Morgunblaðið - 09.02.2007, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Tókýó. AP. | Þegar skærasta stjarnan í sumó-
glímu, Mongólíumaðurinn Asashoryu, var að
hljóta sess meðal sigursælustu súmóglímumanna
allra tíma kom upp hneykslismál sem kempunni
hefur veist erfitt að ryðja úr vegi.
Asashoryu fékk Keisarabikarinn í tuttugasta
skipti í janúar fyrir sigur á móti atvinnumanna í
súmóglímu en hann er nú sakaður um að hafa haft
svik í frammi.
Vikublaðið Shukan Gendai hefur valdið miklu
fjaðrafoki í súmóheiminum með ásökunum um að
Asashoryu hafi borgað andstæðingum sínum fyrir
að tapa fyrir honum. Sumóglímusamband Japans
rannsakaði málið en segir að engir maðkar séu í
mysunni og ætlar að höfða mál gegn blaðinu fyrir
ærumeiðingar.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem súmóglímu-
sambandið stendur frammi fyrir ásökunum um
spillingu. Tveir súmóglímumenn héldu því fram
um miðjan síðasta áratug að súmóheimurinn væri
gegnsýrður af spillingu en þeir dóu með dul-
arfullum hætti nokkru síðar.
Shukan Gendai stendur við ásökunina um að
Asashoryu hafi haft svik í frammi og segir hana
byggjast á áreiðanlegum heimildum. Mark Buck-
ton, ritstjóri tímarits um súmóglímu, efast um að
ásökunin sé rétt. Hann segir að Asashoryu beri
höfuð og herðar yfir aðra súmóglímumenn um
þessar mundir og þurfi ekki að grípa til þess ráðs
að múta andstæðingum sínum.
Asashoryu hefur verið umdeildur meðal jap-
anskra áhugamanna um súmóglímu frá því hann
skaust upp á stjörnuhimininn í íþróttinni fyrir
fjórum árum. Hann þykir framhleypinn og drýld-
inn og eiga það til að ögra andstæðingum sínum.
Hann ýtir oft andstæðingi sínum út fyrir hringinn
þótt bardaganum sé lokið og starir ógnandi í augu
andstæðingsins áður en bardaginn hefst. Þessi
framkoma mælist illa fyrir í íþróttahreyfingu sem
leggur mikla áherslu á auðmýkt og drengskap.
Gremjan í garð Asashoryu kann einnig að stafa
af því að hann er Mongólíumaður og Japanir hafa
ekki átt stórmeistara, sem keppir í íþróttinni, frá
því að glímukappinn Takanohana dró sig í hlé fyr-
ir þremur árum.
Asashoryu er eini stórmeistarinn sem keppir
núna í íþróttinni. Hann er í fimmta sæti á lista yfir
sigursælustu súmóglímumenn sögunnar.
Kempan sökuð um vélabrögð
AP
Segist blásaklaus Mongólska súmókempan
Asashoryu ber af sér allar ásakanir um svik.
Róm. AFP. | Ítalska lögreglan yfir-
heyrir nú sautján ára pilt sem grun-
aður er um að hafa átt hlut að máli
þegar lögreglumaðurinn Filippo Ra-
citi var drepinn í óeirðum sem brut-
ust út meðan á knattspyrnuleik Cat-
ania og Palermo stóð á Sikiley sl.
föstudagskvöld.
Atburðurinn á föstudag varð til
þess að öllum leikjum sem fram áttu
að fara í ítölsku knattspyrnunni um
liðna helgi var aflýst. Nú hefur
ítalska ríkisstjórnin hins vegar
ákveðið að leikið verði um næstu
helgi. Aðeins þar sem ýtrustu örygg-
isskilyrðum er fullnægt verður þó um
áhorfendur að ræða og víða verður
því leikið fyrir tómum áhorfendapöll-
um. Hvar nákvæmlega áhorfendur
verða heimilaðir mun ráðast af eft-
irliti á vettvangi, sem gera átti í gær á
öllum knattspyrnuleikvöngum.
Framtíð boltans í húfi
Átökin og skrílslætin í Catania á
föstudag þóttu svo yfirgengileg að
sjálf framtíð fótboltans á Ítalíu er tal-
in í húfi. Eru öfgamenn sagðir svo
áhrifamiklir í knattspyrnunni, að
ekki verði auðvelt að snúa þróuninni
við.
