Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is
Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór
Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
KOMIN
Í KILJU
„Frábær höfundur
... stigmagnandi
spenna.“
BOSTON GLOBE
„Maður getur ekki
hætt að lesa ...“
ÓTTAR M. NORÐFJÖRÐ,
DV
2006
„Skelfilega heillandi“
PUBLISHERS WEEKLY
JÓHANNA Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra segir allra
leiða munu verða leitað til að
aðstoða þá erlendu starfs-
menn fiskvinnslunnar Kambs
á Flateyri sem eigi ekki rétt á
atvinnuleysisbótum sökum
þess að þeir séu frá ríkjum ut-
an Evrópska efnahagssvæðis-
ins, EES. Finnbogi Svein-
björnsson, formaður Verka-
lýðsfélags Vestfirðinga, skor-
aði í fyrradag á ráðherrann að beita sér í málinu
og segir Jóhanna að reynt verði að finna fólkinu
ný störf.
„Þetta eru líka einstaklingar sem kannski
samkvæmt ströngustu túlkun væri hægt að vísa
úr landi,“ segir Jóhanna, sem bætir því við að
þeim verði gefið svigrúm til að sækja um at-
vinnuleyfi út frá nýjum forsendum. Síðan myndu
þeir ganga með sama hætti og aðrir í allar vinnu-
marksaðgerðir sem yrðu gerðar á svæðinu.
„Ég geri ráð fyrir því að þeir sem eru með lög-
heimili á staðnum eigi rétt á að fá fjárhagsaðstoð
frá félagsþjónustu sveitarfélaga þó að þeir eigi
ekki rétt á atvinnuleysisbótum, þann tíma sem
það tekur að útvega þeim ný störf.“
Litið til reynslunnar af Glámu
Á sama tíma lagði meirihluti bæjarstjórnar
Ísafjarðar fram tillögu sem felur í sér að atvinnu-
málanefnd bæjarins kanni möguleika á að stofna
almenningshlutafélag sem einstaklingar, sveit-
arfélög, félagasamtök og fyrirtæki á norðanverð-
um Vestfjörðum ættu aðild að. Yrði markmið fé-
lagsins að kaupa veiðiheimildir og þannig
tryggja fullvinnslu sjávarafurða á svæðinu.
Litið verður til reynslu af eignarhaldsfélaginu
Glámu, en Gláma ehf. var stofnað 2002 með aðild
Byggðastofnunar og nokkurra fyrirtækja á suð-
urhluta Vestfjarða, Þingeyri og á Drangsnesi. Í
tillögunni er atvinnumálanefnd gert að skila til-
lögum til bæjarstjórnar eigi síðar en 15. júní nk.
Mun leita allra leiða til
að aðstoða verkafólkið
Í HNOTSKURN
»Farið var yfir réttindi erlends verka-fólks hjá Kambi á nokkrum tungu-
málum á fjölmennum starfsmannafundi á
fimmtudag og þótti fjöldi spurninga til vitn-
is um þá óvissu sem uppi væri.
»Ekki gilda sömu kjarasamningar fyriralla, munur er á samningum land-
verkafólks og sjómannasamningum.
»Túlkur og fulltrúar fjölmenningarset-urs Ísafjarðar, fræðslumiðstöðvar Vest-
fjarða og Rauða krossins aðstoðuðu við að
skýra stöðuna fyrir starfsfólkinu en alls
munu um 120 manns missa vinnuna.
Jóhanna
Sigurðardóttir
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu stöðvaði framleiðslu á fíkniefn-
um í fjölbýlishúsi í austurborginni
síðdegis í gær. Innandyra voru
fimmtíu og fimm maríjúanaplöntur
og voru þær flestar í miklum blóma
að sögn lögreglunnar. Tveir karl-
menn á fertugs- og fimmtugsaldri
voru handteknir vegna málsins.
Þeim var sleppt eftir yfirheyrslu en
málið telst upplýst.
Nokkuð hefur borið á kannabis-
ræktun og aðgerðum lögreglu
vegna slíkra brota á liðnum miss-
erum og hlaut kannabisræktandi
fimm mánaða fangelsi í fyrra fyrir
kannabisræktun. Nokkur munur er
á maríjúana og hassi, en fyrrnefnda
efnið samanstendur af blóm-
sprotum og laufi kannabisplantna
sem eru þurrkuð og grófmulin.
