Morgunblaðið - 19.01.2007, Side 48
48 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
/ KEFLAVÍK
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ
THE PRESTIGE kl. 10:15 B.i. 12 ára
KÖLD SLÓÐ kl. 8 B.i. 12 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 5:45 LEYFÐ
/ AKUREYRI
BABEL kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára
THE PRESTIGE kl. 8 B.i. 12 ára
THE CHILDREN OF MEN kl. 10:20 B.i. 16 ára
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:40 B.i. 16 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Með stórstjörnunum BRAD PITT og CATE BLANCHETT.
Frá leikstjóra AMORES PERROS og 21 GRAMS
eeee
- LIB, TOPP5.IS
eeee
- PANAMA.IS
eeee
- FRÉTTABLAÐIÐ
EF ÞÚ VILT FÁ
ÞARFTU AÐHLUSTA
SKILNING…
GOLDEN GLOBE
BESTA MYND ÁRSINS
6 TILNEFNINGAR TIL BAFTA VERÐLAUNA. ÁHORFENDA-
VERÐLAUNIN Á CANNES. LEIKSTJÓRAVERÐLAUNIN Á CANNES.
BABEL ER
MYND SEM ÞÚ
MISSA AF
VILT EKKI
MARTIN SCORSESE
BESTI LEIKSTJÓRINN
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
1000 KR.
MIÐAVERÐ
LEIKARARNIR FARA Á KOSTUM Í
FORELDRAR kl. 10
BABEL kl. 6 - 9 - 10:30 B.i. 16 ára
THE PRESTIGE kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára
CHILDREN OF MEN kl. 5:50 B.i. 16 ára
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:30 - 8 B.i. 16 ára
THE DEPARTED kl. 10:30 B.i. 16 ára
THE HOLIDAY kl. 8 B.i. 7 ára
DÉJÁ VU kl. 10:30 B.i. 12 ára
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
eee
H.J. MBL. eeeeKVIKMYNDIR.IS
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
FRÁ ÞEIM SÖMU OG GERÐU VERÐLAUNAMYNDINA BÖRN
sent heimilislækninum
sínum, sem þekkir
vandamálið, tölvupóst
og beðið hann um að
skrifa aftur út augn-
dropana handa
barninu. Af hverju
þarf kerfið að gera
fólki svona erfitt fyrir?
Heldur einhver að
Víkverji gæti misnotað
augndropana, sniffað
þá, drukkið þá eða
eitthvað álíka? Hvaða
hagsmuni er verið að
verja? Svona kerfi eru
ekki búin til fyrir við-
skiptavinina, svo mikið
er víst.
x x x
Það er önnur saga, en Víkverjier sannfærður um að það,
hversu oft fólk neyðist til að fara á
Læknavaktina vegna þess að það
kemst ekki að hjá heimilislækn-
inum sínum, eykur mjög ranga og
óþarfa lyfjagjöf, ranga sjúkdóms-
greiningu o.s.frv. Heimilislæknirinn
er auðvitað sá, sem á að þekkja
sögu sjúklingsins og vera í stakk
búinn til að ráðleggja það sem þarf.
En eftir viku til tíu daga bið eftir
tíma hjá heimilislækni er flestum
batnað aftur. Er þetta kannski hag-
ræðing?
Víkverja tekststundum engan
veginn að skilja,
hvernig sem hann
reynir, hvers vegna
heilbrigðiskerfið okkar
(sem stundum er fyrir
einhvern misskilning
sagt það bezta í
heimi) er svona þungt
í vöfum og fjand-
samlegt viðskiptavin-
um sínum.
Skrifari á lítið barn,
sem fær stundum
væga augnsýkingu, út
frá kvefi eða öðru
slíku. Við þessum
kvilla fær barnið bakt-
eríudrepandi augndropa, sem hafa
lítið geymsluþol (verður að nota
innan tíu daga). Augndroparnir fást
eingöngu gegn lyfseðli. Ef læknir á
að fást til að gefa út lyfseðil fyrir
augndropum verður hann að skoða
barnið. Svona gengur þetta, aftur
og aftur, þótt alltaf sé það sama að.
Bið eftir tíma hjá heimilislækninum
er vika til tíu dagar. Yfirleitt verð-
ur Læknavaktin eða Barnalækna-
vaktin því frekar fyrir valinu.
Þangað þarf að fara eftir kl. 17, á
tíma þegar fjölskyldur hafa yfirleitt
nóg annað að gera en að sitja á bið-
stofum. Víkverji skilur ekki hvers
vegna hann getur ekki einfaldlega
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins: En Jesús sagði við þá: „Gjaldið keis-
aranum það, sem keisarans er, og Guði það, sem
Guðs er.“ (Mark. 12, 17.)
