Morgunblaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 13
               ! "#$ %    23  4!(5 2  3 2  36 !(#678 2 !4!(5 9:4!(5 8;4!(5 4 + " <# 5 =, $ >(5?+ ;$ +, $  @ @! 38 !  ) (#(A9(* 8 +  B ( &  #  <C  84!(5 D3$4!(5"!$ D3$34!(5 .E 0@F29 GH# GH#* :* I ( :* '   ( )* ) ( =)(*($   +,- ( "94$ "#5* . (                                                                    "$A * 5  $  G+!*!$ % >(5)                                                    A       A A    A A A A A                   A     A A                  A A  A A  I* 5 J(# 2G" K2 ((  8:$ * 5     A  A A  A A A A A )*  *  * MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÍSLENSKU vefverðlaunin voru afhent af Geir H. Haarde forsætisráðherra við hátíðlega athöfn í Iðnó í gær. Þetta var í sjötta sinn sem verðlaunin eru veitt en að þeim standa ÍMARK og Samtök vefiðnaðarins. Verðlaun voru afhent í fimm flokkum. Vefurinn midi.is þótti bæði vera besti þjónustuvef- urinn og með bestu útlits- og viðmótshönnunina, baggalutur.is var valinn besti afþreyingarvefurinn, besti einstaklingsvefurinn var www.icomef- romreykjavik.com og icelandair.is þótti bæði besti fyrirtækisvefurinn og besti íslenski vefurinn. Vefverðlaunin veitt Morgunblaðið/ÞÖK ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● HAGN- AÐUR banda- ríska fjárfest- ingabankans Merill Lynch á fjórða árs- fjórðungi síð- asta árs jókst gríð- arlega og langt umfram spár mark- aðssérfræð- inga. Hagn- aðurinn jókst um 68% og fór úr tæpum 100 milljörðum íslenskra króna síðustu þrjá mánuði ársins 2005 í 165 milljarða króna á síð- ustu þremur mánuðum 2006. Merill Lynch er þriðji stærsti fjár- festingabanki Bandaríkjanna en þeg- ar kemur að því að hagnast á við- skiptum á Wall Street eru fáir sem standast honum snúning nema Goldman Sachs. Merill Lynch græðir á tá og fingri ● ÚRVALSVÍSITALA OMX á Íslandi lækkaði lítillega í gær eða um 0,15% í 6.834 stig. Verslað var með hluta- bréf fyrir tæplega 9,5 milljarða, mest með bréf Kaupþings banka. Gengi bréfa Marels hækkaði um 1,3% en gengi bréfa Eimskips lækkaði um 3,3%. Krónan styrktist um 0,70% í gær og kostar dalurinn nú 69,85 krónur, evran 90,45 og pundið 137,75 krón- ur. Krónan styrkist GREININGARDEILD Kaupþings banka telur líkur á að alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings muni fara að dæmi Standard & Poor’s og lækka lánshæfiseinkunn ríkissjóðs í nýju mati sem vænta megi fljótlega. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu greiningardeildar bankans, Þróun og horfur, sem kynnt var í gær. Standard & Poor’s lækkaði láns- hæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir jólin en staðfesti á sama tíma lánshæfisein- kunn Glitnis sem er eini íslenski bankinn sem Standard & Poor’s gef- ur einkunn. Fitch Ratings gefur öll- um viðskiptabönkunum þremur lánshæfiseinkunn en greining Kaup- þings banka gerir þó ekki ráð fyrir því að lánshæfiseinkunnir þeirra lækki fari svo að Fitch Ratings lækki lánshæfiseinkunn ríkissjóðs. Hins vegar taka sérfræðingar Kaupþings banka fram að gangi þetta eftir eigi þeir þó ekki von á við- líka áhrifum á markaðinn og raunin varð við útkomu skýrslu Fitch Rat- ings snemma á síðasta ári þar sem það er mat þeirra að væntingar um lækkun lánshæfiseinkunnar ríkis- sjóðs séu að miklu leyti þegar til staðar á markaðinum. „Tímabundin lækkun á mörkuðum er því ekki ólík- leg en við eigum von á að áhrifin vari stutt, líkt og varð í kjölfar breytingar S&P í desember síðastliðnum. Áhrifa lækkunarinnar gæti þó gætt í eitthvað hærri fjármögnunarkostn- aði fyrir íslensk félög, sér í lagi bank- ana,“ segir í skýrslunni. Spá að Fitch lækki einkunn ríkissjóðs Hefði ekki áhrif á lánshæfiseinkunn bankanna Í HNOTSKURN »Hlutabréfaverð og gengikrónu lækkaði um meira en 20% í kjölfar birtingar skýrslu Fitch fyrir tæpu ári og þeirra skýrslna sem fylgdu. »Áhrifin á krónu og hluta-bréfaverð voru óveruleg þegar S&P lækkaði lánshæf- iseinkunn ríkissjóðs fyir jólin. VEXTIR á millibankamarkaði hafa hækkað mun meira en stýrivextir Seðlabankans sem bendir til lausa- fjárskorts. Þriggja mánaða vextir á millibankamarkaði eru 15,15% sem jafngildir um 16% ávöxtun en stýri- vextir eru nú 14,25%. