Morgunblaðið - 14.04.2007, Side 30
|laugardagur|14. 4. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Það er fátt skemmtilegra á vot-
viðrisdögum en að hoppa í poll-
um – jafnvel þó að maður sé
komin af barnsaldri. »32
tíska
Við Grundarhvarf býr fjögurra
manna fjölskylda sem hefur
komið sér vel fyrir í einlyftu,
múrsteinshlöðnu húsi. »34
innlit
Arkitektinn Örn Guðmundsson
flýgur hátt í háborg tísku og
hönnunar en er stoltur af upp-
runa sínum norðar í álfunni. »36
hönnun
Eftir Guðbjörgu R. Guðmundsdóttur
gudbjorg@mbl.is
Basil er vinsælasta krydd-jurtin okkar en hún er líkavandmeðfarin og alls ekkiauðvelt að halda lífi í henni
utandyra, hér á landi,“ segir Guð-
björg Kristjándóttir eða Gugga eins
og viðskiptavinir Garðheima virð-
astkalla hana þegar ég heimsæki
hana einn rigningardaginn í vikunni.
Hún segist benda fólki á að best sé
að vera með basil í eldhúsglugg-
anum.
„Reyndar finnst mér það eiga við
um allar kryddjurtirnar. Þá eru jurt-
irnar nálægt þeim sem er að elda og
maður notar fyrir bragðið miklu
meira af þeim ef þær eru í seiling-
arfjarlægð. Þeir sem hafa notað
kryddjurtir vita að það jafnast fátt á
við það að vera með ferskt krydd í
matnum.“
Sáðmold, birta og vatn
Þessa dagana er upplagt að sá fyr-
ir kryddjurtum en þeir sem eru með
skika til útiræktunar ættu líka að sá
fræjum fyrir spergilkál, blómkál og
annað kál.
Guðbjörg segir að helstu mistökin
sem fólk geri þegar það sáir fræjum
sé að vökva ekki nóg.
„Það eru nokkur atriði sem fólk
þarf að hafa á hreinu þegar ráðast á í
ræktun kryddjurta eða káls.“
Sáðmold Í fyrsta lagi þarf að nota
sáðmold því hún er sérstaklega
samsett fyrir fræin, mátulega
sterk og næringarrík.
Birta Í öðru lagi þarf fólk að hafa
frekar kalt en bjart svona í upp-
hafi eða þangað til fræin fara að
spíra almennilega
Vatn Í þriðja lagi þarf að vökva
vel. Fái fræin ekki næga vætu í
upphafi, þorna þau upp.
Sáðkubbar vinsælir
„Margir eru farnir að auðvelda sér
þessa vinnu og nota sáðkubba svo-
kallaða. Kubbarnir eru settir í
bakka, vatn í botn hans og þá draga
kubbarnir í sig vatnið. Nokkrum
fræjum er stráð í hvern kubb. Ef
fræin eru mjög smágerð má ekki
hylja þau með mold en annars er ráð
að hylja fræin með smá mold.“
Þegar fólk er búið að sá fræjum,
hvort sem er beint í bakka eða í
kubba þá er plastpoki eða plastlok
sett yfir. Það borgar sig ekki að hafa
dagblöð yfir því þá fá fræin ekki
næga birtu. Það getur tekið fræin
tvær vikur að spíra en líka allt að
fimm til sex vikur. Allt veltur þetta á
tegundum.
Graslaukur og steinselja
Strax og fræin fara að spíra er
plastið eða lokið fjarlægt og þá má
fara að setja bakkana á enn bjartari
stað. Tími er kominn til að dreif-
planta eða prikla eins og sagt er ef
plönturnar eru í bakka og uppúr
kímblöðunum er farið að glitta í ný
blöð. Þegar plönturnar eru komnar
sæmilega vel á veg eru þær settar í
stærri potta eða þær settar út í potta
eða beð síðla í maí.
Kubbarnir eru settir beint í potta
og út í glugga eða út í garð þegar
veðrið er orðið skaplegt í maí.
Guðbjörg segir að fyrir þá sem eru
að fikra sig áfram í fyrsta skipti sé
auðveldast að byrja með graslauk,
steinselju og dill en hún bætir við að
allt sem passað sé vel uppá launi
umönnunina þegar upp er staðið. Að-
almálið er að hugsa vel um verkefnið.
Hafa mátulega langt á milli
Þegar sá á fyrir káli þá má fara að
dreifplanta um leið og uppúr kím-
blöðum eru farin að vaxa önnur blöð.
Það þarf að passa að gróðursetja í
pottana það djúpt að stöngullinn fari
í moldina og einungis kímblöðin og
nýju blöðin standi uppúr. Það er svo
ekki fyrr en plönturnar eru gróður-
settar úti í beðum að hugsa þarf að
áburðargjöf. Passa þarf að hafa
a.m.k. 35–40 sentimetra á milli kál-
plantnanna. Þá er það val fólks hvort
hafa á ræktunina lífræna eða ekki.
„Ef um lífræna ræktun er að ræða
þarf t.d. að setja í beðin hrossatað,
hænsnaskít eða þörungamjöl. Hins-
vegar er hægt að nota blákorn ef fólk
er tilbúið að svindla aðeins á lífrænu
ræktuninni,“ segir Guðbjörg.
Það er um að gera að vökva vel yf-
ir sumarið og hugsa vel um beðin og
þá ætti uppskeran að vera gjöful
þegar sumri tekur að halla.
Kryddjurtir
í eldhús-
gluggann og
kál út í garð
Morgunblaðið/ÞÖK
Gott ráð Guðbjörg Kristjánsdóttir ráðleggur fólki að merkja vel hvaða tegundir er verið að gróðursetja strax í
byrjun til að það fari ekkert á milli mála hvað er hvað þegar grænu blöðin fara að koma uppúr moldinni.
Úrval Til eru margar tegundir
kryddjurta og ýmsar eru framandi.
Skemmtilegt Passið að láta stöng-
ulinn fara ofan í moldina og kím-
blöðin og nýju blöðin standa uppúr.
Árangur Þegar sáð er í bakka og ný
blöð fara að myndast uppúr kím-
blöðunum er kominn tími til að
dreifplanta.
Einfalt Sáðkubbar eru settir í
bakka með vatni og síðan er nokkr-
um fræjum stráð í hvern kubb.
Kubbarnir eru svo settir í stærri
potta og þarf ekki að dreifplanta
Nú er rétti tíminn til að
sá fyrir kryddi og káli