Morgunblaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 57
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
eeeee
- B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
- LIB, TOPP5.IS
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
EDDIE
MURPHY
BEYONCÉ
KNOWLES
JAMIE
FOXX
eee
DÖJ, KVIKMYNDIR.COM
Golden Globe
VERÐLAUN
m.a. besta myndin3
FRÁ HANDRITSHÖFUNDI
RAIN MAN OG GOOD
MORNING VIETNAM
GÆTI ÞESSI MAÐUR ORÐIÐ
NÆSTI FORSETI?
Sjáið grínistann
Robin Williams fara
á kostum sem næsti
forseti Bandaríkjanna
ÓSKARSTILNEFNING
besta teiknimynd ársins1
GOLDEN GLOBE
BESTA MYND ÁRSINS
/ ÁLFABAKKA
ALPHA DOG kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i.16 .ára.
ALPHA DOG VIP kl. 8 - 10:30 B.i.16 .ára.
PERFUME kl. 5 - 8 - 10:50 B.i.12 .ára.
MAN OF THE YEAR kl. 8 - 10:30 B.i. 7 .ára.
BLOOD DIAMOND kl. 5 - 8 - 10:50 B.i.16 .ára.
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
BABEL kl. 8 - 10:50 B.i.16 .ára.
BABEL VIP kl. 5 B.i.16 .ára.
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
ALPHA DOG kl. 5:45 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára
MAN OF THE YEAR kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i. 7 ára
BLOOD DIAMOND kl. 8 B.i. 16 ára DIGITAL
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 3:50 - 6 LEYFÐ DIGITAL
CHARLOTTE´S WEB m/ensku tali kl. 3:50 LEYFÐ DIGITAL
THE PRESTIGE kl. 10:30 B.i. 12 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ DIGITAL
/ KRINGLUNNI
HJÁLPIN BERST
AÐ OFAN
eee
S.V. - MBL
SÝND BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
ÓSKARSTILNEFNINGAR
m.a. sem besta mynd ársins7
ÓSKARSTILNEFNINGAR
m.a. fyrir aðalhlutverk karla/ Leonardo dicaprio5
FRÁ LEIKSTJÓRA “THE LAST SAMURAI”
eeee
L.I.B. - TOPP5.IS
eeee
S.V. MBL.
ÆVINTÝRALEG SPENNA OG HASAR.
STYÐST VIÐ RAUNVERULEGA ATBURÐI
ÓSKARSTILNEFNINGAR8
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hugmyndin um að gefast upp er orðin
að þema. Lykilsamband verður sífellt
stekara, er að gleypa þig. Það er allt í
lagi að sleppa í smá stund, átta sig á
hvert þetta stefnir og hvort þú getir
án þess verið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Greindu fólkið sem þú ætlar að eiga
viðskipti við frá því sem eyðir tíma
þínum til einskis. Það er verið að sýna
þér á ótal mismunandi vegu hvernig
fólk mun haga sér í framtíðinni. Taktu
eftir táknunum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert enginn kjáni, og fólk leitar til
þín í vandræðum sínum. Mundu þá að
lífið er ekki svart og hvítt og því síður
fólkið. Reyndu að veita ráð sem hæfa
hverjum einstaklingi, ekki sem þér
þykja kannski augljóslega best.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
2 fyrir 1 er málið. Þú ert að reyna að
grípa tækifæri en gætir gripið í eitt-
hvað sem verður þér fjötur um fót.
Sættu þig við það í bíli, það koma tíma
og koma ráð.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ef ást þín er ekki endurgoldin, misstu
þá ekki móðinn. Ástin er aldrei til
einskis og verður svarað úr einhverri
átt. Kannski ekki þeirri sem þú væntir
hennar úr, en einhvers staðar þó.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er allt að gerast í vinnunni, og þér
finnst stöðu þinn ógnað. Ef þú ætlar
að kynna einhverja hugmynd, vertu
þá alveg viss um að hún sé samkvæm
þér. Sporðdreki kemur til hjálpar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ein ástæða þess að þú vinnur svo vel
með öðrum er að þú tjáir þig hrein-
skilningslega. Haltu því áfram í dag,
annars gæti það komið þér í klípu. Það
erfiðasta við mælikvarða er, að það
hafa ekki allir þá sömu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er erfitt að vera skynsamur núna
þegar lífið er fullt af freistingum. Þeg-
ar þér tekst að standast freisting-
arnar, stráðu þá slóð brauðmola á eft-
ir þér til að sjá hvort freistingunni
tekst að þefa þig uppi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Skilningur er þemað bæði heima fyrir
og í vinnunni. Fólkið í vinnunni er
misjafnt. Þú hefur kannski ekki sama
húmor og allir, en reyndu að meta
glaðværðina við þá.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Reglurnar eru hreinar og beinar, og
þú hefur mikið vald á þeim. Nokkur
létt reikningsdæmi gætu létt þér lífið.
Til dæmis er byrgðin léttari ef þú deil-
ir henni með einhverjum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú eyðir tíma með nánustu fjölskyldu
þinni og gerir sem mest úr þeim tíma.
