Morgunblaðið - 19.01.2007, Síða 31

Morgunblaðið - 19.01.2007, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 31 húsi sem tengist fjölskyldunni svo sterkum böndum. Okkur hefur liðið mjög vel hérna á Fjölnisveginum. Þrátt fyrir það finnst mér alltaf eins og ég sé að fara að heimsækja ömmu þegar ég kem heim. Eftir að amma veiktist gafst mér tækifæri á að launa henni að hluta til alla þá hjálp sem hún hafði veitt mér í gegnum tíðina. Sú reynsla og upp- lifun hefur verið mér sérstaklega dýrmæt. Hrafnkell Stefánsson. Þegar við komum til ömmu á Fjölnó þá gátum við verið viss um að við ættum skemmtilegan og spenn- andi dag í vændum. Amma var mjög brosmild og góð við alla og við mun- um aldrei eftir henni reiðri. Henni fannst mjög gaman að spila og kenndi okkur mörg skemmtileg spil. Amma hafði líka gaman af ljóðum og oftast þegar við komum í heimsókn voru lesin ljóð. Amma var alltaf tilbúin að skemmta okkur börnum. Hér koma tvö ljóð sem eru okkur minnisstæðust. Hún hét Abba-labba-lá. Hún var svört og brún á brá og átti kofa í skóginum á milli grænna greina og trúði á stokka og steina. En enginn vissi hvaðan hún kom í þennan skóg; enginn vissi hvers vegna hún ærslaðist og hló, og enginn vissi hvers vegna hún bæði beit og sló. – (Davíð Stefánsson) Seztu hérna hjá mér, systir mín góð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. Mamma ætlar að sofna. Mamma er svo þreytt. – Og sumir eiga sorgir, sem svefninn getur eytt. Sumir eiga sorgir, og sumir eiga þrá, sem aðeins í draumheimum uppfyllast má. (Davíð Stefánsson) Við eigum ótal minningar um okk- ar yndislegu ömmu og við munum aldrei gleyma henni. Haraldur Jón og Sigurður Davíð. Elsku amma, finnst svo skrítið að þú sért farin, þótt ég hafi reyndar séð þig lítið undanfarið ár. Veit að ég var alls ekki nógu duglegur að heim- sækja þig eins og ég hefði átt að vera. Þú hefur alltaf verið svo góð við mig og annast mig mikið og vel. Það var svo gott að geta alltaf komið í heimsókn til þín á Fjölnisveginn þegar ég var búinn að vera niðri í bæ. Var alltaf svo notalegt hjá þér og fint að geta komið þar sem þú gafst mér alltaf eitthvað gott í gogg- inn og maður gat spjallað við þig um daginn og lífið. Svo áttirðu alltaf eitthvað gotterí og ís uppi á lofti sem maður mátti fá hvenær sem maður vildi. Man þegar við bjuggum hjá þér og hvað þú varst dugleg að tefla og spila við mig sem mér fannst rosalega gaman. Fórst einnig oft með mig í mynda- styttugarðinn og niður á tjörn þar sem ég fékk að gefa öndunum brauð. Svo fórum ég þú og mamma alltaf með teppi útí garð og þið láguð í sól- baði meðan ég lék mér í trjánum með dótakallana mína. Ég man líka hvað mér fannst gaman þegar öll ættin hittist hjá þér, einsog var venja á t.d. 17. júní, Reykjavíkur- maraþondaginn og á jólunum. Jóla- skrautið þitt á skenknum inní borð- stofu var það flottasta sem ég hef séð. Þín er og verður mjög sárt saknað. Vil bara þakka þér fyrir allt það góða sem þú hefur gefið mér. Nær- vera þín hefur tvímælalaust gert mig og hina að betri persónum. Vona innilega að þú sért á góðum stað og að við hittumst aftur. Hrafnkell Smári. Það var heppni fyrir mig tólf ára gamla og nýflutta á Seltjarnarnesið að eignast fljótt góða vinkonu, Ragnheiði dóttur Guðbjargar sem við kveðjum í dag. Og heppni var það líka hversu langt var á milli heimila okkar bekkjarsystranna – mitt lengst úti á Nesi og hennar í Lambastaðahverfinu. Vegna fjar- lægðarinnar varð nefnilega sjálfsagt að heimsóknirnar urðu langar og ég varð heimagangur á Tjarnarstígn- um, þar sem ég mætti einstaklega hlýju viðmóti Guðbjargar. Hún kippti sér ekki upp við að það fjölg- aði stundum við matborðið þótt þar væru margir fyrir. Það ríkti oft