Morgunblaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 17
„Ég fór í framhaldsnám til Boston
eftir að ég útskrifaðist. Þar hitti ég
manninn minn, við giftum okkur og
fluttum til Ríó,“ segir Sigríður sem
hefur búið í borginni frá árinu
1990.
„Það er ágætt, mjög ólíkt því að
búa hér. Það er til dæmis meiri
birta þar en hér á þessum árs-
tíma,“ segir Sigríður, sem starfar
sem píanóleikari þar í landi. „Svo
vinn ég líka við kennslu í breskum
skóla þar sem ég hef verið í tvö
ár.“
Sigríður segist ekki eiga von á
því að flytja heim á næstunni.
„Hver veit, en það er ekkert á dag-
skrá næstu árin.“
Tónleikarnir fara fram í sal FÍH
í Rauðagerði 27 og hefjast kl. 20.
Miðaverð er 1.500 krónur og inni-
faldar eru veitingar í hléi.
stóra markmiðið. Hvað varðar að-
ferðafræðina við ritun verksins og
efnistök, þá erum við að setja það í
ákveðið umræðuferli. Ég mun leggja
fram ákveðnar hugmyndir sem verða
ræddar og metnar. Sagan er breyti-
leg. Við skrifum hana í dag út frá
ákveðnum sjónarhóli og aðferðum.
Þekkingin er stöðugt að aukast og
nýjar grunnrannsóknir að verða til,
bæði íslenskar og alþjóðlegar. Hóp-
urinn fer inn í ákveðið rannsókn-
arferli á næstu mánuðum og leysir úr
þeim verkefnum sem þar koma upp.“
Ólafur segir að þriggja manna rit-
nefnd bókarinnar verði frekar eins
konar umsjónaraðili, fremur en að
hún taki beinan þátt í ritstjórn verks-
ins. Ritnefndin fylgist með fram-
vindu verksins og öllum stærri
ákvörðunum. „Efnismeðferð og efn-
istök verða mál ritstjóra og höf-
unda,“ segir Ólafur. Umfang verks-
ins verður að vonum mikið og áætlar
Ólafur að myndir verði á milli átta og
níu hundruð, en til samanburðar eru
á stærstu sýningum safnsins rúm-
lega hundrað myndir.
Námsefnisútgáfa í kjölfarið
Með svo efnismiklu og ítarlegu
grunnriti skapast að sögn Sigurðar
enn frekari útgáfumöguleikar. „Við
höfum þegar ákveðið að þegar þess-
ari fimm binda útgáfu er lokið, þá
verði gefin út samandregin listasaga
í einu bindi, og jafnframt efni fyrir
skóla. Það er mjög mikilvægt að
þessi rannsóknarvinna nýtist líka til
að búa jafnt framhalds- og grunn-
skóla út með kennsluefni um íslenska
listasögu, því það hefur tilfinnanlega
vantað.“ Ólafur segir þetta spurn-
ingu um aðgengi almennings að
menningunni. „Þess vegna er ábyrgð
Listasafnsins í verkefninu mikil.“
Verkið skilgreint sem ein heild
Edda hefur langa reynslu í útgáfu
stórra verka eins og Sigurður benti
á. Í samanburði við nýútkomna bók-
menntasögu, segir hann það kost nú
að útgefandinn fari betur búinn af
stað. „Við sjáum endapunktinn fyrir,
því öll bindin koma út í einu og yf-
irsýnin er betri. Bókmenntasagan
var nær eingöngu unnin á vegum
einkafyrirtækis sem þurfti sjálft að
fjármagna verkið. Það segir sig sjálft
að það var því þungur baggi. Hér
kemur ríkisvaldið hins vegar mynd-
arlega að málum, þannig að hægt
verður að vinna verkið hraðar og
öruggar. Listasagan verður öll undir
allan tíman, meðan bókmenntasagan
var að mótast frá einu bindi til þess
næsta.“ Ólafur segir það skipta máli
að verkið sé frá upphafi skilgreint
sem ein heild og hafi heildstæðan
svip. „Það leggja allir af stað sam-
tímis að öllum fimm bindunum, og
þetta verður því skoðað sem eitt
rannsóknarverkefni,“ segir Ólafur.
Að sögn Sigurðar verður útlit verks-
ins mótað snemma, þannig að höf-
undar verksins vita í hvers konar
ramma þeir vinna. „Það gerir okkar
vinnu í útgáfunni líka miklu auðveld-
ari. Við erum vön að fylgja svona
stórum verkum eftir gegnum fram-
leiðsluna, þar erum við á heimavelli
og kvíðum engu.“
Sagan verður ekki einangruð
Aðspurður hvort ekki þurfi að
hefja verkið með því að skilgreina
hvað sé myndlist – í ljósi breyttra
snertiflata listgreinanna í nútíman-
um, segir Ólafur Kvaran að auðvitað
verði það hluti rannsóknarferlisins
að takast á við slíkar spurningar.
