Morgunblaðið - 14.04.2007, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
ÁRVAKUR OG BLAÐIÐ
Ígær var tilkynnt, að Árvakur hf.,útgáfufélag Morgunblaðsins,hefði eignazt allt hlutafé í Ári og
degi, útgáfufélagi Blaðsins. En fyrir
nokkrum misserum keypti Árvakur
hf. helming hlutafjár í Blaðinu.
Þessi kaup eru mjög mikilvæg fyrir
Árvakur hf. Félagið gefur nú út öfl-
ugasta áskriftarblað landsins, annað
tveggja fríblaða og heldur úti lang-
sterkasta netmiðli landsins, mbl.is.
Í þessu felst, að sú upplýsinga- og
afþreyingarstarfsemi sem fram fer á
vegum Árvakurs hf. nær, að sögn
Einars Sigurðssonar, forstjóra Ár-
vakurs, hf. til um 85% þjóðarinnar.
Með sameiningu þessara þriggja
fjölmiðla undir einum hatti nást mikil
samlegðaráhrif í rekstri, sem gerir
þessa starfsemi alla hagkvæmari.
Jafnframt er ljóst, að þeir fjöl-
miðlar, sem Árvakur hf. starfrækir
verða sterkasti kostur fyrir auglýs-
endur til þess að ná til fólksins í land-
inu.
Með því að taka að fullu við útgáfu
annars af tveimur fríblöðum, sem hér
eru gefin út er Árvakur hf. að fara
sömu leið og útgáfufélög hefðbund-
inna áskriftarblaða í nálægum lönd-
um hafa farið í vaxandi samkeppni á
dagblaðamarkaðnum. Flest helztu
dagblaðaútgáfufyrirtæki á Norður-
löndum hafa hafið útgáfu á eða fest
kaup á fríblöðum til þess að ná til
þeirra þjóðfélagshópa, sem fríblöðin
höfða mest til.
Í tilviki Árvakurs hf. eru til staðar
framleiðslutæki, bæði tölvukerfi, sem
eru sérhönnuð fyrir dagblaðaútgáfu
og mjög fullkomin prentsmiðja, sem
nýtast betur en ella. Þótt Blaðið hafi
frá upphafi verið prentað í prentvél
Árvakurs hf. hefur önnur vinnsla
þess ekki farið fram í framleiðslu-
tækjum félagsins. Nú breytist það,
auk þess, sem margvísleg stoðdeild-
arstarfsemi er fyrir hendi, sem út-
gáfa Blaðsins mun njóta góðs af.
Árvakur hf. mun því frá deginum í
dag dreifa yfir 150 þúsund eintökum
af dagblöðum flesta daga vikunnar og
um 50 þúsund eintökum alla daga vik-
unnar.
Jafnframt þessari mikilvægu þró-
un í blaðaútgáfu Árvakurs hf. hefur
félagið haldið áfram að þróa netút-
gáfu Morgunblaðsins, mbl.is, sem
smátt og smátt er að byggja upp
grundvöll að fréttaútsendingum á
netinu. Þær eru nú þegar til staðar en
líklegt má telja, að þær færist í fast-
ara form á næstu misserum.
Þýðingarmikill þáttur í fjölmiðla-
starfsemi Árvakurs hf. er að vera
vettvangur fyrir umræður þjóðarinn-
ar. Sagt hefur verið að Morgunblaðið
sé málþing þjóðarinnar og það eru
orð að sönnu. En nú hefur jafnframt
blómstrað sterkur umræðuvettvang-
ur á mbl.is, þar sem bloggið er og nú
netgreinar. Blaðið hefur einnig að
hluta til verið slíkur vettvangur og á
vafalaust eftir að eflast sem slíkur.
Það er því mikill sóknarhugur um
þessar mundir hjá þeim fjölmiðlum,
sem starfræktir eru á vegum Árvak-
urs hf.
TILVERA SAMFYLKINGAR
Það hlýtur að vera erfitt fyrir sam-fylkingarfólk, sem kom saman til
landsfundar í gær, að horfast í augu
við síðustu skoðanakönnun Capa-
cent-Gallup sem bendir til þess að
flokkurinn sé enn að tapa fylgi og er
nú kominn niður í 18,1% kjörfylgi og
13 þingmenn. Frá því að þessar tíðu
skoðanakannanir hófust í febrúar
hefur fylgi Samfylkingar minnkað
jafnt og þétt.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður flokksins, fjallaði ekki um
þennan kalda veruleika í setningar-
ræðu sinni á landsfundi Samfylking-
ar í gær. Það þýðir hins vegar ekkert
fyrir flokkinn að horfa fram hjá þess-
ari staðreynd og þess vegna hljóta að
fara fram umræður á landsfundi
flokksins um það hvað valdi. Fáir
ættu að hafa meiri möguleika á að
átta sig á því en samfylkingarmenn
sjálfir. Fari sem horfir munu margir
af núverandi þingmönnum flokksins
falla út af þingi í kosningunum í vor
og varla verða þeir ánægðir með það.
