Morgunblaðið - 19.01.2007, Side 20

Morgunblaðið - 19.01.2007, Side 20
Veitingastaðurinn Silfur hleypir nýju og auknu lífi í Hótel Borg að mati Steingríms Sigurgeirs- sonar. »24 veitingahús Dramatísk augnmálning eða rauðar varir einkenndu förðun stjarnanna á Golden Globe- hátíðinni. »24 tíska Þegar bakað er fyrir barna- afmæli getur verið gaman að leyfa ímyndunaraflinu að ráða ferðinni. »22 matur Enginn má klikka á því að fylgj- ast með gengi okkar manna í handboltanum á HM í Þýska- landi um helgina. »22 mælt með Flestar helgar hjá GrímuKristjánsdóttur fara í„eitthvað leikfélagstengt“að hennar sögn. Ekki að undra enda er hún formaður leik- félags Menntaskólans við Hamrahlíð auk þess sem hún hefur starfað með Leikfélagi Kópavogs, Einleikhúsinu og fleiri félögum. „Ef það eru ekki frumsýning eða sýningar þá er ég á æfingum,“ segir hún. „Það er sjaldan sem maður fær pásu á milli leikrita en þegar það gerist er ég yfirleitt heima um helg- ar að slaka á og að skemmta mér með vinum mínum. Stundum nota ég helgarnar líka í að heimsækja systk- ini mín enda á ég mörg.“ Núna um helgina er mikið um að vera hjá Grímu enda frumsýning á laugardag á verkinu Draugadansi sem Leikfélag MH setur upp í Tjarnarbíói. Sýningin byggist á ís- lenskum draugasögum og fleiri þjóð- sögum en leikstjórinn, Jón Gunnar Þórðarson, vann handritið upp úr hugmyndum leikaranna eftir nám- skeið sem þeir sóttu í vetur. Í sund eftir sýninguna Í leikritinu leikur Gríma kjafta- kellingu að eigin sögn. „Það er bara venjulegt hlutverk en við erum öll inni á sviðinu allan tímann, bæði í eigin hlutverki, aukahlutverkum og í því að gera alls kyns „effekta“ sem eru hluti af sýningunni.“ Helgin framundan mun því ein- kennast af frumsýningunni. „Á föstudagurinn verður generalprufa hjá okkur og fram að því verðum við að undirbúa hana niðri í Tjarnarbíói. Á laugardag byrjum við svo á því að fara í frumsýningarhádegisverð þar sem allur leikarahópurinn hittist heima hjá einni stelpunni. Svo getur verið að það verði æfing fyrir frum- sýningu en það fer eftir því hvernig gengur í vikunni með rennslin. Ann- ars verðum við bara að slaka á og drekka kaffi og undirbúa Tjarnarbíó fyrir frumsýninguna.“ Eftir sýninguna ætlar hópurinn að drífa sig í sund í Mosfellsbænum áður en efnt verður til teitis heima hjá Grímu. „Sunnudagurinn fer svo í að slaka á eftir þetta allt saman og kannski ganga frá einhverjum laus- um endum.“ Gríma á von á fullu húsi á sýning- unni á laugardag. „Að sjálfsögðu mæta nemendur, foreldrar og aðrir svo þetta verður svakalega spenn- andi og leggst mjög vel í mig.“ Nýtur þess að slaka á um helgar Morgunblaðið/Ásdís Heimakær Gríma er yfirleitt heima um helgar eða fer í heimsóknir ef ekki eru leikæfingar eða sýningar. Leiklistin er í forgrunni hjá Grímu Kristjáns- dóttur flestar helgar en hún er formaður Leik- félags MH sem frum- sýnir leikritið Drauga- dans um helgina. Morgunblaðið/Golli Draugadans Sýning Leikfélags MH byggir á íslenskum draugasögum. Bíómynd: Mýrin. Kaffihús: Hljómalind. Geisladiskur: Personal Belongings með Helga Rafni. Mat: Góðum og léttum kúklingarétti. Afslöppun: Hugleiðslu á þægilegum og hljóðlátum stað með ró- andi tónlist. Hreyfing: Leiklistin er mega-góð hreyfing. Gríma mælir með... Sérfræðingar í saltfiski Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl. Fyrir verslanir: Til suðu: saltfiskbitar blandaðir gellur gollaraþunnildi Til steikingar: saltfiskbitar blandaðir saltfiskkurl saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos) gellur Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti: saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos) saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar saltfiskkurl Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem: ýsuhnakka rækjur þorskhnakka steinbítskinnar og bita Sími: 466 1016 ektafiskur@emax.is daglegtlíf TRÚIN skiptir mismiklu máli í lífi fólks. Á Spáni er stór hluti þjóðarinnar kaþólskrar trúar, en þar fagna menn degi heilags Antoníusar 17. janúar ár hvert. Heilagur Antoníus er verndardýrlingur dýranna og því streymir fjöldi fólks í kirkju með gæludýr sín til að láta blessa þau. Skiptir þá engu hvort um er að ræða hunda og ketti eða fiðurfénað á borð við páfa- gaukinn sem hér nýtur kirkjulegrar blessunar. Dýrin blessuð Reuters |föstudagur|19. 1. 2007| mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.