Morgunblaðið - 14.04.2007, Page 64
Þá fattaði maður hvað
það var að vera rokk-
stjarna...og manni líkaði það
ekki illa … 75
»
reykjavíkreykjavík
Björk Guð-
mundsdóttir
kemur fram í
bandaríska
skemmtiþætt-
inum Saturday
Night Live hinn
21. apríl næstkomandi. Mun þetta
vera í annað skiptið sem Björk
kemur fram í þættinum og má
reikna með að hún leiki a.m.k. tvö
lög af nýjustu plötu sinni Volta.
Sérstakur gestaleikari í þættinum
verður leikkonan Scarlett Joh-
anson. Saturday Night Live er
sendur út beint frá í New York.
Björk kemur fram
í Saturday Night Live
Fanney Lára Guðmundsdóttir
var kjörin fegurðardrottning
Reykjavíkur 2007 í Broadway fyrir
troðfullu húsi en keppninni var
einnig sjónvarpað í beinni útsend-
ingu á Skjá einum. Í öðru sæti var
Jóhanna Vala Jónsdóttir og í því
þriðja hafnaði Dóra Björk Magn-
úsdóttir. Ljósmyndafyrirsætan var
valin Aníta Brá Ingvadóttir
Aquolina-stúlkan var Fanney
Lára Guðmundsdóttir og vinsæl-
asta stúlkan var valin Svanhildur
Anna Gestsdóttir.
Fanney Lára fegurst
Í dag verða veitt verðlaun í
ljóðasamkeppni Nýhil og Mennta-
skólablaðsins Verðandi. Athöfnin
fer fram í bókabúð Nýhils,Klapp-
arstíg 25, og hefst hún stundvíslega
klukkan 14.
Hljómsveitin Palindrome flytur
tónlist áður en verðlaunahafar í sjö
flokkum eru tilkynntir og mun hver
ogeinn lesa sitt/sín verðlaunaljóð
og þiggja veglega bókagjöf frá Ný-
hil.
Ljóðskáld framtíð-
arinnar verðlaunuð
NÆSTU sunnudaga klukkan 15.00
mun Rás 2 útvarpa stuttum þáttum
um söngkonuna Björk Guðmunds-
dóttur og feril hennar. Ágúst Boga-
son tók þættina sama, en þeir eru
byggðir að mestu á upptökum úr
safni Ríkisútvarpsins.
Alls eru þættirnir fjórir, um
klukkutími hver, en Ágúst segir að
fyrir sitt leyti hefðu þeir mátt vera
miklu fleiri, hann hafi rekist á svo
mikið af forvitnilegu efni.
„Í fyrsta þættinum spila ég þann-
ig upptökur úr þætti Jónasar Jón-
assonar um Jón Múla frá 1987, en
Björk kom þá fram með tríói Guð-
mundar Ingólfssonar í fyrsta sinn og
flutti þrjú lög,“ segir Ágúst.
Ágúst segir að sú mynd af Björk
sem birst hafi honum við þessa
vinnu sé nokkuð frábrugðin þeirri
mynd sem hann hafði af söngkon-
unni.
„Ég er það ungur að ég man ekk-
ert eftir þessum tíma, fyrir mér hef-
ur Björk alltaf verið fjarlæg stór-
stjarna, en í þessum gömlu viðtölum
er hún svo opin og einlæg, bara fá-
tækur poppari sem býr í miðbænum,
eins og hver annar Íslendingur. Þó
ég hefði náttúrlega átt að vita það
fyrir, áttaði ég mig á því að hún væri
bara venjuleg manneskja, eins og
hver annar.“
Í síðasta þættinum, sem verður á
dagskrá 6. maí, daginn áður en
væntanleg plata Bjarkar, „Volta“
kemur út, verður flutt nýtt viðtal
Ólafs Páls Gunnarssonar við Björk
þar sem hún ræðir um plötuna, en
einnig verður platan flutt í heild
sinni.
