Morgunblaðið - 14.04.2007, Page 18
18 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALA OMX á Íslandi
hækkaði um 0,9% í gær og fór í
7.739 stig. Metið frá því á fimmtu-
dag þegar vísitalan fór í 7.669 stig
var því strax slegið.
Gengi bréfa Mosaic Fashions
hækkaði um 2,5%, gengi bréfa
Landsbankans um 1,8% og gengi
bréfa Kaupþings um 1,6%. Gengi
bréfa Marels lækkaði mest eða um
1,2% og þá lækkaði gengi bréfa FL
Group um 1%.
Krónan styrktist um 0,54% í gær
og kostar evran nú 88,55 krónur,
pundið 129,8 krónur og dalurinn
65,5 krónur.
OMXI15-vísitalan
komin yfir 7.700 stig
● NÝIR hlutir í Exista
að nafnverði um 522
milljónir hafa verið
skráðir á aðallista
kauphallar OMX á Ís-
landi. Þá var tilkynnt
um viðskipti með
hluti í Exista vegna
kaupa félagsins á hlutum í finnska
fjármálarisanum Sampo. Sam-
kvæmt þeim samningi hefur félagið
Glenalla Propertis Ltd. eignast
5,09% hlut í Exista en það er á veg-
um auðkýfingsins Roberts Tchengu-
iz, sem nýverið tók sæti í stjórn Ex-
ista. Félagið er skráð á Bresku
jómfrúareyjunum. Það er sagt í
meirihlutaeigu Investec Trust á Gu-
ernsey, fyrir hönd Tchenguiz Family
Trust og er Robert Tchenguiz einn af
rétthöfum sjóðsins. Markaðsvirði
hlutar Tchenguiz og félaga í Exista er
um 14 milljarðar króna.
Tchenguiz kominn
með rúm 5% í Exista
● SAMKVÆMT mælingum Rann-
sóknaseturs verslunarinnar jókst
velta í dagvöruverslun um 17,2% í
marsmánuði, miðað við sama mán-
uð í fyrra á breytilegu verðlagi. Á
föstu verðlagi nam hækkunin 13,2%
en Rannsóknasetrið bendir á að
lækkun virðisaukaskatts hinn 1.
mars setji strik í útreikning fasts
verðlags. Að teknu tilliti til áhrifa
lækkunar virðisaukaskatts hafi
aukningin í mars numið 10,9% á
föstu verðlagi. Ástæða fyrir aukning-
unni er einmitt rakin til lækkun virð-
isaukaskattsins og afnáms vöru-
gjalda. Einna mest jókst sala á
fötum og skóm, eða allt að 35%.
Sala áfengis jókst um 12,3%.
Veltan í dagvörunni
jókst um 17% í mars
● ÞÝSKI bjórframleiðandinn Heine-
ken er í frétt Børsen í gær orðaður
við kaup á danska starfsbróður sín-
um, Royal Unibrew, sem FL Group á
nærri fjórðungshlut í. Orðrómurinn
kemur í kjölfar samkomulags um að
Royal Unibrew taki að sér bruggun í
Danmörku fyrir Heineken, en frá
árinu 2003 hefur Unibrew haft um-
boð fyrir Heineken í Danmörku án
þess að hafa bruggað þar fyrir þýsku
keppinautana. Með samningnum við
Heineken hyggjast stjórnendur Uni-
brew skapa sér sterkari stöðu í sam-
keppninni við Carlsberg-verksmiðj-
urnar. Orðrómurinn um mögulegan
samruna Heineken og Unibrew hafði
strax jákvæð áhrif á hlutabréf þess
síðarnefnda í dönsku kauphöllinni í
gær, sem hækkuðu um 4%. Kaup í
Unibrew eru hins vegar háð takmörk-
unum á atkvæðisrétti, sem FL Group
hefur gagnrýnt. Enginn má hafa
meira en 10% atkvæðisrétt.
Heineken orðað við
kaup á Royal Unibrew
ÚRVALSVÍSITALA OMX á Ís-
landi hefur skilað 20,3% nafn-
ávöxtun frá áramótum og ber höf-
uð og herðar yfir aðra innlenda
fjárfestingakosti, segir í Morg-
unkorni Glitnis. Til samanburðar
hefur peningamarkaður skilað
3,8% nafnávöxtun á sama tíma en
skuldabréf hafa skilað lægri ávöxt-
un. Tekið er fram að það sem af er
ári hefur verðbólga verið um 0,4%.
„Gengi krónunnar hefur styrkst
um 6% á sama tíma og helstu er-
lendu hlutabréfavísitölur hafa
hækkað mun minna en innlend
hlutabréf. Fjárfesting í erlendum
hluta- og skuldabréfum hefur því
skilað lágri ávöxtun mælt í ISK og
í raun neikvæðri ávöxtun í mörg-
um tilvikum,“ segir í Morg-
unkorni.
