Morgunblaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 43
menning
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
SÍÐUSTU tvö árin eða svo hafa ver-
ið gjöful fyrir þýska rafdúettinn
Booka Shade. Tónleikar hans njóta
sívaxandi vinsælda, endur-
hljóðblöndunarverkefnin verða æ
stærri og fleiri, hitað var upp fyrir
Depeche Mode í ár og önnur breið-
skífa dúettsins, Movements, rataði
inn á fjölmörg ársuppgjör tónlistar-
miðla, ekki þá bara þeirra sem hafa
með dans- og raftónlist að gera held-
ur aukinheldur almennra miðla.
T.a.m. fór platan inn á lista hjá hinni
virtu jaðarvefsíðu Pitchfork. Booka
Shade er á leið til Íslands vegna árs-
listakvölds Party Zone sem haldið
verður í NASA í kvöld en dúettinn
flengist nú út um allan heim til að
spila.
Meðlimir Booka Shade, þeir Wal-
ter Merziger og Arno Kamm-
ermeier, eiga sér langa sögu í raf-
tónlistarheimum og hafa snert á
ýmsum stílum þar að lútandi. Árið
2002 stofnsettu þeir útgáfuna Get
Physical sem á höfuðstöðvar í Berl-
ín, eins og svo mörg lítil raftónlist-
armerki.
Blaðamaður hringdi á skrifstof-
una og var það Arno sem svaraði í
símann.
Mikil vinna
„Þetta barn okkar dafnar vel,“
segir Arno um útgáfufyrirtæki
þeirra félaga en í Berlín eru kjör-
aðstæður fyrir slíkan rekstur.
„Senan hérna er frábær. Mjög lif-
andi og frjó. Fólk er að flytja hingað
í borgina víðs vegar að úr heiminum
og það er mikill samgangur á milli
ólíkra raftónlistarmanna, sem er
gott fyrir sköpunina.“ Arno segir að
undanfarin misseri hafi verið stútfull
af vinnu og verkefnum.
„Við ákváðum að fylgja Move-
ments eitthvað eftir og þar sem við
höfðum fram að því starfað mest að
upptökum frekar en tónleikaspila-
mennsku áttum við von á því að leika
á kannski tvennum tónleikum. En
svo fóru tilboðin að hrynja inn auk
þess sem „Body Language“ og
„Mandarine Girl“ slógu í gegn. Tón-
leikar urðu skyndilega stór hluti af
því sem við erum að gera, nokkuð
sem við sáum alls ekki fyrir. Og mér
finnst þetta frábært! Það er svo gott
að sjá milliliðalaus viðbrögð áhorf-
enda við því sem þú ert að gera. Við
erum því farnir að leggja mikla
vinnu í að gera tónleikana sem flott-
asta. Við breytum til reglulega, bæði
til að hafa þetta áhugavert fyrir
áheyrendur en einnig okkur sjálfa.“
Á heitustu merkjunum
Arno og Walter eiga rætur í
teknósenu Frankfurtborgar, en þar
réð trans-tónlistin ríkjum upp úr
1990 fyrir tilstilli manna eins og
Sven Väth og klúbba eins og The
Omen, sem Väth rak. Þar áður voru
þeir poppsveit, og voru meira að
segja á mála hjá EMI og gáfu þar út
tvær plötur sem vöktu enga athygli.
Þetta er ekki ólíkt upphafinu hjá
Underworld, sem var hrein og klár
poppsveit áður en teknóið var um-
faðmað.
„Við vorum orðnir pirraðir á því
að ná engu fram með poppinu og það
má segja að raftónlistin hafi bjargað
okkur, þar sáum við nýja möguleika
og þetta var sú tónlist sem við vorum
með rætur í, enda miklir Depeche
Mode-aðdáendur. Við gáfum út mik-
ið af plötum í kjölfarið, og á „heit-
ustu“ merkjunum þá. Í tónlist okkar
eru enn merki um þessa trans-
bylgju.“ Bakgrunnur þeirra félaga
nær yfir mörg svið tónlistarlega,
nokkuð sem nýtist þeim svo um
munar í dag. „Lengi vel fannst okk-
ur það vera slæmt, því að svo virtist
sem þeir sem einbeittu sér að ein-
hverju einu næðu mestum árangri. Í
dag hins vegar vinnur þessi fjöl-
breytni með okkur og listamennirnir
á Get Physical hafa fengið hrós fyrir
að búa yfir slíku. Ég og Walter erum
líka fyrst og fremst lagasmiðir og
semjum lög. Þetta er ekki bara ein-
faldur bassataktur út í eitt.“
Tónlist | Booka Shade leikur á árslistakvöldi Party Zone á NASA
Lagasmiðir fyrst og fremst
Miða er hægt að nálgast á midi.is, í
verslunum Skífunnar og við dyrn-
ar. Einnig koma FM Belfast, Hair-
doctor, Jack Schidt og fleiri fram.
www.pz.is.
Teknóhausar Arno og Walter eiga rætur í teknósenu Frankfurtborgar, en þar réð trans-tónlistin ríkjum upp úr
1990, fyrir tilstilli manna eins og Sven Väth og klúbba eins og The Omen, sem Väth rak.
s æ l u e y j a n
eftir Jacob Hirdwall
Frumsýning í kvöld í Kassanum
Leikgerð Gréta María Bergsdóttir og María Ellingsen
Leikstjóri María Ellingsen
Miðasala í síma 551 1200 og á www. leikhusid.is Kassinn er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Landsbankans