Morgunblaðið - 09.02.2007, Page 41

Morgunblaðið - 09.02.2007, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 41 ✝ Rannveig Krist-jana Jónsdóttir fæddist í Hörgsdal á Síðu hinn 20. desem- ber 1924. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi hinn 30. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Anna Krist- ófersdóttir, f. á Breiðabólsstað á Síðu 15. apríl 1891, d. 27. janúar 1967, og Jón Bjarnason, f. í Hörgsdal á Síðu 14. apríl 1887, d. 10. desember 1977. Rannveig var 12. í röð 15 systkina, og með henni eru 13 þeirra látin. Börn Jóns og Önnu, auk Rann- veigar, voru: Ragnar Friðrik, f. 3. maí 1908, d. 5. apríl 1988, Helga, f. 26. apríl 1909, d. 12. mars 1992, Kristjana, f. 23. september 1910, d. 19. apríl 1925, Bjarni, f. 16. nóv- ember 1911, d. 2. janúar 1999, Sig- rún, f. 23. desember 1912, d. 30. apríl 1973, Kristófer, f. 31. júlí 1914, d. 23. júlí 1997, Anna Kristín, f. 6. febrúar 1916, d. 5. mars 2003, Jakob, f. 6. mars 1917, d. 11. nóv- ember 1999, Ólafur, f. 6. mars 1919, d. 31. desember 2006, Her- mann Guðjón, f. 25. maí 1921, d. 14. september 1997, Páll, f. 26. október 1922, d. 13. maí 2000, Halldór, f. 9. mars 1926, Kristjana, f. 3. apríl 1927, og Ólafía Sigríður, f. 21. maí 1929, d. 1. júní 1984. Rannveig flutti með foreldrum sínum frá Hörgsdal að Keldunúpi í sömu sveit árið 1927, og á Keldunúpi átti þrjú börn, þau eru: Stefán Freyr, f. 19. október 1976, Sveinn Ingvi, f. 13. júlí 1979, og Sigrún Árdís, f. 3. nóvember 1982. Langömmubörnin eru 22. Alls eru afkomendur Rann- veigar og Sólmundar 42. Árið 1947 fluttust Rannveig og Sólmundur til Hveragerðis með tvær ungar dætur, þar sem þau höfðu byggt einbýlishús. Vegna veikinda Sólmundar fluttu þau þremur árum síðar að Breiðabóls- stað á Síðu og bjuggu þar í sambýli við Elínu systur Sólmundar og Matthías mann hennar og þeirra fjölskyldu. Þar voru einnig í heim- ili þrjár fullorðnar konur, Þuríður móðir Sólmundar, Ragnhildur, sem hafði verið vinnukona á heimili Þuríðar í Búlandsseli. Hún fylgdi börnunum þegar heimilið leystist upp vegna fráfalls föður þeirra og veikinda Þuríðar. Þar var einnig heimilisföst Elín Sigurðardóttir föðursystir Elínar og Sólmundar. Árið 1958 fluttu Rannveig og Sól- mundur með þrjú börn sín í Kópa- vog og byggðu sér hús að Birki- hvammi 10 þar sem þau bjuggu meðan bæði lifðu. Rannveig fór fljótt að vinna fyrir sér eins og eldri systkini hennar. Hún vann við hótelið á Kirkjubæjarklaustri á sumrin og var í vist í Reykjavík yfir veturinn ásamt því að hjálpa for- eldrum sínum við bústörfin á Keld- unúpi og síðar á Mosum. Eftir að hún flutti í Kópavoginn vann hún alltaf utan heimilis hin ýmsu störf sem til féllu, en mest þó við sauma, má þar nefna t.d. Gráfeld, Álafoss og L. H. Muller. Einnig var hún um tíma leiðbeinandi hjá Örva í Kópa- vogi og síðustu starfsárin var hún bréfberi hjá Íslandspósti. Útför Rannveigar verður gerð frá Digraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Jarðsett verð- ur í Gufuneskirkjugarði. hún sínar bernsku- og æskuminningar. Eiginmaður Rann- veigar var Sólmund- ur M. Einarsson, f. á Hruna í Hörgslands- hreppi 24. nóvember 1921, d. 22. ágúst 1994. Börn Rann- veigar og Sólmundar eru: 1) Þuríður Bára, f. á Mosum 4. júní 1945, maki Helgi Ingvarsson, f. 26. nóvember 1938, þau eiga sjö börn, þau eru: a) Ingvar, f. 3. febrúar 1965, b) Svava Björk, f. 14. júní 1966, c) Sól- mundur Örn, f. 15. apríl 1968, d) Hrafnhildur, f. 26. apríl 1970, e) Jó- hannes Helgi, f. 14. september 1971, f) Harpa Rannveig, f. 15. mars 1975 og g) Anna Hrund, f. 15. mars 1975. 