Morgunblaðið - 19.01.2007, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 19.01.2007, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Fyrir tæpum 50 ár- um, nánar til tekið snemmsumars 1958, slógu vegamenn tjöldum sínum nið- ur norðan Hamarsár á Vatnsnesi, þar sem nú stendur Hamarsbúð. Þetta sumar var ég 15 ára liðlétt- ingur í vegavinnuflokknum og tíðum var mér falið það verkefni að skjót- ast á jeppa eftir mjólk til næsta bæj- ar. Ung og myndarleg kona hafði tekið til mjólkina í brúsana og stóð í bæjardyrunum þegar rennt var í hlaðið. Eflaust höfum við skipst á nokkrum orðum um leið og ég snar- aði brúsunum inn í jeppann en gelgjulegur unglingurinn dvaldi ekki í löngum samræðum við hús- freyju þótt viðmót hennar væri hlý- legt og augun brún. Þannig hófust fyrstu kynni okkar Immu á Sauða- dalsá þótt í litlu væri. Tíminn leið og fimm árum síðar var ekki lengur undan því vikist að keyra aftur út að Sauðadalsá, í þetta skiptið með Ellu, elstu heimasæt- unni á bænum, sem átti það erindi að sína foreldrunum tilvonandi tengdason. Kvíði minn fyrir þeirri frumsýningu reyndist ástæðulaus og eflaust hefur hún komið minna á óvart vegna ferðanna með mjólkur- brúsana forðum daga. Síðan hef ég í ríkum mæli notið þeirrar hlýju og vinsemdar sem tengdamóðir mín sýndi öllu sínu samferðafólki alla tíð. Á Sauðadalsá var tvíbýli og bjó Imma og fjölskylda á syðra búinu en á ytra búinu bjó óskylt fólk þótt bæ- irnir væru sambyggðir. Í sama túni var einnig bærinn á Sauðá, þar sem mágur Immu bjó með sinni fjöl- skyldu. Þetta voru mannmörg heim- ili í mikilli nálægð hvert við annað, mikið af börnum og gott og glað- vært sambýli. Tíðum var því glatt á hjalla, ekki síst um réttir en skila- rétt Vatnsnesinga liggur skammt frá þessum bæjum og þangað lögðu margir réttarmenn leið sína til að njóta greiða og gistingar. Þó var bú- ið ekki stórt né ríkmannleg húsa- kynni en þeim mun meiri alúð lögð við gesti og gangandi. Imma var ekki bóndi eins og bændakonur eru nú réttilega titl- aðar enda sinna þær nú í mörgum tilvikum bústörfum ekki síður en karlar og í miklu ríkari mæli en áður tíðkaðist. Hún var húsfreyja, sem kom ekki mikið að skepnuhirðingu, heyskap né öðrum útiverkum. Það var heldur ekki lítið starf á hennar dögum að sinna barnmörgu heimili, í lélegum húsakynnum, án rafmagns og allra þeirra þæginda sem nú þykja sjálfsögð. Hún naut ríkulega elskusemi eignmanns síns, sem bar hana á höndum sér og gerði engar aðrar kröfur en að honum og börn- um þeirra og öðrum ástvinum farn- aðist sem allra best. Vatnsnesið er útkjálkasveit þar sem geisað geta hörð veður á vetr- um og vorin eru gjarnan köld. En sumrin geta verið fögur ekki síst þegar sólin gyllir Húnaflóann og sest að lokum í eldrauðan sæ og víð- sýnið til hafs og Stranda er dýrð- legt. Á slíkum dögum og síðkvöldum er auðvelt að gleyma dimmum og köldum vetrum, sem þó geta átt sín- ar björtu hliðar þegar snædrifið landið baðast skini tungls og norð- urljósa. Imma var fædd og alin upp á þessu nesi og unni náttúrufari þess og töfrum. Imma og Þormóður fluttu til Hvammstanga 1973 og upp úr því tóku Þóra dóttir þeirra og Heimir þar fljótlega við búi og byggðu upp á Sauðadalsá eitt afurðamesta fjárbú Ingibjörg Þórhallsdóttir ✝ Ingibjörg Þór-hallsdóttir fæddist á Stöpum á Vatnsnesi 28. febr- úar 1922. Hún lést á Heilbrigðisstofn- uninni á Hvamms- tanga sl. nýársnótt og var útför hennar gerð frá Hvamms- tangakirkju 12. jan- úar. landsins. Þá tóku við hægari tímar, þau tóku að ferðast og eft- ir andlát Þormóðs hélt hún þeim ferðalögum áfram, fór nokkrum sinnum til útlanda og var dugleg við að heimsækja afkomend- ur sína og vini og oft var hún langdvölum á Sauðadalsá. Í sveitinni hafði hún ásamt fleiri konum staðið fyrir stofnun kvenfélags og lengst af var hún for- maður þess. Hún hélt síðan áfram félagsstöfum í Félagi eldri borgara í Vestur-Húnavatnssýslu og var for- maður þess um tíma. Í íbúðum aldr- aðra við Nestún á Hvammstanga bjó hún vel um sig og eignaðist góða vini þar í sambýlinu. Fyrir