Morgunblaðið - 19.01.2007, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.01.2007, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 18. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is LADDI, ÁSTMÖGUR GRÍNS OG GAMANS, VERÐUR SEXTUGUR Á MORGUN >> 41 GAMLA, GÓÐA BORGIN IÐAR AF LÍFI HEITT SILFUR VEITINGASTAÐUR >> 24 Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is STJÓRNARSKRÁRNEFND mun ekki gera tillögu að ákvæði í stjórn- arskrá um sameign á náttúruauðlind- um þjóðarinnar fyrir þingkosningar í vor. Aðeins hefur náðst samkomulag um tillögu að formbreytingu sem lýt- ur að því að þjóðin geti samþykkt eða hafnað stjórnarskrárbreytingu. Heildarendurskoðun á stjórnar- skránni verður ekki lokið fyrir næstu kosningar, eins og stefnt var að. Var það mat margra nefndarmanna að ákvæði um auðlindir ætti heima í slíkri endurskoðun og að ekki bæri að taka það út sérstaklega. Össur Skarp- héðinsson, sem situr í nefndinni, segir það sitt mat að enginn efnislegur munur hafi verið á afstöðu nefndar- manna varðandi auðlindaákvæðið. Nefndin hafi átt að einbeita sér að málum sem samstaða gæti náðst um og þannig hafi því verið farið um auð- lindaákvæðið. Hins vegar hafi ekki verið vilji til þess að fara aðra leið en þá sem ofan á varð á þessu stigi. Skiptar skoðanir voru á því hvaða auðlindir ættu heima innan ákvæðis- ins, að sögn formanns nefndarinnar. Engin tillaga hafi verið gerð um slíkt ákvæði. Það hafi verið ákveðið að mál- ið fylgdi heildarendurskoðun stjórn- arskráarinnar. „Þær skoðanir voru uppi, hjá sum- um að minnsta kosti, að fara ekki í bútasaum,“ segir Jón Kristjánsson, formaður nefndarinnar. „Frekar að taka þessa formbreytingu fyrir og að leggja til að starf [nefndarinnar] haldi áfram og að menn reyni að ná saman um heildarendurskoðun.“  Ekki samstaða | 4 Ekkert ákvæði um auðlindir  Stjórnarskrárnefnd mun ekki skila tillögu að ákvæði um sameign náttúruauðlinda fyrir kosningar  „Þær skoðanir voru uppi, hjá sumum að minnsta kosti, að fara ekki í bútasaum,“ segir formaður Morgunblaðið/Brynjar Gauti Í bið Ákvæði um sameign þjóð- arinnar á náttúruauðlindum í stjórnarskrá bíður betri tíma. Í HNOTSKURN »Í október var orðið útséð umað það markmið að ljúka heildarendurskoðun á stjórn- arskrá fyrir kosningar næðist. »Þá var kannað hvort sam-staða næðist um afmörkuð atriði eins og breytingar á 79. grein og setningu ákvæðis um náttúruauðlindir. »Aðeins náðist samstaða umfyrra atriðið. París. AFP. | Efnahags- og fram- farastofnunin, OECD, sagði í gær að sérfræðingar hennar í barátt- unni gegn mútum hefðu „þungar áhyggjur“ af þeirri ákvörðun bresku stjórnarinnar að stöðva rannsókn á meintum mútu- greiðslum breska fyrirtækisins BAE Systems til manna í kon- ungsfjölskyldunni í Sádi-Arabíu. Fyrirtækið er grunað um að hafa mútað mönnunum til að tryggja því mjög ábatasama við- skiptasamninga en stjórn Bret- lands stöðvaði rannsóknina í síð- asta mánuði. Hún sagði að stjórnvöld í Sádi-Arabíu hefðu hót- að að slíta samstarfi landanna í ör- yggismálum og rannsóknin hefði því stofnað hagsmunum bresku þjóðarinnar í mikla hættu. OECD sagði að sérfræðingarnir hefðu miklar áhyggjur af því að ákvörðunin bryti í bága við sátt- mála um ráðstafanir til að stemma stigu við mútugreiðslum. Grunur um mútur Detroit. AFP. | Þau, sem eru í hjóna- bandi, búa í Michigan í Bandaríkj- unum og halda framhjá maka sín- um, ættu að vera vör um sig – þau gætu átt á hættu að verða dæmd í fangelsi til