Morgunblaðið - 09.02.2007, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
föstudagur 9. 2. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Jóhann skoraði 13 stig í framlengingunni>> 3
SPÁNVERJAR BJARTSÝNIR
SEGJAST HAFA SÝNT ÞAÐ GEGN ENGLENDINGUM AÐ
ÞEIR GETI LAGT DANI OG ÍSLENDINGA AÐ VELLI >> 4
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Snorri vakti mikla athygli á nýaf-
stöðnu heimsmeistaramóti, ekki síst
í Danmörku þegar hann skoraði 15
mörk í spennuþrungnum leik Ís-
lands og Danmerkur í fjórðungsúr-
slitum í Hamborg.
Thomas Mogensen, leikstjórnandi
GOG, flytur sig um set yfir landa-
mærin til Flensborgar í sumar og
því leita forráðamenn GOG að eft-
irmanni hans.
„Það eru víða þreifingar í gangi
og þær hófust strax að loknu heims-
meistaramótinu en á þessari stundu
er best að ég segi sem minnst.
Meðal annars hafa dönsk félög
sett sig í samband við umboðsmann
minn en einnig félög í öðrum lönd-
um. Viðræður eru ekki komnar á
neinn skrið ennþá, það standa allar
dyr opnar, engum hefur verið lok-
að,“ sagði Snorri Steinn í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Fyrst og
fremst langar mig að leika í góðu
liði, hvar svo sem það er í Evrópu,“
sagði Snorri ennfremur en vildi ekki
gefa meira út á samningamál sín á
þessu stigi.
Snorri er laus undan samningi við
GWD Minden í lok júní á þessu ári
og áður hefur komið fram að hann
hefur ekki í hyggju að framlengja
þann samning. Snorri segist vilja
taka skref fram á við og leika með
sterkara liði en GWD Minden, sem
er í botnbaráttu þýsku 1. deildarinn-
ar annað árið í röð, en Snorri er nú
á sinni annarri leiktíð hjá félaginu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins munu forraáðamenn Celje
Lasko í Slóveníu og þýska liðsins
Lemgo vera á meðal þeirra sem
sýnt hafa Snorra áhuga. Einnig
mun vera áhugi hjá félögum á
Spáni.
Snorri Steinn Guðjónsson
undir smásjánni hjá GOG
„ÞAÐ er best að segja sem minnst á
þessu stigi málsins en ég get þó
staðfest að fleiri en eitt danskt fé-
lag hefur haft samband við mig,“
sagði Snorri Steinn Guðjónsson,
landsliðsmaður í handknattleik og
leikmaður þýska fyrstudeildarliðs-
ins GWD Minden, spurður um
fregnir danskra fjölmiðla í gær
þess efnis að danska úrvalsdeild-
arliðið GOG frá Svendborg hafi
Snorra undir smásjánni um þessar
mundir.
Morgunblaðið/Günter Schröder
Fimmtán Snorri Steinn Guðjónsson skorar hér eitt af fimmtán mörkum sínum í HM-leiknum gegn Dönum í Hamborg.
BIRGIR Leifur Hafþórsson verður á meðal keppenda á Evr-
ópumótaröðinni í næstu viku þegar keppt verður í Indónesíu. Búið
er að uppfæra keppendalistann á mótinu en í byrjun vikunnar var
Birgir í 11. sæti á biðlista fyrir mótið. Í gær hófst keppni á móti í
Malasíu á Evrópumótaröðinni en Birgir er ekki á meðal keppenda
þar. Robert Pack frá Englandi er efstur eftir fyrsta keppnisdaginn á
sex höggum undir pari. Þekktustu kylfingar mótsins, Lee Westwood
frá Englandi og Michael Campbell frá N-Sjálandi, eru báðir á þrem-
ur höggum yfir pari eftir fyrsta keppnisdaginn. Þeir eiga það á
hættu að komast ekki í gegnum niðurskurðinn á mótinu enda eru
þeir í 85. sæti. Danski kylfingurinn Thomas Björn er í 54. sæti en
hann lék á 73 höggum eða einu höggi yfir pari.
