Morgunblaðið - 09.02.2007, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KRISTINN H. Gunnarsson, alþing-
ismaður, sagði sig í gær formlega úr
Framsóknarflokknum og þar með
þingflokki Framsóknarflokksins. Þá
hefur hann óskað eftir því við heil-
brigðisráðherra að vera leystur frá
störfum sem formaður stjórnar
Tryggingarstofnunar ríkisins. Jafn-
framt segist Kristinn láta af stuðn-
ingi við ríkisstjórnina og muni skipa
sér á bekk með stjórnarandstöðunni
á Alþingi. Ætlar hann að ganga til
liðs við Frjálslynda flokkinn og seg-
ist á næstu dögum munu ræða við
forystumenn flokksins þar um.
Kristinn segir í yfirlýsingu, að
hann hafi verið gagnrýninn á ýmis-
legt sem Framsóknarflokkurinn hafi
staðið að á kjörtímabilinu og telji, að
vikið hafi verulega frá hefðbundinni
stefnu flokksins. Því megi helst lýsa
þannig að manngildið hafi mátt þoka
fyrir auðgildinu. Þá hafi fyrir utan
uppbyggingu stóriðju verið viðvar-
andi áhuga- og árangursleysi hjá for-
ystu Framsóknarflokksins í málefn-
um landsbyggðarinnar og verði ekki
séð að nokkurra breytinga til bóta sé
að vænta.
Frjálslyndi flokkurinn sé að
mörgu leyti með svipaðar áherslur
og sé að finna í stefnuskrá Fram-
sóknarflokksins og hafi markað sér
stað sem frjálslyndur og umbóta-
sinnaður flokkur milli þeirra flokka
sem eru til hægri og vinstri í íslensk-
um stjórnmálum.
Býður Kristin velkominn
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, segir
að Kristinn H. Gunnarsson sé vel-
kominn til liðs við flokkinn líkt og
aðrir frjálslyndir Íslendingar. Segir
Guðjón að framhaldið sé óráðið, ekki
hafi verið rætt formlega við Kristin
en að þeir hafi spjallað og að vitað
hafi verið að hann hafi verið að velta
fyrir sér að ganga í flokkinn.
„Við höfum spjallað saman líkt og
við höfum gert í gegnum árin og mér
var kunnugt um að hann hefði verið
að hugsa um þetta, ég lét hann vita
að það yrði ekki illa tekið á móti hon-
um.“
Guðjón telur að Kristinn eigi tví-
mælalaust samleið með flokknum,
hann sé enda reyndur stjórnmála-
maður og hafi væntanlega lesið sér
til um stefnumál flokksins áður en
hann tók sína ákvörðun.
Hefur legið í loftinu
Hjálmar Árnason formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins segir
ákvörðun Kristins ekki koma á
óvart. Þá segir Hjálmar ákveðinn
létti fyrir alla aðila að ákvörðun hafi
verið tekin og að línur séu nú skýrar.
„Þetta hefur legið í loftinu og allir
þeir sem fylgst hafa með stjórnmál-
um hafa reiknað með þessu, það má
segja að bæði hjá Kristni og þing-
flokknum sé þetta ákveðinn léttir,
leiðir lágu ekki saman og ekkert við
því að segja, en við óskum Kristni
alls hins besta í framtíðinni,“ segir
Hjálmar.
Yfirgefur
Framsókn
Í HNOTSKURN
»Kristinn hefur setið á Al-þingi frá árinu 1991, fyrst
fyrir Alþýðubandalagið, síðan
utan flokka og síðan fyrir
Framsóknarflokkinn.
»Hann gengur nú til liðs viðFrjálslynda flokkinn og
segir stjórnarflokkana munu
beina spjótum sínum að
flokknum í kosningabarátt-
unni framundan
Guðjón A. Kristj́-
ánsson
Kristinn H.
Gunnarsson
Hjálmar
Árnason
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Helga
Magnúsi Gunnarssyni, saksóknara
efnahagsbrota.
„Hreinn Loftsson hrl., stjórnar-
formaður Baugs Group, sendi f.h. fé-
lagsins yfirlýsingu til fjölmiðla í dag
[7. febrúar]. Í yfirlýsingu sinni full-
yrðir Hreinn að ríkislögreglustjór-
inn hafi enn á ný lekið upplýsingum
til fjölmiðla í því skyni að koma höggi
á fyrrverandi og núverandi starfs-
menn félagsins og svo virðist sem til-
gangurinn hafi verið sá að hafa áhrif
á aðalmeðferð í eftirstöðvum Baugs-
málsins sem hefst í Héraðsdómi
Reykjavíkur í næstu viku.