Það er raunar um ár liðið síðan
leiddar voru í lög breytingar til að
hefta ofbeldi á ítölskum knattspyrnu-
völlum. Aðgöngumiðar eiga nú að
geyma nafn handhafa og heimilt er
að leita á vallargestum til að koma í
veg fyrir að þeir beri flöskur og flug-
elda inn á viðkomandi leikvang. Nýju
lögin hafa hins vegar litlu breytt fram
til þessa, enda uppfylla ekki allir leik-
vangar þær kröfur sem gerðar eru
skv. lögunum.
Sautján ára
piltur yfir-
heyrður
,#=
56
.LJL
+
=%
" "
./001232405
78
8
# ! " . 8
9 .:
; 6
# !!
8 ! 6
.
1 ,$L,
#,J, ,
J
#,# <",<<"
,J
# ,N,O
"=<J
#,J,!L=,%
.LJL,?D
,J,+
=%,%
1 =%,;6D
#,J,
< ,
=,# <"
#$=,=
&,6
,,
H , , ,
=
L,J,E #=, ,$E
,L %
=
$L
,#$ ,C, ,# <"
<<"
,P,#
" ,
,=, ,%
,,6
, ,C,K
,
$
>
8#,
8
?
$
8#
.
. ,
8
8
,
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
FRAM hafa komið merki um vax-
andi óróa meðal almennings og þing-
manna í Íran vegna framgöngu
Mahmouds Ahmadinejads forseta í
deilunni um kjarnorkuáætlun Írana.
Forsetinn hefur sætt vaxandi
gagnrýni í Íran fyrir að bjóða Banda-
ríkjastjórn og öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna birginn með harðorðum yf-
irlýsingum. Óróinn bendir einnig til
þess að mörgum Írönum hrjósi hugur
við því að þurfa e.t.v. að heyja stríð
vegna deilunnar.
Íranar hafa verið undir miklum
þrýstingi vegna deilunnar á alþjóða-
vettvangi síðustu mánuði. George W.
Bush Bandaríkjaforseti hefur sent
flugmóðurskip inn á Persaflóa til að
vara Írana við því að auðga úran sem
hægt er að nota í orkuframleiðslu en
einnig til að framleiða kjarnavopn.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hef-
ur samþykkt refsiaðgerðir gegn Íran
eftir að klerkastjórn landsins neitaði
að stöðva tilraunirnar.
Stjórnmálamenn, stjórnarerind-
rekar og stjórnmálaskýrendur í Te-
heran segja að vaxandi gagnrýni
heima fyrir verði ekki til þess að
klerkastjórnin í Íran falli frá þeirri
stefnu að hagnýta kjarnorkuna í frið-
samlegum tilgangi, það er til orku-
framleiðslu. Óróinn heima fyrir geti
hins vegar orðið til þess að stjórnin
fallist að lokum á málamiðlunarlausn
til að sjá virðingu sinni borgið.
„Styðjum ekki öfgastefnu“
Gagnrýnin bendir einnig til þess að
marga Írana hrylli við tilhugsuninni
um nýtt stríð eftir átta ára styrjöld
við Íraka 1980–1988.
„Ef [Ahmadinejad] vill hefja nýtt
stríð, hvar ætlar hann þá að fá her-
mennina?“ hafði Los Angeles Times
eftir Mohammad Atrianfar, þekktum
stjórnmálaskýranda í Teheran og
bandamanni Hashemis Rafsanjanis,
fyrrverandi forseta, sem hefur reynt
að beita sér fyrir friðsamlegri lausn
deilunnar á bak við tjöldin síðustu vik-
ur.
„Við styðjum ekki róttæka öfga-
stefnu hans,“ sagði Atrianfar. „Við er-
um í þessari stöðu vegna áróðurs Ah-
madinejads.“
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti einróma ályktun um refsi-
aðgerðir gegn Íran 23. desember. Í
ályktuninni er lagt bann við allri sölu
á efnum og tækni sem Íranar geta
notað til að framleiða vopn. Þá hafa
eignir ákveðinna íranskra fyrirtækja
verið frystar.
