Morgunblaðið - 03.12.2006, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.12.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 2006 41 vandamálum, sem til staðar eru í þeim heimshluta en ekki þeim stórfelldu framförum, sem þar hafa orðið. Í ríkjum Afríku er að rísa upp kynslóð há- menntaðs ungs fólks, sem hefur vaxandi áhrif á þróun þessara ríkja. Þótt þetta sé sagt má ekki gleyma því, að allt er afstætt. Vandamálin, sem Afríkuríkin eiga við að etja, eru eftir sem áður hrikaleg. Og enn eru Íslendingar, sem starfað hafa í Afríku eða heimsótt hafa Afríkuríkin, að koma heim breyttir menn, sem munu aldrei sjá til- veruna sömu augum og áður vegna hlutskiptis þess fólks, sem þar býr og þeir hafa séð með eigin augum. Má í því sambandi minna á þá ákvörðun landlæknishjónanna Sigurðar Guðmundssonar og Sigríðar Snæbjörnsdóttir að hverfa um skeið til starfa í Afríku til þess að leggja sitt af mörkum þar. Einn af viðmælendum Morgunblaðsins, sem lengi starfaði í Afríku, hafði orð á því fyrir skömmu, að hann væri sennilega búinn að vera of lengi í Afríku til þess að skilja umhverfi sitt hér. Og átti þá við, að honum þótti kröfurnar sem hér eru gerðar til daglegs lífs og umbúnaðar þess fá- ránlegar. Þar væri hægt að gera ótrúlega mikið með ótrúlega litlu. Ný nálgun N ý og óvænt sjónarmið eru að koma fram í umræðum um sam- skipti Vesturlandaþjóða og múslíma. Sú nýja nálgun er fólg- in í því að lausnina sé ekki að finna í samskiptum ríkja í milli heldur í því starfi, sem fram fer í nærsamfélagi vestrænna stórborga. Þar sé að finna gróðrarstíu heiftar og haturs á milli fólks af ólíkum kynþáttum og trúarbrögðum. Þar verði til nýjar kynslóðir hryðjuverkamanna vegna þess að ungu múslím- arnir eygi enga von um betra líf. Þess vegna sé vígvöllurinn á milli kristinna þjóða Vesturlanda og múslíma ekki í Miðausturlöndum heldur á götum í fátækrahverfum stórborganna. Þegar þetta hefur verið sagt blasir þessi veru- leiki við hverjum sem vill sjá og heyra. Þetta snýst um virðingu og traust. Ef virðingin hverfur og traustið brestur verður aldrei hægt að endur- heimta það aftur, var sagt. Í Bretlandi er nú lögð stóraukin áherzla á þessa nálgun og þá er horft til framtíðar. Samtök hryðjuverkamanna nærast á þeirri endurnýjun, sem þau fá af götum vestrænna stórborga vegna þess að virðingin hvarf og traustið brást. Þetta er skynsamlegt að hafa í huga í þeim umræðum, sem hér fara nú fram og eru ekki endilega í ákjósan- legum farvegi. Samskipti Evrópu og Bandaríkjanna E inn af ræðumönnum á fundinum í Wilton Park var Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sendiherra Ís- lands í London, sem hefur nú einna lengsta starfsreynslu ís- lenzkra diplómata. Í ræðu sinni – sem töluvert var vitnað til í þessum umræðum – vakti Sverrir Haukur athygli á því, að þeim fækk- ar nú mjög í Washington, sem hafa áhuga á og leggja áherzlu á samskiptin við Evrópuríkin. Þeir áhrifamenn í Washington, sem enn telja að Evr- ópa skipti máli fyrir Bandaríkin, eru yfirleitt fæddir í Evrópu og nefndi sendiherrann í því sam- bandi Henry Kissinger, Zbigniew Brzezinski og Madeleine