Morgunblaðið - 09.02.2007, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 23
LANDIÐ
PÓSTSENDUM
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Fyrir vöðva og liðamót
GLUCOSAMINE -HCI
Fáskrúðsfjörður | Undirbúningur
Þjóðahátíðar Austurlands stendur
nú sem hæst, en hún verður haldin
18. febrúar nk. í Skrúð á Fáskrúðs-
firði.
Hátíðin er tileinkuð listum og
menningu, þjóðakynningum, hand-
verki og tónlist Austfirðinga af er-
lendu bergi brotinna. Segir Kristín
Arna Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar, að
markmið Þjóðahátíðar sé að
styrkja samskipti og samgang,
skilning og vináttu milli allra íbúa
Austurlands og opna augu fólks
fyrir þeim verðmætum sem felast í
fjölbreyttri menningu.
Austfirðingar
sameinast um
Þjóðahátíð
AUSTURLAND
Seyðisfjörður | Nú er tekið að stytt-
ast í listmunauppboð menningar-
miðstöðvarinnar Skaftfells á Seyð-
isfirði, en það fer fram í versluninni
Liborious við Mýrargötu í Reykja-
vík eftir rúma viku.
Boðin verða upp verk 37 lista-
manna sem hafa allir komið að sýn-
ingarhaldi Skaftfells, sem staðið
hefur fyrir metnaðarfullu sýning-
arhaldi á hátt í áratug. Á uppboð-
inu má finna verk eftir helstu kan-
ónur íslensks myndlistarlífs sem og
yngri listamenn, innlenda og er-
lenda. Ágóði uppboðsins verður
nýttur til frekari uppbyggingar
Skaftfells.
Verkin verða til sýnis frá og með
deginum í dag og er listamönn-
unum og fjölmiðlum boðið í hús kl.
17 nú síðdegis.
Skaftfell er miðstöð myndlistar á
Austurlandi. Árlega eru á bilinu
fimm til sjö sýningar í sýningarsal
Skaftfells en að auki eru fjölmargar
sýningar haldnar á Vesturveggn-
um, galleríi í Bistrói Skaftfells.
Sýningarnefnd hússins leggur
metnað í að sýningarhald gefi góða
mynd af samtímalistinni auk þess
að bjóða upp á sýningar á hefð-
bundnari verkum inn á milli. Að
auki er í Skaftfelli gestavinnustofa
þar sem listamenn geta dvalist í
lengri eða skemmri tíma við vinnu
sína. Seyðisfjörður hefur á und-
anförnum árum getið sér gott orð
sem kjörlendi fyrir myndlist-
armenn að sýna verk sín eða vinna
að list sinni. Skaftfell er án efa mið-
punktur þess starfs og mikilvægur
griðastaður myndlistarinnar í
dreifðari byggðum landsins.
Uppboðið fer fram laugardaginn
17. febrúar klukkan 16 og uppboðs-
haldari verður Egill Helgason.
Uppboðsskrá má nálgast á vefnum
www.skaftfell.is undir dagskrá.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Metnaður Ein af fjölmörgum sýningum í Skaftfelli síðustu misserin er sýn-
ing Önnu Líndal um Vatnajökul og var hún hluti af Listahátíð í Reykjavík.
Uppboðsgripirnir
kynntir í Liborious
Djúpivogur | Á Djúpavogi
hefur verið unnið vel að
varðveislu eldri húsa á
liðnum árum og má segja
að öll séu þau mikil bæj-
arprýði.
Eitt af þeim húsum er
verið hafa í endurbygg-
ingu stendur í miðju bæj-
arins. Það er bæði háreist
og virðulegt og vekur
gjarnan athygli gesta og
gangandi. Húsið er í dag-
legu tali kallað Sólhóll.
Sólhóll er reist á grunni
eldra húss er byggt var
um 1880. Það hús sem
stendur á lóðinni í dag var
hins vegar reist árið 1930 og var efni-
viður úr hinu eldra húsi að hluta
nýttur til byggingarinnar.
Ólafur Eiríksson frá Hvalnesi
mun hafa verið yfirsmiður hússins
sem var reist fyrir Jón Sigurðsson
kaupfélagsstjóra og mág hans Ágúst
Lúðvíksson verslunarmann. Það var
svo árið 2000 að þau Þór Vigfússon
myndlistarmaður og Steinunn Björg
Helgadóttir, kennari við Grunnskóla
Djúpavogs, keyptu húsið og hafa þau
nú gert á því viðamiklar endurbætur
og jafnframt gætt þess að vernda hið
upprunalega útlit hússins eins og
kostur er.
Sólhóll er sann-
kölluð bæjarprýði
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Sómi Sólhóll lenti í góðum höndum og hefur
verið í yfirhalningu.
Egilsstaðir | AFL, starfsgreinafélag
Austurlands, undirbýr nú að senda
þrjá trúnaðarmenn félagsins í náms-
og kynningarferð til Svíþjóðar.
Verkefnið er unnið í samvinnu við
sænska verkalýðsfélagið IF Metal.
Áætlað er að ferð trúnaðarmann-
anna taki tvær til þrjár vikur og
stendur m.a. til að heimsækja álver í
Sundsvall. Álver Alcoa Fjarðaáls á
Reyðarfirði verður gangsett í vor og
AFL því sýnilega að undirbúa sitt
lið. AFL er einnig að undirbúa nám-
skeið fyrir erlenda trúnaðarmenn
síðast í þessum mánuði. Munu þeir
m.a. koma frá Fjarðaálssvæðinu,
Eskju og Kárahnjúkum. Þetta er í
annað sinn sem AFL stendur fyrir
trúnaðarmannanámskeiðum fyrir
útlendinga og að sjálfsögðu verður
túlkur kennara námskeiðsins til
halds og trausts.
