Morgunblaðið - 03.12.2006, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 03.12.2006, Blaðsíða 80
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 337. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: auglysingar@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  NA-átt 13–18 m/s suðaustantil síðdegis, annars hægari. Létt- skýjað suðvestan- og vestanlands. » 8 Heitast Kaldast 5°C -5°C „ÞAÐ hefur verið voðalegt leyndarmál í mínum huga en getur líklega ekki verið það lengur þar sem ég fékk á dögunum styrk úr menningarsjóði KEA til að halda upp á fimmtíu ára söngafmæli mitt í vor. Það hafa margir hvatt mig til að gera þetta og því betur sem ég hef hugsað þá langar mig að láta slag standa. Það eru ekki margir sem geta haldið upp á fimm- tíu ára söngafmæli sitt.“ Þetta upplýsir Helena Eyjólfsdóttir söngkona í samtali við Morgunblaðið. Fyrirhugað er að halda tónleikana í Salnum í Kópavogi í mars nk. Á tónleik- unum ætlar Helena að syngja lög sem hún hefur sungið gegnum tíðina, dægurlög í bland við djass og „ná upp smá Sjalla- stemningu með gömlu vinunum“. | 30 Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Helena Eyjólfsdóttir söngkona. Hálfrar aldar söngafmæli Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is LÚÐVÍK Gizurarson hæstaréttarlögmaður hefur um langa hríð háð baráttu fyrir því að fá úr því skorið hvort Hermann heitinn Jón- asson, fyrrum forsætisráðherra og formað- ur Framsóknarflokksins, hafi verið faðir hans. Upphafleg krafa hans var sú að lífsýni úr honum sjálfum, Dagmar móður hans og Hermanni yrðu borin saman til þess að skera úr um hvort Hermann væri faðir hans og síðar að blóðsýni úr honum og börnum Hermanns yrðu borin saman. Tvívegis hefur Héraðsdómur Reykjavík- ur heimilað slíka rannsókn en Hæstiréttur hefur jafnoft snúið við dómi héraðsdóms og synjað um rannsóknina. Málaferlum er ekki lokið, því Héraðsdómur Reykjavíkur hefur nú heimilað blóðrannsókn í þriðja sinn, á grundvelli frekari vitnaleiðslna á vegum Lúðvíks, en sá úrskurður hefur verið kærð- ur til Hæstaréttar af börnum Hermanns. Í skriflegum vitnisburði systkina Lúð- víks, sem héraðsdómur hefur þegar tekið afstöðu til, segir m.a.: „Nú eftir að málaferli þessi eru komin í hámæli, teljum við að ekki verði vikist undan þeirri skyldu að bera sannleikanum vitni. Hann er sá, að báðir foreldrar okkar töldu Lúðvík son Her- manns Jónassonar. Þess erum við einnig fullviss og kemst þar enginn efi að. Yfirlýs- ingu þessa gefum við að viðlögðum dreng- skap.“ Undir yfirlýsinguna rita tvö systkin Lúðvíks. Dóra Lúðvíksdóttir segir m.a. í samtali við Morgunblaðið í dag: „Allt frá því ég var lítil stúlka hef ég heyrt að Hermann Jón- asson væri faðir föður míns, þ.e. afi minn. … Það var svo ekki fyrr en ég var orðin full- orðin, að ættingjar mínir sögðu mér beinum orðum, að amma mín hefði átt föður minn með Hermanni.“ Dóra segir að þetta sé spurning um grundvallarmannréttindi, sem varin séu með barnalögunum með skýrum hætti. | 10 Fer aftur til Hæstaréttar Faðernismál Lúðvíks Gizurarsonar lögmanns STARFSMENN Reykjavíkurborgar voru í gær að ljúka við að setja upp jólatréð á Austurvelli. Kveikt verður á trénu í dag, sunnudag, kl. 15:30. Lúðrasveit Reykjavíkur mun m.a. leika jólalög. Rúm hálf öld er síðan Norðmenn færðu Íslendingum í fyrsta sinn grenitré að gjöf. Morgunblaðið/ÞÖK Búið að skreyta jólatréð Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is JÓN Sigurðs- son, formaður Framsóknar- flokksins, hafði ekki samráð við Halldór Ás- grímsson, fyrr- verandi for- mann flokksins, áður en hann flutti ræðu sína á miðstjórnarfundi flokksins um síðustu helgi. „Ég hafði ekki sér- stakt samráð við Halldór í aðdrag- anda miðstjórnarfundarins,“ segir Jón í viðtali við Morgunblaðið í dag. Aðspurður kveðst Jón ekki hafa heyrt í Halldóri eftir miðstjórnar- fundinn. Hann telur ekki að Halldór líti þannig á að hann hafi komið í bakið á honum með umsögn sinni um ákvarðanatöku íslenskra stjórn- valda um stuðning við stríðið í Írak: „Það kæmi mér mjög á óvart. Ég hef enga ástæðu til þess að vinna þannig gagnvart honum, þó að ég sé honum ekki sammála í einu