Albright. En hann benti jafnframt á, að mjög hefur dregið úr beinum áhrifum þessa fólks á bandaríska utanríkispólitík. Sverrir Haukur benti á, að á tímabilinu fram til 2009 mundu verða alger umskipti í forystu bæði Evrópuþjóða og Bandaríkjanna og á þessari stundu væri ómögu- legt að segja til um í hvaða farveg þær breytingar mundu falla. Sendiherrann lýsti þeirri skoðun, að Evrópu- þjóðir gætu ekki breytt þeirri stefnu, sem nú ríkti vestan hafs en það væri hægt að hafa áhrif á hana með því að koma sjónarmiðum Evrópuþjóða stöð- ugt á framfæri við bandaríska ráðamenn. Hann benti líka á, að þau þjóðfélagsmál, sem mest áhrif mundu hafa á kjör næsta forseta Bandaríkjanna, væru framandi í augum okkar Evrópubúa og átti þá við pólitísk áhrif trúarhreyfinga í Bandaríkj- unum, dauðarefsingar í 37 ríkjum, þrönga fóstur- eyðingarlöggjöf í 36 ríkjum og takmörkuð réttindi samkynhneigðra. Við Íslendingar eigum erfitt með að skilja fram- komu Bandaríkjanna við okkur varðandi varnar- málin og Evrópuþjóðir almennt eiga erfitt með að skilja dvínandi áhuga Bandaríkjanna á þeirra mál- efnum. Að hluta til er skýringarinnar að leita í þeim efnisþáttum, sem sendiherra Íslands í Lond- on gerði að umtalsefni á fyrrnefndum fundi en að öðru leyti vafalaust einnig í afstöðu Bushstjórn- arinnar til umheimsins, sem sennilega er síðasta ríkisstjórnin í Bandaríkjunum, sem kemur fram við bandalagsríki sín af þeim hroka og afskipta- leysi, sem einkennt hefur samskipti núverandi valdhafa í Washington. Kína, Afríka og samskiptin við múslíma eru höfuðatriðin í hugum þeirra, sem reyna að átta sig á meginlínum í þróun heimsmála. Í því felst ekki að þau mál, sem mest eru í daglegum fréttum, skipti ekki máli. Deilur Ísraela og Palestínumanna eru enn óleystar. Og átakanlegt að hlusta á Palest- ínumenn tala um þau mál. Ef þeir eru spurðir hvort þeir njóti stuðnings frá Arabaríkjunum er svarið að þeir njóti stuðnings þeirra í ríkum mæli í orði en einskis stuðnings þegar til alvörunnar kemur. Þeir líta svo á, að Ísrael sé mesta hern- aðarveldið í Miðausturlöndum þótt dregið hafi úr yfirburðum þess gagnvart ríkjum eins og Íran og Sýrlandi. Þeir velta því fyrir sér hvort eina lausnin sé kannski sú að byggja upp eitt sameiginlegt ríki Ísraela og Palestínumanna. Þegar þeir horfa til allra átta sjá þeir Ísrael eða herskip frá Ísrael á þrjá vegu og svo Egyptaland, sem heldur sig til hlés nú orðið í þessum átökum. Í augum þeirra, sem reyna að horfa yfir heims- byggðina alla, eru þessar deilur hins vegar stað- bundið vandamál og önnur mál þrátt fyrir allt stærri. » Áhyggjur vestrænna ríkja af þessari þróun byggist m.a. áþví að stórfyrirtæki Vesturlanda bjóða Afríkuríkjum ekki upp á jafn hagstæða samninga og Kínverjar gera. Vesturlanda- fyrirtækin leggi mikla áherzlu á að græða eins mikla peninga og þau mögulega geta á viðskiptum við Afríku. Kínverjar leggi sig fram um að gera samninga, sem byggist á því að þeir fái í sinn hlut sanngjarnan hagnað en skilji meira af afrakstrinum eftir í höndum Afríkuríkjanna. rbréf Morgunblaðið/ÞÖK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.