Morgunblaðið - 17.04.2007, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Í laganna nafni, amen.
VEÐUR
Íslandshreyfingin var fyrst ogfremst kunn fyrir andstöðu sína
við stóriðju og frekari virkj-
anaframkvæmdir á hálendinu.
Þess vegna var athyglisvert að
Ómar Ragnarsson, formaður
hreyfingarinnar, talaði um annað
úrslitatriði í Morgunblaðinu um
helgina – að opnaður yrði gluggi
að kvótakerfinu.
Í því felst aðleyfðar verði
frjálsar veiðar
fyrir sex tonna
báta með tvær
rúllur sum-
armánuðina.
Það verður aðteljast und-
arlegt við þessa stefnu að þessar
frjálsu veiðar smábátanna yrðu
hrein viðbót við þann kvóta sem
þegar er úthlutað. Óræð stærð sem
bætist við þann afla sem Hafrann-
sóknastofnunin ráðleggur. „Þetta
eru það litlir bátar, sjáðu til,“ segir
Ómar í viðtalinu og bætir við: „Við
teljum þetta ekki það nákvæm vís-
indi að fiskistofnarnir þoli ekki
þessa litlu báta.“
Ekki nákvæm vísindi? Ætlar Óm-ar frekar að styðjast við eigið
hyggjuvit?
Í stefnuyfirlýsingu Íslandshreyf-ingarinnar stendur: „Lífríkið í
sjónum umhverfis landið er auð-
lind sem okkur Íslendingum hefur
verið trúað fyrir. Fiskimiðin ber að
nýta með sjálfbærum hætti án þess
að skaða lífríkið. Veiðistjórnun
þarf að taka mið af veiðiþoli fiski-
stofna og ástandi sjávar og sjáv-
arbotns á hverjum tíma.“ Þannig
er stefnan í öðru orðinu en í hinu
er talað um frjálsar veiðar án
veiðistjórnunar.
Svo virðist sem Íslandshreyfingingeti ekki ákveðið hvort hún á
að fara inn eða út um gluggann að
kvótakerfinu.
STAKSTEINAR
Ómar Ragnarsson
Opinn gluggi í fiskveiðistjórnun
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!" ##$
:
*$;< ##
!"
# #
$% & *!
$$; *!
% & ' #"
#& #"
(
" )
=2
=! =2
=! =2
% ("' #* $+#,!-
>
$
=7
% &
'#
#!##
.$$ /##0
##1
$2
3
#
#
##
2
*
81
3'#&
'#
#!#& #-
& /##
#!#.$$ # # $
&
$#0 # ##$ 2
3'
# $#& 2
%
#!
#" # "/##-
4
& ##% 4#!#% &
$2
5( ##& 2#6'#" #&)$
!#!
#
#
##
#&
# & 2
7.
##88"##9
!#* $
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
2
2
4
/
4
/
2
2 2 2
2 2
2
2
2
2
2 2
/
/
/
/
4
/
4
/
4
/
/
/
/
/
/
/
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Brynja Björg Halldórsdóttir | 16. apríl
Með hverjum þá?
Samkvæmt þessu vill
Árni [Páll Árnason]
hafna ríkisstjórn-
arsamstarfi við tvo
stærstu flokkana. (Þó
verð ég að nota tæki-
færi til að leiðrétta
misskilning hans á stefnu VG; VG
vill ekki hrekja úr landi bankana
enda gefa þeir af sér talsverðar
skatttekjur.)
Ég spyr bara: hjá hverjum sæng-
ar Samfó, fái hún nægilegt fylgi til
að komast í stjórn ?