um einu og hálfu ári flutti Imma á Heilbrigðisstofnunina á Hvammstanga og var þá svo heppin að hafa þar útsýni til norðurs yfir Húnaflóann sinn kæra og til Strandafjallanna eins og hún hafði þráð. Síðasta árið þraut heilsan en aldrei var kvartað og illvígur krabb- inn vann ekki á vinsemd og góðvild. Þar naut hún frábærrar umönnunar góðs starfsfólks sem hún var afar þakklát fyrir, sem og allir aðstand- endur hennar. Seint veður fullþakkaður sá hlý- hugur sem Imma sýndi mér og minni fjölskyldu. Börn okkar Ellu dvöldu oft hjá ömmu sinni og afa og leyfðist þar stundum ýmislegt sem annars var bannað en lærðu jafn- fram margt sem að öðrum kosti hefði ekki verið kennt. Sömuleiðis voru barnabarnabörnin hænd að langömmu sinni. Annað var ekki hægt með svo góðviljaða og blíð- lynda konu. Hana kveðjum við nú öll með þakklæti og virðingu. Þórður Skúlason. Elsku amma mín. Mikið þykir mér erfitt að kveðja þig þar sem þú ert svo frábær og yndisleg mann- eskja. Alltaf þegar ég kom í heim- sókn til þín var svo gott að geta lagst í sófann og hlustað á tifið í klukkunni á veggnum og tikkið í prjónunum þínum þegar þú varst að prjóna ullarsokka eða ullarpeysur á mig eða einhvern annan. Ég man eftir því þegar ég og Tommi frændi vorum á leiðinni í veiði í Miðfjarðará og ætluðum að stoppa við hjá þér í smástund áður en við legðum af stað í veiðar en við stoppuðum aðeins lengur en við ætl- uðum, þar sem það var alltaf þannig að ef maður kom til þín, þá var fullt hlaðborð af kræsingum, kex, klein- ur, partar, harðfiskur, tangabrauð, og í raun var allt borið fram sem til var í búrinu. Þú gekkst jafnvel svo langt að þú varst farin að elda fyrir okkur uppáhaldsfiskréttinn minn og skipti litlu máli þó svo við værum á ferð um miðjan dag og alls ekki á matmálstíma. Ég man líka eftir því, þegar ég var yngri, hvað ég hlakkaði alltaf til þegar þú komst í heimsókn til okkar í bæinn og fannst mér alveg æð- islegt að geta lánað þér rúmið mitt. Þú komst alltaf með beiskan brjóst- sykur í veskinu þínu og súkkulaði sem ég laumaðist alltaf í. Það var alltaf hægt að plata þig til þess að spila við mig og sama hversu oft ég bað þig um að taka um hendurnar mínar og gera „fagur fiskur í sjó“ þá sagðir þú aldrei nei við mig. Elsku Imma amma, ég á eftir að sakna þín mikið en ég veit að þú ert komin á betri stað núna og ég veit að þér líður vel með englunum í himnaríki, því trúlega varst þú ein af þeim, send hingað til okkar í dul- argervi, því aðeins englarnir hafa jafn hlýtt hjartalag og jafn yndisleg- an persónuleika og þú hafðir að geyma. Mér þykir vænt um þig. Ingvar Óskarsson. Elsku besta Imma amma. Minningarnar um þig sem alltaf varst svo blíð, góð og falleg eiga eft- ir að fylgja okkur og gera að betri manneskjum. Þú sást alltaf það besta í fari fólks og hafðir svo góða nærveru að öllum leið vel hjá þér. Þú kenndir okkur að meta allt það fallega í kringum okkur, í nátt- úrunni, ljóðunum, sögunum og bæn- unum og í samferðafólki okkar og þá ekki síst í börnunum sem þú varst alltaf svo góð. Við vitum að nú ert þú komin á betri stað, til Tomma afa og munt líta til með okkur öllum. Takk fyrir allar góðu stundirnar amma okkar. Hjördís og Sunna. Elsku amma, minningarnar um þig eru svo margar og góðar. Við ömmubörnin þín, hlökkuðum alltaf til á sumrin þegar túnið þitt í Kampholti var slegið, þá var heyinu öllu rakað saman í stórar sátur og gátum við leikið okkur tímunum saman í þeim. Þó að allt hafi farið út um allt og það kostað aukavinnu við að koma heyinu öllu aftur á sinn stað, settir þú það aldrei fyrir þig og leyfðir okkur bara að ærslast. Þú vildir alltaf allt fyrir okkur gera, tókst á móti okkur fagnandi í hvert sinn og lést okkur finnast við sér- stök og dugleg. Eins og þegar ég var pjakkur og kom með pabba norður um miðjan vetur til að setja veggfóður á eldhúsið þitt. Þú talaðir um það í mörg ár hvað ég hefði nú verið duglegur að gera þetta fyrir þig, ég var alltaf svaka montinn af þessu „afreki mínu“. Þolinmæði þín var endalaus, þú lékst við okkur, sagðir