Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Kristinn Gunn-arsson fæddist í
Nesi á Rang-
árvöllum 25. janúar
1942. Hann lést á
heimili sínu, Ártúni
4 á Hellu, mánudag-
inn 14. maí síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru hjónin Guðrún
Jónsdóttir, f. 23. júlí
1904, d. 15. júlí
2006, og Gunnar
Jónsson bóndi og
rafveitustarfsmaður
í Nesi, f. 12. mars
1904, d. 6. desember 1995. Systk-
ini Kristins eru: Hulda Long, f.
18.1. 1919, d. 7.10. 1980 (hálfsystir
samfeðra), Jóhann, f. 20.9. 1935,
og Jón Bragi, f. 26.3. 1937.
Kristinn kvæntist 31. desember
1964 Unni Einarsdóttur frá Bjólu
í Djúpárhreppi, f. 17. maí 1940.
Foreldrar hennar voru Ragnheið-
ur Tómasdóttir, f. 5.5. 1910, d.
22.10. 1989, og Einar Stefánsson,
f. 18.7. 1906, d. 26.1. 1996, bændur
á Bjólu. Kristinn og Unnur bjuggu
alla tíð á Hellu, lengst af í húsinu
er þau reistu sér í Ártúni 4. Börn
þeirra eru: 1) Eiður Einar bóndi,
f. 7.10. 1963, kvæntur Önnu
Björgu Stefánsdóttur. Börn
þeirra eru a) Sunneva, sambýlis-
maður Sigurður Einar Guð-
mundsson, b) Reynir, unnusta Sól-
dís Helga Sigurgeirsdóttir, c)
Sigurþór og d) Bjarki. 2) Guðni
Gunnar varðstjóri, f. 20.8. 1965,
sambýliskona Ingi-
björg Gunn-
arsdóttir. Börn
þeirra eru a) Þór-
unn Inga, dóttir
hennar María Björg
Aðalbjörnsdóttir, b)
Kristinn Ingi, unn-
usta Rakel Ósk-
arsdóttir, og c)
Gunnar Bjarki. 3)
Guðlaugur Unn-
steinn bóndi, f. 2.2.
1970, kvæntur
Svanhildi Guðjóns-
dóttur. Börn þeirra
eru Andrea, Lovísa og Eyþór. 4)
Áslaug Anna hjúkrunarnemi, f.
7.3. 1977, sambýlismaður Sverrir
Már Viðarsson. Þau eiga soninn
Sigurð Karl. 5) Kristrún Sif upp-
eldis- og menntunarfræðingur, f.
14.5. 1982.
Kristinn stundaði nám í Héraðs-
skólanum á Skógum, lærði síðan
húsasmíði hjá Ingvari Þórðarsyni
og stundaði þá iðn í nokkur ár,
meðal annars hjá Trésmiðjunni
Rangá og Braga bróður sínum. Þá
rak hann vörubíl og leigubíl um
skeið en var síðast starfsmaður
glerverksmiðjunnar Samverks.
Hann var einn af elstu starfs-
mönnum Brunavarna Rang-
árvallasýslu. Hann var félagi í
Lionsklúbbnum Skyggni og vöru-
bílstjórafélaginu Fylki.
Kristinn verður jarðsunginn frá
Oddakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
Ef þú hefðir aðeins verið venjulegur
pabbi, sorgin kannski ekki eins sár, en
besta vin og félaga, ég felli sorgartár.
Það óhugsandi nánast er að hafa þig ei
lengur, nú maður víst ég orðinn er en
ekki lítill drengur.
Þú einfaldlega varst of góður, þín
vænst var því á æðra stig en tímann
með þér öll við þökkum, í hjörtum okk-
ar eigum þig.
Ef eitthvað hér í lífi vil, þá er það ein-
mitt þetta fleiri þig og þína líka, sem
grípa er aðrir detta.
Í himnaherinn hetjan mín, þú þurftir
víst að snúa, jarðneskt líf þitt búið er,
ég okkar mun að hlúa.
Finnst það hvorki rétt né létt að kveðja
hetju núna, en drottinn fer að öllu rétt,
því treysti ég á trúna.
Guðni G. Kristinsson.
Í dag kveð ég tengdaföður minn
Kristin Gunnarsson frá Nesi.
Það var fyrir um 26 árum að ég
kom inn í fjölskylduna til Didda og
Unnar í Ártúninu og fannst mér
strax að ég væri eins og eitt af börn-
unum þeirra.