Birgir fær að taka þátt í 20 mótum Evrópumótaraðarinnar í það
minnsta á þessu ári en alls eru mótin 50 í Evropumótaröðinni. Að
loknu mótinu í Indónesíu er mót í Bandaríkjunum sem Birgir fær ef-
laust ekki keppnisrétt á. Í byrjun mars verður keppt í Taílandi í
Evrópumótaröðinni og þar á eftir í Singapúr. Fyrsta mótið sem
fram fer á golfvelli í Evrópu verður á portúgölsku eyjunni Madeira
22.–25. mars.
Birgir Leifur
fer til Indónesíu
Celje Lasko og Lemgo hafa einnig spurst fyrir um leikstjórnanda íslenska landsliðsins í handknattleik
KRISTJÁN Örn Sigurðsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu, er eftirsótt-
ur þessa dagana en forráðamenn
norska liðsins Brann staðfestu í gær
að þeir hefðu þegar hafnað einu til-
boði í hann. Það tilboð var frá sviss-
neska félaginu Sion. Kristján lék
mjög vel með Brann á síðasta ári,
sem miðvörður, og þótti einn af
bestu varnarmönnum norsku úrvals-
deildarinnar.
Björn Dahl, stjórnarmaður hjá
Brann, sagði við netmiðilinn iBer-
gen.no að tilboð Sion hefði verið of
lágt. „Það var bara skiptimynt sem
þeir voru tilbúnir til að borga, ég
held að við höfum ekki einu sinni
svarað þeim og höfum ekki heyrt frá
þeim frekar. Við viljum helst hafa
Kristján áfram í okkar röðum, hann
er góður leikmaður og mikilvægur
fyrir Brann,“ sagði Dahl.
Netmiðillinn kveðst jafnframt
hafa heimildir fyrir því að belgísk fé-
lög séu með Kristján undir smá-
sjánni en hann hefur til þessa ekki
viljað skrifa undir nýjan samning við
Brann og hafnaði tilboði félagsins á
dögunum. „Við vinnum áfram í mál-
inu og vonumst til þess að leggja nýtt
tilboð fyrir Kristján innan fárra
daga,“ sagði Roald Bruun-Hansen,
framkvæmdastjóri Brann.
Fram kemur að Ólafur Örn
Bjarnason sé tilkippilegur til að
semja að nýju við Brann en samn-
ingur hans við félagið rennur út að
þessu tímabili loknu.
Brann hafnaði tilboði frá
Sion í Kristján Örn
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 38
Staksteinar 8 Umræðan 32/34
Veður 8 Bréf 34
Úr verinu 15 Minningar 35/45
Viðskipti 16/17 Brids 47
Erlent 18/19 Menning 48/51
Menning 20/21 Leikhús 50
Höfuðborgin 22 Myndasögur 52
Akureyri 22 Staður og stund 54
Landið 23 Bíó 54/57
Austurland 23 Víkverji 56
Daglegt líf 24/29 Velvakandi 56
Forystugrein 30 Ljósvakamiðlar 66
* * *
Innlent
Mæður og feður barna á biðlista
legudeildar barnageðdeildar Land-
spítalans BUGL fóru ólíkar leiðir til
að mæta álagi vegna veikinda barna
sinna, að því er rannsókn Þórdísar
Kristinsdóttur hjúkrunarfræðings
sýnir. Mæðurnar sóttu frekar út á
við eftir stuðningi en feðurnir drógu
sig fremur í hlé heima fyrir til að
safna kröftum. » Baksíða
Borið hefur á því að fullorðnir
karlmenn hafi reynt að setja sig í
samband við börn í gegnum vinsæl-
an tölvuleik á Netinu. Hluti leiksins
er sérstaklega merktur við hæfi 6-8
ára barna. Ingvar Þór Gylfason,
annar eigandi síðunnar Leikjalands,
segist vilja vara foreldra við og
biðja þá að fylgjast með tölvunotk-
un barna sinna. » Forsíða
Arna Sigríður Albertsdóttir
skíðastúlka frá Ísafirði er nú í end-
urhæfingu á Grensásdeild Landspít-
alans eftir alvarlegt skíðaslys í Geilo
í Noregi þann 30. desember sl. Hún
rakst á tré er hún lenti utan skíða-
brautar og hryggbrotnaði. Hún seg-
ist muna óljóst eftir slysinu og at-
burðum næstu daga á eftir.