lífstíðar. Þetta varð ljóst eftir að áfrýj- unarréttur úrskurðaði að sækja mætti fólk til saka fyrir framhjá- hald sem 1. stigs glæp, eins og það er orðað, en það þýðir að hámarks- refsing er lífstíðarfangelsi. Ekki er þó búist við því að sak- sóknarar taki upp á því að hundelta fólk sem drýgir hór. Talið er að dómararnir hafi verið að senda hæstarétti ríkisins sneið, vegna áherslu hans á að lagatextinn sé tekinn bókstaflega. Dýrkeypt ótryggð ANDREW Bretaprins, hertogi af Jórvík, sótti höfuðstöðvar West Ham, Up- ton Park, heim í gær og snæddi þar hádegisverð með Eggerti Magnússyni, stjórnarformanni félagsins og eiginkonu hans, Guðlaugu Nönnu Ólafs- dóttur. Með heimsókninni vildi Andrew heiðra nýja eigendur West Ham, en hann hefur beitt sér af krafti fyrir því að laða erlenda fjárfesta til landsins. Eggert stóð í ströngu í gær við að styrkja leikmannahóp sinn. | Íþróttir Ljósmynd/Arfa Griffiths Andrew prins á Upton Park Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is GÖGN er varða varnarsamning Ís- lands og Bandaríkjanna sem Val- gerður Sverrisdóttir utanríkisráð- herra aflétti leynd af í gær vekja spurningar um hvort bandarísk her- yfirvöld hafi það á valdi sínu – jafnvel nú þegar þau hafa kallað allan her sinn frá landinu – að ákveða einhliða í tengslum við ófrið eða hernaðarlegt hættuástand að yfirtaka fulla stjórn og ábyrgð á almennri flugstarfsemi á Keflavíkurflugvelli. Valgerður greindi frá því í ræðu sem hún flutti í Háskóla Íslands í gær að það „andrúmsloft leyndarhyggju, sem áður var ríkjandi gagnvart þjóð, Alþingi og utanríkismálanefnd þegar að varnarmálum kom“ væri ekki það vinnulag sem hún vildi viðhafa. Sagði Valgerður að umræða um öryggis- og varnarmál þyldi það alveg, að vera dregin fram í dagsljósið. Af þeim sök- um hafi hún ákveðið að aflétta leynd af viðaukum sem undirritaðir voru við gerð varnarsamningsins 1951. Viðaukarnir voru gerðir aðgengi- legir á vef utanríkisráðuneytisins í gærkvöld. Jafnframt hefur ráðherra aflétt leynd af breytingum á viðauk- unum frá 1951 sem gerðar voru sl. haust í tengslum við varnaráætlun sem samið var um í kjölfar brott- hvarfs Bandaríkjahers frá Íslandi. Athygli vekur að í 2. gr. viðbætis um almenna flugstarfsemi frá 1951 er kveðið á um að bandarísk heryfirvöld muni „að svo miklu leyti sem herþörf krefur að þeirra dómi, taka í sínar hendur, á þeim tímabilum, er þau telja nauðsynlegt, fulla stjórn og ábyrgð á almennri flugstarfsemi (þ. á m. lendingar- og aðflugsstjórn) og flugþjónustu“. Þessu orðalagi var breytt sl. haust við samningsgerð Íslendinga og Bandaríkjanna en efnislega virðist greinin þó hin sama. Valur Ingimundarson, prófessor í sagnfræði við HÍ, segir að ef það sé enn á valdi bandarískra heryfirvalda að taka ákvarðanir sem þessar fái Bandaríkjamenn mjög greiðan hern- aðaraðgang að landinu samkvæmt eigin hernaðarmati í ljósi þess, að þeir ákváðu einhliða að leggja niður herstöðina og hverfa af landi brott. Ákvæði um yfirtöku á flugstarfsemi Utanríkisráðherra kveðst vilja gera upp málefni fortíðar og aflétta leynd ♦♦♦ Engin áform um að koma upp íslenskum her  Valgerður Sverrisdóttir ut- anríkisráðherra vill að Íslend- ingar stefni að því að landið verði áfram herlaust land. »12 Átta viðaukar birtir  Viðaukar varnarsamnings- ins frá 1951 eru alls átta. Efni þeirra snertir að mestu stöðu bandarískra hermanna hér á landi ásamt stöðu og notkun varnarsvæðisins. »12

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.