Morgunblaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 35 Það var í septem- ber árið 1967 að ég kom í fyrsta sinn heim að Engimýri 11 eftir að hafa fylgt heimasætunni heim af balli. Þá kom ég aðeins á útidyratröppurnar og sá engan annan en Unu og hafði sennilega engan áhuga á öðru. Í næsta skipti var mér boðið í eldhúsið og hitti þá húsmóðurina, sem óðara var búin ✝ Jóna Gróa Að-albjörnsdóttir fæddist á Unaósi í Hjaltastaðaþinghá 5. október 1923. Hún lést á dval- arheimilinu Hlíð 8. janúar síðastliðinn og var jarðsungin frá Akureyr- arkirkju 18. janúar. að dekka borð og bjóða í kaffi. Mér var sem sagt strax vel tekið. Jóna húsfreyja var gamansöm, hlát- urmild, létt á fæti og stjórnaði sínu heimili. Sigurliði rólegur og varkár en ákaflega traustur eins og þau bæði. Eftir þetta varð Engimýrin mitt ann- að heimili og þaðan hafði ég Unu á brott með mér. Eftir nokkurra ára Reykjavíkurdvöl fluttum við Una aftur norður og bjuggum fyrsta árið hjá tengdaforeldrunum og fengum svefnaðstöðu á nýuppgerðu loftinu. Þegar við fluttum inn var frum- burðurinn kominn hátt á annað ár- ið. Þá kom í ljós að amman var held- ur eftirlátssamari en ungu foreldrarnir, en allt fór þó vel. Jóna var félagslynd og sem heimavinn- andi saumakona komu viðskiptavin- irnir, sem allt voru konur að mig minnir, oft í mátun og þá var gefið kaffi og spjallað. Jóna var fíngerð kona en ákveðin, til dæmis ákvað hún, þá orðin harð- fullorðin, að taka bílpróf þegar hún sá fram á að eiginmaðurinn sem var 12 árum eldri yrði ef til vill ekki endalaust fær til aksturs – enda fór svo. Jóna virtist oft vita lengra en nef hennar náði því það kom oftar fyrir en einu sinni að eftir góðan lúr gengi hún rakleiðis að týndum hlut- um. Þegar aldurinn færðist yfir Jónu fór minnið að gefa sig eins og geng- ur. Hún reyndi þó að fela það eins og kostur var á. Hún átti erfitt með að sætta sig við að verða að hætta að keyra og þóttist til síðasta dags einfær um að bjarga sér. Að lokum fór hún samt á dvalarheimili aldr- aðra, fyrst í Skjaldarvík og síðan í Hlíð. Starfsfólki þar eru þökkuð öll notalegheit í hennar garð og okkar Unu. Líf okkar Jónu var samþætt í tæp fjörutíu ár. Hún og þau Sigurliði bæði reyndust dætrum okkar góð amma og afi. Ég er þakklátur fyrir það og samfylgdina í gegnum árin. Þau skilja eftir góðar minningar. Þórir Haraldsson. Mig langar til að minnast ömmu minnar, Jónu Aðalbjörnsdóttur, með örfáum orðum. Þegar ég var að alast upp var amma alltaf til staðar. Sem lítilli stelpu treysti hún mér til að leika mér að því merkilegasta sem hún átti að mínu mati, títu- prjónunum sínum og seglinum góða. Mér fannst þessi undur mikil stórmerki og dundaði mér enda- laust við að raða prjónunum á seg- ulinn, taka þá af og raða þeim á nýj- an leik án þess að stinga mig. Þegar ég varð eldri fórum við amma saman og fengum okkur