Samdægurs gekkst hún undir að-
gerð í Noregi. »Forsíða og 14
Erlent
Tvær helstu fylkingar Palest-
ínumanna, Hamas og Fatah, náðu
samkomulagi á fundi í Mekka í
Sádi-Arabíu í gær um að slíðra
sverðin og mynda þjóðstjórn. Ham-
as-liðinn Ismail Haniyeh verður
sem fyrr forsætisráðherra en óháðir
sérfræðingar munu annast mik-
ilvæg ráðuneyti utanríkismála og
fjármála. Óljóst er hvernig deilan
um tilverurétt Ísraels var leyst.
Liðsmenn Hamas og Fatah hafa átt
í mannskæðum átökum síðustu vik-
urnar og var samkomulaginu ákaft
fagnað á hernumdu svæðunum í
gær. »19
Viðskipti
Seðlabankinn ákvað í gær að
halda stýrivöxtum bankans óbreytt-
um, 14,25%. Viðbrögð við ákvörðun
bankans voru ekki mikil, enda
ákvörðunin í samræmi við spár
greiningardeilda viðskiptabankanna
þriggja. » 17
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
YRÐI bönkum og fyrirtækjum bannað að hafa
milligöngu um greiðslur af kreditkortum til er-
lendra spilavíta á netinu er nánast öruggt að
Íslendingar myndu að mestu hætta að spila í
erlendum netspilavítum. Þó kann að vera að
breyta þurfi lögum eða reglugerð ef raunveru-
legur áhugi er fyrir því að framfylgja banni um
spilavíti á Íslandi. Þetta kemur fram í grein-
argerð sem birt er á vef Samtaka áhugafólks
um spilafíkn (SÁS). Þar segir að vart sé hægt
að greiða fyrir vöru á netinu nema með milli-
göngu eða aðstoð fjármálastofnana og korta-
fyrirtækja. Því hljóti skorður við slíkum
greiðslum að beinast að þessum fyrirtækjum.
Bann reyndist áhrifaríkt vestanhafs
Ljóst sé að tækni sé ekki vandamál í þessum
efnum, enda reki fyrirtækin öflug hugbún-
aðarkerfi sem tryggja örugga heimildagjöf og
miðlun færslna. Nánast allar heimildabeiðnir
um færslur á kort, sem Íslendingar reyna að
nota á erlendum vefsíðum séu meðhöndlaðar í
tölvukerfum íslensku kortafyrirtækjanna áður
en heimild er veitt. Einfalt sé að sjá hvort
heimildarbeiðni komi frá erlendu eða innlendu
fyrirtæki og skilgreina mætti bannlista yfir
fyrirtæki sem ekki má veita heimild á eða jafn-
vel flokkunarkóða fyrir fyrirtæki.
Í greinargerðinni segir að þar sem rekstur
spilavíta sé bannaður á Íslandi gefi auga leið
að netútgáfa starfseminnar hljóti einnig að
vera bönnuð. Það virðist hins vegar ekki hafa
verið skilningur banka og kreditkortafyr-
irtækja hingað til að svo sé. Ennfremur segir
að líklegt sé, að bann við því að bankar og
kreditkortafyrirtæki aðstoði við greiðslu-
miðlun til erlendra spilavíta á netinu verði
mjög áhrifaríkt. Reynsla Bandaríkjamanna,
sem lögleiddu slíkt bann í október, bendi ein-
dregið til þess. Gengi hlutabréfa í netspilavíta-
fyrirtækjum sem Bandaríkjamenn stunduðu
áður en bannið tók gildi hafi hríðfallið.
Þórður Jónsson, sviðsstjóri kortaútgáfu hjá
Visa-Ísland, segir fyrirtækið ekki fylgjast sér-
staklega með því hvernig viðskiptavinir noti
kort, svo framarlega sem fólk fari ekki fram úr
úttektarheimildum og samningar við greiðslu-
viðtakanda hafi verið gerðir.
„Við höfum ekki mikil afskipti af því hvernig
kort eru notuð, hjá hverjum og hvar í heim-
inum. Allir sem bjóða upp á viðtöku korta eru
með samning við einhvern þjónustuaðila:
banka eða kortafyrirtæki,“ segir Þórður.