Magn hins vímugefandi efnis, THC,
í maríjúana er mun minna en í
hassi, eða um þrisvar til sjö sinnum
minna í hverju grammi.
Tekinn fyrir
maríjúana-
ræktun
„KLEPPUR er víða“ – sjúkrahús í
eina öld er yfirskrift afmælis-
ráðstefnu sem hófst á Grand hóteli
í gær og lýkur í dag. Að sögn Ey-
dísar K. Sveinbjarnardóttur,
sviðsstjóra hjúkrunar á geðsviði
Landspítalans, var afar góð mæt-
ing á fyrra degi ráðstefnunnar og
sagði hún sérstakt fagnaðarefni að
nýr heilbrigðisráðherra, Guð-
laugur Þór Þórðarson, var meðal
gesta.
Að sögn Eydísar var á fyrri ráð-
stefnudeginum einkum horft til for-
tíðar þar sem fjallað var um sögu
Kleppsspítalans. Sjálf flutti hún er-
indi um geðhjúkrunarkonurnar
sem störfuðu við spítalann á upp-
hafsárum hans. „Þetta voru miklar
hugsjónakonur sem helguðu sig al-
gjörlega starfinu, því þær bjuggu í
risinu á Kleppsspítala og voru því í
raun alltaf á vakt,“ segir Eydís og
minnir á þessar konur hafi einnig
verið vel menntaðar heimskonur
því flestar sóttu þær menntun sína
til útlanda enda var ekki farið að
kenna hjúkrunarfræði hérlendis
fyrr en á 4. áratug 20 aldar.
Aðspurð segir Eydís margt fróð-
legra erinda á seinni degi ráðstefn-
unnar sem hefst kl. 8.25 í dag og
stendur til kl. 17. Nefnir hún í því
samhengi erindi Tytti Solantaus,
barna- og unglingageðlæknis, sem
ætlar að fjallar um reynslu Finna af
fjölskyldustuðningi þar sem for-
eldrar glíma við geðsjúkdóma.
Kam Bhui, prófessor í fjölmenning-
argeðlækningum, fjallar um geð-
heilbrigðisþjónustu á tímum fjöl-
menningar. Af öðrum erindum má
nefna að Páll Biering geðhjúkr-
unarfræðingur og Héðinn Unn-
steinsson ráðgjafi fjalla um geð-
heilsueflingu og geðsjúkdóma-
þjónustu. Þess ber að geta að
ráðstefnan er öllum opin og þátt-
taka ókeypis.
Að sögn Eydísar verður á morg-
un opið hús á Kleppi frá kl. 11–
17.30 þar sem m.a. verður boðið
upp á handverkssýningu og tónlist-
aratriði. Klukkan 14 verður síðan
málþing um fordóma gagnvart geð-
sjúkdómum í samkomusalnum á
Kleppi. Að sögn Eydísar er tilvalið
fyrir fólk í síðdegisbíltúr að koma
við á Kleppsspítalanum og skoða
spítalann. „Það eru allir velkomnir
og við ætlum að vera með heitt á
könnunni.“
Fagna 100 ára starfsafmæli Klepps
Morgunblaðið/Eyþór
Fjölmenni Fyrri dagur afmælisráðstefnunnar var afar vel sóttur. Dagskráin heldur áfram í allan dag.
Opið hús á Kleppi
í dag og málþing
um fordóma
SÚ breyting hefur verið gerð á
skráningu í Stað og stund í Morg-
unblaðinu að nú birtist skráningin á
Netinu um leið og skrásetjari stað-
festir hana. Skrásetjara er nú boðin
sú þjónusta að láta leiðréttingarpúka
lesa færslur yfir og gera nauðsyn-
legar breytingar. Til að virkja púk-
ann er smellt á hnappinn Púki sem
er að finna á síðunni þar sem færsl-
urnar eru skrifaðar. Púkinn merkir
með rauðu þau orð sem hann telur að
séu rangt stafsett. Í framhaldi er
hægt að smella á undirstrikuðu orðin
og fá tillögur að leiðréttingum. Inn-
setning púkans er í samvinnu við
Friðrik Skúlason ehf. Fólki er bent á
þann möguleika að skrá atburði og
uppákomur á mbl.is. Þá birtast upp-
lýsingar um atburðinn bæði á mbl.is
og í Morgunblaðinu. Þá hefur verið
gerð sú breyting að hægt er að skrá
atburði í liði félagsstarfs og kirkju-
starfs tvo mánuði fram í tímann.
