Morgunblaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is LÆKKUN á bensíni er ekki fyr- irsjáanleg á allra næstu dögum hjá olíufélögunum, þrátt fyrir 16% lækkun á Brent-olíu í Lundúnum frá áramótum. Tunnan er nú á um 52 bandaríkjadali en verðið fór í um 78 dali síðari hluta ársins 2006. Samhliða lækkun heimsmarkaðs- verðs hefur bandaríkjadalur lækkað undanfarna viku og stendur nú í 70 krónum eftir að hafa farið í 72 krón- ur fyrir viku. Bensínverð hjá stóru olíufélögun- um lækkaði síðast 12. janúar sl. og er nú algengt verð á 95 oktana bens- íni í sjálfsafgreiðslu 111 krónur. Mun skila sér til neytenda Magnús Ásgeirsson innkaupa- stjóri eldsneytis hjá Essó bendir á að fyrst og fremst sé um að ræða lækkandi heimsmarkaðsverð á hrá- olíu en ekki á bensíni og öðrum ol- íum. Ekki sé alltaf sama fylgni á milli verðbreytinga á hráolíunni og bifreiðaeldsneyti. Hann bendir eigi að síður á að breytingar á heims- markaðsverði skili sér til lengri tíma inn í bensínverðið en í augnablikinu sé slíkt ekki fyrirsjáanlegt. Hins vegar hafi skapast svigrúm til lækk- unar á bensíni hérlendis 12. þessa mánaðar vegna hráolíulækkunar. „Hráolíuverðið hefur hækkað og lækkað að undanförnu þannig að það er mjög erfitt að segja til um verðbreytingar núna,“ segir hann en bætir við að heimsmarkaðsverðið verði að lækka meira til að íslenskir neytendur geti vænst lækkunar á bensíni. Már Erlingsson innkaupastjóri rekstrarsviðs hjá Skeljungi bendir á að bensínverð hafi verið að lækka allt frá því í júlí 2006 en á sama tíma hafi olíuverð á mörkuðum sveiflast gífurlega með því t.d. að allt að 3 dala munur hafi verið á hæsta og lægsta verði á einum og sama deg- inum. „Ef þessi lækkun núna er komin til að vera, þá mun hún skila sér til neytenda hérlendis á end- anum,“ segir hann og tilgreinir að bensínverðinu hafi verið breytt ná- lega einu sinni í viku á síðasta ári, þar af hafi „grimmar“ lækkanir átt sér stað í nóvember. Þurfa að sjá meiri lækk- un á olíumörkuðum                                             !         "#$%&&&  !  "#$%'(  "#$%)*+, $       $! (                 $!   - ) . /0 1 - ) . /0 1 - ) . /0 1 Um 16% lækkun á markaði í London FULLTRÚAR Samfylkingar og Vinstri grænna í borgarráði lögðu fram tillögu á fundi ráðsins í gær um að stjórnkerfisnefnd yrði falið „að taka kröfur, vinnuferla og eftirlit, þar sem borgin felur utanaðkomandi aðilum að sinna þjónustu sem er lög- boðið verkefni sveitarfélaga, til gagngerrar endurskoðunar og leggja tillögur til úrbóta fyrir borg- arráð hið fyrsta.“ Afgreiðslu tillögunar var frestað, en hún var lögð fram í framhaldi af því að skýrsla Ríkisendurskoðunar um málefni Byrgisins var til um- ræðu. Jafnframt lýsti borgarráðs- fulltrúi VG „furðu sinni á því and- varaleysi sem ríkt hefur um hag vímuefnasjúklinga af hálfu hins op- inbera undanfarin ár. VG telur ein- boðið að landlæknisembættið rann- saki með hvaða hætti meðferðar- og umönnunarstarf hefur verið fram- kvæmt á meðferðarstofnunum und- anfarin ár. Þá vekur athygli hversu seint og illa félagsmálaráðherra brást við þegar ljóst var að í óefni stefndi hjá Byrginu.“ Borgaráðsfulltrúar Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks lögðu einnig fram bókun þar sem fram kemur að það sé sannarlega mikil- vægt og nauðsynlegt að opinberir aðilar fylgist vel með og geri skýrar kröfur um nýtingu fjármuna sem fara frá skattgreiðendum til hinna ýmsu þjónustuaðila sem njóta opin- bers stuðnings. „Því er hins vegar al- farið hafnað að andvaraleysi hafi ríkt um hag vímuefnasjúklinga undan- farin ár. Öðru nær hafa stjórnvöld, bæði ríki og sveitarfélög, leitað margra leiða til að auka aðstoð við og bæta hag þessa hóps. Það var full- komlega eðlilegt að setja málið í þann farveg sem gert var.