Morgunblaðið - 19.01.2007, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 19.01.2007, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 27 ubeitiskip- knúið og ðnu sumri um er eimilt að g þessar. né hafrétt- anna æfingar. lenskum nir gegn og stranda réttur æslunnar pa.“ hér að of- ræðum. r ályktað, hafi gjur af ná- flota við turinn r flestra a kalda eirra við- sarnir séu sumir skondin, mátti sjá í Th. Jó- sagnfræð- blaðinu dagskrár 004. upphafs- . Sigfús- ænna, insson, ylking- arz, núv. agnús Þór rmaður nað í ræðu mræðunn- engan með ferð- að treysta ndaríkja- ekki í ast með verið. Ef a út í slík- tala um r en ð nokkru rs staðar. Ég veit ekki til þess að menn hafi verið að tala á þann veg, nema það beri að skilja orð þingmanns Frjáls- lyndra sem hér hefur talað á þann veg að hann vilji að við komum okk- ur upp slíkum búnaði. Þá er það al- gjört nýmæli í þessum umræðum.“ Ég ætla ekki að geta mér til um, hvaða ályktanir sagnfræðingar kunna að draga af þessum um- ræðum árið 2060 eða hvaða gögn þeir muni leggja til grundvallar við mat sitt. Hitt veit ég, að afstaða þeirra mun mótast sterklega af þeirra eigin reynslu og viðhorfum og af stöðu Íslands í ljósi heimsmála á þeim tíma. Kannski þykir þá alls ekki skondið að óttast ferðir rúss- neskra skipa í nágrenni Íslands. Frekar en árið 2004 eða árið 1950. * Tilefni greinar Guðna Th. Jóhann- essonar er þríþætt: grein mín í Morgunblaðinu 6. janúar 2007, fyr- irsögn blaðsins á baksíðufrétt, sem vísar á grein mína, og hugleiðing höfundar Staksteina vegna greinar minnar. Ég svara hvorki fyrir Stak- steinahöfundinn né fyrirsagn- arsmiðinn. Guðni Th. segir mig hafa mis- túlkað orð hans um afstöðu breskra og bandarískra hernaðarsérfræð- inga árið 1950 um hættuna af flota sovéskra síldarskipa í nágrenni Ís- lands. Í grein sinni ver Guðni Th. mestu rými til að sýna fram á, að íslenskir stjórnmálamenn með Bjarna Bene- diktsson utanríkisráðherra í broddi fylkingar hafi haft áhyggjur af sov- ésku skipunum og þær hafi mótast af Kóreustríðinu sumarið 1950. Ég geri ekki ágreining við neinn um þennan ótta. Í greininni 6. janúar sagði ég hins vegar fráleitt, að sov- éski síldarflotinn hefði verið ástæð- an fyrir því, að ákveðið hefði verið að efla öryggisþjónustu lögreglunnar í Reykjavík, eins og Jón Ólafsson gagnrýnandi Morgunblaðsins taldi. Ótti við fimmtu herdeild komm- únista á Íslandi og undirróður þeirra réð ákvörðunum íslenskra stjórn- valda um að efla lögregluna. * Ég vitnaði í skjöl, sem sagnfræð- ingarnir dr. Þór Whitehead og dr. Valur Ingimundarson hafa skoðað. Þeir hafa vitnað til þeirra í ritum sín- um sem fullgildra skjala. Af grein Guðna Th. ræð ég, að honum þyki lítið til þess skjals koma, þar sem haft er eftir Omar Bradley, hershöfðingja í Banda- ríkjaher, á fundi með íslenskri sendi- nefnd: „Við vissum af þessum flota [sovéskra síldarskipa], þegar þið sögðuð okkur frá honum, og tókum ákvörðun um að senda þessi skip [herskip] þangað [til Íslands- stranda] þessar ferðir.