Morgunblaðið - 28.01.2007, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2007 51
AUÐLESIÐ EFNI
Hæsti-réttur Íslands sýknaði
á fimmtu-daginn fjóra
sak-borninga í Baugs-málinu
af öllum sex ákæru-liðum
sem voru eftir af upphaf-legri
ákæru í málinu.
Héraðs-dómur Reykja-víkur
komst að þessari niður-stöðu
15. mars 2006, en dómnum
var áfrýjað. Hæsti-réttur
stað-festi dóminn svo í gær. Í
málinu voru syst-kinin Jón
Ásgeir og Kristín
Jóhannes-börn ákærð og líka
endur-skoðendurnir Stefán
Hilmar Hilmarsson og Anna
Þórðardóttir. Ákæru-atriðin
lutu annars vegar að
meintum lög-brotum við gerð
árs-reikninga Baugs á
árunum 1998–2001 og hins
vegar að inn-flutningi Jóns
Ásgeirs og Kristínar á tveimur
bílum til landsins á árunum
1999 og 2000.
Jón Ásgeir Jóhannesson,
for-stjóri Baugs, sagði m.a í
yfir-lýsingu sem hann sendi
frá sér: „Þetta er mjög
ánægju-leg niður-staða og í
sam-ræmi við það sem ég
vissi í hjarta mínu að myndi
gerast.“
Öll sýknuð af öllum ákærum
Morgunblaðið/Sverrir
Gestur Jónsson, lög-maður Jóns Ásgeirs, er ánægður. Lög-menn lesa dóminn.
Moshe
Katsav,
for-seti
Ísraels, hefur
ákveðið að
víkja úr
em-bætti um
stundar-sakir.
Em-bætti
ríkis-saksóknara ætlar að
ákæra hann fyrir nauðgun og
kynferðis-lega áreitni þegar
hann var
ferðamála-ráðherra,
mis-notkun á valdi og að
hafa þegið mútur.
Katsav, sem er kvæntur
og 5 barna faðir, vill svara
þessum ásökununum.
Al-menningur í Ísrael og
margir stjórnmála-menn
krefjast þess að Katsav segi
alveg af sér. Í Ísrael er
forseta-embættið valda-lítið
en það hefur jafnan notið
mikillar virðingar. Mögu-legt
er að Simon Perez taki við
em-bættinu.
Katsav
víkur úr
em-bætti
Moshe Katsav
Flestir sáu Mýrina í fyrra
Lang-flestir sáu
kvik-myndina Mýrina á
síðasta ári, eða 81.500
manns. Næst á eftir komu
Dauðs manns kista og
Casino Royal. Aðrar
ís-lenskar myndir ná ekki inn
á lista yfir 30 mest sóttu
kvik-myndir síðasta árs.
Ólafur hannar þak-hæð
lista-safns
Myndlistar-maðurinn
Ólafur Elíasson vann
sam-keppni og mun hanna
þak-hæð á Lista-safnið í
Árósum í Dan-mörku. Verkið
byggist á sam-spili lita, ljóss
og sjóndeildar-hrings. Það
þykir sam-eina list og
arkitektúr af fágun.
Fær flestar til-nefningar
Söngleikja-myndin
Dreamgirls, sem byggir
laus-lega á ferli
stúlkna-sveitarinnar The
Supremes, fær flestar
til-nefningar til
Óskarsverð-launanna í ár,
alls 8 talsins. Hún er þó ekki
til-nefnd sem besta myndin.
Veðlauna-afhendingin fer
fram 25. febrúar.
Magni farinn til Ameríku
Söngvarinn Magni
Ásgeirsson er loksins farinn
til Banda-ríkjanna og Kanada
til að hita upp fyrir
rokk-sveitina Supernova á
ferða-lagi. Magni missti af
fyrstu 6 tón-leikunum, því
hann fékk ekki atvinnu-leyfi
nógu fljótt.
Stutt
Frum-varp um
Ríkis-útvarpið ohf. varð að
lögum á miðviku-daginn.
Þau taka gildi 1. apríl nk.
Stjórnar-andstöðu-flokkarnir
segjast allir stað-ráðnir í að
breyta starfs-umhverfi RÚV
ef þeir komast til valda
eftir kosningar.
„Ríkisstjórnar-flokkarnir,
Sjálfstæðis-flokkur og
Framsóknar-flokkur, hafa
kosið að afgreiða frum-varp
um RÚV í miklum
ágreiningi við
stjórnar-andstöðuna.
Forystu-menn þessara
flokka hafa hafnað öllum
sátta-boðum,“ segir í
yfir-lýsingu frá
Sam-fylkingunni, Vinstri
grænum og Frjáls-lynda
flokknum.
Ný lög um RÚV
sam-þykkt
Félagsmála-ráðherra og innflytjenda-ráð hélt
blaðamanna-fund á miðviku-daginn þar sem
kynnt var ný stefna í innflytjenda-málum. Þar
kom fram að mark-mið ríkis-stjórnarinnar væri
að allir íbúar landsins nytu jafnra tæki-færa
og yrðu virkir þátt-takendur í sam-félaginu.
Talið er að kunnátta í ís-lensku geti ráðið
úr-slitum um að-lögun inn-flytjenda. Stefna
stjórn-völd að því að allir eigi kost á 2.000
tíma íslensku-námi sniðnu að þörfum
inn-flytjenda óháð bak-grunni þeirra.
Þing-menn voru ánægðir með að komin
væri stefna í mál-efnum inn-flytjenda en
kröfðust þess að fá hana til um-fjöllunar.
Jóhanna Sigurðardóttir, þing-maður
Sam-fylkingar, sagði að það yrði að tryggja að
hér á landi yrði komist hjá vanda-málum,
undir-boðum í kjörum, árekstrum og ýmiss
konar sambúðar-vanda milli fólks af ólíkum
upp-runa sem margar þjóðir hefðu þurft að
glíma við.
Allir virkir
þátt-takendur
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdót
Frá mál-þingi um inn-flytjendur.
Hlustenda-verðlaun FM957
voru af-hent á þriðju-daginn í
Borgar-leikhúsinu.
Hljóm-sveitin Jeff Who? kom,
sá og sigraði. Sveitin átti lag
ársins, „Barfly“, hún var valin
ný-liði ársins og líka
hljóm-sveit ársins.
Rock Star-tónleikarnir voru
þeir bestu á árinu og Magni
var valinn söngvari ársins.
Klara úr Nylon var söng-kona
ársins, en Nylon átti
mynd-band ársins, „Losing a
Friend“. Plata ársins var
Undir þínum áhrifum með
Sálinni hans Jóns míns.
Laddi fékk heiðurs-verðlaun
FM957.
Jeff Who?
kom, sá og sigraði
Morgunblaðið/Eggert
Jeff Who? taka á móti
verð-launum.
Ís-lenska lands-liðið í
badminton gerði sér lítið fyrir
og vann gull á Evrópu-móti
B-liða í Laugardals-höll um
síðustu helgi. Það vann írska
liðið mjög svo óvænt, 3:2, í
úrslita-leik og brutust út mikil
fagnaðar-læti. Helgi
Jóhannesson og Magnús Ingi
Helgason unnu 2 lotur í röð á
loka-sprettinum. Ragna
Ingólfsdóttir og Tinna
Helgadóttir sigruðu svo í
tvíliða-leik.
Evrópu-meistarar!
Morgunblaðið/Golli
Liðs-menn fagna óvæntum og sætum sigri.
Netfang: auefni@mbl.is