göt í eyrun á rakarastofu í Hafnarfirði, ef ég man rétt. Ég fékk rauða steina í eyrun en hún dökkbleika. Það var styrkur að hafa ömmu með á slíkum stundum. Sem unglingur nýtti ég saumakunnáttu ömmu óspart og alltaf tókst henni að púsla saman sniðum sem samræmdust þeim teikningum sem ég hafði dregið upp. Þetta var mikill kostur í litlu, einsleitu bæjarfélagi eins og Akureyri þar sem úrvalið var ekki mikið. Ég dáðist mikið að ömmu þegar hún hætti eftir 50 ár að reykja. Þó svo að nú séu liðin mörg ár síðan það gerðist er ég enn stolt af henni að hafa tekið þessa ákvörðun og geta staðið við hana allar götur síð- an. Seinustu löngu stundirnar sem við amma áttum saman voru frá áramótum til hausts árið 2002, þeg- ar ég var að vinna á Akureyri. Ég er þakklát fyrir það tækifæri sem mér þá gafst til að vera með ömmu í ró og næði. Það eru einmitt þessar stundir sem mér eru efstar í huga í dag. Minningar mínar um ömmu eru ljúfar og ég sakna hennar sárt. En ef ég þekki hana rétt hefur hún nú þegar fundið sér heitan ofn til að halla sér að með kaffibollann sinn og fylgist með okkur hinum. Með þakklæti fyrir samfylgdina. Rósa Rut Þórisdóttir. Jóna Gróa Aðalbjörnsdóttir „Með Aðalsteini er genginn einhver besti Rótarýmaður sem ég hef kynnst.“ Þessi voru viðbrögð eins Rótarýfélaga míns er honum bárust tíðindin af andláti Aðal- steins Sigurðssonar fiskifræðings. Undir þessi orð höfum við margir félagar í Rótarýklúbbi Seltjarnar- ness tekið. Aðalsteinn Sigurðsson var ald- ursforsetinn í Rótarýklúbbi Sel- tjarnarness er hann lést, níræður að aldri. Hann hafði gengið til liðs við klúbbinn árið 1973, tveimur ár- um eftir stofnun hans. Hann var forseti klúbbsins 1977–78. Í forsetatíð hans var Albertsbúð í Gróttu afhent klúbbnum til varð- veislu og afnota og gekk Aðalsteinn frá því máli af alkunnri nákvæmni. Hugsunin var sú að klúbburinn skyldi endurreisa og halda við síð- ustu minjum útgerðar á Seltjarn- arnesi. Aðalsteinn hlaut Paul Harris-við- urkenningu hreyfingarinnar 1989. Hann var einstaklega vel að sér í lögum og reglum Rótarý og um- fram allt hafði hann tileinkað sér rækilega hugsjón hreyfingarinnar um „þjónustu ofar eigin hag.“ Þó að Aðalsteinn kynni reglur Rótarý flestum betur lét hann einhvern tíma svo ummælt að Rótarýmaður ætti í raun ekki að þurfa að skila inn mætingarkorti ef hann sækti fundi hjá öðrum klúbbi, eins og reglur kveða á um. Afstaða Að- alsteins var sú að sannur Rótarým- aður myndi aldrei segja ósatt um slíkt og því væri kortið í raun óþarft. Aðalsteinn var réttsýnn maður og hann barðist ötullega fyrir því að konum yrði veittur aðgangur að klúbbnum og það gladdi hann þeg- ar kona var í desember síðastliðn- um í fyrsta sinn kosin verðandi for- seti klúbbsins. Aðalsteinn gerði málefni Rótarý- sjóðsins oft að umtalsefni og taldi mikilvægt að félagar kynnu skil á því hve mikilvægt