“ Og enn minna finnst Guðna um þá ályktun mína, – og segir hana beinlínis ranga, – að af þessum orðum hers- höfðingjans megi ráða, að Banda- ríkjastjórn hafi tekið sjálfstæða ákvörðun án hvatningar íslenskra stjórnvalda um að senda herskip sín af stað. Hafi það verið ímyndunarveiki ís- lenskra stjórnvalda að óska eftir ná- vist bandarískra herskipa vegna sovéska síldarflotans, hefur banda- ríska herstjórnin líklega verið enn verr haldin af sömu veiki, þegar hún ákvað að senda fjögur herskip á vettvang. Hún naut þó ráðgjafar hernaðarsérfræðinga, sem Guðni fullyrðir, að hafi verið andvígir því, að herskipin færu til Íslandsmiða. Raunar gefur Guðni Th. til kynna, að Omar Bradley hafi verið eitthvað miður sín á fundinum með Íslend- ingunum. Guðni segir: „Hershöfð- inginn Bradley segir ekkert um það að hvatningu íslenskra stjórnvalda hafi ekki þurft til enda vissi hann án efa of lítið um málið, með hugann all- an við stríðið í Kóreu og stærri við- fangsefni en ferðir fjögurra tund- urspilla.“ (Leturbreyting mín.) Sagnfræðingurinn hefur engin gögn til stuðnings þessari getgátu um hugarástand hershöfðingjans á fundinum. Þá má spyrja: Hefur sagnfræðingurinn reynslu af þátt- töku í fundum af þessu tagi? Hinn 11. október 2006 var ég á fundi í Pentagon ásamt íslenskri sendinefnd undir formennsku Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Do- nald Rumsfeld varnarmálaráðherra og yfirmenn bandaríska hersins voru viðmælendur okkar. Við vorum ekki að ræða nauðsyn þess, að bandarískt varnarlið yrði á Íslandi eins og Omar Bradley árið 1950, heldur ræddum við brottför þessa liðs. Hugur Bandaríkjamannanna hefur örugglega verið við stríðið í Írak. Engu að síður voru þeir vel að sér um tvíhliða málefni Bandaríkj- anna og Íslands. Það vakti sérstaka athygli mína, hve nákvæma vitn- eskju þeir höfðu um ferð bandaríska herskipsins Wasp, sem þá var á leið til Íslands samkvæmt einhliða ákvörðun bandarísku herstjórn- arinnar. * Guðna Th. nægir ekki að segja Omar Bradley annars hugar eða jafnvel úti á þekju á fundinum með íslensku sendinefndinni. Hann dreg- ur einnig gildi skjalsins, sem ég nota til að andmæla skoðun hans, í efa með því að telja sig styðjast við „margar ótvíræðar heimildir úr mörgum traustum skjalasöfnum“ – en ég styðst aðeins við eina heimild og líklega er skjalasafn mitt ekki „traust“. Oft segir ein heimild meira en margar, um það þarf ekki að deila. Þá hafa þeir tveir sagnfræð- ingar sem sérfróðastir eru um sam- skipti Íslands og Bandaríkjanna og Íslands og NATO vitnað í sama skjal og ég geri og telja það því fullgilda heimild. Guðni Th. segir fleiri heimildir um fundinn í Pentagon 19. september 1950 en skjalið í minni vörslu. Hann segir: „Í skjalasafni NATO má til dæmis finna átta blaðsíðna frásögn af fundinum. Þar kemur fram að umræður um sovéska síldarflotann vöknuðu í blálokin, nánast í framhjá- hlaupi, og fyrir tilstilli Bjarna Bene- diktssonar. Aftur kemur ekkert fram um frumkvæði Bandaríkja- manna en haft er eftir Omar Brad- ley að skortur á hafnaraðstöðu og skuldbindingar annars staðar kæmu í veg fyrir að hægt yrði að verða við þeirri ósk Bjarna að NATO-herskip væru að staðaldri á Íslandsmiðum. Hins vegar gæti íslenski ráðherrann verið viss um að Bandaríkjastjórn hefði þessi mál mjög í huga og reyndar hefðu þau ráðið miklu um það að til fundarins hefði verið boð- að.