Í ályktuninni er einnig varað við því
að gripið verði til enn frekari aðgerða
ef Íranar láta ekki af auðgun úrans.
Nokkrir sérfræðingar í málefnum
Írans telja að það hafi komið ráða-
mönnunum í Teheran í opna skjöldu
að Kínverjar og Rússar skuli hafa
greitt atkvæði með ályktuninni. „Það
var nokkurt áfall fyrir þá að ályktunin
var samþykkt einróma og þeir gátu
ekki reitt sig á Rússa og Kínverja,“
hafði Los Angeles Times eftir vest-
rænum stjórnarerindreka í Teheran.
„Þess vegna hefur nú hafist umræða
um hvað þeir eigi að gera næst.“
Hafa þarf í huga að gagnrýnin þýð-
ir ekki að margir Íranar séu andvígir
þeirri stefnu að hagnýta kjarnorkuna.
Jafnvel þeir stjórnmálamenn, sem
hafa gagnrýnt framgöngu Ahmadine-
jads, virðast vera sammála stjórninni
um að Íranar hafi rétt á að hagnýta
kjarnorkuna í friðsamlegum tilgangi
og auðga úran.
Khamenei vildi ekki
ræða við forsetann
Voldugasti leiðtogi landsins, ajatol-
lah Ali Khamenei, er eindregið hlynnt-
ur stefnu stjórnarinnar í kjarnorku-
málinu en athygli hefur vakið að hann
hefur ekki reynt að þagga niður í þeim
sem hafa gagnrýnt Ahmadinejad.
Blaðið Jamhouri Eslamic, sem var
áður í eigu Khameneis og endurspegl-
ar yfirleitt skoðanir hans, hefur
reyndar tekið undir gagnrýnina.
Blaðið birti forystugrein þar sem það
sakaði forsetann um að notfæra sér
kjarnorkudeiluna til að beina athygli
almennings frá misheppnaðri stefnu
hans í efnahagsmálum og framganga
hans er sögð hafa dregið úr stuðningi
almennings við stefnu stjórnarinnar í
kjarnorkumálinu.
Breska dagblaðið The Daily Tele-
graph skýrði frá því í síðasta mánuði
að Khamenei hefði synjað beiðni for-
setans um fund með honum, að öllum
líkindum vegna óánægju með fram-
göngu Ahmadinejads í kjarnorkumál-
inu. Að sögn blaðsins er þetta í fyrsta
skipti sem Khamenei neitar að ræða
við forsetann frá því að Ahmadinejad
tók við embættinu árið 2005. Íranskir
andstæðingar forsetans segja að
Khamenei hafi þannig viljað láta í
ljósi óánægju með framgöngu forset-
ans.
Áður höfðu 150 af 290 þingmönnum
landsins, þeirra á meðal margir sem
hafa stutt forsetann, undirritað bréf
þar sem Ahmadinejad er gagnrýndur
fyrir slælegan árangur í baráttunni
gegn atvinnuleysi og verðbólgu. Fá-
mennari hópur þingmanna hefur
gagnrýnt forsetann fyrir að storka ör-
yggisráðinu með harðorðum yfirlýs-
ingum sem hafi orðið til þess að ráðið
samþykkti refsiaðgerðirnar.
Vaxandi órói í Íran vegna
framgöngu forsetans
Reuters
Umdeildur Mahmoud Ahmad-
inejad, forseti Írans.
Málflutningur
Ahmadinejads í
kjarnorkudeilunni
sætir gagnrýni
Í HNOTSKURN
» Stjórnarerindrekar Evr-ópuríkja sögðust í gær
vona að hægt yrði að finna
lausn á kjarnorkudeilunni í
óformlegum viðræðum við að-
alsamningamann Írans á ráð-
stefnu um öryggismál í Þýska-
landi um helgina.
» Ehud Olmert, forsætisráð-herra Ísraels, kvaðst telja
að hægt yrði að koma í veg
fyrir kjarnorkuáform stjórn-
valda í Íran án þess að gera
árásir á landið.
Reuters
Samstaða Íranskir námsmenn haldast í hendur á Frelsistorginu í Teheran til að láta í ljósi stuðning við kjarn-
orkuáætlun klerkastjórnarinnar í Íran. Íranar eru sammála um að þeir hafi rétt til að hagnýta kjarnorkuna.