Hlutabréf
gáfu mest
Kaupþing þarf að sanna
sig til að fá Storebrand
FRÉTTASKÝRING
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
SUMIR norskir sérfræðingar
telja að norska fjármálaeftirlitið
(FME) hafi í reynd dæmt Kaup-
þinga banka útlægan geran eða því
sem næst úr Storebrand með bréf-
inu eða kannski frekar skýrslunni til
norska fjármálaráðherrans sem rat-
að hefur á síður fjölmiðla; ósk Kaup-
þings um að fá að fara með 25% hlut
hafi verið hafnað og viðhorfin gagn-
vart íslenska bankanum verið ákaf-
lega gagnrýnin sem þýði í reynd að
Kaupþingi verði aldrei leyft að kom-
ast í mjög sterka eða ráðandi stöðu í
norska tryggingafélaginu.
Blásið upp
Þessar raddir taka fulldjúpt í ár-
inni enda útlokar norska FME ekki
að það geti hugsanlega seinna veitt
Kaupþingi heimild til að fara með
fjórðungshlut í Storebrand. Líklega
væri nær að tala um að Kaupþing sé
á einhvers konar reynslulausn, svo
haldið sé í kannski óviðeigandi refsi-
líkingarnar. Því skal einnig haldið til
haga að norskir fjölmiðlar hafa blás-
ið hressilega upp allt hið neikvæða
um Kaupþing og íslenskt efnahags-
og viðskiptalíf sem finna mátti í
skýrslunni.
En norska fjármálaeftirlitið hefur
með skýrslunni og með því að leyfa
Kaupþingi að fara með 20% en ekki
25% hlutfjár tvímælalaust ekki gert
bankanum auðvelt fyrir að ná settu
marki. Vandamálið er hins vegar að
það er ekki nákvæmlega ljóst hvert
þetta setta markmið Kaupþings er
og kann það hugsanlega að hafa haft
einhver áhrif á ákvörðun norska
fjármálaeftirlitsins.
Norskur fjármálasérfræðingur
sem Morgunblaðið ræddi við taldi að
Kaupþing hefði stigið feilspor með
því að greina ekki á opinskárri hátt
frá því að hverju bankinn stefndi í
sambandi við Storebrand og hvað
hann hygðist fyrir ef hann kæmist
þar í sterka eða ráðandi stöðu.
Óljós markmið?
Í skýrslunni kemur fram af hálfu
Kaupþings að bankinn myndi líta á
fjórðungseignarhlut sem fjárfest-
ingu en að slík staða í Storebrand
gæti þó einnig styrkt Kaupþing í
Noregi. Þá kemur fram að Kaupþing
vilji með „umtalsverðum en ekki ráð-
andi hlut“ taka þátt í að þróa starf-
semi Storebrand á sviði líftrygginga
og sjóðsstýringar. Þá segir einnig að
Kaupþingi útiloki ekki að fara fram á
að fá menn í stjórn Storebrand ef svo
færi að hægt væri að líta á Store-
brand sem félag „tengt“ Kaupþingi.
Er nema von að sumir telji að Kaup-
þing hefði átt að tala skýrar?
En hvað um það. Það segir sjálft
að 25% hlutur í félagi með mjög
dreifða eignaraðild og þar sem mætt
hefur verið fyrir 26–36% hlutfjár á
síðustu þremur aðalfundum er ansi
stór ef ekki hreinlega ráðandi hlutur.
Og í krafti slíks hlutar mætti taka
grundvallarákvarðanir varðandi
uppbyggingu og stefnu Storebrand
(eins og hugsanlega að selja trygg-
ingastarfsemina t.d. Sampo og halda
eftir bankastarfseminni).
Ítrekað skal að norska FME úti-
lokar ekki að síðar gæti komið til
þess að það veiti Kaupþingi heimild
til að fara með 25% hlutfjár í Store-
brand þótt heimildin hafi ekki verið
veitt nú, m.a. vegna, að mati norska
FME, takmarkaðrar reynslu Kaup-
þings banka af tryggingastarfsemi.
„Mat á því,“ segir í niðurstöðum
skýrslunnar, „gæti m.a. byggst á
reynslunni af Kaupþingi sem stórum
hluthafa [í Storebrand].“
Var ekki einhver að tala um
reynslulausn?
Í HNOTSKURN
»Eignaraðild að Store-brand er ákaflega dreifð
og fyrir utan Kaupþing á
enginn meira en 10%.
» Vegna dreifðrar eign-araðildar og vegna þess
hve mætt er fyrir lítinn hluta
hlutafjár á aðalfundi Store-
brand þýddi 25% hlutur afar
sterka ef ekki ráðandi stöðu
í félaginu.
$ $ #
%&'( )&&*
&
$/
"$34 4
/3$5$
4$
/4$!
6
789 &
:;<3 7,
,$=
73>
,?5%6@A,,7
:;<3 7,
>$&&;+&&
+
*
)
'
B
+
.
.