Af því tilefni vill ríkislögreglu-
stjórinn taka eftirfarandi fram.
Umræða í fjölmiðlum síðustu daga
er tilkomin vegna þess að frétta-
menn fengu afhent afrit af bréfa-
skriftum milli embætta ríkislög-
reglustjórans og
skattrannsóknastjóra ríkisins.
Fréttamennirnir fengu þessi gögn
ekki afhent hjá embætti ríkislög-
reglustjórans,
sem hafði hafnað
beiðni þeirra um
slíkt. Líklegt er
að annar tveggja
manna sem til-
heyrðu þeim hópi
9 einstaklinga
sem nefndir hafa
verið í um-
ræðunni og höfðu
fengið umrædd
gögn afhent hjá skattrannsókna-
stjóra ríkisins, eins og þeir höfðu
rétt á samkvæmt stjórnsýslulögum,
hafi afhent fréttamönnum gögnin
eða þeir komist yfir þau með öðrum
hætti frá þeim. Vegna þeirra upplýs-
inga sem fram komu í nefndum bréf-
um og fjölmiðlaumræðu sem hófst
mánudaginn 5. febrúar sl. sá emb-
ætti ríkislögreglustjórans sig tilknú-
ið að senda frá sér fréttatilkynningu
sem send var út þriðjudaginn 6. febr-
úar sl.
Í yfirlýsingu sinni fullyrðir Hreinn
Loftsson að enn á ný hafi embætti
ríkislögreglustjórans lekið upplýs-
ingum til fjölmiðla, án þess að það sé
með nokkrum hætti rökstutt með
hvaða hætti það á að hafa gerst eða
hvaða upplýsingar það eru. Verður
ekki séð að Hreinn sé að vísa til
fréttatilkynningar embættisins enda
verður hún vart flokkuð sem leki
heldur bein upplýsingagjöf til al-
mennings. Ríkislögreglustjórinn
getur ekki tekið ábyrgð á umfjöllun
fjölmiðla um einstök mál né stjórnað
umfjöllun þeirra um gögn sem þeir
hafa fengið í hendur.
Ríkislögreglustjórinn hefur engan
hag af, né vilja til, að koma höggi á
nokkurn starfsmann Baugs Group,
hvorki fyrrverandi né núverandi. Í
fréttatilkynningu embættisins frá í
gær var enginn slíkur nafngreindur.
Upplýsingar um nöfn einstaklinga
hafa fréttamenn tekið upp úr fram-
angreindum gögnum sem þeir hafa
undir höndum. Reyndar var áréttað í
fréttatilkynningu embættisins í gær
að ekki væri litið svo á að brot sjö
þeirra níu sem getið er um án nafn-
greiningar gæfu tilefni til opinberrar
refsimeðferðar, þótt ávirðingar
kynnu að teljast sannar.
Í yfirlýsingu sinni vísar Hreinn
Loftsson til umfjöllunar í fréttum
Ríkisútvarpsins og að fjárhæðir séu
þar slitnar úr samhengi. Ríkislög-
reglustjórinn hefur ekki veitt frétta-
mönnum Ríkisútvarpsins neinar af
þeim upplýsingum sem Hreinn vísar
til í umræddri fréttaumfjöllun og
ekki komu fram í fréttatilkynning-
unni frá í gær. Aðrar upplýsingar
sem koma fram í frétt Ríkisútvarps-
ins eru á ábyrgð þeirrar stofnunar
og eru ekki frá embætti ríkislög-
reglustjórans komnar, þar á meðal
að greiðslur hafi verið teknar
ófrjálsri hendi úr sjóðum Baugs.
Ríkislögreglustjórinn hefur í um-
fjöllun sinni eingöngu fjallað um
meint brot manna, en á engan hátt
haldið því fram að ekki kunni að vera
að einhverjar þær ávirðingar sem
rannsókn beinist að kunni að verða
taldar tilhæfulausar að henni lok-
inni.
