Morgunblaðið - 09.02.2007, Side 22
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
KEILUSALUR verður að öllum líkindum
opnaður í vor í glerhúsinu þar sem verslun
Blómavals var lengi til húsa í innbænum á
Akureyri. Hjónin Dagný Ingólfsdóttir og
Þorgeir Jónsson, sem þar hafa rekið veit-
ingastaðinn Kaffi Rós, hafa samið um
kaup á húsinu við núverandi eigendur og
tryggt sér keilubrautir til kaups. Ef allt
fer að óskum verða settar upp átta brautir
og Akureyringar geta þá farið að fella og
feykja á heimaslóðum á vormánuðum.
Keilusalur
í glerhúsið
22 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
UNDIRBÚNINGUR fyrir 25.
landsmót Ungmennafélags Íslands
er í fullum gangi. Mótið, sem nefnt
hefur verið Risalandsmót, verður
haldið í Kópavogi 5. til 8. júlí í sum-
ar og má gera því skóna að þetta
verði glæsilegasta landsmótið til
þessa.
Ný stúka verður vígð á Kópa-
vogsvelli á setningarhátíðinni. Björn
Jónsson, formaður UMFÍ, segir að
setningarhátíðin verði lengri og
veglegri en áður vegna þess að þá
verði jafnframt haldið upp á 100 ára
afmæli UMFÍ. „Þótt við séum með
margt í gangi allt árið verður þetta
okkar eiginlega afmælishátíð,“ segir
hann.
Á kynningarfundi í Smáranum,
þar sem undirritaður var samningur
við helstu styrktarfyrirtæki móts-
ins, Sparisjóð Kópavogs, Toyota,
Rúmfatalagerinn, Bónus, Norvik og
Vífilfell, kom fram hjá Gunnari
Birgissyni, bæjarstjóra Kópavogs,
að menningarhátíð Kópavogs yrði
haldin í tengslum við Landsmótið og
Kópavogur yrði undirlagður af
glæsilegum viðburðum. Valdimar
Leó Friðriksson, formaður UMSK,
sagði að undirbúningur væri á áætl-
un og um 2.000 sjálfboðaliðar
myndu vinna við mótið á einn eða
annan hátt.
Gera má ráð fyrir um 2.000 kepp-
endum og tugum þúsunda áhorf-
enda á landsmótinu í sumar, en dag-
skráin byggist á hefðbundnum
keppnisgreinum landsmóta. Þær
eru blak, borðtennis, bridds, dans,
fimleikar, frjálsíþróttir, glíma, golf,
handknattleikur, hestaíþróttir,
íþróttir fatlaðra, knattspyrna,
körfuknattleikur, skák, skotfimi,
sund og siglingar. Einnig verður
keppt í starfsíþróttum, þ.e. keppni í
að leggja á borð, gróðursetningu,
jurtagreiningu, pönnukökubakstri,
stafsetningu og starfshlaupi.
Björn Jónsson segir að í sumar
verði keppt í fleiri greinum en áður.
Fjölbreytnin verði meiri og menn-
ingardagskráin viðameiri en til
þessa. Auk þess verði efnt til sér-
stakrar sýningar í tilefni 100 ára af-
mælisins og standi hún lengur yfir
en landsmótið. „Þetta verður glæsi-
legt landsmót,“ segir hann.
100 ára afmælislandsmót verður á
Akureyri 2009.
Stefnt að glæsilegu lands-
móti UMFÍ í Kópavogi
Styrkur Úlfar Steindórsson framkvæmdastjóri Toyota, Gunnar Birgisson
bæjarstjóri í Kópavogi, Valdimar Leó Friðriksson formaður UMSK og
Björn Jónsson formaður UMFÍ skrifa undir samninga vegna Landsmóts
UMFÍ, sem verður haldið í Kópavogi í sumar ásamt tengdum viðburðum.
Í HNOTSKURN
» Fyrsta landsmót UMFÍvar haldið 1909 og síðan
1940 hefur það verið haldið
þriðja hvert ár með nokkrum
undantekningum.
» Á landsmótum er keppt ímörgum greinum íþrótta,
auk ýmissa starfsíþrótta eins
og dráttarvélarakstri, starfs-
hlaupi og línubeitingu, auk
annarra greina.
» Árið 1965 sóttu um 25.000landsmótið að Laug-
arvatni og er það met.
BÓKAKISTUR Borgarbókasafns-
ins, BBS, voru formlega opnaðar í
Foldaskóla á dögunum, en Folda-
safn og öll skólasöfn hverfisins, auk
Grafarholts, taka höndum saman
og hvetja unglinga til lesturs og til
að nýta sér bókasöfnin.
Borgarbókasafnið sýnilegra
Helstu markmið átaksins eru að
kynna Borgarbókasafnið fyrir ung-
lingum hverfisins, að efla enn frek-
ar samstarf milli skóla og bóka-
safnsins í hverfinu og að gera BBS
sýnilegra í samfélaginu.
Bókakistan sjálf og safnefni í
eigu BBS verða á sérhverju skóla-
safni Grafarvogs til notkunar fyrir
nemendur skólans. Ekki er lánað úr
kistunni, heldur notað á staðnum
og er skipt um efni mánaðarlega. Í
Bókakistunum er efni sem höfðar
til unglinga og getur nýst þeim í
leik og starfi.
Hugmyndum frá skólasafnvörð-
um og teymi BBS um barnastarf
hefur verið safnað saman og er sá
listi notaður til að auðvelda efn-
isval. Sett verður í kisturnar fjöl-
breytt safnefni úr fullorðins- og
unglingadeild og notast verður við
það sem þegar er til í deildum BBS.