2) Elín Anna, f. á Mos- um 5. apríl 1947, maki Geir Geirs- son, f. 4. júlí 1946, þau eiga þrjá syni, þeir eru: a) Guðjón, f. 18. júlí 1974, b) Kjartan Orri, f. 3. nóv- ember 1976 og c) Geir Herbert, f. 26. maí 1986. 3) Einar Sigurður, f. í Hveragerði 27. ágúst 1948, maki Svanhvít Kristín Einarsdóttir, f. 22. september 1954, þau eiga tvær dætur, þær eru: Hildigunnur Elva, f. 25. mars 1975 og Matthildur Ey- rún, f. 24. apríl 1985. Dóttir Einars og Þórdísar Sigurðardóttur, f. 28. desember 1951, er Rannveig, f. 15. nóvember 1967. 4) Jóna, f. á Breiðabólsstað 13. september 1955, maki Einar Baldvin Sveins- son, f. 29. október 1950. Þau eiga Margs er að minnast, elsku mamma, á þessum tímamótum þegar ég kveð þig og rifja upp líf okkar sam- an. Áranna í Hveragerði þegar ég, lít- il stelpa, var með ykkur pabba og Önnu, hann að smíða fallega skápa og borð sem hann spónlagði og mynstr- aði svo fallega, þú að sauma, og við í sameiningu að passa Önnu, sem var svo mikill óviti! Heimsóknir til frænd- fólks í Hveragerði, ferðir mínar í bak- aríið að kaupa fallegu glassúrterturn- ar, sem ekki voru skrifaðar á miðann sem réttur var afgreiðslustúlkunni. Móttökurnar þegar heim kom. Mamma alltaf glöð við börnin sín. Ný stígvél. Samt alltaf sól. Pabbi alltaf veikur og heimsóknir læknisins, sem mér stóð nokkur stuggur af. Síðar ferð til Reykjavíkur, þar sem tekin var mynd af okkur systrum saman í fallegu fötunum sem þú hafðir saum- að á okkur. Slaufur í hárinu. Svo fór ég með Nönnu í sveitina til afa. Mamma eftir í Hveragerði hjá pabba og Önnu og þar fæddist strákur. Svo voruð þið allt í einu komin í heimsókn á Mosum. Flutt að Breiðabólsstað. Önnur fjölskylda, en samt mín. Ég var hjá afa, ég átti hann, en þið komuð í heimsókn. Alltaf á sunnudögum á mótorhjólinu hans pabba. Strákurinn bróðir minn fyrir framan pabba, Anna á milli og mamma öftust og hélt í pabba. Heimsóknir á Breiðabólsstað þar sem voru margir krakkar og allt iðaði af lífi og leik. Aftur til afa sem kannski leiddist að hafa ekki stelpuna sína. Á Breiðabólsstað fæddist Jóna. Mamma mikið veik. Pabbi í brúar- smíði á Mýrdalssandi. Ég send 10 ára eftir lyfjum að Klaustri. Hjólaði hratt þá. Jóna falleg, broshýr, kringluleit, litla systir mín. Síðan unglingsárin í Kópavogi, vinna og skóli. Alltaf þegar komið var heim var kallað á mömmu, bara til að vita hvort hún væri heima. Tómt hús ef hún var ekki heima. Tók alltaf þátt í öllu sem við vorum að gera, hvatti okkur í námi, sá í gegnum fingur sér ef eitt- hvað fór úrskeiðis og saumaði flest sem okkur datt í hug að biðja um. Kenndi okkur að sauma á okkur sjálf- ar. Alltaf farið inn til mömmu og látið vita að værum komin heim eftir að hafa verið úti að skemmta sér. – Volg- ur ávaxtagrautur um miðja nótt. Mamma treysti krökkunum sínum. Sama með barnabörnin. Fylgdist allt- af með hverjum og einum. Fallega heimilið ykkar pabba í Birkihvammi. Hann alltaf að smíða eitthvað fallegt í rennibekknum sín- um og þú prýddir heimilið með svo fallegum og smekklegum hlutum. Garðurinn ykkar sem þið ræktuðuð svo vel. Samheldni stórfjölskyldunn- ar, bræður pabba, systkini mömmu, daglegur samgangur. Allir hjálpast að. Allir velkomnir hvort sem var í kaffisopa eða til lengri dvalar vegna vinnu eða skóla. Góðir nágrannar í Birkihvammi, Kjartan og fjölskylda, Villi og fjölskylda o.fl. – Umræður um pólitík, lést þá aldeilis heyra það þeg- ar þér þótti nóg um hrokann. Þar voru ekki allir vinir þínir. Barnabörnin áttu mikið í ömmu sinni. Hún talaði alltaf við þau hvert og eitt á þeirra eigin forsendum, lék