Morgunblaðið - 17.04.2007, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2007 9
FRÉTTIR
SÓLVEIG Pétursdóttir, forseti Al-
þingis, og eiginmaður hennar, Krist-
inn Björnsson, munu heimsækja Kali-
forníu dagana 17.–23. apríl í boði efri
deildar fylkisþings Kaliforníu. Með
þeim í för verða þingmennirnir Sig-
ríður Anna Þórðardóttir, Margrét
Frímannsdóttir og Hjálmar Árnason,
auk Helga Bernódussonar, skrif-
stofustjóra Alþingis, og Belindu
Theriault, forstöðumanns alþjóða-
mála. Um endurgjaldsheimsókn er að
ræða en sendinefnd frá fylkisþingi
Kaliforníu heimsótti Alþingi á síðasta
ári.
Sendinefndin mun koma við í Los
Angeles, Santa Monica, Monterey og
San Francisco, auk höfuðborgarinnar
Sacramento. Rætt verður við forseta
efri og neðri deildar fylkisþingsins og
ýmsa fylkisþingmenn, meðal annars
nefndarformenn, leiðtoga meiri- og
minnihluta þingsins og fleiri. Þess má
geta að einn fylkisþingmaðurinn,
Tom Torlakson, er af íslenskum ætt-
um.
Sendinefndin mun einnig funda
með vararíkisstjóra Kaliforníu, yfir-
manni heimavarna fylkisins, við-
skiptaráðherra, sveitarstjórnar-
mönnum, rektor og ýmsum
prófessorum Kaliforníuháskóla í
Santa Barbara, sérfræðingum og
háttsettum embættismönnum á sviði
umhverfis- og orkumála og fulltrúum
viðskiptalífsins. Þá mun sendinefndin
hitta Helga Tómasson, listrænan
stjórnanda San Francisco ballettsins.
Forseti Alþingis í opinberri
heimsókn í Kaliforníu
Fáðu úrslitin
send í símann
þinn
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16
20% afsláttur
af stökum buxum
Gott úrval
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Leggings
Munstraðar
sokkabuxur
Stórar stærðir
Nýtt kortatímabil
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Skyrtu-kragabolir
Litir grænn og hvítur
str. 42-56
Stofnfundur
samtaka fyrrverandi vistfólks á
upptökuheimilum,
heimavisarskólum,
barnaheimilum
og einkaheimilum
á vegum ríkis- og sveitarfélaga á árunum
1952-1980 verður haldinn í Laugarneskirkju
sunnudaginn 29. apríl nk. kl. 20
Fyrrverandi vistfólk og nánustu aðstandur
eru eindregið hvattir til að mæta.
Stofnfundurinn er öðrum lokaður.
Nánari upplýsingar veita
Páll (pallielis@emax.is) og
Víglundur (viglundur@hive.is)
Undirbúningshópurinn
Laugavegi 51, sími 552 2201
Sumargjöfina
færðu hjá okkur
Ný sending frá