Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 26
lifun 26 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Rýmið var mjög gam-aldags,“ segja eigenduríbúðarinnar Eva DöggGuðmundsdóttir og Þor- björn sem eru mjög áhugasöm um hönnun, enda unnu þau fyrir nokkr- um árum um skeið fyrir hið virta hönnunartímarit Wallpaper. Íbúðin sem er á 5. hæð í blokk í Vogahverf- inu er björt og útsýni til fjalla, sjáv- ar og inn í borgina. „Blokkin er byggð árið 1959 en efsta hæðin reyndar nokkru seinna, eða árið 1965,“ segir Þorbjörn. „Eins og títt var á þeim tíma þá var rýmið í íbúðinni mikið stúkað niður í einingar, eins og forstofu, gang og eldhús sem öll voru lokuð og frekar dimm. Þegar við keyptum íbúðina árið 2004 vildum við því gera ýmsar breytingar til þess að opna rýmið og fá meiri birtu til þess að flæða um íbúðina. Við opnuðum því á milli þessara rýma, líka til þess að nýta ganginn sem var nær 25 fm, glugga- laust rými betur en nú gegnir hann raunar hlutverki borðstofu,“ segir Eva Dögg. Skapandi hönnun og handverk Það kitlar hláturtaugar þeirra hjóna að rifja upp endurbæturnar og ljóst að þau hafa haft margar góðar sögur upp úr krafsinu auk glæsilegrar íbúðar. „Við hefðum sennilega aldrei haf- ist handa ef við hefðum vitað hvað beið okkar. Það er oft gott að vita ekki hvað maður er að fara út í,“ segir Þorbjörn hlæjandi. „Það tók okkur tvo daga að rífa niður eldhús- vegginn og þá kom okkur að óvörum í ljós að allt rafmagn í íbúðinni var leitt í gegnum þennan eina vegg, síminn og dyrasíminn. Þá voru góð ráð dýr og við þurftum í rauninni að leggja allar rafmagns- og símalínur upp á nýtt í íbúðinni!“ Þau eru samt sammála um að það hafi verið þess virði. „Það er vissu- lega gaman að geta skapað heimilið eftir eigin höfði en það getur líka tekið á. Og við ætlum að gera þetta aftur, að búa til okkar heimili því við erum að flytja í stærra húsnæði.“ Þorbjörn segir að það hafi reynt á ýmsa aðra en þau hjónin, t.d. vin- áttuböndin. „Loftið hérna var klætt þremur tegundum af tex-plötum, eins og er oft í skólum og stofnunum svo að við gifsklæddum allt loftið. Það vakti sérstaka lukku á meðal vina minna að fá að bera 45 kg þungar gifsplötur upp á 5. hæð og sparsla í þær.“ Kaliforníustemning Eva Dögg og Þorbjörn segjast vera hrifin af stemmningu eins og tíðkaðist í Kalíforníu á sjötta áratugnum og ákváðu því að innleiða hana í Vogunum, enda ekki amalegt með útsýnið yfir sundin blá. Gömul blokkaríbúð færð til nútímans Sambland Á heimilinu er ólíkum stíltegundum blandað saman af smekk- vísi og næmni, nýrri ítalskri hönnun og eldri frá sjötta áratugnum. Breytingar Eldhúsið tók miklum breytingum en sennilega eru þeir fáir sem hafa annað eins útsýni við uppvaskið. Litasamspil Brúnn, límónugrænn og skærblár falla í eina heild í bjartri stofunni, eins og náttúrulitirnir fyrir utan gluggann. Morgunblaðið/Árni Torfason Á feðgahillunni Pabbinn á plötuspilarann og sonurinn ugluna en saman virðist þetta vera útpæld uppstilling en er bara tilviljun. Rýminu gjörbreytt til að auka birtuflæði, gifs sett í loftin en fallegum hurðum og panel haldið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.