“ Áður en meira er um þetta skjal sagt er ástæða til að spyrja: Sýna orð Bradleys um að „Bandaríkja- stjórn hefði þessi mál mjög í huga“ ekki að ályktun Guðna um þekking- arleysi hershöfðingjans stenst ekki? Um þessi orð í átta blaðsíðna frá- sögn í skjalasafni NATO segir Guðni Th.: „Þessi orð – nánast eins og kurteisislegt spjall – vega lítt gagn- vart öllum hinum heimildunum um atburðarásina og frumkvæði ís- lenskra ráðamanna.“ Enn skal áréttað, að enginn dregur áhyggjur íslenskra ráðamanna í efa og áhuga þeirra á viðbrögðum með skipum, sem Íslendingar áttu hvorki né stjórnuðu, en voru þó send á vett- vang af herstjórn Bandaríkjanna. Hitt er athyglisvert kurteisistal, að einn af æðstu yfirmönnum Banda- ríkjahers segir við utanrík- isráðherra Íslands, að Bandaríkja- mönnum sé hættan af sovéska flotanum „mjög í huga“ og þess vegna hafi herforingjanefnd NATO óskað eftir þessum fundi til að ræða dvöl bandarísks varnarliðs á Íslandi. Í skjalinu, sem ég vísaði til, eru þessi orð Bradleys í þessum búningi: „Návist þessa flota er eitt af því, sem hefur fengið okkur svo mikillar áhyggju, að við höfum beðið ykkur [íslensku sendinefndina] að ræða þetta [komu varnarliðs til Íslands] og hugsa það.“ Ég hef áratuga reynslu af um- gengni við frásagnir af fundum með erlendum mönnum um öryggismál og önnur mál. Ég hef skrifað fjöl- margar slíkar frásagnir sjálfur og eins fundargerðir af fjölmennum fundum með þátttöku annara. Ég þarf ekki leiðbeiningar frá öðrum um form eða gildi slíkra gagna. Ég hef undir höndum orðrétta frásögn á íslensku af þessum fundi 19. sept- ember 1950. Það eru alls 19 blaðsíð- ur, og er því nákvæmari heimild um það, sem þarna gerðist en hin stutta útgáfa í skjalasafni NATO. Skjalið hefur verið skrifað af Íslendingi á fundinum og væntanlega lagt fram í ríkisstjórn eða annars staðar, þar sem íslenskir stjórnmálamenn ræddu í sinn hóp, hvernig brugðist skyldi við þessum tilmælum frá her- foringjanefnd NATO. Af hinu lengra, íslenska skjali sést, að umræðurnar um sovéska síldarflotann og bandarísku tund- urspillana verða í framhaldi af því, að rætt er um, hvernig fara skuli með íslensk skip, ef til ófriðar kæmi og hvaðan ætti að flytja vistir til landsins. Er sovéski flotinn og við- brögð við honum innskot í þær um- ræður, enda var hann ekkert aðal- atriði á þessum fundi, heldur viðbúnaður á vegum NATO og Bandaríkjanna í þágu varna Íslands. Þess vegna skipti miklu, að Omar Bradley segir, að Bandaríkjamenn hafi tekið ákvörðun um að senda tundurspillana á vettvang. Hann er að lýsa áhuga og einörðum vilja Bandaríkjamanna til að láta að sér kveða, um leið og hann segir þá skorta aðstöðu í landi til langrar veru við Ísland. Í grein sinni segir Guðni Th. Jó- hannesson hins vegar: „Íslenskir og aðrir vestrænir ráðamenn urðu því sammála um hina almennu ógn en þá greindi á um hið sérstaka sum- arið 1950; sovéskan síldarflota á miðunum undan Norðurlandi. Mis- munandi áherslur af því tagi voru ekkert einsdæmi og manni kemur í hug að Omar Bradley sinnaðist við Douglas MacArthur hershöfðingja sem vildi hefja hernað í Kína út af Kóreustyrjöldinni. Bradley lét þá hin frægu orð falla að slík aðgerð hefði þýtt rangt stríð á röngum stað, röngum tíma og gegn röngum and- stæðingi.