Hver skólasafnvörður verður
með sinn tengilið á Foldasafni. Sá
sér um að velja og gera tilbúinn
mánaðarlegan pakka fyrir sinn
skóla. Hann heldur utan um send-
ingar, kynnir sér hverju helst er
óskað eftir og kemur til móts við
það eftir bestu getu. Skólasafnvörð-
ur sér svo um að sækja pakkann
sinn og skila öðru efni.
Endurmetið í haust
Skólasafnverðir sjá um að dreifa
kynningarefni, bæklingum, bóka-
merkjum og ábyrgðarspjöldum til
foreldra. Um leið hvetja þeir ung-
linga til að heimsækja Foldasafn
eða aðrar deildir.
Í september 2007 verður verk-
efnið endurmetið með tilliti til
breytinga á tilhögun fyrir næsta
vetur.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Bókakista Fyrsti bókakistillinn opnaður í Foldaskóla í Grafarvogi.
Bókakistur í Foldaskóla
AKUREYRI
SKRIFAÐ var undir samning þess
efnis í gær að Akureyrardeild
Rauða kross Íslands, Geðvernd-
arfélag Akureyrar og Akureyr-
arbær rækju áfram dagsathvarf
fyrir fólk með geðraskanir. Samn-
ingurinn gildir til ársins 2009.
Athvarfið, sem kallast Laut, er
nú rekið í rúmlega 100 fermetra
plássi en flyst í vor í um það bil þre-
falt stærra hús.
Að sögn Jónínu Hjaltadóttur,
forstöðumanns athvarfsins, leituðu
að meðaltali 18 manns þangað dag-
lega í fyrra og höfðu aldrei verið
fleiri. Athvarfið hefur verið starf-
rækt í sex ár og hún segir að stöð-
ugt sjáist þar ný andlit. Jónína ger-
ir ráð fyrir því að alls hafi um 300
manns komið í Lautina frá upphafi.
Meginmarkmiðið með starfsem-
inni er að rjúfa félagslega ein-
angrun fólks með langvinnar geð-
raskanir, auka samfélagsþátttöku
þess og bjóða tækifæri til samveru
og fræðslu. Athvarfið er nú til húsa
í Þingvallastræti 32 en flyst með
vorinu í Brekkugötu 34 þar sem áð-
ur var leikskólinn Klappir. Ak-
ureyrardeild Rauða krossins ann-
ast daglegan rekstur athvarfsins en
Geðverndarfélag Akureyrar sér um
fræðslu og þjálfun starfsfólks,
ásamt því að veita faglega ráðgjöf
um daglega starfsemi. Félaginu er
einnig ætlað að standa fyrir a.m.k.
tveimur fyrirlestrum eða fræðslu-
fundum á vetri um málefni geðfatl-
aðra fyrir starfsmenn og sjálf-
boðaliða athvarfsins.
Rekstraráætlun athvarfsins er
um það bil 15 milljónir króna á ári.
Geðverndarfélagið leggur fram
tvær milljónir og Akureyrarbær
fjórar. Úr samningi við félagsmála-
ráðuneytið koma fimm milljónir
króna og Rauði krossinn leggur
fram fjórar milljónir.
Áætlaður endurbótakostnaður
bæjarins á húsnæðinu Brekkugötu
34 er um 10 milljónir. Stefnt er að
því að athvarfið verði áfram opið
virka daga frá kl. 9 til 17.
Samninginn undirrituðu, við at-
höfn í nýja húsnæðinu, Sigrún Jak-
obsdóttir, bæjarstjóri, Brynjólfur
Ingvarsson, formaður Geðvernd-
arfélags Akureyrar og Sigurður
Ólafsson, formaður Akureyr-
ardeildar Rauða krossins.
Athvarf fólks með geðrask-
anir flutt í mun stærra hús
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Orginal gleði Stefán Jóhann Júlíusson, fastagestur í Lautinni, les frumsamda ljóðið Orginal
gleði við athöfnina og færði þ́að svo Jónínu Hjaltadóttur forstöðumanni að gjöf. Til hliðar eru
Sigrún Jakobsdóttir, Sigurður Ólafsson og Brynjólfur Ingvarsson, sem undirrituðu samninginn. SÝNING um Sigríði
Jónsdóttur, móður
Jóns Sveinssonar,
Nonna, verður opn-
uð í Amtsbókasafn-
inu í dag kl 16. Þar
er lýst merkilegri
ævi Sigríðar. Hún
fæddist í Mývatns-
sveit og bjó fyrstu 40
æviárin á Norðurlandi en fluttist þá til
Vesturheims þar sem hún lést í hárri elli.
Sigríður eignaðist níu börn og í sögum
Nonna má glöggt sjá hversu mikil áhrif
hún hafði á son sinn þrátt fyrir að hann
hafi ungur verið sendur til náms í Frakk-
landi. Sýningin hefur áður verið í Vest-
urfarasetrinu og í Þjóðarbókhlöðunni.
Sýning um Sigríði
móður Nonna
Orginal gleði
Oft hefir hið mikla myrkur
marað í hálfu kafi hjá fólki
eða langt í djúpi og drauma-
dísirnar verið ansi langt undan.
En ég mæli af eigin reynslu
að ekki hefi ég viljað blanda geði
við fólk sem vildi mér vargan bæta
og viljað mér liðsinnt af fremsta megni.
Og þó ætíð hart sé í heimi
og hjörtu mannanna slegin sé báli
er til fólk á Akureyri
sem okkur þessi bjartföllnu styðja
og þér ég þakka Jónína mín Hjalta
þruðgan ilm frá ykkur öllum
og ég enda frá mínu forherta hjarta:
Frami ykkur öllsömul geðar vættir og blessi!
Stefán J.Fjólan
(Stefán Jóhann Júlíusson)