“ Mál Byrg- isins rætt í borgarráði Þjónusta utanaðkom- andi aðila verði skoðuð Borgarráð hefur beint þeim til- mælum til samgönguyfirvalda að stærri viðskiptavinum á sviði fjar- skipta, svo sem sveitarfélögum og stofnunum, verði gert kleift að kaupa ákveðna bandbreidd í net- sambandi við útlönd og að samráð sé haft við sveitarfélögin í und- irbúningsferlinu þar sem um svo mikið hagsmunamál sé að ræða fyr- ir þau. Þetta var samþykkt á fundi borg- arráðs í gær þar sem fagnað er þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hefja nú þegar undirbúning að lagningu nýs sæstrengs til Bret- landseyja. „Reykjavíkurborg vill stuðla að öflugu atvinnulífi í borg- inni og þessi mikilvæga samgöngu- æð er hluti af sjálfsögðu atvinnu- umhverfi nútímafyrirtækja.“ Bandbreidd fáist keypt Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is EKKI náðist samkomulag um það í stjórnarskrárnefnd að gera tillögu að ákvæði í stjórnarskrá sem mælti fyrir um þjóðareign á náttúruauð- lindum sem ekki væru í einkaeigu, fyrir komandi þingkosningar. Að mati Össurar Skarphéðinssonar, sem sæti á í nefndinni fyrir hönd Samfylkingarinnar, var enginn raunverulegur munur á afstöðu nefndarmanna varðandi slíkt ákvæði. Jón Kristjánsson, formaður nefndarinnar, segir samkomulag hafa náðst um að gera tillögu að formbreytingu stjórnarskrárinnar, er varðaði breytingu á 79. gr. henn- ar. Hins vegar er útséð um að nefnd- in nái að ljúka heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar, sem m.a. varða tillögu að auðlindaákvæði sem og fjölda annarra breytinga sem til um- ræðu voru. Jón segir skiptar skoðanir hafa verið um það hvaða auðlindir ættu heima innan ákvæðisins. Ekki hafi reynt á hvort samkomulag hefði náðst innan nefndarinnar um út- færslu þess. Það hafi orðið ofan á að þetta mál fylgdi heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Hins vegar hafi náðst samkomulag um að gera til- lögu sem feli í sér formbreytingu, þ.e. að þjóðin geti samþykkt eða hafnað stjórnarskrárbreytingu án þess að rjúfa þurfi þing. „Það var ekki komið samkomulag um heildarendurskoðun og að taka eitthvað út úr og meðhöndla það sér- staklega,“ segir Jón um auðlinda- ákvæðið. „Þær skoðanir voru uppi hjá sumum að minnsta kosti að fara ekki í bútasaum. Frekar taka þessa formbreytingu og að leggja til að starf [nefndarinnar] haldi áfram og að menn reyni að ná saman um heild- arendurskoðun.“ Að sögn Össurar Skarphéðinsson- ar hafa allir stjórnmálaflokkar nema Sjálfstæðisflokkurinn ályktað um sameign þjóðarinnar á auðlindum. Samkvæmt stjórnarsáttmála ríkis- stjórnarflokkanna væri stefnt að því að fá slíkt ákvæði inn í stjórnarskrá. „Þess vegna taldi ég að það yrði mjög auðunnið að fá þetta inn í stjórnarskrána núna,“ segir Össur. „Ég gat aldrei merkt að það væri einhver raunverulegur munur á af- stöðu manna, í grundvallaratriðum fannst mér að það væri mjög mikill samhljómur með nánast öllum fulltrúum sem þarna sátu.“ Össur segist hafa talið að nefnd- armenn ættu að einbeita sér að því að ná niðurstöðu um að útfæra breytingar sem væri líklegt að hægt væri ná samkomulagi um. „Ég taldi þetta mál standa einna næst því.“ Aðrir hafi hins vegar talið að ekki væri hægt að fara þá leið heldur yrði það að vera hluti af heildarendur- skoðun. „Það var einfaldlega ekki vilji til að fara aðra leið en þessa á þessu stigi,“ segir Össur aðspurður um hvort samkomulag hafi náðst um að fresta heildarendurskoðun. Of langt í land Forsætisráðherra skipaði stjórn- arskrárnefnd í janúar 2005 og átti hún að ljúka störfum nú um áramót. Átti nefndin í fyrstu að einbeita sér að endurskoðun þeirra kafla er sneru að æðstu stjórn ríkisins og dómstólum. Að kröfu stjórnarand- stöðunnar var starfið útvíkkað og markmið nefndarinnar varð því að endurskoða