Diddi var mikill fjölskyldumaður,
einstakur vinur og félagi allra sem
honum kynntust hvort sem það voru
börn eða vinnufélagar. Betri og
traustari mann var ekki hægt að
hugsa sér.
Diddi var rólegur maður að eðl-
isfari og kletturinn í fjölskyldunni.
Það er alveg óskiljanlegt að hann sé
farinn en við huggum okkur við það
og trúum að hans hafi verið þörf
annars staðar.
Margs er að minnast eftir svo
löng kynni en það sem stendur upp
úr þegar hugsað er til baka er hve
barngóður Diddi var og hve gaman
honum þótti þegar öll fjölskyldan
var saman, eins og um áramótin
þegar allir komu í Ártúnið til hans
og Unnar.
Ekki er heldur hægt að gleyma
hve gaman honum þótti að fara inn í
Veiðivötn á haustin með börnunum
og barnabörnunum og eiga þau nú
um sárt að binda að sjá á eftir afa
sínum og langafa, sem var svo mikill
vinur þeirra og félagi.
Það verður tómlegt að fá hann
ekki framar í heimsókn í Hólavang-
inn með Gauta því þeir voru svo
duglegir að líta inn og kíkja í kaffi og
smáspjall.
Elsku Diddi, ég veit að það hefur
verið tekið vel á móti þér af afa og
ömmu í Nesi.
Við sem eftir erum stöndum þétt
saman og höldum utan um hvert
annað í sorginni.
Hvíldu í friði kæri vinur.
Þín tengdadóttir,
Ingibjörg.
Af hverju fór afi svona fljótt frá
okkur? Okkur langaði til að hafa
hann svo miklu, miklu lengur. Við
spyrjum þessarar spurningar en lít-
ið er um svör. Eftir eigum við þó
minningar um okkar elskulega góða
afa.
Það var alltaf jafn gaman að fara í
pössun hjá afa á Hellu. Þar tók hann
alltaf á móti okkur með bros á vör.
Það var alveg sama hvað við gerðum
af okkur, hann tók öllu með jafnað-
argeði og hló bara að okkur. Margar
ferðir fórum við með honum í búðina
að kaupa eitthvað gott og fengum við
svo alltaf að ráða hvað yrði í matinn.
Tilhlökkunin var alltaf jafn mikil ef
von var á afa í sveitina að hjálpa til,
þá var vinsælt að vera í kringum
hann. Við áttum margar góðar
stundir með honum. Við vildum að
við hefðum getað átt miklu fleiri
stundir.
Við biðjum góðan Guð að passa
elsku afa vel.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Andrea, Lovísa og Eyþór.
Elsku afi.
Ég veit að amma og afi í Nesi hafa
tekið vel á móti þér og hugga mig við
það, það var svo mikill friður yfir þér
þegar ég sá þig við kistulagninguna.
Það eru svo margar minningar
sem fljúga í gegnum hugann á svona
stundu sem eru mér svo dýrmætar.
Við áttum samt eftir að gera svo
mikið saman, halda áfram með reit-
inn þinn, þú talaðir einmitt um það
fyrir stuttu að þig langaði svo að
smíða pall þar fyrir bekkinn og borð-
ið. Ég ætlaði líka að hjálpa ykkur
ömmu í garðinum í sumar og sá að
þú varst byrjaður, nú held ég bara
áfram þaðan sem þú varst kominn.
Þú varst svo einstaklega góður við
alla, alltaf tilbúinn að hjálpa öðrum
ef á þurfti að halda. Það var alltaf
hægt að leita til þín og gerði ég það
oft.
Elsku afi, hvað ég á eftir að sakna
þín. Ég á alltaf eftir að hugsa til þín
þegar kökur eru nálægt, þú varst
svo mikill kökukall. Ef ég bakaði
vöfflur þurfti ég ekki að hringja í þig
og bjóða þér, þú fannst hreinlega
lyktina og varst kominn áður en
maður vissi af. Það verður skrýtin
veiðivatnaferðin í haust að hafa þig
ekki með en þú verður með okkur í
huganum.
Elsku afi, það er svo margt sem
mig langar að segja en ég geymi það
bara hjá mér. Þín
Þórunn Inga.
Síminn hringdi um kl. 21.30 mánu-
daginn 14. maí. Torkennileg rödd
sagði; „Þetta er Guðni. Hann pabbi
er dáinn.“ Ég hikaði smástund.