Sömu reglur og skilmálar gildi í samningum
við íslenska söluaðila og erlenda. Þórður segir
það fara eftir upphæðum hvort leitað sé eftir
úttektarheimild þegar viðskipti í gegnum
kreditkort eiga sér stað. „Ef um hærri fjár-
hæðir er að ræða er yfirleitt alltaf leitað eftir
úttektarheimild, en ekki fyrir smærri upp-
hæðir,“ segir hann. Þá geti kort verið þannig
útgefin að alltaf sé leitað eftir heimild þegar
þau eru notuð. Þórður segir að Visa telji það
ekki í sínum verkahring að hafa eftirlit með
notkun korta. „Það er einkamál viðskiptavina í
hvað þeir nota sín kort.“ Yrðu sett lög um
þessi mál hér á landi myndi fyrirtækið hlíta
þeim.
Komið í veg fyrir notkun kreditkorta
Morgunblaðið/Kristinn
Netspilavíti Fólk nýtir kreditkort til þess
að skipta við erlend spilavíti á netinu
Lausn á vanda netspilafíkla að banna milligöngu
um kreditkortagreiðslur til erlendra spilavíta
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
SÍMANUM verður framvegis skylt
að veita öðrum fyrirtækjum sem
hyggjast veita GSM-fjarskiptaþjón-
ustu aðgang að fjarskiptaneti sínu
fyrir GSM. Þetta kemur fram í nýrri
ákvörðun Póst- og fjarskiptastofn-
unar (PFS) sem byggð er á viðamik-
illi greiningu á aðgangsmarkaði fyrir
GSM.
„Við vonumst til að þetta verði til
þess að fleiri sjái sér hagsmuni í því
að bjóða upp á farsímaþjónustu,“
segir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri
PFS. Stofnunin vann að greiningu á
heildsölumarkaði fyrir aðgang og
upphaf símtala annars vegar í GSM
farsímanet og hins vegar í NMT far-
símanet. Á grundvelli niðurstaðna úr
henni hefur stofnunin komist að
þeirri niðurstöðu að Síminn sé með
umtalsverðan markaðsstyrk á báð-
um mörkuðum og lagt á fyrirtækið
kvaðir á markaði fyrir aðgang og
upphaf símtala í almennum farsíma-
netum. Það er jafnframt niðurstaða
PFS að Vodafone sé ekki lengur með
umtalsverðan markaðsstyrk á þess-
um hluta farsímamarkaðarins.
Hrafnkell segir að vegna þeirrar
niðurstöðu að Síminn sé með umtals-
verðan markaðsstyrk, beri fyrirtæk-
inu að veita þeim sem þess óska með
eðlilegum hætti aðgang að sínu neti.
„Þetta getur haft þær afleiðingar, ef
markaðsaðilar bregðast við, að fleiri
fyrirtæki geti veitt GSM
farsímaþjónustu í eigin nafni en á
radíóbúnaði og tæknikerfi Símans.“
Leggur stofnunin þær skyldur á
Símann að verða við eðlilegum og
sanngjörnum beiðnum um aðgang að
GSM farsímaneti og þjónustu á
heildsölustigi.
PFS hefur nýlega boðið út fjar-
skiptatíðni fyrir GSM 1800 farsíma-
kerfi og útboð tíðna fyrir þriðju kyn-
slóð farsíma stendur einnig yfir.
Hafa bæði innlendir og erlendir að-
ilar óskað eftir að eiga kost á því að
koma inn á markaðinn, að sögn
Hrafnkels. Ákvörðun PFS gæti auð-
veldað þeim að semja um einhvers-
konar aðgang.
Símanum gert að veita
aðgang að GSM-neti
Vodafone ekki lengur með umtalsverðan markaðsstyrk
Í HNOTSKURN
»PFS leggur þær skyldur áSímann að verða við eðli-
legum og sanngjörnum beiðn-
um um aðgang að GSM far-
símaneti og þjónustu á
heildsölustigi.
»Símanum er gert skylt aðbirta viðmiðunartilboð fyr-
ir aðgang að GSM farsímaneti.
Á FIMMTA hundrað aðilar frá 17 löndum taka þátt
í ferðakaupstefnunni Mid-Atlantic sem sett var í
gærkvöldi í Listasafni Reykjavíkur. Kaupstefnan er
haldin á vegum Icelandair til þess að tengja saman
kaupendur og seljendur ferðaþjónustu í Bandaríkj-
unum og Evrópu. Hún stendur til 11. febrúar og fer
fram í anddyri nýju og gömlu Laugardalshall-
arinnar.
Morgunblaðið/ÞÖK
Kaupendur og seljendur tengdir
Framtíðin er í
okkar höndum
09.02.2007