Morgunblaðið - 17.04.2007, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VERÐ á mat- og drykkjarvör-
um lækkaði um 0,9% milli mán-
aða. Þetta kemur fram í mæl-
ingum Hagstofu Íslands á
vísitölu neysluverðs í apríl 2007.
Hjá Guðrúnu R. Jónsdóttur,
deildarstjóra vísitöludeildar
Hagfræðistofunnar, fengust
þær upplýsingar að áætlað hefði
verið að afnám vörugjalda 1.
mars sl. myndi skila sér í 1,3%
verðlækkun á mat- og drykkjar-
vörum. Segir hún það að stórum
hluta ganga eftir og að það séu
vörur sem báru vörugjöld sem
séu að lækka. Meðal vöruliða
sem báru vörugjöld voru kaffi
og te, kakó, gosdrykkir, kolsýrt
vatn, niðursoðnir ávextir,
ávaxtasafar, ís, hnetusmjör og
sætt kex.
Tekur Guðrún fram að ætla
megi að tekið geti verðlækkun á
mat- og drykkjarvörum tvo til
þrjá mánuði að skila sér að
fullu. Bendir hún á að ávallt séu
árstíðabundnar sveiflur í mat-
vöruverði.
Aðspurð segir Guðrún lækk-
un tolla á kjötvörum, sem einnig
varð 1. mars sl., ekki enn hafa
komið fram í mælingum Hag-
stofunnar.
Að mati greiningardeildar
Glitnis hafa aðgerðir stjórn-
valda skilað sér nokkuð vel í
verðlækkun matvæla. Verð-
lækkun hjá veitingahúsum
vegna lækkunar virðisauka-
skatts var aftur á móti hverf-
andi en greiningardeildin hafði
gert ráð fyrir lítillegri lækkun
þar.
Að mati greiningardeildar Glitnis hafa aðgerðir stjórnvalda skilað sér vel í verðlækkun matvæla
Afnám vörugjalda virðist
skila sér vel til neytenda
",,-."$$ !/ 0 0
1
/ 0
!
"#$
"%$
"&$
"'$
"($
""$
"$$
Morgunblaðið/Ásdís
HENNÝ Hinz, verkefn-
isstjóri verðlagseftirlits ASÍ,
segir ánægjulegt að sjá að
afnám vörugjalda sé að
skila sér býsna hratt, miðað
við að talað hafi verið um að
það tæki tvo til þrjá mánuði.
„Við gefum okkur að það
geti eitthvað dregist fram í
þennan mánuð að það skili
sér að fullu.“
Segir Henný það aftur á móti nokkur von-
brigði hve seint og illa lækkun virðisauka-
skattsins skili sér í verði veitingahúsa. „Þau
standa sig alls ekki,“ segir Henný. Áætlað
hafði verið að lækkun virðisaukaskattsins hefði
tæplega 9% áhrif til lækkunar á veitingalið
vísitölunnar. Við síðustu mælingu á vísitölu
neysluverðs í mars hafði verðlag á veitinga-
húsum aðeins lækkað um 3,2% frá því í febr-
úar. „Við hefðum viljað sjá að í síðustu mæl-
ingum kæmi fram lækkun. Það er alveg klárt
að þetta er bara breyting á virðisaukaskatt-
inum og hún á náttúrlega að skila sér beint út
í verðlag til neytenda. Þannig að þarna er mis-
brestur,“ segir Henný og rifjar upp að all-
nokkuð hafi verið um þetta fjallað í síðasta
mánuði. „Flestir höfðu vonast eftir því að
menn myndu taka við sér í mánuðinum, en það
er ekkert að gerast og það er mjög miður,“
segir Henný Hinz að lokum.
Veitingahúsin
valda vonbrigðum
Henný Hinz
LÆKKUN á matvælaverði skilar
sér misjafnlega í þeim fimm versl-
unarkeðjum sem verðlagseftirlit
ASÍ hefur haft til skoðunar að und-
anförnu með það að markmiði að
skoða hvernig lækkanir á virðis-
aukaskatti og vörugjöldum 1. mars
sl. hafi skilað sér út í verðlag til
neytenda. Verslunarkeðjurnar sem
til skoðunar voru eru Hagkaup,
Nóatún, Kjarval og klukkubúðirnar
10–11 og 11–11.