við þau og hló svo innilega með þeim. Fylgdist af áhuga með því sem þau tóku sér fyrir hendur. Barnabörnin Sólmundur og Rannveig bjuggu á heimili afa síns og ömmu, hún á barnsaldri um nokkurra ára skeið, hann unglingur í skóla og vinnu. Samheldni systkina mömmu birtist m.a. vel í Mosafélaginu, en það er sameignarfélag fjölskyldunnar um viðhald og uppbyggingu íbúðarhúss foreldra þeirra á Mosum á Síðu, þar sem hver fjölskylda á einnar viku sumardvöl ár hvert. Þar voru foreldr- ar mínir virkir í viðhaldi meðan bæði lifðu og mamma meðan heilsan leyfði. Þar er nú sannkallaður sælureitur fjölskyldunnar. Þá hafa systkinin allt- af hist ásamt fjölskyldum sínum í apr- íl ár hvert sem næst afmælisdegi for- eldra sinna um miðjan apríl. Árið 1994 lést pabbi eftir erfið veik- indi og var fallegt að sjá hvað þú hjúkraðir honum vel. Eftir það fluttir þú í Furugrundina og minnið fór að gefa sig. Þú sem alltaf hafðir hræðst þennan sjúkdóm, alzheimer, sem hafði leikið ömmu þína, móður og þrjú systkin svo grátt. Í þeirra veik- indastríði sýnduð þið systkinin ykkar væntumþykju með reglulegum heim- sóknum. Dætrum þínum sagðir þú hvernig við skyldum bregðast við ef þú fengir sjúkdóminn. Þú fórst til Jóns Snædal öldrunarlæknis og tjáð- ir honum áhyggjur þínar. Við viljum þakka honum innilega hve vel hann reyndist móður okkar og okkur í veikindum hennar. Sömuleiðis öllu því góða fólki sem hugsaði um hana bæði þegar hún var í dagvistinni í Hlí- ðabæ, þar sem hún fékk mikla upp- örvun og styrk, og nú síðast í Roða- sölum 1, þar sem hún bjó síðustu 2 árin. Hjartans þakkir til Önnu og Jónu, sem svo vel og ástúðlega hafa hugsað um mömmu, og gert allt sem í mannlegu valdi stóð til að létta henni lífið. Kæru Halldór og Kristjana, þið hafið kvatt tvö systkini ykkar með mánaðar millibili, sem bæði höfðu horfið ykkur inn í heim alzheimer- sjúkdómsins. Innilegar þakkir til ykkar fyrir umhyggju og hlýju. Hjartans þakkir fyrir allt, mamma mín. Að endingu mamma, ég óska þess vil í alföður landinu nýja. Að verndi þig englar og vefji þig yl og veitist þér ástúð og hlýja. (S.F.T.) Þín Bára. Nú hnígur sól að sævar barmi sígur húm á þreytta jörð. Nú blikar dögg á blóma hvarmi, blundar þögul fuglahjörð. Í hljóðrar nætur ástar örmum, allir fá hvíld frá dagsins hörmum. (Axel Guðmundsson) Þakka þér fyrir allt elsku mamma. Anna. Það eru margar minningar sem vakna á þessum tímamótum. Ekki síst minnisstæð eru árin í Birki- hvammi, þar sem við amma og afi vorum nágrannar fyrstu árin mín. Eftir því sem ég hugsa meira um það er vart hægt að hugsa sér betra um- hverfi fyrir lítinn dreng að eyða fyrstu árum ævi sinnar í. Það var gaman að geta rölt á náttfötunum ein- um og í stígvélum milli húsa til að heimsækja ömmu og afa, tína með þeim rifsber og rabbarbara í garðin- um, gróðursetja kartöflur og græn- meti að vori og taka þátt í uppsker- unni að hausti. Bæði amma og afi voru með græna fingur og var alltaf mikið af blómum og fallegum trjám þar sem þau komu nálægt. Það eru margar minningarnar þar sem við systkinin og frændsystkini lékum okkur í garðinum og fengum að hjálpa til við garðvinnuna. Þó svo við fjölskyldan værum flutt hinum megin við Kópavogshálsinn, átti ég á ung- lingsárunum fjölmargar ógleyman- legar stundir heima hjá ömmu þar sem við ræddum um daginn og veg- inn, meðal annars á milli þess sem ég dundaði mér í skúrnum hjá afa. Amma og afi voru með eindæmum handlagin, amma saumaði og afi smíðaði. Eftir þau liggja mörg falleg listaverk. Samveran með ömmu minni og afa er órjúfanlegur og ómet- anlegur hluti af