mannúðarstarf væri unnið þar. Undantekingalítið lauk Aðalsteinn máli sínu með því að ganga til gjaldkera klúbbsins og færa honum peningaupphæð í sjóð- inn. Aðalsteinn lagði sig mjög fram um að kynna nýliðum í klúbbnum grundvallarhugsjónir hreyfingar- innar. Þegar hann gegndi nefnd- Aðalsteinn Sigurðsson ✝ Aðalsteinn Sig-urðsson fæddist á Ánastöðum í Sölvadal í Eyjafirði 13. júní 1916. Hann lést á líknardeild Landakots að morgni gaml- ársdags síðastliðins og var jarðsunginn frá Seltjarnar- neskirkju 8. janúar. arformennsku innan klúbbsins bauð hann nefndarmönnum gjarnan heim til sín þar sem hans ágæta eiginkona Ástrún Valdimarsdóttir bauð jafnan upp á veiting- ar. Aðalsteinn var ágætlega hagmæltur og kunni ógrynnin öll af vísum. Flestar þessar vísur lærði hann á barns- og ung- lingsárum og tók hann sig til og handskrifaði þær upp eftir að hann hætti að vinna. Munu þær vera um sex hundruð talsins. Margar þeirra hefur hann gefið út í litlum fjölrituðum heftum. Á löngum vetrardögum í af- skekktri sveit Saurbæjarhrepps í Eyjafirði hafði hann vanist við að kveðast á, þar sem það var harla fábrotið sem fólk hafði til afþrey- ingar „þegar stórhríðin barði bæ- inn og gluggarnir fylltust jafnóðum af fönn þó að ofan af þeim væri tekið. Þá var hálfdimmt í bænum enda ljósmetið sparað til hins ýtr- asta eins og reyndar allt annað, sem einhver leið var að spara,“ eins og Aðalsteinn hefur sagt um upp- vaxtarár sín. Fjárhagsaðstæður Aðalsteins voru mjög erfiðar lengi framan af ævi og vann hann við ýmis störf áð- ur en hann seint um síðir gat hafið menntaskólanám. Stúdentsprófi lauk hann frá MA 29 ára að aldri. Þaðan lá leiðin til Kaupmannahafnar þar sem hann lagði stund á dýrafræði með áherslu á fiskifræði og lauk mag. scient-prófi í júní 1954. Í Danmörku kynntist hann fyrri konu inni Carla Marie og eignuðust þau dótturina Guðnýju. Var þá oft þröngt í búi, m.a. vegna þess að reglur um yfirfærslur gjaldeyris voru það strangar að hann fékk að- eins yfirfært það sem dugði einum til framfærslu. En samvisku- og iðjusemi Aðalsteins kom honum til hjálpar á minnistæðan hátt. Það var einhvern sunnudags- morguninn er Aðalsteinn var við nám við Teknisk skole i Fredriks- havn að hann kvaðst ekki hafa get- að sofið fyrir fjárhagsáhyggjum. Meðan félagar hans voru allir steinsofandi fór hann fram á rann- sóknarstofu og fór að greina botn- dýralirfur, sem voru þar í kæliskáp. Þá hittist svo á að kennari Að- alsteins, dr. Gunnar Thorsson, kom þar að og varð svo hrifinn af sjá svona áhugasaman nemanda sitja við smásjána snemma á sunnudags- morgni að hann sagði að Aðalsteinn yrði að koma til sín á sérstakt botndýralirfunámskeið næsta sum- ar. Þegar Aðalsteinn taldi tormerki á því af fjárhagsástæðum beitti Gunnar sér fyrir því að Aðalsteinn fékk námsstyrki svo fjárhag hans var nægilega borgið til að hann gat