Í yfirlýsingu sinni segir Hreinn
Loftsson að svo virðist sem „tilgang-
ur nýjasta lekans“ sé að hafa áhrif á
aðalmeðferð í eftirstöðvum Baugs-
málsins sem hefst í Héraðsdómi
Reykjavíkur í næstu viku, án þess að
rökstyðja þá fullyrðingu nokkuð
frekar. Erfitt er að sjá hvaða áhrif
þetta getur haft á aðalmeðferð í um-
ræddu máli. Ríkislögreglustjórinn
vill árétta að sú umræða sem farið
hefur fram í fjölmiðlum og var tilefni
yfirlýsingar Hreins hófst án þess að
ríkislögreglustjórinn gæti þar
nokkru um ráðið, en upphaf hennar
er rakið hér að framan.
Rétt er að lokum að benda á að
fullyrðingar um að embætti ríkislög-
reglustjórans hafi lekið upplýsingum
um rannsókn á umræddu máli hafa
komið fram áður. Ríkissaksóknari
hefur rannsakað slíkar ávirðingar og
komist að þeirri niðurstöðu að eng-
inn fótur væri fyrir slíkum áburði.
Reykjavík, 7. febrúar 2007,
Helgi Magnús Gunnarsson,
saksóknari efnahagsbrota.“
Yfirlýsing frá saksóknara efnahagsbrota
Helgi Magnús
Gunnarsson
FERÐAFÉLAG Íslands hefur sent
frá sér ályktun þar sem lagst er gegn
hugmyndum Norðurvegar um fjöl-
farinn, uppbyggðan hálendisveg um
Kjöl enda eigi hann fyrst og fremst
að tengja saman landshluta en ekki
að styrkja Kjöl sem óbyggðasvæði.
„Uppbyggður vegur yfir Kjöl með
hraðri og þungri umferð mun stór-
spilla óbyggðum hálendisins. Hávaði
og gnýr frá slíkri umferð á malbik-
uðum vegi berst gríðarlega langt,
umferðin stingur algerlega í stúf við
þá náttúrustemningu sem þarna rík-
ir, ævintýri óbyggðaferða á sumri og
vetri er úr sögunni, enn einu sinni
verður gengið á takmarkað land
óbyggðanna og það rist í sundur,
umferðinni fylgir margvísleg þjón-
usta sem ekki á heima á hálendinu,“
segir meðal annars í ályktun Ferða-
félagsins en þar er lögð áhersla á, að
arðsemi og fjárhagslegur ávinningur
af uppbyggðum og fjölförnum vegi
um Kjöl réttlæti ekki þau spjöll sem
augljóslega yrðu á óbyggðum lands-
ins.
„Stjórn Ferðafélags Íslands
leggst alfarið gegn hugmyndum um
umræddan veg. Félagið hefur á 80
ára ferli greitt för þeirra sem vilja
ferðast og dvelja á Kili en valda lág-
marksröskun. Elsti skáli Ferða-
félagsins, sem var reistur 1930,
stendur enn og verður friðlýstur og
hefur það verið stefna félagsins að
skálar á Kili séu fjallaskálar sem
með hógværum hætti falli að fegurð
lands og náttúru.“
Ferðafélagið einn af frum-
kvöðlunum á svæðinu
Ferðafélag Íslands segir, að fyrir
hönd félagsmanna, sem séu nú um 7
þúsund, og annarra ferðamanna eigi
það mikilla hagsmuna að gæta. Fé-
lagið hafi verið einn af frumkvöðlum
á svæðinu og byggt þar skála, skipu-
lagt ferðir, merkt gönguleiðir, smíð-
að brýr, komið upp útsýnisskífum,
gefið út árbækur, landlýsingar, kort
og sögulegan fróðleik, sinnt land-
vörslu, náttúruvernd og öryggismál-
um og átt mikið árangursríkt sam-
starf við heimamenn. Þetta starf hafi
verið unnið í sjálfboðavinnu á ára-
tugum.
Í lok ályktunar Ferðafélags Ís-
lands segir, að það sé tilbúið til að
eiga samstarf um framtíðarfyrir-
komulag á vegi og umferð um Kjöl
en félagið hafni hins vegar þeim hug-
myndum, sem Norðurvegur hefur
nýlega kynnt.
Öræfakyrrð á Kili eigi ekki að
rjúfa frekar en orðið er.
Rjúfum ekki kyrrð
öræfanna á Kili
„ÞESSI mynd er með þeim betri
sem nást af landinu,“ segir Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur á
bloggsíðu sinni um meðfylgjandi
mynd sem var tekin frá MODIS-
tunglinu Aqua í fyrradag. Snjór er
yfir í flestum landshlutum og verða
útlínur landsins því óvenju skarpar
fyrir vikið, skrifar Einar.
Veðurtunglamynd
Útlínur landsins óvenju skarpar