Setningarræða formannsins var að
öðru leyti hefðbundin. Athyglisvert
er að sjá þá áherzlu sem Ingibjörg
Sólrún lagði á eftirlaunamál ráða-
manna eins og hún orðaði það. Hún
lýsti því yfir að hún mundi beita sér
fyrir því að þessum lögum yrði breytt
og að meira jafnræði kæmist á í líf-
eyrismálum ráðamanna og almenn-
ings.
Verður fróðlegt að sjá hvort sam-
staða næst um þetta innan nýs þing-
flokks Samfylkingar.
Hún lýsti því yfir að kæmist Sam-
fylking til valda – sem ekki er hægt
að útiloka þrátt fyrir lélega útkomu í
skoðanakönnunum – mundi flokkur-
inn sjá til þess að á næstu tveimur ár-
um yrðu byggð 400 ný hjúkrunarrými
fyrir aldraða og biðlistum eytt. Þetta
eru athyglisvert stefnumál.
Að öðru leyti var fátt nýrra tíðinda
í setningarræðu Ingibjargar Sólrún-
ar. Yfirleitt má frekar búast við nýj-
um hugmyndum í ræðum forystu-
manna stjórnarandstöðu en
stjórnarflokka. Einfaldlega vegna
þess að stjórnarandstöðuflokkar hafa
meiri tíma til þess að skoða stöðu sína
og endurskoða málefnaafstöðu held-
ur en stjórnarflokkar sem eru önnum
kafnir við að framfylgja stefnumálum
sínum. Svo var ekki í ræðu formanns
Samfylkingarinnar. Þar var heldur
ekki að finna viðleitni til þess að
marka nýjar stórpólitískar línur af
hálfu Samfylkingar. Slíkar hugmynd-
ir er frekar að finna í bókaumsögnum
Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrr-
verandi formanns Alþýðuflokksins,
sem að undanförnu hafa birzt hér í
Morgunblaðinu og þar á meðal í Les-
bók í dag.
Það er út af fyrir sig ekkert við það
að athuga að nýjar hugmyndir komi
fram frá fyrrverandi forystumönnum
en það segir þó kannski einhverja
sögu um núverandi forystusveit.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Við erum metnaðarfulltbaráttufólk fyrir betrasamfélagi. Við vitumhvað við viljum og
hvernig á að koma hlutunum í
verk,“ sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylking-
arinnar, við setningu landsfundar
flokksins í Egilshöll í gær.
Á annað þúsund manns eru
skráð til þátttöku á landsfund-
inum sem gerir þetta fjölmenn-
asta landsfund í sögu flokksins.
Ingibjörg sagði mikið hrópað
en of lítið hugsað í íslenskum
stjórnmálum. „Fólkið í landinu á
betra skilið. Það á skilið lausnir
sem virka. Þess vegna á Samfylk-
ingin brýnt erindi í ríkisstjórn,“
sagði Ingibjörg og bætti við að nú
væri stefnan tekin á jafnvægi og
framfarir, Íslandi til heilla. „Jafn-
vægi í efnahagsmálum er for-
senda þess að fólk og fyrirtæki
geti kvíðalaust gert áætlanir um
dagleg fjármál og fjárfestingar til
framtíðar. Framfarir eru for-
senda lífsgæðanna sjálfra. Það er
kominn tími til að Íslendingar sjái
á ný framfarir á sviði velferðar en
einmitt þar eru vanrækslusyndir
ríkisstjórnarinnar mestar,“ sagði
Ingibjörg. „Við erum sammála
ýmsu sem ríkisstjórnin hefur
gert, við skulum ekki halda öðru
fram. Hún hefur fylgt eftir frum-
kvæði jafnaðarmanna um opnun
landsins með aðildinni að innri
markaði Evrópu, hún hefur skap-
að viðskiptalífinu sveigjanlegra
umhverfi og leyst þar ýmsa krafta
úr læðingi. En hún hefur vanrækt
aðkallandi verkefni af því hún hef-
ur ekki séð þau. Það er ekki vítt
útsýnið af sjónarhóli hægri stefn-
unnar.“
Biðlistar, biðlistar, biðlistar
Ingibjörg fór hörðum orðum
um núverandi stjórnvöld og sagði
kjörtímabil mikils óstöðuleika í
efnahagsmálum vera að baki.