lokið námi sínu með sóma. Sagan er dæmigerð fyrir dugnað Aðalsteins og er óhætt að segja að hann hafi aldrei etið letinnar brauð. Heim kominn varð Aðalsteinn með- al virtustu fræðimanna okkar á sviði fiskifræði og starfaði lengst af við Hafrannsóknastofnun. Á Seltjarnarnesi kom Aðalsteinn mjög að bæjarmálum og var m.a. formaður skólanefndar og bygging- arnefndar Valhúsaskóla. Sat einnig í náttúruverndarnefnd um árabil. Með honum og föður mínum, Jóni Gunnlaugssyni lækni (1914– 1997), tókst ágæt vinátta og unnu þeir saman að ýmsum velferðar- málum Seltjarnarnesbæjar þó að ekki tilheyrðu þeir sömu pólitísku fylkingunni. En Rótarýhugsjónina áttu þeir sameiginlega. Aðalsteinn sýndi föður mínum mikla ræktar- semi þegar hrumleiki var tekinn að hamla för pabba og kom þá oft og sótti hann. Fyrir þá ræktarsemi og vináttu vil ég nú þakka því hennar hef ég einnig notið ríkulega svo og Guð- rún Helga, kona mín. Ástrúnu, eftirlifandi konu Aðal- steins, og öðrum ástvinum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Megi Guð blessa minningu hins góða drengs Aðalsteins Sigurðsson- ar. Fyrir hönd Rótarýklúbbs Sel- tjarnarness, Gunnlaugur A. Jónsson. V i n n i n g u r Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur) 3 9 3 1 0 5 0 3 2 1 6 2 8 3 0 1 3 6 3 9 8 2 5 5 0 8 7 6 5 9 6 1 0 6 9 8 4 1 6 5 8 1 0 5 9 1 2 1 7 9 9 3 0 6 8 3 4 0 3 6 7 5 1 3 4 5 6 0 4 7 8 6 9 9 8 2 8 8 8 1 0 5 9 7 2 1 8 0 7 3 0 8 2 5 4 0 5 3 0 5 1 4 0 6 6 0 8 0 6 7 0 3 6 4 1 1 4 6 1 0 7 7 2 2 1 8 4 9 3 1 1 1 8 4 0 7 5 5 5 1 9 0 1 6 1 3 0 9 7 0 9 0 4 1 2 3 8 1 1 9 7 0 2 2 0 3 8 3 1 2 9 0 4 1 0 1 9 5 1 9 8 2 6 1 3 6 2 7 1 0 1 7 1 3 6 7 1 2 2 3 6 2 2 1 6 2 3 1 3 1 0 4 1 8 1 9 5 2 9 8 6 6 1 7 3 3 7 2 0 9 5 1 5 2 6 1 2 3 5 0 2 2 4 7 2 3 1 8 5 4 4 2 2 0 4 5 2 9 8 8 6 2 2 9 4 7 2 5 5 6 1 8 0 8 1 2 8 6 1 2 2 5 9 3 3 1 9 1 1 4 2 3 5 0 5 3 0 3 3 6 2 3 2 4 7 2 6 1 9 1 8 9 8 1 2 9 6 7 2 3 8 3 3 3 2 1 0 0 4 2 4 0 1 5 3 0 4 4 6 2 5 1 7 7 3 8 5 8 1 9 3 5 1 3 6 1 7 2 4 1 6 7 3 3 6 4 4 4 2 8 3 7 5 3 2 8 7 6 4 3 7 7 7 4 4 6 1 2 0 9 3 1 4 4 7 2 2 4 8 7 6 3 4 0 7 4 4 3 3 3 9 5 3 3 6 6 6 4 3 9 8 7 4 4 6 4 2 6 0 3 1 5 3 0 7 2 5 7 8 5 3 4 0 7 7 4 3 5 3 8 5 3 3 6 9 6 4 7 8 6 7 4 9 7 1 2 6 4 5 1 5 6 5 6 2 5 8 0 4 3 4 3 8 0 4 3 5 9 4 5 3 6 3 0 6 4 8 0 4 7 5 1 7 5 2 7 4 2 1 6 1 6 4 2 6 4 0 7 3 4 5 4 1 4 4 8 4 7 5 3 7 6 1 6 4 8 3 3 7 5 7 7 4 3 0 4 3 1 6 2 0 3 2 6 4 1 3 3 4 5 5 4 4 6 0 4 0 5 4 1 9 8 6 4 9 8 9 7 6 2 9 5 3 2 3 4 1 6 2 3 4 2 7 0 9 2 3 4 5 5 6 4 6 2 0 5 5 4 3 5 7 6 5 7 6 6 7 6 3 6 2 3 5 9 5 1 6 6 4 6 2 7 1 2 9 3 4 5 8 0 4 6 6 9 5 5 4 3 5 8 6 6 2 3 8 7 6 3 8 3 4 0 6 9 1 6 9 0 9 2 7 1 8 3 3 4 6 2 3 4 6 9 3 4 5 5 3 2 4 6 6 5 0 0 7 6 4 4 9 4 1 7 3 1 8 0 0 7 2 7 2 5 1 3 4 9 9 3 4 7 5 6 2 5 5 5 2 7 6 6 9 7 3 7 6 8 5 2 4 6 6 1 1 8 5 1 1 2 7 4 1 0 3 5 2 4 0 4 7 7 9 6 5 6 3 7 3 6 7 2 6 3 7 7 5 7 3 4 6 7 7 1 8 9 5 2 2 7 4 3 8 3 5 9 4 6 