uppvaxtarárum mín- um sem mun fylgja mér alla ævi. Elsku amma. Þú hefur alltaf verið stórkostleg og stóðst þig eins og í hetja í viðureign við erfiðan sjúkdóm síðustu árin. Þú hefur veitt mér, systkinum mínum, foreldrum og öðr- um mikla gleði með nærveru þinni og hlýju og fyrir það er ég mjög þakk- látur. Ég er viss um að þú ert núna á góðum stað, þaðan sem þú fylgist með afkomendum þínum og öðrum ástvinum af áhuga og ástúð eins og þú hefur alltaf gert. Ástarkveðja. Stefán Freyr Einarsson. Með nokkrum orðum langar mig að minnast ömmu minnar Rannveig- ar Jónsdóttur eða ömmu Ranný eins og við bræðurnir kölluðum hana. Hún amma bjó í Birkihvamminum þegar við uxum úr grasi og reglulega vorum við þar í heimsókn, var það alltaf jafn minnisstætt. Það var alltaf nóg að gera í Birkihvammi, oft vorum við að smíða með afa í skúrnum, grófum eft- ir möðkum fyrir veiðina í grænmet- isgarðinum og lékum með frænd- systkinunum sem bjuggu í næsta húsi. Bæði afi og amma voru afskap- lega handlagin og eigum við bræð- urnir nokkrar gersemar sem þau hafa gert. Afi smíðaði og lakkaði í skúrnum með tækjum sem hann hafði sjálfur búið til, eins og borð- söginni sem einu sinni var þvottavél og amma saumaði allt sem mann langaði í og voru mokkajakkarnir sér- staklega eftirsóttir frá hElsku amma, nú ertu loksins komin til afa og það gleður mitt hjarta. Alltaf þegar ég hugsa til ykkar, þá hugsa ég um tím- ana í Birkihvamminum, þar var alltaf gaman að koma í heimsókn, það var alltaf tekið hlýlega á móti manni og alltaf var kexboxið fullt, en á yngri ár- um mælist oft kærleikur í kexi og hjá ykkur var alltaf nóg til af því. Ég man tímann þegar ég var svo reiður við foreldra mína fyrir að flytja úr Búr- felli í bæinn að ég vildi fá að búa hjá ykkur alveg, en það breyttist nú fljótt eftir að ég áttaði mig á því hvað það var oft fiskur í matinn hjá ykkur. Mér þótti það alltaf leiðinlegt að þú og afi höfðuð ekki lengri tíma saman á gull- árunum, en hann var alveg einstakur smiður og vandvirkari mann er erfitt að finna. Það sama átti við um þig og á ég enn bæði mokka- og leðurjakkann sem þú saumaðir fyrir afa og þá mun ég ætíð varðveita. Megi guð geyma ykkur og ég er viss um að afi er búinn að rækta rós- irnar fyrir heimkomu þína til hans og það mun eflaust verða sjóbirtingur í matinn. Takk fyrir allar dásamlegu minn- ingarnar, ykkar Kjartan. enni. Ég man oft eftir mér sitjandi við eldhúsborðið hjá ömmu borðandi táfýluost eða bestu spælegg í heimi og ræðandi við hana um daginn, veg- inn og pólitíkina. Því miður var ömmu ekki hlíft við minnisveikinni sem hef- ur hrjáð svo mörg systkina hennar og tók hún sjúkdómnum með mikilli ró og var búin að undirbúa sig og sína eins og hægt var. Þótt að amma hafi ekki verið há í loftinu var hún stór persónuleiki og mikil gersemi. Elsku amma, ég veit að það er tek- ið vel á móti þér hinum megin. Ég er innilega þakklátur fyrir allar góðu stundirnar sem ég fékk að eiga með þér, megi minning þín lifa með af- komendunum um ókomna tíð. Guðjón Geirsson. Rannveig Kristjana Jónsdóttir Eftir strembna tíma síðastliðin ár þar sem brosað var í gegnum tárin mæta þér nú ný ljós, nýtt ferðalag með fríðu föruneyti ástvina þinna. Vaki Guðs englar yfir þér, elsku amma mín, og takk fyrir allt. Þinn Geir Herbert (Hebbi). HINSTA KVEÐJAhægri hönd í öllu sem laut að bók- haldi og fjárreiðum. Á Ósi naut hann þess að sinna æðarvarpi og viðhaldi á húsum og girðingum. Hann var glaður og reifur og við rifjuðum upp gamlar minningar, þegar við hitt- umst, en fyrir nokkrum árum fór að bera á því að skammtímaminnið