Starfsgreinafélagið AFL
undirbýr trúnaðarmenn
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Hornafjörður | „Ég hef keppt í ýmsu
í gegnum tíðina, bridds og íþróttum,
en þetta er í fyrsta skipti sem ég
verð Íslandsmeistari. Nú verður
markmiðið að ná heimsmeistaratitl-
inum,“ segir Sigurpáll Ingibergsson,
sem ávann sér virðingarheitið Ís-
landsmeistari í Hornafjarðarmanna
á nýafstöðnu Íslandsmóti.
Tíunda mótið í Hornafjarðar-
manna var haldið um helgina, í
tengslum við þorrablót Hornfirðinga
á höfuðborgarsvæðinu. 33 slyngir
spilarar tóku þátt í undankeppni og
áunnu þrír sér rétt til að taka þátt í
úrslitakeppninni sem fór fram á
þorrablótinu.
Loksins hafðist það
„Ég hef reynt að taka þátt í sem
flestum mótum frá því byrjað var að
keppa í þessu fyrir tíu árum. Loksins
hafðist það,“ segir Sigurpáll. Hann
er tölvunarfræðingur, búsettur í
Kópavogi, en í röðum Hornfirðinga
er hann kenndur við Fiskhól á Höfn
þar sem hann bjó.
„Ég hef oft komist í úrslitakeppn-
ina en aldrei fyrr í þriggja manna úr-
slit. Raunar var ég tæpur í undan-
keppninni, var kominn í slæma stöðu
en fékk svo góð spil í lokin að ég
slapp inn á síðustu stundu,“ bætir
Sigurpáll við.
Í úrslitunum spilaði hann við Hall-
dór Tryggvason og Sigríði Guð-
mundsdóttur.
Tvö mót á ári
Hornafjarðarmanni er afbrigði af
manna sem talið er að séra Eiríkur
Helgason í Bjarnanesi sé höfundur
að og spilaður var í Hornafirði fyrir
miðja síðustu öld. Þegar Hornfirð-
ingar héldu upp á aldarafmæli
byggðar á Höfn árið 1997 efndi Al-
bert Eymundsson skólastjóri, síðar
bæjarstjóri, til heimsmeistaramóts í
Hornafjarðarmanna og tóku 300
manns þátt.
Síðan hafa verið haldin árleg
heimsmeistara- og Íslandsmót,
heimsmeistaramótin í tengslum við
Humarhátíð á Höfn.
Albert hefur haldið þessari keppni
gangandi og er titlaður útbreiðslu-
stjóri greinarinnar. Guðjón Þor-
björnsson, fyrrverandi Íslands-
meistari, var yfirdómari í úrslitunum
þar sem hann féll út í undankeppn-
inni.
„Nú verður markmiðið að
ná í heimsmeistaratitil“
Spilarar Guðjón Þorsteinsson, Sigurpáll Ingibergsson, Albert Eymunds-
son, Halldór Tryggvason og Sigríður Guðmundsdóttir á úrslitastundu.
Í HNOTSKURN
»Talið er að séra EiríkurHelgason í Bjarnanesi
(1892–1954) hafi verið höf-
undur þess afbrigðis af manna
sem nefnt hefur verið Horna-
fjarðarmanni.
»Albert Eymundsson, skóla-stjóri á Höfn, átti hug-
myndina að því að farið var að
keppa í spilinu. Frá 1997 hafa
verið haldin árleg Íslands- og
heimsmeistaramót.
»Sigurpáll Ingibergsson ernýkrýndur Íslandsmeistari
í spilinu.
Tálknafjörður | Tvö vöruflutn-
ingaskip komu til Tálknafjarðar á
einum sólarhring í vikunni.
Það fyrra kom um kl. níu um
morguninn, og úr því voru affermd
500 tonn af salti. En þar sem kran-
inn sem notaður var við að afferma
skipið bilaði tafðist verkið um
nokkra tíma og var ekki lokið fyrr
en eftir miðnætti.
Seinna skipið kom um tvöleytið
um nóttina, en það var komið til að
sækja loðdýrafóður, sem fyrirtækið
Þóroddur framleiðir. Fóðrið er bú-
ið til úr fiskúrgangi, til útflutnings
til Danmerkur. Strax var hafist
handa við að ferma skipið, þar sem
470 tonnum þurfti að koma um
borð.
Einnig má geta þess að gæftir
hafa verið góðar undanfarna daga.
Á rúmum sólarhring komu 70 tonn
að landi á Tálknafirði.
Langt er síðan önnur eins verð-
mæti hafa farið í gegnum höfnina á
jafnstuttum tíma.
Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson
Annir Salt og loðdýrafóður fer um Tálknafjarðarhöfn ásamt fiski.
Mikil verðmæti um
höfnina á sólarhring
Selfoss | Undirskriftalistar, þar
sem mótmælt var lokun deildar á
leikskólanum Hulduheimum á Sel-
fossi, voru kynntir í bæjarráði Ár-
borgar í gærmorgun. Við það tæki-
færi létu fulltrúar meirihlutans
bóka að lokun umræddrar deildar
muni ekki hafa í för með sér skerð-
ingu á þjónustu við þau börn sem
eru í leikskólanum og heldur ekki
lækka þjónustustig leikskóla í sveit-
arfélaginu. Fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins harmaði lokun leik-
skóladeildarinnar.
Mótmæla lokun leikskóla