Morgunblaðið - 09.02.2007, Qupperneq 24
|föstudagur|9. 2. 2007| mbl.is
Það er sama hversu hollur
matur er valinn, það er hægt
að fitna af öllu ef borðað er of
mikið. » 28
neytendur
Vel kryddaðir og litríkir fisk-
réttir geta auðveldlega sett
skemmtilegan svip á vetr-
arborðið. » 26
matur
Íslenskur arkitektúr er varla það
fyrsta sem kemur upp í hugann í
tengslum við New York-
tískuvikuna eða hvað? » 27
tíska
HANDPRJÓNUÐ ullarbrjóst eru
nú notuð til kennslu við kvenna-
sjúkrahúsið í Liverpool í Bret-
landi. Ljósmæður og hjúkrun-
arfræðingar nota brjóstin til að
sýna nýbökuðum mæðrum
hvernig haga á brjóstagjöfinni.
Handprjónuð brjóst hafa fram
að þessu verið notuð víða um
heim meðal kvenna sem hafa
misst brjóst vegna krabbameins.
Starfsmaður spítalans hefur séð um að prjóna
brjóstin og fékk til liðs við sig móður sína en brjóstin
eru prjónuð í mismunandi húðlitum. Byrjað var að
nota þessi prjónuðu brjóst þegar ljóst var að ekki væri
gert ráð fyrir að fjármunum yrði varið til kaupa á
tugum gervibrjósta. Prjónuðu brjóstin hafa einnig
komið að góðum notum á spítalanum þegar mæður
fyrirbura og veikra ungbarna þurfa að læra að hand-
mjólka sig.
Hins vegar eru vinsældir brjóstanna orðnar slíkar
að starfsmaðurinn og móðir hans sem hafa sinnt
prjónaskapnum anna engan veginn eftirspurn.
Sjúkrahúsið hefur nú brugðið á það ráð að biðja vel-
unnara spítalans að grípa í prjóna sjái þeir sér færi á.
Ullarbrjóst vinsæl
til kennsluNánast hvað sem er getur
verið skapandi fólki efni-
viður í listaverk. Náttúr-
an og það sem hún leggur
til er þar ekki undantekn-
ing. Sandur og snjór er til
dæmis ágætt efni til að
búa til skúlptúra úr.
Japanar hafa gert sér
grein fyrir þessu og
halda árlega hátíð til að
létta fólki lundina yfir
vetrartímann, en þar
leika risavaxnir snjó-
skúlptúrar aðalhlut-
verkið. Snjóhátíð þessi
fór af stað í vikunni í Sap-
poro í Norður-Japan. Há-
tíðin dregur að gríð-
arlegan fjölda
ferðamanna og gestirnir
þetta árið virðast ekki
láta regnið á sig fá sem
fylgir óvenjuháu hitastigi
miðað við árstíma, en
Mikki mús og félagar
bráðna kannski fyrr en
ætlað var.
Hátíð til heiðurs snjó
Reuters
Það eru engar tvær helgar hjá méreins, ég er að spila eða æfa og stund-um er ég líka í fríi,“ segir AndreaGylfadóttir sem er stödd á æfingu
þegar næst við hana samband og hún er spurð
hvernig hún hyggist eyða helginni.
„Yfirleitt hlakka ég bara til helganna hvort
sem ég er að vinna eða í fríi. Það er alltaf eitt-
hvað skemmtilegt um að vera og núna hefst til
dæmis helgin með tónleikum í Hlégarði á
föstudagskvöldið. Þar kem ég fram ásamt úr-
vals tónlistarmönnum og við ætlum að bjóða
upp á notalega tónlist, lög sem okkur finnst
gaman að flytja og flestir þekkja.“
Biljarður og keila
Andrea segist eiga frí á laugardaginn og
maðurinn hennar, Einar Rúnarsson, á aldrei
þessu vant líka frí um kvöldið en hann er oft
upptekinn við vinnu í Borgarleikhúsinu eða að
spila með Sniglabandinu um helgar.
„Við vorum að hugsa um að halda upp á frí-
kvöldið með því að fara í biljarð og svo í keilu
með góðum vinum okkar.“
Andrea segist ætla að taka það rólega á
laugardeginum sjálfum. „Þegar ég er vöknuð í
makindum getur meira en verið að ég skelli
mér í góðan og hressandi göngutúr um
Skerjafjörðinn og labbi jafnvel út í Nauthóls-
vík ef veðrið verður skaplegt.
Sunnudagskvöldið er aðeins að vefjast fyrir
mér því mig langar bæði að fara á Eilífa ham-
ingju í Borgarleikhúsinu og á Misery á Nasa.
Ég á bara eftir að gera upp við mig á hvora
sýninguna ég fer.“
Annars er ýmislegt framundan hjá Andreu,
hún er að spila með Todmobile af og til á
næstunni en þó aðallega í lokuðum sam-
kvæmum, svo er hún að spila á blúshátíð á
Hornafirði í byrjun mars og ekki er annað að
heyra en að plötugerð sé á dagskrá.
Gaman að elda
„Það er ekki ólíklegt að ég eldi góðan mat
um helgina,“ bætir Andrea svo við og upplýsir
að hún hafi gaman af að elda og það mun bara
fara eftir andanum um helgina hvort það
verður indverskt, taílenskt eða bara kjötsúpa
sem verður á borðum hjá henni. Annars kem-
ur í ljós að eftirsóttasti maturinn heima hjá
Andreu á þessum árstíma er lauksúpan henn-
ar. „Núna þegar önnur hver manneskja er
með kvef biðja fjölskyldan og vinir um lauk-
súpuna þegar kíkt er í heimsókn. Hún vinnur
á kvefi og alls kyns pestum og er rosalega
góð.“
Lauksúpa Andreu
laukur eftir hentugleikum
kjúklingakraftur
hvítlaukur og ríflega af honum
engifer
örlítið af rifinni múskathnetu
estragon
vatn
samlokubrauðsneiðar
egg
ostur
Skerið niður lauk og hvítlauk og rétt steikið á
pönnu í stutta stund. Bætið við ferskum rösp-
uðum engifer og múskatinu. Vatni og kjúk-
lingakrafti bætt við. Holið brauðsneið með
glasi og spælið í holuna egg. Ekki spæla eggið
í gegn. Setjið í súpuskál og ostsneiðar yfir.
Hellið súpunni yfir og berið fram. Klikkar
ekki.
Kjúklingasúpa og keilukvöld
Morgunblaðið/Ásdís
Helgin Andrea Gylfadóttir bregður sér gjarnan í göngutúr þegar færi gefst um helgar.
Andrea Gylfadóttir söngkona er
að hugsa um að skella sér í bilj-
arð og keilu annað kvöld en ætl-
ar þó að hefja helgina á því að
syngja íslensk lög fyrir þá sem
leggja leið sína í Hlégarð í kvöld.
Að sofa út og taka því afar rólega.
Að kúra hjá ástvini ef maður á hann.
Að fara í góðan göngutúr.
Að gera sér ferð í Listasafn Íslands á frábæra sýningu, Frelsun litarins.
Að lesa góða bók og ef það er kalt þá endilega kúra undir teppi
og fá sér heitt súkkulaði.
Andrea mælir með
daglegtlíf
Rauðvínin frá Rioja standa fyrir
sínu þegar góðir framleiðendur
eru annars vegar segir Stein-
grímur Sigurgeirsson. » 27
vín
Á Íslandi er að finna fjölmörg
sumarhús af öllum stærðum og
gerðum og Gunnar Sverrisson
hefur myndað mörg þeirra. » 29
bækur