stjórnarskrána í heild. Um nokkurt skeið hefur hins vegar verið ljóst að það markmið myndi ekki nást fyrir komandi kosningar. Því mun nefndin á þessu stigi ekki gera neinar efnislegar tillögur um breytingar á stjórnarskránni, heldur aðeins um það sem lýtur að stjórn- arskrárbreytingum. Verði framhald á vinnu stjórnarskrárnefndar munu nýjar tillögur fara í þann farveg, sem formbreytingar sem nú eru lagðar til boða, þ.e. í dóm kjósenda. Ekki náðist samkomu- lag um auðlindaákvæði Útséð um að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar náist fyrir þingkosningar í vor Í HNOTSKURN »Tillögur þærsem eru á borði stjórn- arskrárnefndar lúta að breyt- ingum á 79. gr. stjórnarskrár- innar. »Sú grein ernú svohljóð- andi: „Tillögur, hvort sem eru til breytinga eða viðauka á stjórn- arskrá þessari, má bera upp bæði á reglulegu Alþingi og auka-Alþingi. Nái tillagan sam- þykki skal rjúfa Alþingi þá þeg- ar og stofna til almennra kosn- inga að nýju. Samþykki Alþingi ályktunina óbreytta, skal hún staðfest af forseta lýðveldisins, og er hún þá gild stjórnskip- unarlög.“ »Tillögur nefndarinnar gangaút á að hægt sé að breyta stjórnarskrá með tvennum hætti. »Annars vegar þannig að efbreytingar fá fylgi 2/3 þing- manna, geti málið farið beint í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þarf samþykki a.m.k. 25% kosn- ingabærra manna fyrir breyt- ingunum. »Hins vegar að svipaður hátt-ur verði hafður á og er í dag, þ.e. að tvö þing þurfi til að sam- þykkja breytingar og í kjölfarið verði þjóðaratkvæðagreiðsla. »Næsti fundur í stjórn-arskrárnefnd verður 26. jan- úar nk. Áfangaskýrsla nefnd- arinnar er væntanleg. Morgunblaðið/RAX Jón Kristjánsson. ♦♦♦ SKRÁNING nýrra bloggara hefur verið gerð þægilegri og skiptist í fimm þrep. Þar setur nýr bloggari inn umbeðnar grunnupplýsingar, ásamt því að ákveða útlit bloggsíð- unnar og virkni. Hægt er að breyta þessum upplýsingum og bæta við nýjum að nýskráningu lokinni. Það er gert í stjórnborðinu sem skráðir notendur hafa aðgang að. Nýskráð- ir bloggarar fá sendan tölvupóst á uppgefið netfang að skráningu lok- inni. Þennan póst þarf að staðfesta til að gera bloggið virkt. Þá hefur stjórnborðið verið ein- faldað verulega og ýmsar aðgerðir sameinaðar. Hægt er að senda ábendingar eða beiðni um aðstoð á netfangið blog@mbl.is Breytingar á blog.is HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær, að maður, sem réðst á annan mann á Ingólfstorgi haustið 1998, skyldi greiða fórnarlambinu 9,3 milljónir í bætur. Maðurinn, sem fyrir árásinni varð, þarf að bera þriðjung tjóns síns þar sem hann var talinn eiga upptök að því að líkamlegu ofbeldi var beitt. Maðurinn, sem í gær var dæmdur til að greiða bæturnar, var á sínum tíma sakfelldur fyrir að greiða fórn- arlambinu hnefahögg í andlitið með þeim afleiðingum að hann féll í göt- una fyrir utan veitingastaðinn Subway í Austurstræti. Ekki var tal- ið sannað að annar maður hefði sparkað í höfuð honum eftir að hann féll en sýnt þótti fram á, að heila- skaði sem maðurinn hlaut hefði fyrst og fremst orsakast af fallinu. Í dóminum kemur fram að var- anleg örorka mannsins er metin 75% og varanlegur miski 50%. Líkamleg og andleg færni hans er verulega skert. Hann hefur ekki haldist í lík- amlega erfiðum störfum eða í öðrum störfum þar sem reynir á vitræna og andlega hæfni og lent upp á kant við yfirmenn sína og vinnufélaga. Málið dæmdu Garðar Gíslason, Hjördís Hákonardóttir og Jón Stein- ar Gunnlaugsson. Sveinn Andri Sveinsson hrl. flutti málið af hálfu mannsins sem greiddi höggið, Hall- dór H. Backman hrl. var lögmaður fórnarlambsins og Tómas Jónsson hrl. lögmaður þess sem sakaður var um að hafa sparkað í höfuð hans. 9,3 millj- ónir í bætur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.