„Endurtaktu þetta, en segðu mér
fyrst hvaða Guðni þú ert?“ „Guðni
Kristinsson. Hann bróðir þinn er dá-
inn.“ Fyrirgefðu, Guðni minn, það
var víst nógu erfitt að flytja fregnina
einu sinni, hvað þá tvisvar. En ég er
viss um að þessa fregn hefur þurft
að flytja fleirum en mér oftar en einu
sinni til að átta sig á því að fullfrísk-
ur maðurinn nýkominn úr daglegri
kvöldgöngu með hann Gauta sinn
setjist svo í húsbóndastólinn til að
deyja. Við eldri bræðurnir í Nesi
Kristinn Gunnarsson
Elsku Sigga frænka,
nú ertu búin að fá hvíld
frá veikindum þínum
sem þú hefur barist við
undanfarin ár. Þú varst alger jaxl og
kvartaðir aldrei þrátt fyrir að oft vær-
ir þú sárkvalin. Barátta þín var ein-
stök og viljastyrkurinn aðdáunar-
verður.
Þegar ég sit og rifja upp atburði
síðastliðinna ára er það einkum
tvennt sem er efst í huga mínum.
Annars vegar ferðin til Danmerkur
þegar við fórum öll að fagna afmæli
Hemma frænda. Það var yndislegt að
vera öll saman í íbúð í Kaupmanna-
✝ Sigríður Ragn-hildur Vals-
dóttir fæddist á
Akranesi 23. desem-
ber 1959. Hún lést á
Landsspítalanum
við Hringbraut 28.
mars síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Vídal-
ínskirkju 4. apríl.
höfn og geta eytt smá
tíma saman. Kvöldið
var vel heppnað og ég
man hvað það veitti þér
mikla gleði að hitta alla
stórfjölskylduna sam-
an komna í skemmti-
legri veislu. Þá var sko
hlegið og dansað langt
fram á nótt.
Hins vegar er það
ferðalagið til Þórs-
merkur sem við fórum
í fyrrasumar. Þar átti
fjölskyldan saman eina
helgi í yndislegri nátt-
úru þegar við gerðumst móttöku-
nefnd fyrir þreytta göngugarpa.
Nú er komið að leiðarlokum og tími
til að kveðja. Það er huggun harmi
gegn að vel hefur verið tekið á móti
þér hinumegin og nú líður þér vel. Ég
mun ávallt minnast þín með söknuði,
kæra Sigga. Elsku Helgi, Björg, Jói
og Anna Maren, megi Guð veita ykk-
ur styrk í sorginni og styrkja ykkur á
þessum erfiðu tímum.
Elín.
Sigríður Ragnhildur
Valsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR STEFÁNSSON,
rafvirki,
Funalind 1,
Kópavogi,
sem andaðist fimmtudaginn 24. maí, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
31. maí kl. 15.00.
Jarðsett verður í Hafnarfjarðarkirkjugarði.
Dýrleif Kristjánsdóttir,
Reynir Sigurðsson, Sigríður B. Pálsdóttir,
Jóhann Sigurðsson, Helga Guðsteinsdóttir,
Egill Jón Sigurðsson, Arndís Lilja Albertsdóttir,
Kolbrún Sigurðardóttir, Bernhard Svendsen,
Þóra Sigurðardóttir, Axel Ström,
Elva Björk Sigurðardóttir, Sæmundur Eiðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
EYJALÍN GÍSLADÓTTIR,
dvalarheimilinu Vífilsstöðum,
andaðist mánudaginn 7. maí.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gísli Grettisson, Esther Eygló Ingibergsdóttir,
Ingibjörg Vigdís Ottósdóttir, Bergur Geirsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
FRIÐRIK JÓNSSON
frá Bolungavík,
sem andaðist sunnudaginn 20. maí, verður
jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 29. maí kl. 11.00.
Guðrún Anna Ingimundardóttir
og fjölskylda.
✝
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
bróðir,
VALUR SÍMONARSON
stýrimaður,
Brekkustíg 35c,
Njarðvík,
lést þriðjudaginn 15. maí.
Bálför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks taugadeildar B-2
Landspítala Fossvogi.
Margrét Birna Valdimarsdóttir
Valdimar Örn Valsson, Snjólaug Kristín Jakobsdóttir
Margrét Birna Valdimarsdóttir, Eyjólfur Gíslason
Snædís Anna Valdimarsdóttir, Valdís Lind Valdimarsdóttir
og systkin.
✝
SIGRÍÐUR PÁLSDÓTTIR,
Mararbraut 3,
Húsavík,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 24.maí.
Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju miðvikudaginn
30. maí kl. 14:00.
Vandamenn.
✝
Systir mín,
VIKTORÍA M. DANÍELSDÓTTIR,
andaðist á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn
15. maí.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda.
Bárður Daníelsson.