Morgunblaðið - 18.12.2006, Qupperneq 42
42 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
M.M.J. Kvikmyndir.com
eeee
Blaðið
eeee
Þ.Þ. Fbl.
Eragon kl. 5.50, 8 og 10:10 B.i. 10 ára
The Holiday kl. 5.40 og 8
Saw 3 kl. 10.30 B.i. 16 ára
Eragon kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 10 ára
Eragon LÚXUS kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20
The Holiday kl. 8 og 10:45
Casino Royale kl. 5, 8 og 10.50 B.i. 14 ára
Borat kl. 10.10 B.i. 12 ára
Hátíð í bæ / Deck the halls kl. 3.40, 5.50 og 8
Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 3.20
Mýrin kl. 5.40 B.i. 12 ára
Skógarstríð m.ísl.tali kl. 3.40
JÓLAMYNDIN Í ÁR
Frábær rómantísk gamanmynd frá Nancy
Meyers leikstjóra What Women Want og Something´s Gotta Give.
Cameron
Diaz
Kate
Winslet
Jude
Law
Jack
Black
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
eee
S.V. MBL.
eee
MMJ, KVIKMYNDIR.COM
Þegar myrkrið skellur á...hefst ævintýrið!
Stórkostleg ævintýramynd
byggð á magnaðri metsölubók
JÓLAMYNDIN 2006
47.000 MANNS
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Jóla- og hátíðarsöngtónleikar
verða haldnir í Dómkirkjunni
mánudaginn 18. desember kl. 20.
Flytjendur eru Hulda Guðrún
Geirsdóttir sópran, Kristín R. Sig-
urðardóttir sópran og Julian Hew-
lett píanóleikari. Fluttir verða jóla-
dúettar, sönglög og aríur.
Miðar verða seldir við inngang
og kosta 1.500 kr.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Jólasýning Smiðjunnar – Listhúss,
Ármúla 36, stendur nú yfir. Gömlu
meistararnir í bland við yngri lista-
menn, þ.á m. Þorvald Skúlason, Jón
Stefánsson, Jóhann Briem, Kjarval,
Hafstein Austmann, Valgarð Gunn-
arsson og Tolla, svo fátt eitt sé
nefnt. Opið virka daga frá kl. 10–18
og laugardaga frá kl. 12–17. Allir
velkomnir.
Stórtónleikar kirkjukórs Lága-
fellssóknar í Mosfellsbæ verða
haldnir í Fríkirkjunni í Reykja-
vík miðvikudaginn 20. desember
kl. 20. Tónleikarnir eru til
styrktar Grétu Rósný Jónsdóttur
í Innri-Njarðvík og þremur dætr-
um hennar en þær misstu fjöl-
skylduföðurinn í bílslysi í sumar
sem leið. Kirkjukór Lágafells-
sóknar ásamt hópi listamanna
heldur tónleikana.
Stjórnandi kórsins er Jónas
Þórir. Þeir sem koma fram á tónleikunum auk kirkjukórs Lágafellssóknar
eru: Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú), Egill Ólafsson, Jóhann Friðgeir Valdi-
marsson, Bergþór Pálsson, Margrét Árnadóttir, Ívar Helgason, Hanna
Björk Guðjónsdóttir, Björg Birgisdóttir, Anna Sigríður Helgadóttir og
Margrét Eir ásamt strengjasveit en hana skipa Eva Harðardóttir, Sigrún
Harðardóttir, Hjörleifur Valsson og Sveinn Birgisson ásamt öðrum tónlist-
armönnum. Aðgangseyrir 2.000 kr.
Tónlist
Dómkirkjan | Jóla- og hátíðarsöng-
tónleikar verða haldnir í Dómkirkjunni
mánudaginn 18. desember kl. 20. Flytj-
endur eru: Hulda Guðrún Geirsdóttir sópr-
an, Kristín R. Sigurðardóttir sópran og
Julian Hewlett píanóleikari. Fluttir verða
jóladúettar, sönglög og aríur.
Grafarvogskirkja | Brynjólfsmessa eftir
Gunnar Þórðarson verður flutt í Graf-
arvogskirkju 18. des. kl. 20. Kirkjukórar
Keflavíkur-, Skálholts- og Grafarvogskirkju
ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Jóhanni
Friðgeiri Valdimarssyni og hljómsveitinni
Jóns Leifs Camerata flytja Brynjólfs-
messu. Hákon Leifsson stjórnar.
