Morgunblaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is ALPHA DOG kl. 8 - 10:30 B.i. 16 NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5:45 LEYFÐ VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ APOCALYPTO kl. 10:30 B.i. 16 LITTLE CHILDREN kl. 8 B.i. 14 / KEFLAVÍK PERFUME kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára BLOOD DIAMOND kl. 10 B.i. 16 ára VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ FORELDRAR kl. 6 - 8 LEYFÐ / AKUREYRIPERFUME kl. 6 - 9 - 10:30 B.i. 12 ára DREAMGIRLS kl. 6 - 9 LEYFÐ BLOOD DIAMOND kl. 6 - 9 B.i. 16 ára FORELDRAR kl. 8 LEYFÐ BABEL kl. 6 - 9 B.i. 16 ára STRANGER THAN FICTION kl. 5:50 B.i. 16 ára ÓSKARSTILNEFNINGAR2 eeee Þ.T. KVIKMYNDIR.IS FORELDRAR KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON eeee H.J. MBL. eeee LIB - TOPP5.IS eeee FRÉTTABLAÐIÐ eeee V.J.V. TOPP5.IS eeee B.S. FRÉTTABLAÐIÐ GOLDEN GLOBE TILNEFNING BESTI LEIKARI : WILL FERRELL eeee B.B.A. PANAMA.IS eeee RÁS 2 BYGGÐ Á METSÖLUSKÁLDSÖGU PATRICK SUSKIND SJÁIÐ EINA MERKUSTU MYND ÁRSINS EN MYNDIN HEFUR SLEGIÐ Í GEGN Í EVRÓPU ATH! BÓKIN HEFUR VERIÐ ENDURÚTGEFIN Í TENGSLUM VIÐ FRUMSÝNINGU MYNDARINNAR HVERSU LANGT ERTU TILBÚINN AÐ GANGA TIL AÐ HYLJA GLÆP FYRSTA KVIKMYND BYGGÐ Á RAUNVERULEGU SAKAMÁLI SEM ER FRUMSÝND ÁÐUR EN MÁLIÐ HEFUR VERIÐ TEKIÐ FYRIR Í DÓMSSAL vinnupalla, þegar unn- ið er lengi í mikilli hæð. x x x Í öðru lagi: Er það tildæmis um for- sjárhyggju að setja reglur um að nota skuli vinnupalla eða -lyftur þegar unnið er í mikilli hæð? Til hvers eru reglur um aðbúnað og öryggi á vinnustöðum? Kannski til að koma í veg fyrir að fólk deyi eða slasi sig? Eru starfsmenn Vinnueft- irlitsins, sem hafa það verkefni að taka út aðstæður og ör- yggisbúnað eftir t.d. banaslysin sorglegu, sem orðið hafa við Kára- hnjúka, útsendarar forsjárhyggj- unnar? x x x Í þriðja lagi eru reglur um aðbún-að, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum hluti EES-samnings- ins og fyrir vikið munu reglur ESB um stiga verða íslenzk lög, þótt Ís- land sé ekki í ESB! Formaður Við- skiptaráðs virðist hafa verið svolítið seinheppinn með sniðugu söguna sína. Og hefði kannski átt að skoða málið aðeins betur. Erlendur Hjalta-son, formaður Viðskiptaráðs Íslands, sagði í ræðu sinni á Viðskiptaþingi í fyrra- dag: „Sem dæmi um forsjárhyggju sem við- gengst í Evrópusam- bandinu má nefna að það hefur nú bannað notkun stiga í fyr- irtækjum. Húsverðir þurfa því t.d. að reisa vinnupalla þegar þeir skipta um ljósaperur, en mega ekki nota stiga.“ x x x Sjálfsagt hefur Er-lendi fundizt þetta voða sniðug saga. Víkverja finnst hins vegar að hafa mætti þrennt í huga. Í fyrsta lagi er fer Erlendur rangt með. Í reglum ESB um aðbúnað, holl- ustuhætti og öryggi á vinnustöðum er vissulega kveðið á um að ekki eigi að nota stiga við ákveðnar kringumstæður, til dæmis þegar unnið er í mikilli hæð í langan tíma. Þar er jafnframt skýrt tekið fram að það sé í góðu lagi að nota stiga ef verkið taki stuttan tíma og áhættan sé almennt lítil. Stigar eru m.ö.o. ekki bannaðir, en kveðið á um að nota beri öruggari búnað, svo sem                     víkverji skrifar | vikverji@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. dagbók Orð dagsins: Sjá, Drottinn mun út fara frá bústað sínum, mun ofan stíga og ganga eftir hæðum jarð- arinnar. (Mík. 1, 3.) Í dag er föstudagur 9. febrúar, 40. dagur ársins 2007 velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Á leið í skólann á Kársnesi Í Kópavogi hafa komið fram skipu- lagshugmyndir sem gera ráð fyrir mjög aukinni byggð vestast á Kárs- nesi. Ljóst er að aukinni byggð fylgir aukin umferð en nú þegar er erfitt fyrir börn að komast í skólann. Af því tilefni langar mig að segja hér sögu. Í gær gengum við dóttur mín um 8 leytið í Kársnesskóla við Skólagerði. Á leiðinni förum við yfir Borgarholts- braut á gangbraut, sem er ágætlega merkt með