“ Hér færist skörin upp í bekkinn. Það var alls enginn ágreiningur milli íslenskra og annarra vestrænna ráðamanna um að sovéski síldarflot- inn kynni að vera hættulegur. För bandarísku tundurspillanna á Ís- landsmið er besta sönnun þess, hvað sem öllum skjölum og túlkunum á þeim líður. Hitt er til íhugunar, hvort Guðni sé að gefa til kynna með líkingu sinni, að Omar Bradley hafi komið í veg fyrir, að ráðist yrði á sovéska síldaflotann og tilmæli ís- lenskra stjórnvalda hafi í raun snú- ist um það. Íslensk stjórnvöld hafi staðið í sporum MacArthurs, sem vildi ráðast inn í Kína. * Að æðsta herstjórn Bandaríkj- anna hafi tekið ákvörðun að eigin frumkvæði um för fjögurra tund- urspilla til Íslands sumarið 1950 er jafnlíklegt eftir grein Guðna Th. Jó- hannessonar og áður en hún birtist. Hann hnekkir ekki rökstuddri skoð- un minni, þótt hann tíundi áhyggjur íslenskra ráðamanna, sem hafa verið öllum ljósar í 57 ár. Bandaríkja- stjórn ákvað auðvitað ein og óstudd að senda herskip sín á Íslandsmið. Hún vissi á hinn bóginn, að íslensk stjórnvöld tækju þeim ekki illa. Um hættuna af Sovétríkjunum og um- svifum þeirra í nágrenni Íslands var enginn ágreiningur milli íslenskra stjórnvalda og ríkisstjórna við Norð- ur-Atlantshaf sumarið 1950. Í upphafi greinarinnar vitnaði ég til orða, sem féllu á alþingi Íslend- inga 18. október 2004, 13 árum eftir að Sovétríkin urðu að engu. Vegna þeirra sögulegu umskipta lýstu þingmenn úr öllum flokkum ótta við rússneska flotann og kröfðust að- gerða gegn honum – aðgerða, sem ég taldi þá óþarfar. Sagan er oft skrýtnari en skáldskapur, hvað svo sem sagnfræðingar og skjöl segja. flota Höfundur er dóms- og kirkjumálaráðherra. m krefst lag hefur rum og ar eins og allri um- in nokk- BUGL hefur gað veru- og er lík- rstaklega og annað lk laðast afnvel yndast á rátt fyrir un á hvernig úð að ám á óun- ðir hafa GL. sérfræð- og ung- síðast- liðnu ári í hlutverk sérfræðings í hjúkrun sem er vel skilgreint innan LSH. Fjölbreytt meðferð Starfsemi BUGL býður upp á fjölbreytta og sérhæfða meðferð m.a. einstaklings- eða hópmeðferð ásamt fjölskyldumeðferð og heima- hjúkrun. Auk lyfjameðferðar er í vaxandi mæli notuð hugræn atferl- ismeðferð auk annarrar sálfræði- meðferðar ásamt iðjuþjálfun, fé- lagsráðgjöf og þroskaþjálfun sem krefst sérhæfðra starfsmanna á þessum sviðum. Aukin áhersla hef- ur verið á samvinnu við fjölskyld- una á legudeildum BUGL með fjöl- skyldusamræðum sem öllum fjölskyldum er boðið uppá að þiggja og hefur gefist vel til að styrkja for- eldra til að takast á við geðraskanir barna sinna, bæði til að styrkja sjálfa sig og hjálpa börnunum þeg- ar heim er komið. Þessi uppbygg- ing meðferða og nýrra meðferð- arúrræða, aukin