Eins og hver annar Íslendingur
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Venjuleg Björk Guðmundsdóttir á sviði í Laugardalshöll fyrir skemmstu.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„Í þessum heimi er það stórmál ef maður er ekki
með hinn fullkomna rass,“ segir Guðjón Þor-
steinn Pálmarsson um efni leikritsins Examina-
sjón sem Stúdentaleikhúsið frumsýnir á laug-
ardaginn. Guðjón leikstýrir verkinu sem er
byggt á teiknimyndasögunni The Bottom In-
spectors sem birtist í Breska tímaritinu VIZ.
„Í sögunni má finna mikla líkingu við vinnu-
aðferðir nasista. Þar segir frá löggu sem bank-
ar upp á hjá fólki og tekur það í „examinasjón“,
þ.e. athugar hvort það sé í lagi með afturendann
á því. Löggan finnur alltaf eitthvað að og þá er
fólk handtekið, í einni sögunni finnst hinn full-
komni rass og þá er viðkomandi líka handtekinn
því þá á að klóna hann. Það er líka til ungliða-
hreyfing „rassíudeildarinnar“, sem rímar við
Hitlersæskuna,“ segir Guðjón og bætir við að í
upphafi verksins, sem gerist í náinni framtíð, sé
kannski fullmikið frjálsræði, síðan fari hlutirnir
úrskeiðis og rassíulöggan taki yfir.
„Grunnurinn í verkinu er gerður úr sex sög-
um sem við byggðum utan á og tengdum saman
með tónlist. Hryggurinn í sögunni er löggan,
andspyrnan við hana og ástin sem vefst inn í.
Við erum ekkert að finna upp hjólið þrátt fyrir
óvenjulegt viðfangsefni, heldur þurrmjólkum
klisjurnar. Þótt efniviðurinn sé svolítið vafa-
samur og auðvelt að setja hann á lágt plan þá
erum við ekki að gera neitt á lágu plani, t.d. er
allt sagt undir rós. Við látum áhorfendur um að
nota ímyndunaraflið.“
Guðjón segir söguna vera mjög gagnrýna á
samfélagið. „Þetta er gamanleikrit en ádeilan
og alvarleikinn koma ókeypis með.“
Sýna í kartöflugeymslu
Þetta er í annað skiptið sem Guðjón vinnur
leikverk upp úr myndasöguritinu VIZ en áður
hefur hann sett á svið verkið Allra kvikinda líki.
Þar vann hann tónlistina með Snæbirni Ragn-
arssyni sem sér einnig um tónlistina í Examina-
sjón. „Tónlistin í verkinu er öll frumsamin, það
er sungið og sögð saga með lögunum, sem teng-
ir verkið saman. Þrjú í leikarahópnum spila á
málmblásturshljóðfæri og svo erum við með
sellóleikara, tvær fiðlur og gítar.“
Examinasjón er sýnt í gömlu kartöflugeymsl-
unum í Ártúnsbrekkunni. Þetta er nokkuð
óvenjulegt rými fyrir leiksýningu en Guðjón
segir það nýtast vel enda sé leikmyndin í verk-
inu ekki mikil.
„Það var erfitt að finna pláss sem við gátum
bæði æft og sýnt í, enda Stúdentaleikhúsið alls-
laust, en við vorum velkomin hér inn,“ segir
Guðjón sem er að vinna í fyrsta skipti með Stúd-
entaleikhúsinu. „Það er stórskemmtilegt að
vinna með þessum háskólanemum, þetta eru af-
skaplega vel gerðir krakkar.“
Frumsýning Examinasjón er í kartöflu-
geymslunum á laugardaginn, 14. apríl, kl. 20 og
stefnt er að tíu sýningum á næstu tveimur vik-
um.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Examinasjón Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, leikstjóri Stúdentaleikhússins, kynntist teiknimyndatímaritinu VIZ út í Bretlandi þar sem hann lærði leiklist.
Afturendinn skoðaður
Stúdentaleikhúsið sýnir Examinasjón í kartöflugeymslunum í Ártúnsbrekku
Miðapantanasími Stúdentaleikhússins er
823 0823 .