Meira: brynjabh.blog.is
Katrín Anna Guðmundsdóttir | 15. apríl
Kvótakerfi
Kvótakerfi byggt á
póstnúmerum þykir við
hæfi í dag en kynja-
kvóti ekki. Ekki að ég
sé brjálæðislega fylgj-
andi kynjakvótum sjálf
– þætti mun betra ef
við værum jafnréttissamfélag og
hlutirnir væru í lagi. En svo er
ekki... og þess vegna hlýtur að vera
þess virði að ræða kynjakvóta. Ég
spái því nú reyndar að eftir því sem
konum fjölgar á þingi þá verði karlar
hlynntari kynjakvótum [...].
Meira: hugsadu.blog.is
Eiríkur Bergmann Einarsson | 15. apríl
Ströng löggjöf
Ný könnun sýnir að
meirihluti þjóðarinnar
vill að settar verði
strangari reglur um
möguleika útlendinga
til að flytjast til lands-
ins. Þetta kom fram í
frétt Sjónvarpsins í kvöld. Ég get
ekki sagt að þessi niðurstaða komi á
óvart. Niðurstaðan er hins vegar
merkileg í ljósi þess að á Íslandi er
nú þegar strangasta innflytj-
endalöggjöf sem þekkist í hinum
vestræna lýðfrjálsa heimi.
Meira: eirikurbergmann.blog.is
Ásta Möller | 16. apríl
Kraftmikill fundur
Kraftmiklum lands-
fundi Sjálfstæð-
isflokksins lauk í gær.
Forysta flokksins, Geir
og Þorgerður Katrín,
fékk óskoraðan stuðn-
ing landsfundarfull-
trúa í kosningu til formanns og vara-
formanns, en á landsfundi eru þannig
séð allir í kjöri til þessara embætta.
Forystan er sterkari og einbeittari
fyrir bragðið í kosningabaráttunni
framundan. Samanburðurinn við
Samfylkinguna, þar sem landsfund-
urinn veitti forystunni áframhaldandi
umboð án kosninga, hlýtur að vera
óþægilegur fyrir Samfylkinguna,
ekki síst í ljósi augljósrar óánægju
innan flokksins með stöðu hans. Það
veikir Samfylkinguna enn frekar.
Nýr framkvæmdastjóri Sjálfstæð-
isflokksins, Andri Óttarsson, stóðst
fyrstu prófraun sína, með miklum
glæsibrag. Umbúnaður og skipulag
landsfundarins var til fyrirmyndar,
enginn blettur þar á. Ný og breytt
Laugardalshöll með sínum mörgu
fundaherbergjum gerði það að verk-
um að nefndarstarf var á svæðinu, en
ekki vítt og breitt um höfuðborg-
arsvæðið eins og áður. Þetta breytti
miklu og jók ánægju fólks. Um leið
var hægt að hafa meiri yfirsýn yfir
starfið og auðveldaði fólki að fara á
milli málefnafunda, ef svo bar við.
Ég einbeitti mér að málefnanefnd-
um um velferðarmál og málefni aldr-
aðra. Umræðan var fyrsta flokks og
leiddi til mjög góðrar niðurstöðu. Vel-
ferðarmálin eru á oddinum og stefnan
skýr.
Sérstaka athygli vakti á fundinum
hve hlutur kvenna í störfum lands-
fundar var stór. Þær voru mjög virk-
ar í umræðu um ályktanir fundarins
og sennilega voru þær þar í meiri-
hluta meðal ræðumanna, eins og á
síðasta landsfundi. Í kosningum til
miðstjórnar buðu sig fram 12 konur
og 13 karlar í ellefu sæti. Átta konur
náðu kjöri og þrír karlar.Meira: […]
Heiti potturinn í Árbæjarlauginni á
morgnana er oft ágætur barómeter á
umræðuna. Þar eru oft skiptar skoð-
anir og hart deilt um menn og mál-
efni. Í morgun tóku margir það upp
við mig hve þeir voru ánægðir með
Geir. Yfirvegun hans, öryggi og vin-
gjarnleiki. Traust og velvild. Góð
blanda af ábyrgum landsföður og
góðum gaur!
Meira: astamoller.blog.is
BLOG.IS