4 7 8 2 3 5 6 4 5 5 6 7 3 8 2 7 8 2 9 2 4 7 5 8 1 9 0 3 8 2 7 6 5 1 3 6 0 1 5 4 7 9 0 6 5 6 5 2 0 6 7 8 3 9 7 8 2 9 8 5 2 6 2 1 9 0 8 3 2 7 9 1 3 3 6 0 9 0 4 8 6 3 1 5 6 5 7 0 6 7 8 7 3 7 8 5 5 3 5 9 2 8 1 9 2 5 1 2 8 2 6 6 3 6 6 5 4 4 8 9 3 6 5 6 9 6 5 6 8 2 1 9 7 8 7 2 8 5 9 5 8 1 9 4 1 3 2 8 3 2 0 3 7 0 8 7 4 9 0 4 7 5 7 6 0 3 6 8 8 1 0 7 9 5 3 1 6 8 5 7 1 9 5 5 6 2 8 9 8 6 3 7 1 8 1 4 9 1 6 4 5 7 6 7 7 6 8 8 2 5 7 9 8 5 4 7 2 4 4 1 9 6 4 2 2 9 0 0 1 3 7 2 2 9 4 9 7 3 6 5 7 7 0 2 6 8 8 8 3 7 3 3 8 1 9 7 5 8 2 9 4 2 6 3 7 5 9 6 4 9 7 8 9 5 7 7 5 6 6 8 9 8 6 8 1 9 4 1 9 9 6 7 2 9 5 0 9 3 9 1 9 3 5 0 3 3 2 5 8 4 9 1 6 9 0 3 8 8 9 7 9 2 0 0 1 2 2 9 7 5 3 3 9 2 1 5 5 0 4 2 1 5 8 5 2 1 6 9 3 3 2 9 6 2 8 2 0 3 9 8 2 9 7 6 3 3 9 4 1 3 5 0 5 2 7 5 8 8 0 4 6 9 3 3 7 1 0 1 9 9 2 0 8 5 5 2 9 9 2 0 3 9 4 8 6 5 0 7 2 5 5 9 4 6 0 6 9 6 1 0 Næstu útdrættir fara fram 25. janúar & 1. febrúar 2007 Heimasíða á Interneti: www.das.is V i n n i n g a s k r á 38. útdráttur 18. janúar 2007 A ð a l v i n n i n g u r Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 3 0 0 4 1 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 2 9 9 8 0 3 2 1 1 4 6 9 4 7 4 7 7 4 7 0 V i n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 3880 12104 16501 26073 37966 56377 10541 14063 24690 34872 46625 62923 V i n n i n g u r Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) 4 9 2 8 0 8 4 2 0 4 9 2 3 1 6 6 5 4 4 3 1 5 5 2 8 9 6 6 5 5 8 3 7 3 8 9 2 1 5 8 7 8 6 4 7 2 3 9 5 5 3 1 9 3 4 4 6 0 4 3 5 3 9 7 4 6 5 8 5 1 7 4 5 9 3 2 2 9 1 9 2 2 0 2 3 9 8 5 3 2 4 1 6 4 6 4 0 4 5 4 0 1 3 6 5 9 8 8 7 5 9 5 9 2 4 9 0 9 5 6 4 2 4 5 2 8 3 4 1 2 2 4 6 5 7 4 5 4 5 3 8 6 7 3 8 6 7 6 6 1 0 3 8 0 2 1 3 0 6 2 2 4 6 3 8 3 6 2 8 1 4 6 7 8 6 5 5 0 8 6 6 7 9 6 1 7 6 7 7 1 4 7 7 6 1 3 0 8 0 2 5 2 7 7 3 6 5 6 3 4 7 4 0 9 5 5 9 7 5 6 8 6 6 0 7 7 3 2 6 5 1 8 6 1 3 6 2 4 2 7 6 1 2 3 9 0 3 2 4 7 5 1 3 5 6 1 3 3 6 8 8 7 1 7 8 6 3 2 5 3 9 7 1 4 2 4 9 2 8 4 9 9 3 9 8 1 9 4 9 0 4 5 5 7 3 8 7 7 0 2 5 7 7 8 6 4 9 5 9 7 3 1 4 4 8 2 2 8 8 8 0 4 1 1 1 1 4 9 4 7 0 5 7 8 2 0 7 0 3 3 8 7 8 7 8 9 6 8 6 2 1 4 9 1 1 3 0 1 8 2 4 1 2 1 4 4 9 6 7 1 5 8 0 7 8 7 1 5 3 4 7 1 7 4 1 6 6 6 8 3 0 2 6 9 4 1 4 9 4 5 1 0 2 5 6 0 0 3 0 7 1 6 1 8 7 6 2 1 1 8 6 1 1 3 0 7 2 6 4 1 7 6 1 5 2 1 1 2 6 1 2 9 3 7 2 7 6 5 7 8 2 3 1 9 8 4 2 3 1 4 8 7 4 3 3 2 4 5 2 4 9 6 6 4 9 0 8 7 3 4 2 9 ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ARNHEIÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR frá Heiðarseli á Jökuldalsheiði, sem andaðist á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum fimmtu- daginn 11. janúar, verður jarðsungin frá Seyðis- fjarðarkirkju laugardaginn 20. janúar kl. 14.00. Elsa Jónsdóttir, Hreggviður M. Jónsson, Hallgrímur Jónsson, Bryndís Magnúsdóttir, Heiðdís Jónsdóttir, Oddsteinn Pálsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.