glað- værð í stóra eldhúsinu og skemmti- legast var þegar Guðbjörg spjallaði við okkur krakkana, brosti sínu bjarta brosi og hló dillandi hlátri. Ég sé hana fyrir mér á þönum að sinna stóru heimili, en líka ótrúlega þol- inmóða að sauma á heimasætuna og leysa úr öllum þeim málum sem upp komu í barnahópnum. Hún gaf sér einnig tíma til að sinna handavinnu, og gerði þá munstrin sjálf af list- fengi. Á heimilinu voru málverk og bækur áberandi, vönduð tekkhús- gögn frá Danmerkurárunum í borð- stofu og stofuglugginn vissi út að sjó. Þar sátum við unglingsstúlkurn- ar stundum dreymnar með Vivaldi á fóninum og öldurótið fyrir augunum. Þá gat borið við að ilmur lokkaði okkur niður í eldhús þar sem Guð- björg hafði bakað köku um kaffileyt- ið og eldhúsið var fullt af gestum og gangandi, því ég var ekki ein um það að laðast að heimilinu á Tjarnar- stígnum. Mig langar að þakka Guðbjörgu móttökurnar forðum og góð kynni alla tíð og votta fjölskyldu hennar samúð. Eva Hallvarðsdóttir. Það var stelpuskotta, innan við fermingu, sem tók upp á því einn daginn að berja að dyrum á æsku- heimili Guðbjargar Jónsdóttur og spyrja hvort Ranka væri heima. Sú sem til dyra kom var smávaxin, fín- gerð stúlka, ljós yfirlitum, andlits- fríð svo af bar, alvarleg á svip og setti ofurlítið í brýnnar þegar hún svaraði: „Ranka, það hefur enginn kallað hana Rönku fyrr.“ Svo brosti Guðbjörg og dyrnar voru opnaðar upp á gátt. Þótt síðan séu liðin rúm sextíu ár finnst mér að þessi fyrstu kynni hafi sýnt skapgerðareinkenni sem mér þóttu alla tíð áberandi í fari Guð- bjargar: varfærni í samskiptum við fólk, hreinskilni í tali, næma kímni- gáfu, viðkvæmni fyrir hönd sinna nánustu og síðast en ekki síst brosið – þetta góða bros með því bliki í auga að mér fannst hún vera að daðra við heiminn. Oft fylgdi brosinu svo hjartanlegur hlátur að mann- bætandi var að hlæja með henni. Þessir eiginleikar hjálpuðu mikið þegar þessi fíngerða kona síðar stóð á hátindi starfsferils síns – hafði eignast sex tápmikil börn með sínum mæta og góða manni Hrafnkeli Stef- ánssyni – og annaðist uppeldi og umsjá barna og heimilis af mikilli rausn og skörungsskap. Ævinlega var fínt í kringum Guðbjörgu en fín- ust voru börnin og hún sjálf enda var hún gædd næmi fyrir litum og lita- samsetningum eins og glöggt mátti sjá á margs konar hannyrðum sem prýddu heimili hennar. Guðbjörg var mikill ljóðaunnandi, eins og hún átti kyn til, og brosti sínu blíðasta þegar hún las gott ljóð. Þá voru margendurtekin orð og orðasambönd þar sem henni þótti vel kveðið. Hún var smekkvís á mál, ritað jafnt sem talað, hafði skýrt en látlaust tungutak, oft hnitmiðað og röklegt. Það kom best í ljós þegar skipst var á skoðunum um ýmis efni eða dægurmál – en aldrei man ég til þess að henni hafi mislíkað við mig vegna skoðanaágreinings eða mál- notkunar nema ef vera kynni þegar mér varð það á að kalla systur henn- ar Rönku. Nú er gáttin sem Guðbjörg Jóns- dóttir opnaði fyrir margt löngu lok- uð. En aðgengi að minningum um góða og heiðarlega manneskju, hvort heldur var í blíðu eða stríðu, er mikils virði. Fyrir það verður aldrei fullþakkað. Anna Sigríður Skarphéðinsdóttir. ✝ Þórir Guð-mundsson fædd- ist á Ósi á Skógar- strönd hinn 21. júlí 1934. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut hinn 11. