Morgunblaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 41
|föstudagur|19. 1. 2007| mbl.is Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is É g hef grínast alveg frá því ég var lítill,“ svar- ar Laddi aðspurður um hvernig hann leiddist út á grín- brautina. „Þá hélt ég grínsýningar fyrir mömmu á kvöldin. Hún hélt hins vegar alltaf að ég yrði frægur dansari því þegar ég var að fíflast fór ég alltaf upp á stofuborðið og tók svona grínballett þar til hún lá úr hlátri.“ Þótt mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan Laddi skemmti mömmu sinni með borðballett í Hafnarfirðinum hefur leikarinn haldið áfram þeirri iðju sinni að leggja fólk úr hlátri með grínið að vopni. Fáir hafa farið jafn hressi- lega í hláturtaugar landans og Laddi á síðustu rúmum þremur ára- tugum og fáir búið til jafnmargar persónur sem ættu víst hásæti í frægðarhöll íslensks gríns, væri slík höll til. Það er því skiljanlegt að Laddi hlæi við þegar hann er spurð- ur hvort hann telji að móðir sín hafi orðið fyrir vonbrigðum með að ekki rættist úr ballettferli sonar síns. „Já ætli það ekki bara. En hún var samt líka ánægð með grínið. Og ég hætti svo sem ekkert að dansa því maður hefur oft stigið léttan gríndans, svona eins og þegar við Halli bróðir sungum „Tvær úr tung- unum“,“ segir hann og hlær við minninguna. Ferill Ladda hófst einmitt með „Halla bróður“ er þeir slógu í gegn í Sjónvarpinu snemma á áttunda ára- tugnum. Laddi var þá 25 ára en á morgun fagnar hann aftur á móti sextíu ára afmæli sínu. Hann er því eldri en tvævetur í bransanum. Að sögn Ladda er ekkert erfiðara að kalla fram bros á fólki með ár- unum, „en það er kannski erfiðara fyrir mig“, viðurkennir hann ein- lægur. „Ég hef kannski minni trú á mér en áður. Ætli það komi ekki með aldrinum. Maður verður krít- ískari á sjálfan sig.“ Spurningunni hvort hann sé að nokkuð að hugsa um að hætta öllu sprelli svarar hann hins vegar með sannfærandi hætti: „Nei, nei, elskan mín! Langt því frá.“ Eiríkur Fjalar í uppáhaldi Það liggur beint við að spyrja hvort einhverjum af ótalmörgum hugarfóstrum Ladda sé boðið til veislunnar. „Ég er ekki búinn að ákveða hvort ég leyfi þeim að koma. Þau eru samt að suða í manni um að fá að vera með,“ segir hann og hlær. „Ef ég býð einhverjum þá væri það helst Eiríkur Fjalar,“ heldur hann áfram og játar því að Eiríkur sé í „Mamma hélt ég yrði frægur dansari“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Einn ástsælasti grínleikari þjóðarinnar, Laddi, verður sextugur á morgun. Af því tilefni er komin út safnplatan Hver er sinnar kæfu smiður þar sem er að finna 47 lög sem spanna litríkan feril hans »Ég hætti svo semekkert að dansa því maður hefur oft stigið léttan gríndans, svona eins og þegar við Halli bróðir sungum „Tvær úr tungunum“. Eiríkur Fjalar Dr. Saxi Þórður húsvörður Magnús bóndi frá Ytri-Hnjáskeljum Skúli rafvirki Jón Spæjó Hin fjölmörgu andlit Ladda Það eru ekki margir íslenskir grínistar – ef þá nokkur – sem geta stát-að af jafn fjölbreyttri flóru karaktera og Laddi. Laddi hefur í gegn-um tíðina skapað fjöldann allan af ógleymanlegum og nú klass- ískum persónum sem löngu eru orðnar hluti af íslenskri grínsögu og þjóðarsál. Framarlega í þeim fríða flokki fara óneitanlega þeir félagar Ei- ríkur Fjalar, Jón Spæjó, Þórður húsvörður, Saxi læknir, Skúli rafvirki, Magnús bóndi frá Ytri-Hnjáskeljum, Dengsi og heiðursmærin Elsa Lund. Hinir kynlegu kvistir eru þó talsvert fleiri. Skemmtikraftur Bræðurnir Halli og Laddi komnir á fullan skrið í skemmtibransanum um miðjan áttunda áratuginn. sérstöku uppáhaldi hjá sér. „Hann minnir mig á mig.“ Hann segir þá deila feimninni og minnimátt- arkenndinni. „Hann er svona eins og maður var þegar maður var ung- lingur. Þótt ég hafi nú aðeins skán- að er þetta samt allt til staðar. Mað- ur hélt nú kannski að þetta færi með aldrinum en ég held, kannski sem betur fer, að þetta fari nú aldr- ei alveg,“ upplýsir Laddi en segist þó ekki kunna neinar skýringar á því hvers vegna svona sé. Lög sem spanna ferilinn Laddi er ekki einungis lunkinn leikari heldur býr hann einnig yfir ótvíræðum hæfileikum til laga- og textagerðar. Sá hæfileiki nýtur sín vel á Hver er sinnar kæfu smiður, tvöfaldri 47 laga safnplötu sem gef- in er út í tilefni morgundagsins og hefur að geyma vinsælustu lög grín- istans, lög á borð við „Austur- stræti“, „Of feit fyrir mig“, „Bú- kolla“, „Flikk flakk“, „Hann er þekktur fyrir sín þrumuskot“, „Sandalar“ og að sjálfsögðu „Royi Roggers“. Laddi segir það óneit- anlega hafa verið erfitt að velja inn á plötuna því „þegar ég var að fara yfir málin kom í ljós að þetta voru eitthvað um 200 titlar sem ég hafði komið nálægt“. En hvað stendur til hjá Ladda þegar hann kemst á sjötugsald- urinn? „Ég er á kafi í leikhúsinu, er í þremur stykkjum og það fjórða á leiðinni. Svo stendur til að setja upp afmælissýningu í febrúar í Borg- arleikhúsinu í tilefni tímamótanna,“ segir Laddi að lokum og tekur við afmælisóskum áður en hann kveður. Sextugur Laddi segir að svo gæti farið að Eiríki Fjalari yrði boðið í afmælið á morgun enda í sérstöku uppáhaldi. staðurstund Helen Mirren hlaut í vikunni tvenn Golden Globe-verðlaun og er sterklega orðuð við sjálf- an Óskarinn. » 42 af listum Rafdúettinn Booka Shade leikur á árslistakvöldi Party Zone sem haldið verður á NASA í kvöld. » 43 tónlist Systurmynd Barna, Foreldrar, eftir Ragnar Bragason og Vest- urport, er meðal þeirra mynda sem frumsýndar eru í dag. » 44 kvikmyndir Leikhúsið Skámáni vinnur að uppsetningu nýs leikverks. Meðal leikenda eru Björn Thors og Unnur Ösp. » 47 leikhús Leikkonan Nanna Kristín Magn- úsdóttir færi sem Cameron Di- az á grímuball, með toppinn upp í loft og kjölturakka í gifsi. » 49 íslenskur aðall

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.