fjölskylduáhersla og vettvangshjúkrun, er svipuð þró- un og hefur verið á fullorðinsþætti geðsviðs LSH undanfarin ár. Samstarf og þjónusta utan BUGL BUGL er í samstarfi við ýmsar stofnanir svo sem Stuðla og vímu- efnadeild fyrir ungmenni á Vogi. Komið var á þjónustusamningi árið 2000 milli þessara aðila sem auð- veldar samstarf um þjónustu við börn og ungmenni með geðrask- anir. Samstarf við heilsugæsluna mun væntanlega aukast á næstu ár- um. Með vaxandi þjónustueft- irspurn hefur orðið æ brýnna að efla meðferðarúrræði utan BUGL meðal annars að því er varðar frum- greiningu og meðferð. BUGL gegn- ir hlutverki sérhæfðrar háskóla- sjúkrahússdeildar og nauðsynlegt að ýmis greiningar- og forvinna auk meðferðar fari fram í nærþjónustu. Tillögur heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins sl. haust á þessu sviði eru tímabærar og mikilvægt að yfirmenn og starfsfólk BUGL styðji þær til að hægt sé að greina milli fyrsta stigs samfélagsþjónustu og þriðja stigs sjúkrahúsþjónustu. Þannig mun BUGL hafa tækifæri til að eflast sem miðstöð faglegs starfs á sviði þjónustu við börn og unglinga með geðraskanir á lands- vísu. Staða sérgreina, starfs- skipulag og fjárveitingar Þrátt fyrir aukinn fjölda sér- fræðilækna á BUGL á und- anförnum árum þá er takmarkað framboð þeirra áhyggjuefni og er brýnt að efla þátt barna- og ung- lingageðlækna á BUGL. Það er þó víðar en á Íslandi sem skortur er á barna- og unglingageðlæknum og vonandi tekst að glæða áhuga á sér- greininni, m.a. með bættri aðstöðu og jákvæðari umræðu barna- og unglingageðlækna sjálfra um mála- flokkinn til að laða að unga lækna í spennandi sérgrein innan geðlækn- isfræðinnar. Auk þess væri æski- legt að fleiri sérfræðilæknar kæmu að þjónustunni utan BUGL. Sérfræðilæknar á BUGL hafa gert athugasemdir við stöðu deild- arinnar og talið að hún ætti að vera sjálfstæð eining. Sú umræða hefur verið hávær (en í fáum) og oft skyggt á hið góða og faglega starf sem fram fer á BUGL. Það er ekki á dagskrá að breyta stjórnfyr- irkomulagi BUGL og gera BUGL að sjálfstæðri einingu á næstu ár- um – heldur að færa BUGL nær uppbyggingu háskólasjúkrahússins á Hringbraut. Það er harla ólíklegt að almenningur á Íslandi vilji sjúkrahúsþjónustu fyrir börn og unglinga með geðraskanir, í ein- angrun, án góðra tengsla við þróun háskólasjúkrahúss. Má draga þá ályktun að þessi málflutningur um stöðu deildarinnar sem kemur reglulega upp sé skaðlegur BUGL og jafnvel til að auka að óþörfu erf- iðleika og íþyngja fjölskyldum sem bíða þjónustu BUGL. Starfs- ánægja og fagleg þjónusta á BUGL er sífellt lögð að veði af sama fá- menna hópnum í þessari end- urteknu umræðu um stjórnfyr- irkomulag BUGL innan LSH. Æskilegt er að staðsetning deilda á sviðum taki mið af fagleg- um forsendum. BUGL hefur sér- stöðu á geðsviði m.a. að því er varð- ar þroskaferil barna og unglinga auk umhverfisáhrifa. Á síðustu ár- um hefur í vaxandi mæli verið reynt að greina forstigseinkenni og hugsanlega áhættuþætti fyrir geð- röskunum hjá ungmennum. Á þessu aldursskeiði gera menn sér einnig vonir um að