Greiðslubyrði hvers heimilis hafi
aukist að meðaltali um 500 þúsund
krónur vegna hagstjórnarmis-
taka, 60% aldraðra séu með tekjur
undir 140 þúsundum á mánuði,
fimm þúsund börn búi við fátækt
og almannatryggingakerfið standi
ekki lengur undir nafni. „Þekkið
þið einhvern sem getur borið vitni
um að velferðarþjónustan hafi
batnað?“ spurði Ingibjörg og
sagði svarið við spurningunni ein-
falt og hægt að setja það fram í
þremur orðum: „Biðlistar, biðlist-
ar, biðlistar.“
Ingibjörg sagðist vita hvað það
væri að eyða biðlistum sem sjálf-
stæðismenn hafi safnað upp. „Við
gerðum það í Reykjavík og við
munum gera það aftur. Við mun-
um sjá til þess að á fyrstu tveimur
árum í ríkisstjórn verði byggð 400
ný hjúkrunarrými fyrir aldraða og
biðlistanum eytt.“
vinnugreinar átt erfitt uppdr
á Íslandi vegna hárra vaxt
gengissveiflna. „Engar fjár
ingar eru svo aðbærar að
standi undir íslenskum vaxta
um eins og fram kom hjá fors
Marels á fundi Samfylkingari
á miðvikudaginn. Ójafnvæg
efnahagsmálum og vanræ
syndirnar eru til marks um
þessi ríkisstjórn þriggja mism
andi forsætisráðherra hafði
miður aldrei yfirsýn yfir verk
sitt, hún hafði ekki skýr mar
og hringlandaháttur einke
ákvarðanir,“ sagði Ingibjörg
bætti við að Samfylkingin
áherslu á ábyrgð í efnahags
um. „Með því að gera hlé á v
Að sögn Ingibjargar er minna
fé varið hlutfallslega til mennta-
mála hér á landi en í nokkru hinna
Norðurlandanna og brottfall úr
framhaldsskólum meira en annars
staðar þar. „Við í Samfylkingunni
erum sannfærð um að allir geti
lært og við eigum aldrei að gefast
upp við að virkja hæfileika barna
og ungmenna, þrátt fyrir mis-
þroska, einhverfu, lesblindu, of-
virkni. Allir geta lært og við meg-
um ekki láta það gerast að barn fái
ekki notið sín af því það fékk ekki
kennslu við hæfi.“
Kunna að leiðrétta launamun
Ingibjörg sagði einsýni hafa
ríkt í atvinnumálum og nýjar at-
„Framtíð lands – framtíð þjóðar“ er yfirskrift landsfund
Baráttufólk
betra samfé
Burt með biðlista „Ég veit hvað það er að eyða biðlistum sem sjál
það aftur,“ sagði Ingibjörg Sólrún við setningarathöfn landsfunda
Á annað þúsund
manns eru skráð til
þátttöku á landsfundi
Samfylkingarinnar.
Halla Gunnarsdóttir
hlustaði á stefnuræðu
formannsins og ávörp
tveggja skandinav-
ískra gesta.
ÞRJÁR konur gegna nú for-
mennsku jafnaðarmannaflokka
á Norðurlöndunum og þær voru
allar samankomnar við setningu
landsfundar Samfylkingarinnar
í gær. Þær Helle Thorning-
Schmidt, leiðtogi danska Jafn-
aðarmannaflokksins og Mona
Sahlin, nýkjörinn leiðtogi
sænska jafnaðarmannaflokksins,
blésu skoðanasystkinum sínum
baráttuanda í brjóst.
Í máli Sahlin kom fram að í
þessum þremur löndum séu jafn-
aðarmenn í stjórnarandstöðu.
Það sé erfitt verk að koma jafn
aðarmönnum til valda og þess
vegna þurfi konu til verksins.
Sahlin sagði jafnaðarmenn
ekki láta sér standa á sama ef
aðrir búa við ójöfnuð. „Við legg
um af mörkum það sem við get
um og eigum að fá til baka það
sem við þurfum,“ sagði hún.
Helle Thorning-Scmhidt sag
borgaraflokka á Norðurlönd-
unum oft fá orðfæri jafn-
aðarmanna um velferð og sam-
félagsmál að láni og reyna að
gera það að sínu. „Og þó þeir sé
Eigum að fá til baka það s
Forystukonur Það fór vel á með leiðtogum jafnaðarmanna frá þre
fylkingarinnar í gær en Helle-Thorning Schmidt og Mona Sahlin v