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðmundur Daðason, f. 1900, d. 2006 og Sigurlaug María Jónsdóttir, f. 1908, d. 1990. Þórir var elstur í röð fimm systkina. Systkini hans eru María, f. 1936, Daníel Jón, f. 1937, Ásdís, f. 1940 og Auður, f. 1946. Þórir kvæntist 14. maí 1960 Hlíf Samúelsdóttur, frá Snjall- steinshöfða í Landsveit, f. 27. júlí 1936. Foreldrar hennar voru Samúel Jónsson, f. 1906, d. 1993 og Elísa Katrín Erlendsdóttir, f. 1907, d. 1993. Börn Þóris og Hlíf- ar eru: 1) Hreggviður Óskarsson, fóstursonur Þóris, sonur Hlífar, kvæntur Hafdísi G. Halldórs- dóttur, þau eiga þrjá syni, Stefán Örn, Brynjar Þór og Hrannar Bjarka og á Hreggviður eina dóttur frá fyrra hjónabandi, fyrir Guðmund Jónasson í áætl- unarferðum norður á Strandir, einnig fór hann með ferðafólk í rútuferðir á hina ýmsu áfanga- staði. Árið 1966 fékk hann at- vinnuleyfi fyrir leiguakstur og sinnti því starfi alla tíð síðan. Ók hann leigubíl hjá BSR til ársins 2000, fór hann þá yfir á Hreyfil og starfaði þar óslitið þar til hann veiktist í mars 2006. Þórir sinnti hinum ýmsu félagsstörfum fyrir leigubílstjóra, meðal annars fyrir lánasjóð BSR og var for- maður Lífeyrissjóðs leigubílstjóra til margra ára. Einnig sinnti hann ýmsum störfum fyrir Frama, stéttarfélag leigubíl- stjóra. Hann stofnaði veiðifélag um árnar Setbergsá og Stóru- Langadalsá vestur á Skógar- strönd, og var lengstum í forsvari fyrir það. Alla tíð hafði Þórir gaman af veiði, fór sem ungur maður til rjúpna og stundaði hann lax- og silungsveiði alla ævi. Síðustu veiðiferðina fór hann ásamt syni sínum í ágúst síðast- liðnum, á æskuslóðirnar. Þórir bar ætíð sterkar taugar til æsku- stöðvanna og hafði óbilandi áhuga á því að viðhalda jörðinni, þannig að hún væri afkomend- unum til sóma. Útför Þóris verður gerð frá Árbæjarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Önnu Hlíf. Dóttir Önnu Hlífar og Ok- tós Þorgrímssonar er Alexandra Eik. 2) Guðmundur Þór- isson, kvæntur Sig- rúnu Jónsdóttur, dóttir þeirra er Hólmfríður. 3) Elsa Þórisdóttir, sam- býlismaður Daníel H. Skúlason, börn þeirra eru Þórir Bergmann, Daði og María Rún. Sonur Þóris Bergmanns og Sonju Ó. Georgsdóttur er Nökkvi Freyr. 4) Samúel Þórisson, sam- býliskona Margrét Kristjáns- dóttir, dætur þeirra eru Hlíf og Hrefna. 5) Björgvin Þórisson, var kvæntur Vilborgu Guðjohnsen, börn þeirra eru Óðinn, Þórunn og Steinunn. 6) María G. Þór- isdóttir, gift Inga B. Erlingssyni, synir þeirra eru Arnar Huginn og Dagur Ingi. Þórir ólst upp á Ósi en fór ung- ur að heiman og sinnti ýmsum störfum. Fljótlega eftir að hann flutti til Reykjavíkur fór hann að starfa við akstur, ók meðal ann- ars fyrir Mjólkursamsöluna og Afi var besti afi í heiminum, hann var góður við alla. Hann kenndi mér að veiða og tók úr mér fyrstu tönn- ina. Hann kom oft í sveitina með okkur og nennti alltaf að vera með okkur krökkunum. Þei, þei og ró. Þögn breiðist yfir allt. Hnigin er sól í sjó. Sof þú í blíðri ró. Við höfum vakað nóg. Værðar þú njóta skalt. Þei, þei og ró. Þögn breiðist yfir allt. (Jóhann Jónsson.) Núna er afi góður engill á himn- um. Arnar Huginn og Dagur Ingi Ingasynir Nú, þegar komið er að kveðju- stund vil ég þakka Þóri bróður mín- um samfylgdina í gegnum árin. Við vorum 5 systkinin, 2 bræður og 3 systur. Hann var elstur, þremur ár- um eldri en ég. Það þarf því engan að undra þótt ég hafi litið upp til hans á fyrstu æviárum okkar. Hitt er svo annað að það hefur ekkert breyst í áranna rás, því alltaf var hægt að líta upp til hans fyrir það hvaða mann hann hafði að geyma. Við Þórir vor- um mikið samvistum fyrst eftir að við fórum úr foreldrahúsum. Við deildum saman herbergi hjá Guð- rúnu Jónsdóttur, móðursystur okk- ar, nokkra vetur allt þar til hann náði sér í konu, Hlíf Samúelsdóttur. Eftir það dvaldi ég eina tvo vetur á heimili þeirra hjóna. Aldrei man ég eftir að okkur hafi orðið sundurorða og minnist ég alls þess tíma þakklátur í huga. Þórir var alltaf tilbúinn að leysa allra vanda eftir bestu getu enda var hann hægri hönd okkar systkinanna í öllum sameiginlegum málum og ekki síður vill ég þakka