hraðahindrun. Þar sem við staðnæmumst á gangstéttinni koma bílar æðandi að úr 3 áttum, upp Suðurbraut til að beygja inn á Borg- arholtsbraut og úr báðum áttum eftir brautinni. Fyrsti bílinn, sem er að beygja inn á, stoppar og allir á eftir honum. Þá lítum við feðginin í hina áttina þar sem kemur í um 100 m fjarlægð jeppi á ca. 50 km. hraða á blöðrudekkjum og hristist upp og niður eins og tryllt tröll. „Við skulum bíða eftir þessum“ segi ég. Hann heldur áfram. Loks verður hann var við að eitthvað er að og byrjar að hemla. ABS bremsurnar vinna á fullu. Við sjáum nefið á bílstjóranum nema við framrúðuna og bíllinn hall- ast ískyggilega fram. Loks þegar hann er kyrr göngum við yfir og er þá dágóð röð af bílum stopp allt í kring. „Fannst þér þetta ekki gaman Gunna“ spyr ég telpuna mína, sem er í 2. bekk. „Nei, mér fannst þetta ekki gaman“, segir hún. Í dag vildi hún ekki ganga í skól- ann heldur heimtaði að fara á bíl, hver sem ástæðan er. Við íbúarnir viljum gjarnan að börnin okkar hreyfi sig og gangi í skólann. Það er samt erfitt. Á þessari gangbraut var ekið á son okkar og það er greinilegt að það er ílla til fundið að hafa gang- braut við gatnamót en gangstígurinn kemur í beinu framhaldi. Hitt er svo annað að tillitsleysi bílstjóra sem eru á ferð milli tveggja grunnskóla á þeim tíma sem börn eru á leið í skól- ann er ótrúlegt. Margir bílstjóranna eru nýbúnir að keyra eigin börn í skólann en eru síðan blindir á önnur börn, sem ekki mæta á bílum í skól- ann. Fyrir Kópavog er það umhugs- unarefni hvort að fleiri bílar eigi er- indi um þessar götur á Kársnesi. Árni Davíðsson Örorka af illri nauðsyn Það þykir flestum mjög slæmt að þurfa að vera öryrki. Flestir reyna að halda út við að vinna eins lengi og fært er. Eins og öryrki sagði við mig, ég reyndi og gafst upp vegna kvala. Þá tók við erfitt rannsóknarferli án nokkurra sjáanlegra meinsemda. Enn reyndi viðkomandi að vinna, fór í sjúkraþjálfun en ekkert dugði til. Loks fór hann á örorku en það var mikið nálarauga að komast í gegnum. Tekjur snarlækkuðu og komst hann í fjárhagsörðuleika vegna þess. Varð m.a. að selja íbúð sína. Svo hraktist hann um í mörg ár áður en félagslegt húsnæðisúrræði fékkst. Þessi öryrki er dapur í dag. Getur varla dregið fram lífið á þessum aumu bótum sem hann fær. Hann hefur gengið lækna á milli til þess að reyna að fá bót meina sinna. En læknavísindin hafa ekkert getað hjálpað honum nema með einhverjum lyfjum sem eru bara til að deyfa mesta sársaukann. Þessi öryrki er að vonum ákaflega dapur með þessi forlög sín. Það er gjarnan mikið rætt núna um fjölgun öryrkja og ég var bæði hneyksluð og reið er ég las grein Lýðs Árnasonasonar læknis, 3. febr- úar. Þar sem hann segir að hver sem er getur komið til læknis og sagst vera óvinnufær. En það er nú einu sinni réttur fólks. Hann segir líka í grein sinni að helsta vandamálið í þessu ferli sé lítill batavilji fólks. Kannski er vandinn fremur sá að sumir læknar vilji ekki viðurkenna að fólk sé veikt ef það ekki sést á röng- ten-myndum og öðrum rannsóknum. Þeir ættu samt að vita, þetta há- menntaða fólk, að líkamlegir kvillar geta verið afleiðingar af andlegum veikindum. Jafnvel veit ég dæmi þess um manneskju sem varð fyrir miklu áfalli í æsku og lenti í þrautagöngu rannsókna að þegar hún fékk loksins rétta meðhöndlun, var meinið það, að barnið hafði lokað djúpt inni í sál- arfylgsnum, það sem var því ofviða í æsku. Sigrún Einarsdóttir Óréttlát skrif Vegna skrifa VM í velvakanda á laugardag þann 3. febrúar er ég mjög ósáttur með þessa framkomu! Af hverju má ekki birta myndir af kyn- ferðisglæpamönnum en ekki hæsta- réttadómurum þessa lands! Kynfer- ðiglæpamenn ættu frekar að skammast sín en ekki hæsta- réttadómarar og það ætti að þyngja dóma kynferðisglæpamanna en ekki milda þá eins og hæstaréttadómarar vilja gera! Einn ósáttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.