„Auðvitað er erfitt að skýra og
skoða myndlistarsöguna einangraða.
Við verðum að teygja okkur í allt það
sem varpar ljósi á myndlistarsöguna.
Myndlist í dag hefur annað yfirbragð
en hún hafði í upphafi 20. aldar. Þetta
verður ein af þeim spennandi spurn-
ingum sem koma upp í rannsókn-
arferlinu,“ segir Ólafur. Sigurður
nefnir umræðu í Lesbók að und-
anförnu þar sem spurt hafi verið
hvað sé ljóð, og hvað sé bók. „Ég held
að það þurfi enginn að efast um það
að þegar þetta rit kemur út, þá vitum
við hvað er bók.“
Í HNOTSKURN
» Markmið með útgáfu ís-lenskrar listasögu er að
gera myndilstarsögu þjóð-
arinnar aðgengilega almenn-
ingi í ítarlegu yfirlitsverki.
» Listasafn Íslands og Eddaútgáfa hafa samvinnu um
verkið.
» Ristjóri er Ólafur Kvaranforstöðurmaður Listasafns
Íslands.
» Fimmtán listfræðingartaka þátt í mótun og ritun
verksins.
» Áætlaður kostnaður er ámilli 60 og 70 milljónir.
» Listasafnið hefur fráárinu 2005 notið sérstaks
styrks á fjárlögum til vinnslu
listasögunnar.
» Ritun listasögunnar skap-ar fleiri tækifæri í útgáfu á
sögu íslenskrar myndlistar.
» Í kjölfar listasögunnarsjálfrar verður gefið út
námsefni í listasögu fyrir
grunn- og framhaldsskóla.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 17
Fylgist með umfjöllun um
þessa bók í helgarútgáfunni
á Rás 2, nú á
laugardaginn kl. 11.00
Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00
Helgar
tilboð
2.443,-
„Að axla ábyrgð sína á hinu hverfula
augnabliki lífsins og finna hvað gefur því gildi.
Það er að þeim tilgangi lífsins sem við skulum leita.“
Páll Skúlason prófessor í heimspeki.
Íslandsmálning Skútuvogi 13. S. 517 1501
beint á móti Húsasmiðjunni
Íslandsmálning Sætúni 4. S. 517 1500
Ný verslun Íslandsmálningar í Skútuvogi
Opnunartilboð á innimálningu.
Loftmálning 3L kr. 490
Veggjamálning 3L kr. 490
Veggfóður kr. 590
Veggfóðursborðar kr. 390
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
OFANLEITI - BÍLSKÚR
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Falleg og vel skipulögð 106 fm endaíbúð
á 4. hæð auk bílskúrs. Þrjú svefnherbergi,
rúmgóð stofa og fallegt eldhús. Tvennar
svalir og sérþvottahús innan íbúðar.
Parket á öllum gólfum nema baði. Baðkar
og sturtuklefi á baði. Sérgeymsla á hæð-
inni. Hús viðgert og málað árið 2006.
Verð 29,9 millj.
Á MORGUN klukkan 14 verður opn-
uð sýning Hlaðgerðar Írisar Björns-
dóttur og Arons Reys Sverrissonar í
sýningarsal Listasafns Reykjanes-
bæjar í Duus-húsum. Sýningin ber
heitið Tvísýna og saman stendur af
málverkum í anda raunsæisstefnu, af
börnum, húsum og umhverfi.
Í inngangi að sýningarskrá segir
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur
að verk Hlaðgerðar Írisar og Arons
Reys „þrífist á víxlverkan hins
þekkta og óþekkta, um leið og þau kasti á milli sín – og
til áhorfenda – spurningunni um náttúru hinnar hlut-
lægu listsýnar, hvort hún sé spegill eða gluggi“.
Sýningin stendur til 4. mars.
Myndlist
Hlaðgerður og Aron
sýna í Duus-húsum
Hlaðgerður Íris og
Aron Reyr
HLJÓMSVEITIN Sólstafir heldur
tónleika í Nýlistasafninu á Grett-
isgötu annað kvöld, laugardaginn 20.
janúar. Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum opinn, en þeir hefj-
ast klukkan 22 og standa í klukku-
stund. Mun sveitin spila nýtt efni í
bland við eldra.
Sólstafir gáfu út plötuna Mast-
erpiece of Bitterness í fyrra hjá
finnska plötufyrirtækinu Spinefarm
og fékk platan m.a. fjórar stjörnur
hjá tónlistargagnrýnanda Morgunblaðsins á sínum tíma.
Sólstafi skipa Aðalbjörn Tryggvason, gítar og rödd,
Guðmundur Óli Pálmason, trommur, Svavar Austman,
bassi, og Sæþór M. Sæþórsson, gítar.
Tónleikar
Sólstafir leika nýtt og
gamalt efni í Nýló
Aðalbjörn
Tryggvason
mbl.is
smáauglýsingar