Morgunblaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 39. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
STJÖRNUSKARI
MARGIR STÓRIR OG GLÆSILEGIR VIÐBURÐIR MUNU
EINKENNA LISTAHÁTÍÐ Á VORI KOMANDA >> 51
STÆRRI SKAMMTAR
ÝTA UNDIR ÁTIÐ
BOMBUR
NEYTENDUR >> 28
FRÉTTASKÝRING
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
EKKI er hægt að segja að andrúmsloftið
hafi verið rafmagnað á fundi Framtíðar-
landsins á Hótel Loftleiðum í fyrrakvöld,
þótt úrslitastund í sögu hreyfingarinnar
nálgaðist. Viðmælendur Morgunblaðsins
skýrðu þetta svo að fundarmenn væru sam-
mála um að koma í veg fyrir
frekari stóriðju, kosning um
framboð væri eins konar
skoðanakönnun innanhúss.
En margur leggur net sín
á grænum miðum stjórn-
málanna og mátti greina af
taugaspennunni í andliti
margra fundarmanna að
ekki tækju allir svo frjáls-
lega afstöðu til mögulegs
framboðs, langt í frá.
Hjörleifur Guttormsson,
sem er óumdeilanlega einn
helsti hugmyndafræðingur
Vinstri grænna í umhverfis-
málum, sagðist „ekkert hafa
að gera í þessu félagi“
breyttist það í stjórnmála-
flokk – hætt væri við að
framboðið styrkti stjórnar-
flokkana í sessi. „Stóra
blekkingin“ væri að „reikna með að framboð
tæki fylgi frá Sjálfstæðisflokknum“.
Kolbrún Halldórsdóttir, þingkona Vinstri
grænna, tók undir þetta og sagði að flokkn-
um gæti stafað ógn af grænu framboði, sem
gæti „auðveldlega tekið fylgi af honum“.
Sama ætti við um mögulegt framboð Ómars
Ragnarssonar.
Athyglisvert verður að fylgjast með þeirri
framvindu. María Ellingsen hefur gefið í
skyn að væntanlegt sé nýtt grænt framboð á
þessari „ögurstund“ í íslenskum umhverfis-
málum, þar sem Framtíðarlandið yrði „bak-
land allra grænna flokka“.
„Úr fangabúðum stjórnarflokkanna“
Á sama hátt segir Ómar þörf á „þekktum
hægrimönnum“ sem gætu tekið fylgi frá
Sjálfstæðisflokknum. Þessi hópur gæti farið
inn í önnur samtök, t.a.m. með Margréti
Sverrisdóttur yrði það „algrænt framboð“.
„Græni herinn berst á tvennum vígstöðvum,“
sagði Ómar. „Aðrar eru pólitískar, hinar
ópólitískar. Það þarf að ná liðsmönnum úr
fangabúðum stjórnarflokkanna.“
Samfylkingarmaðurinn Dofri Her-
mannsson var líkt og Hjörleifur andvígur
framboði hreyfingarinnar, þar færi „ennþá
[…] bara hópur fólks með stóran póstlista“.
Svo virðist sem þeir sem ekki áttu beinna
hagsmuna að gæta hafi verið hlynntari fram-
boði. Ósk Vilhjálmsdóttir varaformaður var í
þeirra hópi en hún telur umhverfismálin hafa
öðlast slíkt vægi að hægri/vinstri skilgrein-
ingar séu úreltar. Margir þeirra sem tóku til
máls á miðvikudagskvöld líktu mögulegu
framboði við sögulega tilkomu Kvennalistans
fyrir um aldarfjórðungi, mikið gæti áunnist
og ekki væri neinu að tapa. Margir sem á
hlýddu deildu ekki því viðhorfi.
Hvað gerir
græni
herinn nú?
Hjörleifur varar við
sjálfsblekkingu grænna
Ómar bíður Margrétar
Hjörleifur
Guttormsson
Ómar
Ragnarsson
Kakó fyrir fullorðna
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
BORIÐ hefur á því að fullorðnir karlmenn
hafi reynt að setja sig í samband við börn í gegn-
um vinsælan tölvuleik á Netinu. Hluti leiksins
er sérstaklega merktur við hæfi 6-8 ára barna.
Ingvar Þór Gylfason, annar eigandi síðunnar
Leikjalands, segist vilja vara foreldra við og
biðja þá að fylgjast með tölvunotkun barna
sinna. Ef ekki takist hins vegar að losna við
þessa menn geti komið til þess að hann verði
hreinlega að loka fyrir leikinn.