Myndlist
Anima gallerí | Bjarni Sigurbjörnsson, Jón
Óskar og Kristinn Már. Til 23. des.
Artótek Grófarhúsi | Anna Hallin mynd-
listarmaður sýnir teikningar og myndband
á Reykjavíkurtorgi í Borgarbókasafni
Tryggvagötu 15. Til áramóta. Nánar á
www.artotek.is.
Café 17 (verslunin 17) | Mæja sýnir 20 ný
málverk, flest eru lítil en hver mynd er æv-
intýri út af fyrir sig. Álfar og litir eru ein-
kenni mynda Mæju. Allir velkomnir.
Café Mílanó | Ingvar Þorvaldsson er með
málverkasýningu. Sýnd eru 10 ný olíu-
málverk. Sýningin stendur til áramóta.
Gallerí 100° | Sýning á myndlist í eigu
Orkuveitu Reykjavíkur. Opið virka daga kl.
8.30–16.
Gallerí Skálinn | Gallerí Skálinn, Seyð-
isfirði. Garðar Eymundsson og Rúnar Loft-
ur sýna teikningar, pastelmyndir, vatns-
litamyndir og olíumyndir. Opið eftir hádegi
alla daga til jóla.
Gallerí Úlfur | Sigurdís Harpa Arnarsdóttir
opnar sýningu laugardaginn 9. des kl. 16 og
stendur sýningin út desember. Opið virka
daga frá 14–18.
Gerðuberg | Gerðuberg á í safni sínu um
1.000 listaverk eftir börn sem unnin voru í
listsmiðjunum Gagni og gamni sem starf-
ræktar voru sumrin 1988–2004. Fyrirtæki
og stofnanir geta fengið leigð verk úr safn-
inu til lengri eða skemmri tíma.
Sýning á myndskreytingum í íslenskum
barnabókum 2006. Sýningin stendur til 21.
janúar 2007. Tekið er á móti átta ára
skólabörnum í samstarfi við Borg-
arbókasafnið
| Hugarheimar – Guðrún Bergsdóttir sýnir
útsaum og tússteikningar. Ein allsherjar
sinfónía fjölskrúðugra lita og forma; eins
og íslensk brekka þakin berjum að hausti
eða brúðarklæði frá Austurlöndum. Verk
Guðrúnar vitna um hina óheftu tjáningu
sem sprettur fram úr hugarheimi hennar.
Sýningin stendur til 21. janúar. Sjá
www.gerduberg.is.
Hafnarborg | Ljósmyndarinn Spessi til 30.
desember. Verkin eru úr væntanlegri bók
sem mun bera titilinn „Locations“ og kem-
ur út nú fyrir jólin. Sýningin í Hafnarborg
hefur fengið sömu yfirskrift. Þarna er fyrst
og fremst um að ræða myndir af stöðum
sem bera ummerki mannfólksins.
Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, sýnir í Sverr-
issal og Apóteki. Á sýningunni verða stein-
leirsmyndir og verk unnin á pappír með ak-
rýl, olíukrít, pastel og bleki.
Hjá Marlín | Birgir Breiðdal, Biggi, sýnir til
23. desember.
Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 8. janúar.
Kaffi Sólon | Elena Fitts sýnir málverk á
Sólon. Verkin eru unnin með olíu á striga.
Elena fæddist 1984 í Úkraínu, byrjaði að
teikna mjög ung. Hún flutti til Íslands 1999
og ári síðar hóf hún að nota olíuliti. Til 5.
janúar.
Listasafn Einars Jónssonar | Lokað í des-
ember og janúar. Höggmyndagarðurinn við
Freyjugötu er alltaf opinn.
Listasafn Íslands | Frelsun litarins/Regard
Fauve, sýning á frönskum expressjónisma í
upphafi 20. aldar. Sýningin kemur frá Mu-
sée des beaux-arts í Bordeaux í Frakklandi,
52 verk eftir 13 listamenn. Sýning á verk-
um Jóns Stefánssonar í sal 2. Opið 11–17
alla daga, lokað mánudaga. Ókeypis að-
gangur.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús |
Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Margir
af fremstu listamönnum Bandaríkjanna,
sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýn-
ingunni. Sýningarstjórarnir eru í fremstu
röð innan hins alþjóðlega myndlistarvett-
vangs. Sýningin hefur farið víða um heim,
m.a. til New York og Lundúna.
