.
MMC (Mitsubishi) árg. '96, ek. 90
þús. km. MMC Lancer 4x4 station,
rauður. Er á heilsársdekkjum, dráttar-
kúla. Vel útlítandi og góður bíll,
aðeins 2 eigendur. Upplýsingar í síma
892 2026.
Peugeot 306 - Gerið verðsaman-
burð. Peugeot 306 station árg. 1998.
Aðeins ek. 90 þ. Ný tímareim, ný
skoðaður og dráttarkúla. Fjögur góð
nagladekk fylgja. Verð aðeins 390 þ.
Uppl. í síma 662 3070.
Til sölu Suzuki Grand Vitara XL7,
V6 árg. 2002, ek. 75.000 km, gullsans,
á nýlegum heilsársdekkjum, upph. m.
dráttarbeisli. Verð 1.690 þús., tilboð
óskast, ath. skipti ódýrari. Upplýsing-
ar í síma 825 0732, Magnús.
Til sölu vegna veðurs Dodge
RAM 1500 árg. 2003, ekinn 84 þ. km,
næsta skoðun 2007. HEMI Magnum
V8-5.7 l, 345 hestöfl. Heilsársdekk á
20” krómfelgum, leður, geislaspilari
og DVD spilari með tveimur þráðlaus-
um heyrnartólum. Bíllinn er skráður 6
manna, pallhús og vetrardekk á 17”
felgum fylgja. Verð 2.640 þ. Nánari
upplýsingar veitir Ólafur, or@os.is.
Athugið að nýjasti veðurhaunkurinn,
Hálfdán, hefur setið í bílnum!
Verðhrun á bílum!
Nýir og nýlegir bílar frá öllum helstu
framleiðendum allt að 30% undir
markaðsverði. Veldu úr þremur
milljón nýrra og nýlegra bíla í USA og
Evrópu. Íslensk ábyrgð og bílalán. 30
ára traust innflutningsfyrirtæki. Fáðu
betra tilboð í síma 552 2000 eða á
www.islandus.com
Þjónustuauglýsingar 5691100
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga.
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu
verði. Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Þjónusta
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
p
Smáauglýsingar sími 569 1100
stjörnuspá 03.12.06
Hrúturinn byrjar mánuðinn með látum, horfir út fyrir land-
steinana og spáir í menntun, ferðalög eða lagalegt efni. Á fullu
tungli í tvíbura 5. þessa mánaðar má búast við fréttum eða öðr-
um tjáskiptum og jafnvel óvæntum breytingum eða truflunum.
Brestur eða aðskilnaður gæti breytt ráðagerðum eða við-
brögðum, fólk sem hrúturinn tengist gæti ákveðið að taka nýja
stefnu. Á nýju tungli í bogmanni 20. desember gefst tækifæri til
þess að horfa fram á veginn, kannski verða þýðingarmiklar
samræður sem leiða til ákveðinnar stefnu. Það þýðir ekki að
umskipti séu óhugsandi. Samningaviðræður og ákvarðanir
tengdar vinnu eða samskiptum við yfirvöld koma við sögu.
Hrútur 21. mars–20. apríl
Fjármálin og sameiginlegar minningar eru efst á baugi.
Kannski einblínir nautið á hið stóra samhengi eða stöðuna í
peningamálum og á samskipti við fólk sem tengist fjár-
málastofnunum. Undiralda og erótík gerir vart við sig í lífi
nautsins og það á að vera sér meðvitandi um það sem fólk segir
og það sem fólk gerir, muninn þar á milli og hverju það virðist
vera á höttunum eftir. Á fullu tungli í bogmanni 5. desember má
búast við uppistandi, óvæntum tíðindum eða atburðarás sem
þér bregður við í tengslum við peninga. Dramatísk tíðindi gætu
verið á næsta leiti og þá er gott að geta hugsað standandi, eins
og sagt er. Ekki láta freistast til að fara yfir strikið.
Naut 20. apríl – 21. maí
Makar og nánir samstarfsmenn eru inni í myndinni um þessar
mundir. Hvatinn til að framkvæma verður utanaðkomandi á
næstunni og þeir sem eru nákomnir tvíburanum koma talsvert
við sögu. Vinnan eða samskipti við yfirvald koma hugsanlega
illa við ástvin eða einhvern sem þú þekkir vel á næstunni. Hita-
stigið hækkar þegar fullt tungl í tvíbura nálgast, 5. desember.
Búast má við einhverju eða að það hitni í kolunum. Kannski
áttu bráðum biðil eða keppinaut á næstunni. Einhver nákominn
verður uppreisnargjarn og ástríðufullur og tvíburinn þarf að
gera upp við sig hvernig hann á að bregðast við. Ákaft fólk
kemur við sögu innan tíðar, ekki síst konur. Sterk orð falla.
Tvíburi 21. maí – 20. júní
Vinna, heilsa og dagleg rútína kemur við sögu. Hversdagsleg
viðfangsefni verða í brennidepli. Kannski þarf krabbinn að
skipuleggja sig upp á nýtt eða breyta verklagi, hann verður að
minnsta kosti undir þrýstingi eða í nýjum og breyttum að-
stæðum. Eitthvað gæti komið eins og þruma úr heiðskíru lofti
sem truflar eða breytir myndinni á fullu tungli í tvíbura 5. des-
ember. Gefðu rykinu tíma til að setjast og haltu ró þinni. Ein-
hvers konar upphlaup verður eða sterkar tilfinningar koma upp
á yfirborðið. Vertu á varðbergi gegn átökum við vinnufélaga og
beindu kröftunum að fyrirliggjandi viðfangsefnum. Vinnutengd
óhöpp eða áföll gætu orðið vegna fljótfærni eða óþolinmæði.
Krabbi 21. júní–22. júlí
Rómantík og sköpun er framundan. Hressandi viðfangsefni
munu örva hjartsláttinn og blóðrásina. Ljónið langar til þess að
lifa lífinu til fullnustu og njóta uppáhalds skemmtunar sinnar.
Fullt tungl verður í tvíbura 5. desember, hafðu gætur á einka-
neyslunni. Einhvers konar uppnám gæti orðið í samskiptum.
Leynilegt mál gæti komið upp á yfirborðið. Kannski á ljónið í
útistöðum við vin eða einhvern nákominn. Ráðstafanir gætu
breyst án fyrirvara. Kannski lætur ljónið freistast til þess að
ryðjast áfram eða láta slag standa. Ný afþreying eða spennandi
ástvinur gæti komið til sögunnar. Eða það lætur freistast til
þess að taka áhættu í fjárfestingum. Ekki gleyma þér.
Ljón 23. júlí – 23. ágúst
Fjölskylda og heimilislíf eru efst á baugi. Meyjan einbeitir sér
að því sem er að gerast og mun gerast á heimilinu. Kannski er
hún til í að einbeita sér þar í bili. Gestir gætu komið, eða þá að
hún ákveður að lagfæra eða kaupa eitthvað fyrir heimilið. Nám
og samskipti við fólk í fjarlægu landi koma jafnvel við sögu og
meyjan fær hugsanlega tækifæri til þess að fagna eða efna til
einhvers konar uppákomu. Talsverðar annir blasa við fram að
jólum, vertu viðbúin einhverju óvæntu eða breytingum þegar
fullt tungl í tvíbura 5. desember nálgast. Ráðstafanir breytast,
fólk kemur eða fer án viðvörunar. Það verður mikið á döfinni og
meyjan veit ekki hvort hún er að koma eða fara.
Meyja 23. ágúst–23. september