sögur og fékkst okkur til að syngja fyrir þig lög sem þú svo tókst upp á spólu. Það var svo rosalega gaman að hlusta á það þegar maður varð eldri. Svo þegar ég kom með Mikael Óskar til þín þá varstu alltaf með dótatöskuna þína fulla af dóti, dótinu sem ég lék mér að þegar ég var lítill. Að keyra Vatnsneshringinn með þér var alltaf þvílíkt ævintýri, það var frásögn af nánast hverjum hól og hverri þúfu, þú þekktir svæðið og sögu þess svo vel. Þú hafðir alltaf gaman af ljóðum og last þau mörg fyrir mig, svo þeg- ar ég byrjaði í skóla á Bifröst fékkst þú Tinnu systur til að skrifa niður á blað ljóð, sem þú áttir í bók, um Bif- röst og sendir mér. Mér þótti ofsa- lega vænt um það, þú sýndir öllu því sem maður tók sér fyrir hendur áhuga. Á ættarmóti fyrir nokkrum árum, þar sem þú og allir þínir afkom- endur voru samankomin, man ég eftir því hvað þér þótti ofsalega gaman að hafa okkur öll samankom- in á einum stað. Minningarnar eru svo miklu, miklu fleiri og mun ég geyma þær í hjarta mér um aldur og ævi. Þú varst alltaf mjög trúuð á æðri máttarvöld og trúðir á það góða í fólki. Nú þegar komið er að því að kveðja er það svo erfitt, mér þykir svo vænt um þig, ég veit að þú ert núna komin á góðan stað og þið afi eruð sameinuð á ný og munið saman vaka yfir okkur afkomendum ykkar. Elsku Imma amma, takk fyrir all- ar þær stundir sem ég átti með þér, ég kveð þig með söknuði. Arnar Þór Óskarsson. Elsku Imma amma. Hlýlegt við- mót og glaðlyndi er mér efst í huga við minningu ömmu minnar. Í minn- ingunni lifa hlátursköll og gleði í leikjum í Kampholti þar sem ég skemmti mér konunglega með frændum mínum. Amma mín ól okk- ur frændur líka upp og kenndi okk- ur sitthvað. Hún kunni ófáar þulur og ævintýri sem hún þuldi upp ásamt fjölmörgum sögum frá upp- vaxtarárum sínum í Tungu og í Stöpum. Það var nú ekki svo sjaldan sem við gripum í spil og hún hafði einstakt lag á að tapa flestum ef ekki öllum spilum og gerði okkur krakkana að óvinnandi spilakóng- um. Við áttum ógleymanlegar stundir saman þegar ég dvaldi hjá henni á Hvammstanga á veturna þegar óveður geisaði á Vatnsnesinu, sérstaklega við heimalærdóminn. ✝ Elsku sonur okkar, bróðir, barnabarn og frændi, BENJAMÍN ÁRNASON, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 20. janúar kl. 14.00. Hansína Kristjánsdóttir, Jón Árni Guðmundsson, Sara Árnadóttir, Ásta Benjamínsdóttir, Kristján Jónsson, Valgerður Jónsdóttir, Guðmundur Sveinsson, Bríet Kristjánsdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, ANNA BRYNJÓLFSDÓTTIR, Víðilundi 6b, Akureyri, sem andaðist laugardaginn 13. janúar, verður jarð- sungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 22. janúar kl. 13:30. Erla Halls, Guðjón Þór Helgason, Brynleifur Hallsson, Emma Magnúsdóttir, Theodór Hallsson, Halla Snorradóttir og öll ömmubörnin stór og smá. ✝ Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ÓLAFÍA EINARSDÓTTIR (LÓA), Hjallavegi 5, Reykjanesbæ, lést á Landspítala Fossvogi fimmtudaginn 11. janúar. Pétur Matthíasson, Einar Otti Gunnarsson, Eva Dögg Þorsteinsdóttir, Aron Sölvi Gíslason, Ægir Þorleifsson, Áslaug Fjóla Magnúsdóttir, Anna Sigríður Þorleifsdóttir, Magnús Freyr Smárason, Þórunn Berglind Þorleifsdóttir og barnabörn. ✝ Okkar ástkæri, GUÐMUNDUR ARNALDUR GUÐNASON, Aðalgötu 22, Suðureyri, Súgandafirði, sem lést mánudaginn 15. janúar, verður jarðsung- inn frá Suðureyrarkirkju laugardaginn 20. janúar kl. 14.00. Systkini, tengdasystkini og systkinabörn. ✝ Okkar ástkæri eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR SIGURÐUR VALTÝSSON, Nesi, Fnjóskadal, lést þriðjudaginn 16. janúar sl. Jarðarför auglýst síðar. Sigurlína Hrönn Halldórsdóttir, Kristinn Elvar Gunnarsson, Gunnar Helgi Gunnarsson, Edda Elvý Hauksdóttir, Valtýr Smári Gunnarsson, Bjarney Sigurðardóttir, Berglind Ýr Gunnarsdóttir, Bríet Ýr Gunnarsdóttir. ✝ Bróðir okkar, frændi og förunautur, GEIR REGINN JÓHANNESSON, er látinn. Útför hans verður auglýst síðar. Systkini og vandamenn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.