Í dag er föstudagur
19. janúar, 19. dagur
ársins 2007
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Almenningssamgöngur
ÉG held að allir séu sammála um að
almenningssamgöngur þurfa að vera
áreiðanlegar. Séu þær það ekki mun
það fólk sem treystir á þær mæta of
seint í vinnu, skóla og annað slíkt.
Undirritaður hefur frá áramótum
þrisvar þurft að taka strætó frá
Vatnsendahverfinu í Kópavogi og
inn í Háskóla Íslands. Til að fara þá
leið á sem stystum tíma þarf að
skipta tvisvar um vagn; byrja á því
að taka leið 28 frá Vatnsendavegi í
Versali, taka stofnleið 2 þaðan í
Hamraborg og svo stofnleið 1 frá
Hamraborg og inn að Háskóla. Þetta
á að vera hægt á 31 mínútu sam-
kvæmt leiðakerfi Strætó.
Raunin er þó önnur. Í eitt af þess-
um þrem skiptum var 28 svo seinn að
S2 var farinn frá Versölum. Í hin tvö
skiptin var S2 seinn, svo S1 var far-
inn frá Hamraborg. Í öll skiptin
leiddi þetta til þess að undirritaður
varð of seinn í fyrirlestur.
Aðrir notendur hafa eflaust lent í
svipuðum aðstæðum með aðrar leið-
ir.
Niðurstaðan er sú að Strætó býð-
ur ekki upp á þá þjónustu sem fyr-
irtækið gefur sig út fyrir að veita,
sem sumir myndu eflaust segja að
væri nógu lítil fyrir. Hverju um er að
kenna ætla ég ekki að reyna að giska
á, þó að ég efist um að ábyrgðin liggi
hjá bílstjórunum, heldur þeim sem
skipulögðu leiðakerfið án þess að
gera ráð fyrir seinkunum af völdum
íslensks veðurfars.
Haukur Jónasson,
nemi við HÍ.
Skeljungsbilstjóri
til fyrirmyndar!
ÞAR sem oft er kvabbað og kveinað
yfir vörubílstjórum langar mig að
senda hrós til bílstjóra Skeljungs-
trukks sem var að aka í Grafnings-
hreppi, Þingvöllum, sl. sunnudag.
Ég hafði fest mig illilega, enda
mjög snjóþungt, og beðið lengi eftir
að bifreið æki þar framhjá. Loks
kom dælubíll frá Skeljungi og stans-
aði bílstjórinn þar sjálfur og eyddi
drjúgum tíma í að moka fyrir mig,
ýta og toga mig upp úr þessum
skafli.
Því miður hef ég ekki nafn bíl-
stjórans en þetta var um kl. 3–4 sl.
sunnudag og hafi hann bestu þakkir
fyrir aðstoðina.
Kveðja,
Björn Th.
Þjónustan í Hagkaup
SÁ sem þetta ritar var staddur í
Hagkaup í Smáralindinni um helgina
til að kaupa leikfang handa dóttur
minni. Leikfangið sem um ræðir var
of stórt í sniðum til að það kæmist í
venjulegan innkaupapoka, þá poka
sem eru við kassana alla jafna. Ég
spurði stúlkuna á kassanum hvort
hún ætti ekki stærri poka. Hún svar-
aði því neitandi, en sagði eitthvað í
þá áttina (líklega til að verja sína at-
vinnurekendur) að þeir væru ekki til
núna. Hef reyndar ekki orðið var við
nema eina stærð. Ég mátti því gera
mér að góðu að taka leikfangið
(dúkkuna) í fangið og arka af stað.
Maður hlýtur að spyrja sig hvort
stórfyrirtæki á borð við Hagkaup
(les Baugur Group), hafi ekki rænu á
því að hafa stærri poka til staðar fyr-
ir sína viðskiptavini, þótt það geti
eytt hundruðum milljóna í mál-
svarnir fyrir dómsstólum!
Afar óánægður viðskiptavinur.
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
90 ára af-mæli. Í
dag, 19. janúar,
verður níræð
Guðrún Kjar-
val, Dalbraut
27, Reykjavík.
Hún verður að
heiman.
80 ára af-mæli. Í
dag, 19. janúar,
verður áttræð
Agnes Jóhanns-
dóttir, Efstaleiti
12, Reykjavík.
Hún og eig-
inmaður henn-
ar, Haraldur
Sveinsson, eyða
deginum með ættingjum og vinum.
70 ára af-mæli. Í
dag, 19. janúar,
er sjötugur
Heimir Ingi-
marsson, fram-
kvæmdastjóri á
Akureyri. Hann
er staddur á
Kúbu um þessar
mundir, ásamt
eiginkonu. Þau munu taka á móti gest-
um í Laufskálum 4. ágúst n.k. Vinir og
vandamenn velkomnir.
Gullbrúðkaup | Í dag, 19. janúar, eiga
hjónin María Gísladóttir og Björn
Helgason, Ísafirði, gullbrúðkaup. Þau
eru stödd hjá dóttur sinni Katrínu í
Barcelona.