hægt verði að efla forvarnir. Þótt meðferðarn- álgun fullorðinna sé að sumu leyti frábrugðin því sem gerist hjá ung- mennum þá er veruleg skörun í að- ferðarfræði greiningar og með- ferðar. Fjárveitingar til BUGL hafa aukist á undanförnum árum sem var nauðsynlegt m.a. vegna auk- innar þjónustueftirspurnar. Al- þingi ákvarðar LSH fjárveitingar og hin ýmsu svið LSH reyna að að- laga starfsemi sína þeim fjár- munum sem til skipta eru hverju sinni. Rannsóknir og fræðastörf Þrátt fyrir skort á kennara- stöðum er mikil gróska í rann- sóknum og fræðastörfum á BUGL og starfsmenn geta og hafa sótt um mat á akademísku hæfi sínu. Meðal nemenda á BUGL eru læknanemar á 5. ári sem sækja þar námskeið í barna- og unglingageðlæknisfræði sem skipulagt er af Bertrand Lauth aðjunkt og Ólafi Ó. Guð- mundssyni yfirlækni. Námskeiðið er m.a. í formi vandamálamiðaðrar kennslu og hefur verið að styrkjast á síðustu misserum skv. námsmati. Nú í vor verður einnig boðið upp á helmingi lengri tíma á BUGL fyrir þá læknanema sem þess óska. Geðsvið er sem stendur aðeins með eina prófessorsstöðu og tvær dós- entsstöður við læknadeild Háskóla Íslands. Til samanburðar má nefna að sextán fastar kennarastöður eru við lyflækningasvið, þar af þrettán fjármagnaðar af læknadeild. Kennslustjóri námskeiðsins í geð- læknisfræði fullorðinna er í að- junktsstöðu líkt og umsjónarlæknir námskeiðsins í barna- og unglinga- geðlæknisfræði. Nauðsynlegt er að fjölga kennarastöðum í geðlækn- isfræði á geðsviði og efla há- skólaþáttinn innan læknaþáttar sviðsins. Aðrar fagstéttir innan BUGL taka þátt í kennslu í HÍ og HA og stýra rannsóknum á sínu sérsviði, iðjuþjálfun, sálfræði, fé- lagsráðgjöf og geðhjúkrun. Fyrsti doktorsmenntaði geðhjúkr- unarfræðingurinn, Páll Biering lektor, hefur stýrt rannsóknum á mati á sjúklinga- og aðstandendaá- nægju á legudeildum BUGL ásamt því að hafa lagt hönd á plóginn varðandi skipulag faglegrar hjúkr- unar á legudeildum BUGL. Hér að framan er fátt eitt talið af því mikla akademíska starfi sem fram fer á BUGL. Áhersluþættir á næstunni Nauðsynlegt er að vinna út frá styrkleika og af jákvæðni en missa ekki sjónar á því sem vel hefur tek- ist til á BUGL undanfarin ár. Framundan eru áhugaverð tæki- færi við uppbyggingu á aðstöðu og til frekari eflingar og þróunar BUGL á ýmsum þjónustuþáttum. Sviðsstjórar geðsviðs leggja áherslu á að hraðað verði byggingu göngudeildar BUGL, að þjón- ustuúrræði utan BUGL verði styrkt, að samstarf við heilsugæslu og farþjónustu sérfræðilækna og þverfaglegs teymis verði eflt, og unnið verði af krafti að klínískum leiðbeiningum fyrir fagfólk, að- standendur og sjúklinga. Allt eru þetta áherslur og aðgerðir sem ráð- herra heilbrigðismála gerði að sín- um sl. haust. Mikilvægt væri að les- endur Morgunblaðsins fengju umfjöllun um eftirfylgd þeirra í blaði landsmanna. i BUGL » Framundan eruáhugaverð tækifæri við uppbyggingu á að- stöðu og til frekari efl- ingar og þróunar BUGL á ýmsum þjón- ustuþáttum. óttir Höfundar eru sviðsstjórar geðsviðs LSH.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.