Morgunblaðið - 14.04.2007, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 69
Í DAG er þátturinn Orð skulu
standa sendur út frá Egilsstöðum,
gestir eru Arndís Þorvaldsdóttir og
Þorbjörn Rúnarsson. Á milli þess
sem þau velta fyrir sér „prestakaffi“
og „turtildúfu“ botna þau þennan
fyrripart um ríg milli Héraðsbúa og
Fjarðamanna:
Ætíð forðast Fjarðamenn
Fljótsdalinn að gista.
Í síðustu viku var fyrriparturinn
ortur um aðgerðir Reykjavík-
urborgar gegn sílamávinum og öðr-
um vargi:
Gísli Marteinn myrðir kalt
máva sem hérna lenda.
Í þættinum botnaði Hlín Agnars-
dóttir á pólitískum nótum:
Nú íhaldsmanna veldi valt
vafalaust mun enda.
Arinbjörn Vilhjálmsson botnaði
þrisvar í þættinum:
Blóðug hræin út um allt
á atorku hans benda.
En þeir samt tímgast þúsundfalt,
að þessu gaman henda.
En þeir sem drepa alltaf allt
hjá andskotanum lenda.
Davíð Þór Jónsson byrjaði líka í
pólitík:
Á öskuhauga ætíð skalt
íhaldinu henda.
En hann sá sig svo um hönd með
tvöfaldri rómantík:
Í kross nú væri kannski snjallt
kvæði sínu að venda.
Lóa og spói út um allt
ástarþakkir senda.
Júlíus Þorfinnsson prófaði pólitík-
ina:
Veraldargengi er orðið valt
er vopn í bláhönd lenda.
En endaði hér með bragbrigðum:
Eldar á laun sitt eiturmalt
ekkert illt má endur henda.
Pósthólf þáttarins yfirfylltist, en
úr hópi hlustenda leitaði Hallberg
Hallmundsson í smiðju Hallgríms:
Umfram allt þú ætíð skalt
andakrílin vernda.
Hlöðver Ellertsson botnaði að
hálfu á gamla móðurmálinu:
Han er smart, ja helt totalt.
Hann er snilld án enda.
Hörður Jóhannesson:
Með hugarfarið heldur svalt
til heljar þá vill senda.
Erlendur Hansen á Sauðárkróki:
Montinn hani, örvar allt,
til Íraks mætti senda.
Valur Óskarsson hafði Hallgrím
líka í huga enda öflugur botna-
smiður:
Víst ávallt þeim vana halt
vísubotn að senda.
Útvarp | Orð skulu standa
Sveitarígur
Hlustendur geta sent sína botna á
netfangið ord@ruv.is eða bréfleið-
is, merkt Orð skulu standa, Rík-
isútvarpinu, Efstaleiti 1, 150
Reykjavík.
Orð skulu standa Davíð Þór, Karl Th. Birgisson og Hlín Agnarsdóttir.
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhusid.is
ÞAÐ ER ENGIN LEIÐ AÐ HÆTTA!
AUKASÝNINGAR 17. APRÍL, 2. MAÍ OG 5. MAÍ
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Í LEIKSTJÓRN ÞÓRHILDAR ÞORLEIFSDÓTTUR
„EKKI MISSA AF
EDDU BJÖRGVINS
EINS OG HÚN
GERIST BEST!“
pabbinn.is
Miðasalan í Iðnó er opin 11 - 16 virka daga
og 2 tíma fyrir sýningu.
Sími miðasölu er 562 9700.
„SJÚKLEGA FYNDIГ
14/4 ÖRFÁ SÆTI LAUS, 18/4 UPPSELT,
20/4 ÖRFÁ SÆTI LAUS, 21/4 ÖRFÁ SÆTI LAUS,
27/4 LAUS SÆTI, 27/4 LAUS SÆTI,
28/4 BOLUNGARVÍK
Allar sýningar hefjast kl. 20 nema annað sé tekið fram.
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA!!
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Matseðill í anda Austurlanda nær á Café Cultura í Alþjóðahúsi.
Afsláttur fyrir sýningargesti gegn framsvísun miða.
eftir Carole Fréchette
Leikstjóri María Sigurðardóttir
Frumsýning í kvöld
á Smíðaverkstæðinu!