brygðist honum. Hann greindist með Alzheimersjúkdóm, sem gekk svo hratt fram, að á skömmum tíma missti hann allt samband við um- hverfi sitt. Hann var hins vegar býsna hress að sjá að öðru leyti. Andlát hans kom því nokkuð á óvart, en var blessun eins og komið var, þar sem þessi hressi og skapmikli maður var orðinn skugginn af sjálf- um sér. Hann lifir í minningu okkar, sem þekktum hann og unnum hon- um. Mér var hann alla tíð kær og eft- irminnilegur þessi elsti mágur minn. Blessuð sé minning hans. Sigrúnu systur minni, börnum þeirra og öðr- um ástvinum sendum við Álfhildur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Bárður G. Halldórsson. Genginn er til hinstu hvílu Hring- ur Hjörleifsson. Árið 1971 flutti til Grundarfjarðar Hringur Hjörleifsson með fjölskyldu sína frá Flateyri. Þessi happasæli skipstjóri hafði tekið að sér að stýra Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar. Ís- lenskur sjávarútvegur hafði verið í nokkurri lægð og stjórnvöld höfðu sofið á verðinum, síldin var horfin fyrir allmörgum árum og fátt sem komið gat í staðinn fyrir hana. Sjáv- arþorpin bjuggu við árstímabundið atvinnuleysi og miklir erfiðleikar voru hjá útvegsfyrirtækjum. En fram undan voru bjartir tímar. Skut- togaraöldin var að byrja. Guðmund- ur Runólfsson var með skuttogara í smíðum og það þurfti öflugan ein- stakling til að efla svo landvinnsluna að byggðarlagið væri fært um að nýta sér þau nýju bjargráð. Þar var Hringur Hjörleifsson réttur maður á réttum stað. Kraftur þessa karls, byggingargleði og bjartsýni gerðu það að verkum að til varð öflug fisk- vinnsla og frábær tækifæri. Grund- arfjörður varð mikilvæg verstöð sem varð tilbúin að takast á við nýja tíma. Saman gengu þeir Hringur og Guðmundur Runólfsson í farar- broddi fyrir einhverri mestu bylt- ingu sem í Grundarfirði hefur nokk- urn tíma orðið frá því að fyrsti mótorbáturinn kom 1906. Þeir kumpánar voru oft sáttir en ekki alltaf. Saman með öðrum öflugum einstaklingum eins og Sigurjóni Halldórssyni, Hjálmari Gunnarssyni og Soffaníasi Cecilssyni og fleirum byggðu þeir þróað samfélag þar sem í fyrirrúmi var skynsamleg nýting sjávarafla og stöðug atvinna. Engum vafa er undirorpið að Grundarfjörð- ur stendur í þakkarskuld við Hring Hjörleifsson og mun nafn hans og verk vera varðveitt meðal þeirra áhrifamanna sem mestan heiður eiga skilið. Mér er ljúft að minnast Hrings, ekki aðeins fyrir þátt hans í öllu þessu, heldur ekki síður sem fjöl- skylduvinar. Faðir minn var verk- stjóri í Hraðfrystihúsinu allan þann tíma sem Hringur stýrði því. Milli þeirra ríkti einlæg vinátta og gagn- kvæm virðing meðan báðir lifðu. Margar stundir sat Hringur á heim- ili foreldra minna og var þá oft gam- an. Karlinn var ræðinn og skemmti- legur, fróður og forvitinn. Oftast held ég að þeir félagar hafi rætt um vinnuna og framtíðaráformin. En það vék þó alltaf ef einhverjir aðrir gestir mættu. Þá spurði Hringur mann spjörunum úr og þótti sumt fróðlegt og annað spaugilegt. Hlátur var því oft mikill í þeim samræðum. Svo kom það auðvitað fyrir að ágreiningur reis. Þá varð hann fljótt tilbúinn í þras. Og gott þras mega menn ekki láta fram hjá sér fara, en svo var það búið og engin dæmi veit ég um að þessi karl hafi nokkurn tíma verið í fýlu eftir góðar snerrur. Við leiðarlok kveð ég góðan vin og traustan og þakka sérstaklega fyrir þá hlýju sem hann ávallt sýndi for- eldrum mínum. Ég bið góðan Guð að vaka yfir ástvinum sem kveðja kær- an vin og blessa minninguna um góð- an dreng. Ingi Hans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.