Texti sem birtist í Morgunblaðinu er
lesinn yfir.
Breytingar á
skráningu á
Stað og stund
♦♦♦
ELÍAS Mar rithöfund-
ur andaðist á heimili
sínu sl. miðvikudag, 82
ára að aldri. Hann
fæddist 22. júlí 1924 í
Reykjavík, sonur Elísa-
betar Jónu Benedikts-
dóttur iðnverkakonu og
Cæsars Hallbjörnsson-
ar Marar kaupmanns.
Elías ólst upp í
Reykjavík. Hann lauk
gagnfræðaprófi í
Reykjavík 1942 og nam
við Kennaraskóla Ís-
lands fram til ársins
1944.
Hann vann sem rithöfundur og
þýðandi frá árinu 1946. Elías var
blaðamaður á Alþýðublaðinu 1945–
1946 og Þjóðviljanum 1953. Þá starf-
aði Elías um árabil sem prófarkales-
ari.
Elías var einn stofnenda Rithöf-
undasambands Íslands árið 1974 og
Finnlandsvinafélagsins Suomi 1949.
Meðal ritverka Elíasar eru skáld-
sögurnar Eftir ör-
stuttan leik (1946),
Man eg þig löngum
(1949), Vögguvísa
(1950) og Sóleyjarsaga
(1954).
Meðal ljóðabóka eft-
ir Elías eru Ljóð á
trylltri öld (1951),
Speglun (1977), Hinu-
megin við sólskinið
(1990) og Mararbárur.
Úrval ljóða 1946–1998
(1999). Smásagnasöfn
Elíasar eru tvö, Gam-
alt fólk og nýtt: 12
smásögur (1950) og
Það var nú þá (1985).
Smásögur Elíasar hafa verið
þýddar á norsku, færeysku, þýsku,
eistnesku og esperantó.
Elías þýddi og las í útvarp nokkr-
ar framhaldssögur og þýddi einnig
um 20 leikrit fyrir útvarp. Þá þýddi
hann verk eftir Georges Duhamel,
Leonid Leonov og William Heine-
sen.
Andlát
Elías Mar
UMSÓKNARFRESTUR um emb-
ætti umboðsmanns barna rann út
þriðjudaginn 22. maí síðastliðinn.
Þrettán umsóknir bárust um stöð-
una til forsætisráðuneytisins.
Umsækjendur eru: Árni Guð-
mundsson uppeldis- og menntunar-
fræðingur, Bergþóra Sigmundsdótt-
ir lögfræðingur, Elín Vigdís Hall-
varðsdóttir lögfræðingur, Eygló S.
Halldórsdóttir lögfræðingur, Guð-
rún Ögmundsdóttir félagsfræðingur,
Herdís Þorgeirsdóttir, doktor í lög-
um, Hrafn Franklín Friðbjörnsson
sálfræðingur, Kolbrún Baldursdóttir
sálfræðingur, Margrét María Sig-
urðardóttir lögfræðingur, Ólína Þor-
varðardóttir, doktor í íslenskum
bókmenntum, Sigurður Ragnarsson
sálfræðingur, Sverrir Óskarsson fé-
lagsfræðingur og Vigdís Erlends-
dóttir sálfræðingur
Miðað er við að forsætisráðherra
skipi í embættið til fimm ára frá 1.
júlí nk.
Ingibjörg Rafnar, sem gegnt hef-
ur embættinu, sagði því lausu fyrir
nokkru. Á undan henni gegndi Þór-
hildur Líndal embætti umboðs-
manns barna.
13 sækja um
embætti um-
boðsmanns
♦♦♦