Þegar verðbreytingar eru skoðað-
ar á tímabilinu frá febrúar og fram í
mars má sjá að verðlækkanir í fyrr-
greindum verslunarkeðjum voru á
bilinu 4,4% til 8,5%. Vegin verð-
lækkun var minnst i verslunum 10–
11 eða 4,4% milli mánaða. Mest
verðlækkun var í 11–11 þar sem
vegin verðlækkun var 8,5% milli
febrúar og mars. Þetta kemur fram í
niðurstöðum verðmælinga verðlags-
eftirlits ASÍ sem samtökin birtu á
vef sínum í gær. Rifjað er upp að til
þess að fylgjast með verðþróun í
verslunum fyrir breytingu hafi verð-
lagseftirlitið hafið verðmælingar í
desember sl.
Frá desember 2006 til febrúar
2007 var vegin verðhækkun í fyrr-
greindum verslunarkeðjum mest í
verslunum 10–11 eða 4,3%. Í Kjarval
hækkaði verð um 2,7% milli mánaða
og í 11–11 um 2,1%. Vegin verð-
breyting í Hagkaupum var 1,6% á
tímabilinu og minnst hækkun var í
verslunum Nóatúns eða 1,3% frá því
í desember og fram í febrúar.
Í frétt ASÍ er tekið fram að ekki
sé um verðsamanburð á milli versl-
anakeðja að ræða heldur sé einungis
lagt mat á verðbreytingar innan
hverrar keðju fyrir sig.
Skilar sér
misjafnlega
Lækkun matvælaverðs í verslunum
vinna í rafmagninu. Verkefnið
minnir um margt á björgun Sam-
herjaskipsins Baldvins Þorsteins-
sonar sem strandaði í Meðallands-
fjöru í mars 2004. Til stendur að
flytja Wilson til Hafnarfjarðar og
hugsa upp næstu skref þar.
Það er ekki hlaupið að því að
koma stærðar flutningaskipi af
strandstað. Fyrir utan viðgerðir á
vettvangi hefur þurft að undirbúa
sjálfan dráttinn með því að bora
sérstakar holur í lítil sker úti í sjó
aftan við skipið en í þau verða fest
stýritóg til að fyrirbyggja að skipið
snúist í vindi þegar tekið verður í
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
EFTIR fjögurra mánaða legu á
strandstað við Hvalsnes er loksins
komið að stóru stundinni. Reynt
verður að draga flutningaskipið
Wilson Muuga á flot í kvöld eða
annað kvöld. Fimmtudagurinn
kemur líka til greina ef veðrið er
ómögulegt hina dagana. Ef ekki
tekst að draga skipið út að þessu
sinni verður beðið fram í maí eftir
næsta stórstraumsflóði og víst er að
tíminn vinnur ekki með skipinu sem
sætir miklu sjávarálagi í fjörunni.
Reyndar var óvenjugott veður á
strandstað í gær og voru þeir all-
fegnir karlarnir sem eru að vinna í
skipinu. Ríflega tugur manna hefur
beinlínis búið í skipinu undanfarnar
vikur og lagt nótt við dag að þétta
vélarrúm og tanka, að ógleymdu
lestargólfinu þar sem mestar
skemmdirnar urðu. Um leið og fjar-
ar út sæta menn færi og vinna í
kringum skipið utan frá en drífa sig
síðan um borð aftur þegar flæðir
að. Þeir fóru heim í tveggja daga
páskafrí en síðan var haldið áfram
að vinna.
Í meginatriðum er skipið svo gott
sem tilbúið til „brottfarar“ en síð-
ustu daga hefur verið unnið að því
að prófa þéttingar í hólfum og
það. Þegar drátturinn hefst er skip-
ið sem múlbundið við skerin og þarf
að draga það út um einskonar hlið á
milli þeirra. Ekki nóg með þetta,
því tvö stýritóg eru líka á hvoru
borði að framanverðu og ná upp í
klappir við ströndina og loks er
fimmta tógið fest í stefnið og bund-
ið við land. Með þessum hætti er
skipinu „miðað“ út á hárnákvæman
fyrirhugaðan feril þegar það verð-
ur dregið út. Það eina sem nú þarf
til að fullkomna verkið er hægviðri,
en undanfarnar vikur hefur verið
heilmikill sjógangur og læti við
skipið.
Morgunblaðið/ÞÖK
Wilson Muuga tilbúið fyrir
brottför af strandstað
Kláfferð Vinnumenn í Wilson notast við kláf til að komast um borð.
Stjórnendur Árni Kópsson, Hjörtur Emilsson og Guðmundur Ásgeirsson stýra verkum um borð í Wilson Muuga.