Morgunblaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 25
um nýfrönsk og stundum í þeim anda sem stundum er kallaður fusion. Framsækin í hráefnavali, bragð- samsetningum og framsetningu. Ekki síst má mæla með hinum sam- setta matseðli (6.800 krónur) sem kemur þá fyrir allt borðið. Máltíðin hófst á því að brauð- karfan, eða kannski réttara sagt brauðboxið, birtist á borðinu og er hún mjög í þeim stíl sem þróaður hefur verið fram t.d. hjá Melker Andersson á F12 í Stokkhólmi. Blanda af stökku brauði og mjúku bökuðu í mjóum lengjum. Seðillinn hófst á litlum bragðauka í skeið, maríneraðri kengúru í soja, áður en fyrstu þrír forréttirnir komu. Þarna var humar í tveimur út- gáfum. Annars vegar í bragðmikilli og þykkri smjörkóríandersósu og vængjabaunum með sleikju af saffran-aioli á skálbarminum. Hins vegar djúpsteiktur í þunnu smjör- degi með taílenskri steinselju og austurlenskum kryddkeim. Gjörólík nálgun og ekki síst sú fyrri mjög frumleg og góð. Þriðji forétturinn var dúfa, heit- reyktar og niðursneiddar bringur í litlum potti á diskinum ásamt krydd- um en lærin safarík og ljúffeng með agnarsmáum crouton-bitum. Aðalréttirnir voru tveir. Fyrst fengum við þorsk í froðumikilli og mildri vanillusósu ásamt fennel-flan. Með frumlegri útfærslum á þorski – og einnig ein af þeim betri – sem ég hef fengið hér í langan tíma. Síðari rétturinn kom á risastórum diski, svo stórum raunar að ekki var auðhlaupið að því að koma honum fyrir á borðinu. Á honum miðjum lítil og sæt lynghæna fyllt með beikoni, döðlum og líklega fíkjum í mildri sósu. Nokkuð klassísk bragðútfærsla en afar góð. Á börmum risadisksins var svo öðrum megin lítil, steikt og fersk andarlifur (foie gras), stökk að utan, og hinum megin andarlifrarís en sætan í honum féll fullkomlega að steiktu lifrinni. Best var að njóta andarlifrarhlutans sér og lynghæn- unnar sér. Þótt þetta hafi komið á sama diski átti það ekki endilega heima í sama munnbitanum. Á eftir þessu var gott að fá sneið af gulrótarköku. Dýr vínlisti en góður Vínlisti Silfurs er fremur dýr, það er vart hægt að finna þar vín undir 5.000 krónum. Á móti kemur að flest vínanna eru í háum gæðaflokki og kannski ekki hlutfallslega dýr miðað við aðra staði, listinn vel samsettur og á köflum frumlegur. Það er allt of sjaldan sem maður rekst á vínlista þar sem maður gæti hugsað sér að panta flest vín. Og þótt þarna séu að- allega dýrari vín eru einstakar teg- undir alls ekki dýrari en gengur og gerist á öðrum sambærilegum veit- ingahúsum. Þjónustan er á háu stigi á Silfri þótt eitthvað virðist hafa fækkað í starfsliðinu í salnum frá því sem var í byrjun. Það er líka ákveðinn ókostur að margrétta seðillinn er ekki lengur borinn fram á litlum diskum til hvers og eins heldur kemur nú einn diskur af hverjum rétti sem menn síðan skipta með sér og skammta sér á eig- in diska. Diskarnir verða fremur leiðinlegir þegar maður fer að blanda saman öðrum réttinum við sósuna sem er eftir af fyrsta rétt- inum. Á heildina litið er Silfur engu að síður heilsteyptur og spennandi staður. Það er kannski aðeins búið að lækka flugið en vonandi þá með það fyrir augum að halda síðan því góða flugi. Steingrímur Sigurgeirsson skrifar um veitingastaðinn Silfur á Hótel Borg Silfur Pósthússtræti 11 Pöntunarsími: 5782008 www.silfur.is Andrúmsloft: Poppað og djarft Matur: Fersk og frumleg ný- frönsk og fusion-matargerð. Vínlisti: Vandaður, mjög vel samsettur sts@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 25 AUGLÝSINGASÍMI 569 1100 „Við byggðum bústaðinn frá grunni og förum í hann allan ársins hring. Þess vegna keyrir maður oft í gegnum ýmislegt sem venjulegir fólksbílar ráða ekki við.“ Subaru eigendur vita að hann er allt öðruvísi en aðrir bílar. „Hann er hærri en venjulegur jepplingur svo maður kemst út um allt. Sumir keyra jepplinga, ég keyri felujeppa.“ Það ætti enginn að kaupa sér bíl án þess að koma fyrst og reynsluaka Subaru. www.subaru.is „Hey, þetta er Ísland“ Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Forester 2.490.000,- Forester PLUS 2.790.000,- Forester LUX 3.090.000,- Subaru er á sérlega góðu verði þessa dagana og að sjálfsögðu fylgja frí vetrardekk með. Komdu og reynsluaktu Subaru í dag! J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • S ÍA L jó s m .: T o r f i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.