Þó að sumir meðlimirnir séu ekki líkir
þér á augljósan hátt, þá hafið þið
sömu grunngildi og tengingin er mjög
sterk.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hreinlega umbreytist eftir því með
hverjum þú ert, og getur lítið við því
gert. Þú ert einsog efnablanda saman
komin til að skapa eitthvað algerlega
ólíkt því sem þú ert þegar þú ert ein/n.
Einmitt þegar við höldum
að við höfum loksins skilið
hvernig allt er í pottinn bú-
ið, skín á okkur tungl í
sporðdreka og lætur okkur
heillast af dularfyllri hlið-
um lífsins. Þeir sem vilja vita hvað er
undir yfirborðinu, hvað kemur hlutunum
af stað og hvernig þeir virka innan frá,
fær innsæi til þess. En þetta innsæi vekur
bara upp fleiri spurningar.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„Ég hef aldrei séð verkið því ég sit alltaf bakvið, ætli ég
þurfi ekki að biðja einhvern að taka þetta upp fyrir mig
svo ég sé dómbær en ég held að þetta sé frábær sýn-
ing,“ segir Gunnar Hjálmarsson, betur þekktur sem dr.
Gunni, um barnasöngleikinn Abbababb sem verður
frumsýndur í Hafnarfjarðarleikhúsinu á sunnudaginn.
Gunnar er höfundur verksins sem er byggt á persónum
úr einu lagi á barnaplötunni Abbababb sem kom út fyr-
ir tíu árum. Verkið fjallar um þrjá krakka sem eru í
leynifélagi.
„Þetta er kraftmikil sýning, aumingja leikararnir
kvarta mikið yfir því að það sé svo mikið lagt á þá.“
Leikarar í Abbababb eru Atli Þór Albertsson, Álfrún
Örnólfsdóttir, Jóhann G. Jóhannsson, Jóhanna Friðrika
Sæmundsdóttir, Orri Huginn Ágústsson, Sigurjón
Kjartansson og Sveinn Þórir Geirsson. Um leikstjórn
sér María Reyndal og tónlistarstjóri er dr. Gunni sjálf-
ur sem skipar þriggja manna hljómsveit á sviðinu
ásamt þeim Birgi Baldurssyni og Elvari Geir Sævars-
syni.
Þetta er fyrsta leikverkið sem Gunnar semur og seg-
ist hann fram til þessa ekki hfa haft neinn áhuga á leik-
húsi eða söngleikjum.
„Þetta er mjög skemmtileg vinna. Leikritið hefur
breyst gífurlega mikið síðan ég skrifaði mitt fyrsta
handrit og þótt ég sé titlaður höfundur er þetta mikið
samstarf á milli mín, leikstjórans og leikaranna.“
Í tengslum við sýninguna kemur barnaplatan Abba-
babb út aftur en í breyttu sniði frá fyrri útgáfu.
„Á henni eru átta lög af gömlu útgáfunni, sungin og
spiluð upp á nýtt og oft með breyttum texta til að passa
inn í framvindu sögunnar og svo eru átta alveg glæný
lög úr söngleiknum. Þannig að öll sextán lögin úr verk-
inu eru á plötunni sem kemur í búðir eftir tæpar tvær
vikur,“ segir Gunnar og tekur fram að það sé ekki hægt
að segja að þetta sé gamla Abbababb-platan endur-
útgefin því öll lögin séu næstum því ný.
Eurovison orðin skemmtilegri
Það kom mörgum á óvart að sjá rokkarann dr.
Gunna senda lag inn í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Lag-
ið, sem komst áfram í úrslitin seinasta laugardags-
kvöld, heitir „Ég og heilinn minn“ og er sungið af
Ragnheiði Eiríksdóttur.
Spurður hvers vegna hann ákvað að senda inn lag
segir Gunnar að þetta lag hafi bara verið til og sér hafi
fundist tilvalið að senda það. „Ég hef aldrei sent lag áð-
ur, mér fannst þetta Eurovison-fyrirbæri ekki of vit-
laust til að skella laginu þar inn. Það hefur líka ým-
islegt gerst í Eurovision sem gerir keppnina
skemmtilegri en var, t.d. þátttaka Silvíu Nætur og
finnsku þungarokkararnir sem unnu í fyrra.“
Gunnar segist ekki vera farinn að hugsa út í það hvað
hann gerir ef hann vinnur úrslitakeppnina hér heima.
„Ætli ég geri þá ekki bara mitt besta.“
Hann segist aðspurður ekki vera búinn að missa vini
sína vegna þátttökunnar í Söngvakeppninni.
„Ég á svo þroskaða vini að þeir fyrirgefa mér. Sum-
um finnst þetta reyndar það ómerkilegasta sem ég hef
tekið þátt í en það verður bara að hafa það.“
Gunnar Hjálmarsson um Abbababb og Söngvakeppnina
Leitar á ný mið
Ljósmynd/Árni Torfason
Abbababb Dr. Gunni ásamt Birgi Baldurssyni og Elv-
ari Geir Sævarssyni, en þeir spila undir í söngleiknum.