Ingvar Þór sagðist vilja vara við einelti og
fullorðnum mönnum sem reyndu að fá ung börn
til þess að gefa upp msn-aðgangsorð sín á opnu
spjallsvæði íslenska teiknileiksins „Skissu“,
sem vísað er inn á af vefnum leikjaland.is. Sett
hefur verið upp viðvörun á forsíðu Leikjalands
vegna þessa.
Vinsæll leikur
Að sögn Ingvars Þórs keppa notendur Skissu
um að teikna, giska á af hverju teikningarnar
eru og fá stig fyrir. Leiknum er skipt upp í
flokka þar sem má nefna: dýr, íslensku, tónlist
og 6-8 ára.
Ingvar Þór sagði að Skissa hefði náð miklum
vinsældum meðal barna en jafnframt geta þau,
sem spila leikinn, haft samskipti á spjallborði.
Ingvar Þór sagði að þar hefði borið á ljótu
orðbragði og einelti. Það væri einnig ljóst að
fullorðnir menn hefðu stofnað notendaaðgang
að leiknum og reynt að bera sig síðan eftir börn-
unum með fyrirspurnum um notendanöfn
þeirra á msn, svo eitthvað væri nefnt.
„Það má kannski segja að þarna sé verið að
reka leikskóla án umsjónarmanna,“ sagði Ingv-
ar Þór. „Mér finnst þessi leikur frábær en ef
ekki tekst að stoppa þetta getur hreinlega kom-
ið til þess, að við neyðumst til að loka þessum
leik.“
Brotamenn á barnavefjum
Reyna að fá ung börn til að gefa upp msn-aðgangsorð sín á opnu spjallsvæði
LEIKKONAN og fyrirsætan Anna Nicole Smith
lést í gær í Flórída í Bandaríkjunum. Hún fannst
meðvitundarlaus á hótelherbergi í borginni
Hollywood norðan við Miami. Reyndar voru lífg-
unartilraunir en þær báru ekki árangur.
Smith, sem var 39 ára, eignaðist nýlega dóttur.
Skömmu síðar lést tvítugur sonur hennar af
hjartsláttartruflunum vegna lyfjaneyslu. Deilur
spruttu upp vegna dótturinnar, bæði lögmaður
hennar og gamall kærasti sögðust eiga hana.
Smith var vinsæl í slúðurdálkum, m.a. vegna megrunarvanda og
ýmissa hneykslismála. Árið 1994 giftist hún auðkýfingnum J. How-
ard Marshall, sem var 89 ára, en skömmu áður höfðu birst nekt-
armyndir af Smith í Playboy. Eiginmaðurinn dó ári síðar og upphóf-
ust nú miklar deilur um arfinn milli Smith og sonar Marshalls.
Leikkonan Anna Nicole
Smith látin í Flórída
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÉG man mjög óljóst eftir slysinu
og atburðum næstu daga á eftir. En
ég fann það strax í brekkunni þegar
ég rankaði við mér að ég hafði enga
tilfinningu í neðri hluta líkamans,“
segir Arna Sigríður Albertsdóttir,
sem 30. desember sl. slasaðist mjög
alvarlega á skíðum í Geilo í Noregi.
Arna var í æfingaferð með hópi
frá skíðafélagi Ísafjarðar þegar hún
fór út af skíðabrautinni og rakst á
tré. Við áreksturinn brotnaði Arna
á þremur hryggjarliðum og hlaut
alvarlegan mænuskaða með þeim
afleiðingum að hún er lömuð fyrir
neðan brjóstkassa, rifbein og
bringubein brotnuðu, vinstri öxl
tognaði illa, vinstri upphandleggur
marðist og hún fékk innvortis blæð-
ingar frá milta, sem kallaði á tvær
aðgerðir. Sama dag og slysið varð
undirgekkst hún aðgerð til þess að
stöðva blæðingar í miltanu og dag-
inn eftir, þ.e. á gamlársdag, fór hún
í aðgerð þar sem hryggurinn á
henni var spengdur saman. Arna er
nú í endurhæfingu á Grensási. | 14
Á hægum batavegi eftir
afar alvarlegt skíðaslys
Morgunblaðið/Kristinn
Í faðmi fjölskyldunnar Arna Sigríður ásamt foreldrum sínum, Sigfríði Hallgrímsdóttur og Alberti Ósk-
arssyni, og eldri bróður, Óskari Ágústi, á Endurhæfingardeild Landspítalans við Grensás.