75
) * + ,
+
!
$ #
),-.
/,-0/,-/
0&-,
,)-&,1-%
bes er markaðsvirði Kaupþings
sagt tæplega 10 milljarðar dollara,
eða nærri 600 milljarðar króna.
Sex norrænir bankar eru fyrir of-
an Kaupþing á listanum; Nordea
Bank, Danske Bank, DnB Nor, SEB
Enskilda Bank, Swedbank og
Svenska Handelsbanken. Af öðrum
fyrirtækjum sem tengjast Íslandi
þá er Alcoa í 211. sæti, Alcan í 286.
sæti, hinn finnski Sampo í 412. sæti
og Storebrand í 1.125. sæti.
AMR Corporation, sem FL Group
á vænan hlut í, er í 720. sæti og
samkvæmt Forbes sjötta stærsta
flugfélag heims.
FJÖGUR íslensk fyrirtæki eru á ný-
legum lista Forbes-tímaritsins yfir
2.000 stærstu fyrirtæki heims, sem
skráð eru á markaði. Kaupþing fer
í fyrsta sinn á lista 1.000 efstu og
lendir í 795. sæti. Landsbankinn er í
1.151. sæti, Glitnir númer 1.170 og
Exista í 1.532. sæti.
Forbes tekur í sinni mælingu til-
lit til fjögurra þátta; veltu, afkomu,
eigna og markaðsvirði fyrirtækj-
anna. Citigroup er samkvæmt þess-
um mælikvörðum stærsta fyrirtæki
heims. Markaðsvirði bankans er
247 milljarðar dollara, eða 16 þús-
und milljarðar króna. Á lista For-
Fjórir á topp-2.000
lista hjá Forbes
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Stærstir Kaupþing banki fer í fyrsta sinn í hóp 1.000 stærstu fyrirtækja
heims á lista Forbes og hafnar í 795. sæti. Storebrand er í 1.125. sæti.
- . /# # #. &
012'
$)
2"3 3 *B'75
&
75
&575
&
;
;84
&
75
,#
75
4C
75
>75
.5 D
523E$
F3>75
C$>E$75
<75
<4775
!,G4"G5 > 75
H75
4
#"!
DI
75
43
75
9$
.$375
9$
75
%J7"75
?<K&,
=/ 75
=/333
#75
#75
5#
G
523$5
2 6 !7
.,$75
.
"75
8
( ,
,
,
,,
,
,
,
!
"
#!
$
%
#
#!
"!$
#&
#%
!#
$#
#!
%
%%
"#
&&
!"
.$
$3 =>$3L
) +)
+ ) *
) **) )
!
* *
+ B) +
* * *' '''
) * ') )*
*** ')+ )'
* ' * '
' * ) )+
+' ') B
* )' )
+ ''* ) *B
' + +
B ')
!
*+ *
!
!
+' ++ *B
!
!
!
!
*A'*
A
)AB
BA
BA'
B AB
A
BA
*)A+
+B'A
**A)
AB
+BA'
A
+ 'A'
AB
A*B
BA
BA
+BA
)A
*A
'A'
+A
*A''
A'
)A +
A
BA
BA
A
A
*)A*
+BA
**A
*A'
+BA
+A
+ A
A
A*
A
BA '
+BA
)A B
* A)
+ A
A'
M
&=. N&
73
4"#$
+
')
*
!
+
*
'
'
+
B
B
+
++
B
'
!
+
!
!
+
!
!
!
!
-3
+* )
+* )
+* )
+ )
+* )
+* )
+* )
+* )
+* )
+* )
+* )
+* )
+* )
+* )
+* )
+* )
++ )
+* )
++ )
*
+ )
+* )
* )
+ )
*
*
*
?<K:
?<K$
# - -
?<K
;,K
# . -
-6:
%$ # # - -
4=D
-&K
# # - -
?<K<+'
?<K6)
# # - -
ÚTISTANDANDI íbúðalán banka
og sparisjóða á Íslandi námu tæp-
lega 411 milljörðum króna í lok
mars. Þetta kemur fram í Vegvísi
Landsbankans en þar er bent á að á
fyrstu mánuðum ársins hafi bankar
og sparisjóðir veitt tæplega 1.200
ný útlán fyrir samtals 10,7 millj-
arða. Það séu 65% minni útlán en á
sama tíma í fyrra, en þá voru veitt
tæplega 3.300 lán fyrir samtals 30,2
milljarða. „Eins og fram kom í Veg-
vísi í gær er þróunin töluvert önnur
í útlánum Íbúðalánasjóðs. Fyrstu
þrjá mánuði ársins veitti sjóðurinn
lán fyrir samtals 13,6 ma.kr. Um er
að ræða 35% aukningu nýrra lána á
milli ára. Af framansögðu er ljóst
að ríkið stendur sig vel í útlána-
samkeppninni við banka og spari-
sjóði,“ segir í Vegvísi.
Bankarnir
lána minna