honum það hvernig hann reyndist háöldruðum föður okkar hans síðustu æviár með margskonar aðstoð og umhyggju. Þórir stundaði bifreiðaakstur, lengst af sem leigubílstjóri í Reykja- vík. Ég er minna kunnugur þeim þætti í lífi hans en veit þó að hann naut trausts og trúnaðar sinna vinnufélaga. Þórir átti stóra fjöl- skyldu, eiginkonu, börn, tengdabörn, barnabörn og langafabörn. Ég sendi þeim öllum mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Kæri bróðir, ég kveð þig með söknuði. Jón Guðmundsson. Þórir Guðmundsson frændi minn er látinn. Þórir var þessi trausti og óhagganlegi maður, máttarstólpi sinnar fjölskyldu og vina. Á hann mátti alltaf treysta og til hans leita, hvað sem á dundi. Fyrstu kynni okkar voru í sveit- inni á Ósi. Hann var elsti sonurinn og talsvert eldri en t.d. við Dísa. Hann mátti því ekki opinberlega taka þátt í prakkarastrikum og ærslum okkar hinna en studdi óbeint við ólátagang- inn og dró ekki úr. Næsti áfangastaður okkar á lífs- leiðinni var svo Stórholt 19, hjá Gunnu frænku. Samastaður fjöl- skyldunnar í Reykjavík á þeim ár- um. Þá var Þórir byrjaður að keyra leigubíl, átti alltaf flottustu Benzana, þekkti og keyrði Kjarval, og brunaði í sveitina á bíl sem aðra í sveitinni bara dreymdi um. Seinna á ævinni sáum við svo um fjölskyldumálin, bæði þau gleðilegu og sorglegu, vorum elstu synirnir, sem þurftu að standa sig. Þórir er í mínum huga þessi ótrú- lega farsæli og trausti maður. Einn af þeim sem hafa byggt upp þetta land, sá sinni stóru og fallegu fjöl- skyldu farborða, var borgarbúi en átti sínar sterku rætur í sveitinni, Skógarströndinni, sem hann unni. Við systkinin og okkar fjölskyldur sendum Hlíf og allri fjölskyldu Þóris, svo og öðru frændfólki okkar, inni- legustu samúðarkveðjur. Jón Atli Kristjánsson. Í dag er kvaddur góður félagi og vinur. Ungur hóf Þórir störf sem bif- reiðarstjóri sem hann stundaði til æviloka. Lengst af ók hann sem leigubifreiðastjóri, bæði á B.S.R., Bæjarleiðum og Hreyfli. Hann var gæddur mörgum góðum kostum sem best komu í ljós í þjónustu hans við viðskiptavini sína. Þórir hafði mikinn áhuga á félagsstörfum og var hann kosinn í stjórn Bifreiðafélagsins Frama, þar sem hann gegndi mörg- um trúnaðarstörfum fyrir félagið og félagsmenn. Þau hjónin Þórir og Hlíf höfðu bæði mikinn áhuga á ferðalögum og höfðu ferðast um landið vítt og breitt. Fyrir allmörgum árum gerð- umst við ferðafélagar, lögðum land undir fót og hófum vetrarferðir til sólarlanda í svartasta skammdeginu og stunduðum þær í nokkur ár. En þar kom, að okkur þótti þetta ekki nægjanlegt og bættum þá við haust- ferðum til ýmissa framandi landa. Betri ferðafélaga var ekki hægt að hugsa sér og við minnumst allra samverustundanna með þakklæti í huga. Söknuðurinn er sár, en minningin um góðan dreng og einlægan vin mun lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð. Elsku Hlíf, við sendum þér og fjöl- skyldunni allri, okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum algóðan Guð að styrkja ykkur og styðja. Gunnur og Pétur. Þórir Guðmundsson ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR PÁLSSON símvirki, hjúkrunarheimilinu Eir, lést miðvikudaginn 17. janúar. Arnbjörg Handeland, Dag Handeland, Páll Guðmundsson, Anna Guðmundsdóttir, Óskar Þór Þráinsson, Þórhalla Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær kona mín, móðir, tengdamóðir og amma, BIRNA ÞÓRUNN AÐALSTEINSDÓTTIR, lést þriðjudaginn 16. janúar á heimili sínu, Sigtúni, Borgarfirði eystra. Árni Björgvin Sveinsson, Árni Bergþór Kjartansson, Petra Jóhanna Vignisdóttir, Þröstur Fannar Árnason, Hólmfríður Jóhanna Lúðvíksdóttir, Ragnhildur Sveina Árnadóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.