Listasetur Lafleur | Sölusýning stendur nú
yfir í Listasetri Lafleur á myndverkum
Benedikts S. Lafleur. Benedikt sýnir þar
myndaskúlptúra sína og glerlistaverk.
Myndaskúlptúrarnir eru nýjung í myndlist
þar sem þeir sameina listform á frumlegan
hátt. Gestir geta notið bókakaffis Lafleur-
útgáfunnar og slakað á í jógarými. Til 23.
des.
Ófeigur listhús | Skólavörðustíg 5. Mál-
verkasýning Ómars Stefánssonar. Sýningin
stendur til áramóta og er opin á versl-
unartíma.
Skaftfell | Haraldur Jónsson sýnir „Fram-
köllun“ í Skaftfelli, menningarmiðstöð á
Seyðisfirði. Bjargey Ólafsdóttir sýnir
vinnuteikningar; „ég missti næstum vitið“,
á Vesturveggnum. www.skaftfell.is.
Smiðjan-Listhús | Jólasýning Smiðjunnar-
Listhúss, Ármúla 36, stendur nú yfir.
Gömlu meistararnir í bland við yngri lista-
menn þ.á m Þorvald Skúlason, Jón Stef-
ánsson, Jóhann Briem, Kjarval, Hafstein
Austmann, Valgarð Gunnarsson og Tolla
svo fátt eitt sé nefnt. Opið virka daga kl.
10–18 og laug. kl. 12–17. Allir velkomnir.
Þjóðminjasafn Íslands | Á Veggnum í Þjóð-
minjasafninu stendur yfir jólasýning með
myndum tvíburabræðranna Ingimundar og
Kristjáns Magnússona. Myndirnar fanga
anda jólanna á sjöunda áratugnum. Margt í
þeim ætti að koma börnum í jólaskap og
fullorðna fólkið þekkir þar vafalaust hina
sönnu jólastemningu bernsku sinnar.
Í Myndasal Þjóðminjasafnsins eru til sýnis
þjóðlífsmyndir úr safni hins þjóðþekkta
Guðna Þórðarsonar í Sunnu, blaðamanns,
ljósmyndara og ferðamálafrömuðar. Mynd-
irnar tók hann við störf og ferðalög á tíma-
bilinu 1946–60. Þær eru eins og tímasneið
frá miklu umbrotaskeiði í sögu þjóðarinnar.
Í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir
sýning á útsaumuðum handaverkum list-
fengra kvenna frá fyrri öldum. Sýningin
byggist á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson
textíl- og búningafræðings. Myndefni út-
saumsins er fjölbreytt, m.a. sótt í Biblíuna
og kynjadýraveröld fortíðarinnar.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Nú stend-
ur yfir á Bókatorgi í Grófarhúsi, Tryggva-
götu 15, 1. hæð sýningin „… hér er hlið him-
insins“ sem Borgarskjalasafn Reykjavíkur
vann í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hall-
grímskirkju. Sýningin er opin virka daga kl.
11–19 og um helgar kl. 13–17. Aðgangur
ókeypis, allir velkomnir. Til 7. jan.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð-
leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu-
leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is. Sími 586 8066.
Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn
| Í spegli Íslands er lítil sýning í forsal þjóð-
deildar safnsins. Þar er sagt frá ferðasög-
um til Íslands í gegnum aldirnar. Sjá nánar
á heimasíðu: www.landsbokasafn.is.
Sú þrá að þekkja og nema … Sýning til
heiðurs Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili –
150 ára minning. Jónas var prestur, rithöf-
undur, þýðandi og fræðimaður, eins og verk
hans Íslenskir þjóðhættir ber vott um. Sýn-
ingin spannar æviferil Jónasar. www.lands-
bokasafn.is.
Upp á Sigurhæðir – Matthías Jochumsson
var lykilmaður í þjóðbyggingu 19. aldar.
Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn
og Skugga-Svein, en skáldpresturinn sá
eftir sig 28 bækur, þar af 15 frumsamdar.
Sýningin stendur yfir til 31. desember.
Sjá heimasíðu safnsins, www.lands-
bokasafn.is.
Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminja-
safns | Í húsnæði Seðlabankans á Kalk-
ofnsvegi 1 hefur verið sett upp ný yfirlits-
sýning á íslenskum gjaldmiðli og öðru
efni í eigu safnsins. Þar er einnig kynn-
ingarefni á margmiðlunarformi um hlut-
verk og starfsemi Seðlabanka Íslands.
