Morgunblaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÉG ER EKKI MJÖG KLÁR Í NEINU... ...ÞANNIG AÐ ÉG HEF EKKERT AÐ SEGJA... ...ALLS EKKI NEITT... EN SAMTHELDUR ÞÚ ÁFRAM AÐ TALA MÉR LÍÐUR EINS OG ÉG SÉ MIKILVÆGUR! HÆ MM PABBI ER EITTHVAÐ FÚLL! HANN VAR AÐ TEIKNA MYND SEM VAR EKKI AÐ HEPPNAST ALLT OF VEL HJÁ HONUM VEGNA ÞESS AÐ HANN ER EKKI MEÐ GLERAUGUN SÍN. SÍÐAN SPURÐI ÉG HANN EINNAR SPURNINGAR UM MYNDIRNAR OG HANN VARÐ BRJÁLÐUR. ÞAÐ ER EKKI EINS OG ÞETTA SÉ MÉR AÐ KENNA KALVIN, SÉRÐU EKKI AÐ ÉG ER AÐ REYNA AÐ LESA? FULLORÐIÐ FÓLK VERÐUR SVO PIRRAÐ ÞEGAR ÞAÐ ER AÐ SLAPPA AF ÉG VIL ALDREI SJÁ ÞESSA ROMMTUNNU Í HÚSINU MÍNU FRAMAR! EDDI, ERTU TIL Í AÐ NÁ Í KLÚT TIL ÞESS AÐ SETJA FYRIR AUGUN Á KONUNNI MINNI AUÐVITAÐ VEIT ÉG MUNINN Á RÉTTU OG RÖNGU ÉG Á BARA Í VANDRÆÐUM MEÐ AÐ ÁTTA MIG Á ÞVÍ HVAÐ FELLUR UNDIR ÞAÐ AÐ VERA „VONDUR HUNDUR“ ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI ENNÞÁ AÐ DODDI OG LINDA SÉU AÐ SKILJA EKKI ÉG HELDUR. HVENIG GAT ÞETTA GERST? ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ MAÐUR GETI ALDREI TEKIÐ HLUTUNUM SEM GEFNUM. ÞAÐ SKIPTIR EKKI MÁLI HVAÐ HJÓNABAND LÍTUR ÚT FYRIR AÐ VERA STERKT, ÞAÐ GETUR ALLTAF BROSTIÐ ÉG LEYFI ÞAÐ EKKI HMM ÉG ÞARF AÐ FARA Í SKOÐUN, EN LÖGGAN ÞARF Á MÉR AÐ HALDA VIÐ AÐ NÁ RÆNINGJUNUM HVAÐ GET ÉG GERT? LÖGREGLAN HEFUR HAFT HENDUR Í HÁRI RÆNINGJANNA! ÞAÐ VAR NÚ GOTT LÆKNIRINN ER ALVEG AÐ KOMA ÉG HEFÐI NÚ SAMT FREKAR VILJAÐ ELTAST VIÐ RÆNINGJANA Mannréttindaskrifstofa Ís-lands og Háskólinn íReykjavík efna til há-degisfundar í dag kl. 12 þar sem John P. Cerone, dósent við New England School of Law í Bost- on, flytur erindið Þróun í notkun mannréttindalaga í bandarískum dómstólum í ljósi ‘stríðsins gegn hryðjuverkum’. „Í fyrirlestrinum beini ég sjónum að þróun réttarfars og lagasetningar sem orðið hefur í Bandaríkjunum á undanförnum árum vegna hins svo- kallaða ‘stríðs gegn hryðjuverkum’,“ segir John. „Ég ræði hvernig banda- rískir dómstólar hafa brugðist við þeirri gagnrýni að Bandaríkin hafi með aðgerðum sínum gengið gegn skuldbindingum sínum samkvæmt al- þjóðlegum mannréttindalögum og –sáttmálum. Jafnframt mun ég rekja þróun í afstöðu bandarískra stjórn- valda til notkunar mannréttindalaga, sér í lagi til Genfarsáttmálans frá 1949, allt til dagsins í dag.“ John segir afstöðu bandarískra dómstóla undanfarin fimm ár hafa vakið upp miklar deilur: „En rót vandans liggur í því að hvaða marki lög og sáttmálar um framgöngu í stríði leyfa athafnir sem annars myndu vera óleyfilegar, og banna hegðun sem undir venjulegum kring- umstæðum myndi vera leyfileg.“ „Samspil alþjóðalaga og laga innan hvers ríkis er ákaflega flókið og breytilegt milli landa, en almennt má segja að það sé undir hverju landi komið að ákveða hvaða sess al- þjóðalög skipa í lagaumhverfi lands- ins og dómstólum,“ segir John. „Bandaríska stjórnarskráin kveður á um að sáttmálar séu hluti af lands- lögum, en það á þó í reynd aðeins við um ákveðin sáttmálaákvæði – þ.e. þau sem eru álitin sjálfvirk (e. self- executing). Eitt af stærstu lagalegu álitamálum bandaríska dómskerfisins hefur verið hvort túlka eigi ákvæði Genfarsáttmálans sem sjálfvirk ákvæði. Um leið er fjöldi ákvæða í banda- rískri lagasetningu til verndar mann- réttindum, og er annað stórt deilumál hvort sum af þessum verndandi ákvæðum, m.a. rétturinn til að fá úr- skurð dómstóla um lögmæti varð- halds eða fangelsunar, séu tiltæk ein- staklingum sem ekki eru bandarískir ríkisborgarar og eru í haldi utan Bandaríkjanna sjálfra.