og öllu. Þú sérð það til dæmis, ef þú lest ræðuna mína, að í henni eru margar áherslur aðrar en Halldór Ásgríms- son hefur lagt. Í því felst enginn áfellisdómur; í því felst einfaldlega að ný forysta er að líta yfir sviðið, meta stöðu og horfur og skerpa á sérstöðu, arfi og erindi Framsókn- arflokksins við þjóðina á nýjan hátt,“ segir Jón. Samsteypur auðmanna leggi ekki allt landið undir sig Viðskiptaráðherra segir að tryggja verði að hér sé raunveruleg samkeppni og valfrelsi og það verði ekki þannig „að örfáar samsteypur auðfélaga og auðmanna leggi allt landið undir sig“. Ráðherrann telur að það sé far- sælast að gera það á þann veg að reynt verði að efla, styrkja og treysta stöðu litlu fyrirtækjanna og þeirra sem eru að berjast við að koma inn á markaðinn, til dæmis sprotafyrirtækja og nýsköpunar- fyrirtækja. „Það er hægt að gera með margvíslegum hætti, en ég vil leggja á það sérstaka áherslu, að það verður aldrei gert í eitt skipti fyrir öll. Það er alveg sama hvað er gert, það þarf alltaf að huga að næstu skrefum. Þannig er þetta ei- lífðarverkefni, því að frjálst at- hafnalíf heldur áfram, þróast og breytist og þannig þarf lagaramm- inn um athafnalífið einnig stöðugt að þróast og breytast. En við verð- um líka að hafa það í huga að í litlu hagkerfi verður fákeppni og jafnvel einokun á ýmsum sviðum, og þá þarf að bregðast við þessu í sam- keppnislögum,“ segir Jón Sigurðs- son. Hafði ekki sam- ráð við Halldór Ný forysta flokksins er að meta stöðu og horfur og skerpa á sérstöðu sinni Jón Sigurðsson  Nýr formaður | 24 ♦♦♦ Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is FYRSTI áfangi hitaveitu í borg- inni Xian Yang í Kína verður form- lega tekinn í notkun í dag við hátíð- lega athöfn, en uppbygging hitaveitunnar er samstarfsverk- efni Shaanxi Geothermal Energy og ENEX Kína, sem að standa Orkuveita Reykjavíkur, Glitnir og ENEX, en það er útflutningsvett- vangur íslenskra þekkingarfyrir- tækja í orkuvinnslu. Valgerður Sverrisdóttir, utan- ríkisráðherra, mun gangsetja hina íslensk-kínversku hitaveitu. Miklar vonir eru bundnar við hitaveituna og er stefnt að því að hún verði sú stærsta í heimi, en í Xian Yang búa um fimm milljónir manna. Orkuveita Reykjavíkur er bæði hluthafi í ENEX og ENEX Kína og hefur verið frumkvöðull útrásar á þessu sviði. Glitnir, sem hefur verið að hasla sér völl í ráðgjöf og fjármögnun á sviði endurnýjanlegrar orku, hefur annast fjármögnun á framkvæmd- inni og er jafnframt í hópi stærstu hluthafa félagsins. Fyrsti áfanginn kostaði rúmar 200 milljónir króna, en sá næsti sem ráðgert er að ráð- ast í á næsta ári er mun stærri og metinn á um 4,2 milljarða króna. Hann felst í lagningu hitaveitu í nýtt íbúðahverfi í borginni, en Xian Yang er nánast öll hituð með kol- um í dag. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra mun gangsetja hitaveituna og munu fulltrúar ís- lenskra orkufyrirtækja, ásamt kín- verskum fyrirmennum, verða við- staddir. Verkefnið í Xian Yang hefur þegar haft veruleg áhrif á viðhorf stjórnvalda í Kína til jarðhitans. Þannig var borgin opinberlega út- nefnd „Jarðhitaborg Kína“ fyrr á þessu ári. Brenndu áður kolum Í þessum fyrsta áfanga er hita- veitan leidd í allar byggingar stórs framhaldsskóla í borginni, alls um 160 þúsund fermetra. Það fól í sér borun tveggja vinnsluholna og varmaskiptastöðvar. Fram til þessa hefur húsnæðinu verið hald- ið heitu með brennslu á kolum. Jarðhiti og orka sprottin af hon- um er skilgreind sem „græn orka“ í orkustefnu Kínverska alþýðulýð- veldisins og jafnframt talin hafa í för með sér stórkostlega mögu- leika til að sjá Kína og öðrum lönd- um fyrir hreinni orku til húshitun- ar. Íslensk-kínversk hita- veita gangsett í dag Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, gangsetur kínversku hita- veituna í dag, en að uppbyggingu veitunnar koma OR, ENEX og Glitnir Framkvæmdir Miklar vonir eru bundnar við hitaveituna í Xian Yang. Í HNOTSKURN »Stefnt er að því að hita-veitan í Xian Yang verði sú stærsta í heimi en í borg- inni búa um fimm milljónir. »Næsti áfangi kostar 4,2milljarða króna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.