Gengið er inn um aðaldyr bankans frá
Arnarhóli. Aðgangur er ókeypis. Sýningin
er opin mán.–föst. kl. 13.30–15.30.
Þjóðmenningarhúsið | Að vanda eru fjöl-
breyttar sýningar í sölum Þjóðmenning-
arhússins. Þær eru: Íslensk tískuhönnun,
með fatalínum frá níu merkjum eða
hönnuðum í samhengi við íslenska nátt-
úru. Berlin Excursion, bókagerðarlist frá
forlagi rithöfunda og myndlistarmanna
frá Berlín. Fyrirheitna landið og Hand-
ritin að auki.
Þjóðminjasafn Íslands | Skoðunarferð
um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er
ævintýralegt ferðalag gegnum 1200 ár
sem hefst í skipi landnámsmanna og lýk-
ur í flughöfn nútímans. Fjölbreyttar sýn-
ingar, fræðsla og leikir fyrir alla fjölskyld-
una. Skemmtileg safnbúð og notalegt
kaffihúss. Opið alla daga nema mánu-
daga kl. 11–17.
Bækur
Þjóðmenningarhúsið | Upplestrarserían
Jólahrollur í hádeginu fer fram í Þjóð-
menningarhúsinu kl. 12.15 dag hvern til
jóla. Í dag les Steinar Bragi úr bók sinni
Hið stórfenglega leyndarmál heimsins.
Súputilboð á veitingastofunni. Safnbúð
með forvitnilegum bókum og öðrum
gripum.
Uppákomur
Þjóðminjasafn Íslands | Hurðaskellir
kemur til húsa 18. des. og lítur inn í Þjóð-
minjasafnið kl. 11. Hann gengur skelfing
harkalega um og skellir hurðum svo fólk
hefur varla svefnfrið. Skemmtilegt fyrir
fjölskyldur og ókeypis inn.
Fréttir og tilkynningar
Fjölskylduhjálp Íslands | Bráðum koma
blessuð jólin. Fjölskylduhjálpin hvetur
landsmenn til að gefa fatnað, leikföng og
borðbúnað vegna opnunar flóamarkaðar í
lok nóvember í Eskihlíð 2–4, Rvík í þágu
efnalítilla fjölskyldna. Tökum á móti mið-
vikudaga eða eftir samkomulagi kl. 13–17.
Svarað í síma 892 9603.
Happdrætti bókatíðinda | Númer dagsins
18. desember er: 30281.
Frístundir og námskeið
Lesblindusetrið | Sérsniðið hraðlestr-
arnámskeið fyrir 9–13 ára krakka. Hvers
virði er aukinn lestrarhraði? Gefðu barninu
þínu tækifæri á að skara fram úr með því
að tvöfalda, jafnvel margfalda, lestrarhraða
sinn. Leiðbeinandi er Kolbeinn Sig-
urjónsson, Davis-ráðgjafi hjá Les-
blindusetrinu í Mosfellsbæ. Sími 566 6664.
Börn
Dimmuborgir | Jólasveinarnir í Dimmu-
borgum, Mývatnssveit, taka á móti gestum
á Hallarflöt frá kl. 13 til 15.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn | Jóla-
sveinn dagsins kíkir í heimsókn í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinn í dag kl. 14. Hann mun
segja sögur af lífinu í fjöllunum og frá ýmsu
sem á daga hans hefur drifið. Fyrir þá sem
vilja koma fyrir hádegi er lesin jólasaga í
fjósinu kl. 10.45. Kíktu í heimsókn. Opið frá
10–17. www.mu.is.
Þjóðminjasafn Íslands | Á Torginu í Þjóð-
minjasafninu stendur yfir sýningin Sér-
kenni sveinanna. Á sýningunni er lítið jóla-
hús og sitthvað sem tengist jólasveinunum,
svo sem kjöt fyrir Ketkrók og bjúgu fyrir
Bjúgnakræki. Sýningin getur hjálpað börn-
unum til að skilja hin skrýtnu nöfn jóla-
sveinanna.
staðurstund
Myndlist
Jólasýning
Smiðjunnar
Tónlist
Jólastemning í
Dómkirkjunni
Tónlist
Jólaljós – styrktartónleikar
kirkjukórs Lágafellssóknar
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is