“ Meðal þeirra ráða sem bandarísk stjórnvöld hafa gripið til nefnir John lög um heimildir hersins frá árinu 2006 (e. Military Commisions Act): „Sú lagasetning felur í sér þrengingu lagatúlkunar á Genfarsáttmálanum, og sviptir um leið erlenda borgara sem berjast gegn Bandaríkjunum réttinum til að fá úrskurð dómstóla um réttmæti fangelsunar þeirra. Hitt er svo deilt harkalega um hvort það að svipta erlenda hermenn þessum rétti samræmist ákvæðum banarísku stjórnarskrárinnar.“ Fyrirlestur Johns Cerone fer fram í stofu 101 í Háskólanum í Reykjavík. Lögfræði | Fyrirlestur á vegum Háskólans í Reykjavík og Mannréttindaskrifstofu kl. 12 Mannréttindi og hryðjuverkastríð  John Peter Ce- rone fæddist í New York 1972. Hann lauk BS- gráðu í verk- fræði frá The Cooper Union 1995, JD-gráðu frá Notre Dame Law School 1998 og LLM-gráðu frá New York Uni- versity School of Law 1999. John hefur skrifað fjölda greina og hald- ið fyrirlestra um alþjóðalög. Hann hefur fengist við kennslu- og fræða- störf, starfaði við eftirlitsstofnanir SÞ og OSCE í Kosovo og við ICC í Haag. John er nú dósent við New England School of Law í Boston og forstöðumaður Seturs þjóðaréttar og alþjóðamála við sama skóla. TANNLÆKNIRINN Óskar Sveinn býr ásamt eiginkonu sinni og fóst- urbörnum á Arnarnesinu. Þó allt virðist slétt og fellt á yfirborðinu er Óskar ekki hamingjusamur. Hann dreymir um að eignast sitt eigið barn en ekkert gengur. Eftir rann- sóknir kemst hann að því að konan hans hefur verið að ljúga að honum í fjölmörg ár. Einar Birgir er viðskiptafræð- ingur sem gengur vel í vinnunni en ekki eins vel í einkalífinu. Síðustu mánuði hefur Einar búið á Hótel Ís- landi þar sem hann bíður eftir því að konan hans átti sig á þeim skelfilegu mistökum að hafa hent honum út. Katrín Rós snýr aftur heim frá Svíþjóð eftir margra ára dvöl, ákveðin í að hefja nýtt líf og ná aftur ellefu ára syni sínum sem alinn hef- ur verið upp af móður hennar. Katr- ín fær sér vinnu á tannlæknastofu en fortíðin sækir hins vegar fljótlega að henni. Kvikmyndin Foreldrar er sjálf- stætt framhald kvikmyndarinnar Börn sem frumsýnd var í fyrra. Leikstjóri myndarinnar er Ragnar Bragason en Vesturport framleiðir. Með aðalhlutverk fara Ingvar E. Sigurðsson, Nanna Kristín Magn- úsdóttir, Víkingur Kristjánsson, Reine Brynólfsson, Þrúður Vil- hjálmsdóttir, Jóna Guðrún Jóns- dóttir, Pétur Rögnvaldsson og Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir. Frumsýning | Foreldrar Drama Víkingur Kristjánsson sem Einar Birgir og Gunnar Hansson sem leikur vinnufélaga hans í Foreldrum, kvikmynd Ragnars Bragasonar. Fjölskylduflækjur www.parents-movie.com

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.