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans en greiningardeild bankans telur því ekki útlit fyrir stýrivaxtalækkun af hálfu Seðla- bankans á næstu mánuðum. „Meðalstaða endurhverfra við- skipta síðastliðnar fjórar vikur er mjög há, um 138 ma.kr., þrátt fyrir að stýrivextir séu orðnir mjög háir. Við slíkar aðstæður er afar ólíklegt að Seðlabankinn lækki stýrivexti,“ segir í Vegvísi. Greiningardeild Landsbankans spáir því að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum á næstu tveimur vaxta- ákvörðunarfundum Seðlabankans en að þeir verði síðan lækkaðir 5. júlí í 14% og verði í framhaldinu lækkaðir skarpt með fjölgun vaxta- ákvörðunarfunda og að stýrivextir muni standa í 11% um næstu ára- mót. Millibanka- vextir hærri en stýrivextir GREINING Kaupþings banka spáir því að úrvalsvísitala OMX á Íslandi muni enda árið í um átta þúsund stigum og hækka um fjórðung á árinu öllu. Vísitalan stendur nú í 6.834 stigum og ætti því eftir að hækka um 17% það sem eftir er ársins. Sérfræðingar Kaupþings banka taka fram að þeir eigi von á tölu- verðum sveiflum á markaðinum í ár; hátt vaxtastig setji pressu á fjármagnið á markaðinum auk þess sem sveiflur í gengi krónunnar séu líklegar til að smita út á hluta- bréfamarkaðinn líkt og verið hef- ur. „Þrátt fyrir það teljum við mögu- leika til hækkunar Úrvalsvísitöl- unnar nokkuð góða en mikil um- svifaaukning og væntingar okkar um áframhaldandi ytri vöxt félaga ættu að styðja við frekari hækk- anir,“ segir greining Kaupþings. Spá 25% hækkun ● SAMRÆMD vísitala neysluverðs í EES-ríkjunum hækkaði um 0,4% á milli nóvember og desember á síð- asta ári. Á sama tíma stóð vísitalan fyrir Ísland í stað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Verðbólgan frá desember 2005 til sama mánaðar árið eftir, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, var 2,1% að meðaltali í EES-ríkjunum, 1,9% á evrusvæðinu og 5,9% á Ís- landi. Mesta verðbólga á Evrópska efna- hagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,8% í Lettlandi og 6,6% í Ungverjalandi. Ísland var í þriðja sæti. Minnst var verðbólgan 0,8% á Möltu og 1,2% í Finnlandi. Ísland með þriðju mestu verðbólguna ● ÁVÖXTUNARLEIÐIR Almenna lífeyr- issjóðsins skiluðu allar góðri ávöxt- un árið 2006, segir í fréttatilkynn- ingu. Ávöxtunin er sögð skýrast af hækkun á innlendum og erlendum hlutabréfum, en heimsvísitala er- lendra hlutabréfa hækkaði um 20,1% í dollurum en um 36,6% í ís- lenskum krónum þar sem íslenska krónan veiktist um 13,8% gagnvart dollar. Ávöxtun skuldabréfa sjóðsins var hins vegar lág þar sem sjóðurinn metur skuldabréfin á markaðsverði. Viðmiðunarvísitala skuldabréfa Ævi- safna I og II hækkaði um 7,5% á árinu, sem er einungis um 0,5% um- fram hækkun vísitölu neysluverðs. Í árslok 2006 námu heildareignir Almenna lífeyrissjóðsins 82,7 millj- örðum króna og stækkaði sjóðurinn því um 18,7 milljarða, eða um 29% á árinu. Sjóðfélagar í árslok voru 29.446 og fjölgaði þeim um 4.389. Ávöxtun Almenna lífeyrissjóðsins góð Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is www.utflutningsrad.is Fimmtudaginn 25. janúar frá kl. 8.30-14.00 fyrir ráðgjafa. Föstudaginn 26. janúar frá kl. 8.30-14.00 fyrir stjórnendur framleiðslufyrirtækja og verktaka. Fyrirlesari er hr. Nadijib Sefta, sérfræðingur frá Alþjóða- bankanum. Verð er 15.000 kr. fyrir hvort námskeið sem eru haldin í húsnæði utanríkisráðuneytisins, Rauðarárstíg 25. Móttaka skráninga og einkafunda að loknu hverju námskeiði er hjá Útflutningsráði í síma 511 4000 eða með tölvupósti á utflutningsrad@utflutningsrad.is. Nánari upplýsingar gefa Berglind Sigmarsdóttir hjá Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins, berglind@mfa.is og Inga Hlín Pálsdóttir hjá Útflutningsráði, inga@utflutningsrad.is. Þátttaka í útboðum Alþjóðabankans R A PI P • AÍ S • 70 10 1 Hvernig geta íslensk fyrirtæki tekið þátt í útboðum og verkefnum Alþjóðabankans? Útflutningsráð Íslands í samvinnu við Viðskiptaþjónustu utan- ríkisráðuneytisins og Alþjóðabankann standa fyrir tveimur námskeiðum um þátttöku fyrirtækja í útboðum Alþjóðabankans (The World Bank: IBRD, IDA, IFC, MIGA, ICSID).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.