Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 21 MENNING Í VARÐSKIPINU Óðni dregur maður að sér ilminn af hafi, þangi, olíu, blóði, vallhumli; bragðar á vatni, sætu, kaffi, kremkexi; snert- ir kaðla, tré, járn, gler, ilmandi krem, aðrar manneskjur; hlustar á vélardyn, þyrludyn, lúðrasveit, hjörtu sem syngja, öskur skrímsla; einnig kliðandi raddir kvenna sem flytja upphafið bundið mál, útfar- arsálma, dægurlög, siðareglur, mataruppskriftir og biðjast afsök- unar, afsökunar á að vera þarna og gera okkur til góða. Mest horfir maður þó; á konur svífa, dansa, bera glæsilegar við haf og himin, erótískar í sambandi sínu við Ro- yal-búðing, kómískar í umstangi sínu; horfir á þær lokaðar inni í káetum neðan þilja; í þögulli ógn- þrunginni meyjarskemmu, við dapurlegt dánarbeð, andsetnar rauðum ástarsögum, við slát- urgerð, lúbarðar, í glaðværum brjóstaheklklúbbi, spilandi á potta og pönnur. Myndir og aftur mynd- ir límast við sjónhimnuna: hvítir skúlptúrar Höllu Gunnarsdóttur, rauðar kleinur, svart lokkaflóð, dularfull form líkama í myrkri, myndbandsviðtöl, fantasíur um gyðjur og vélar á kvikmyndatjaldi. Það merkilegasta semsé við þetta ferðalag með Vatnadans- meyjunum um varðskipið Óðin í leit að horfnum og nýjum tímum er að þar er höfðað til allra skiln- ingarvita áhorfandans. Áreitið sem hann verður stöðugt fyrir í þess- um leikhúsgjörningi er svo lík- amlegt að vitsmunirnir hætta að leita að merkingu. Maður er bara þarna, lyktar, bragðar, snertir, horfir og hreyfir sig. Annað sem er merkilegt er að hér ríkir ekki þögn og andakt leikhússins eða listasafna. Áhorfandinn, sem oftar en ekki er inni á leiksviðinu miðju, er virkur í hópi sem er rekinn áfram af forvitni. Menn súpa hveljur, reka upp óp, hlæja og gera athugasemdir, spjalla. Það er líka tími og rými til að vera einn með myndum. Merkilegt er líka hversu óhemjuvel þetta ferðalag óreiðu og fjölbreytni (fjörutíu myndir) er skipulagt undir leið- sögn skipsfreyja. Seinna býr maður sér vafalaust til merkingu úr hinu merkilega. Eftir mun sitja í líkamanum það áhrifamesta. Núna hvet ég bara fólk til að drífa sig um borð í Óðin, þar sem hetjur hafsins skriðu eitt sinn skjálfandi í koju undir bein- frosin lök en nú ríkja gyðjur sem ylja, gleðja og hrella með áleitnum myndum úr hugarheimi kvenna. Í faðmi gyðja LEIKLIST Vatnadansmeyjafélagið Hrafn- hildur Vatnadansmeyjafélagið: Guðlaug El- ísabet Ólafsdóttir, Halla Margrét Jóhann- esdóttir, Katrín Þorkelsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Sigrún Sól Ólafsdóttir; Arnar Ingvarsson, Bjartmar Þórðarson, Davíð Þór Jónsson, Eirún Sigurðardóttir, Frosti Friðriksson, Katrín Þorvaldsdóttir, Lína B. Larsen, Ríkey Kristjánsdóttir, Þórunn Elísabet Sveinsdóttir. Skúlptúrar: Halla Gunnarsdóttir. Tónlist: Davíð Þór Jónsson. Kóreógrafer: Bjartmar Þórð- arson. Búningar: Þórunn Elísabet Sveins- dóttir, Ríkey Kristjánsdóttir og Dúsa. Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir. Tónlist: Pétur Þór Benediktsson. Lýsing: Halldór Örn Óskarsson, Hljóðmynd, Ólaf- ur Örn Thoroddsen. Leikarar: Vatnadans- meyjafélagið, Skipsfreyjurnar: Gríma Kristjánsdóttir, Íris Stefanía Skúladóttir, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir og Kristjana Skúladóttir; auk þess 53 aðrir. Höfundar og leikstjórar myndbandanna: Skipsjómfrúin: Sigrún Sól Ólafsdóttir. (Leikari: Guðrún Ásmundsdóttir.) Fæðing Gyðjunnar: Margrét Vilhjálmsdóttir. (Leikarar: Vatnadansmeyjarnar.) Um borð í varðskipinu Óðni í Reykjavík- urhöfn, Miðbakkanum, 23. maí 2007 kl. 20. Gyðjan í vélinni Morgunblaðið/ÞÖK Gyðjur Höfðað er til allra skilningarvita áhorfandans. María Kristjánsdóttir SÍÐASTLIÐINN laugardag hóf ljósmyndagalleríið „Fótógrafí“ starfsemi að Skólavörðustíg 4a og er það hið eina sinnar tegundar hérlendis. Þ.e. gallerí sem sérhæfir sig í listrænum ljósmyndum. Reyndar er sýningarrýmið „Auga fyrir auga“ eingöngu ætlað fyrir ljósmyndir en það er leigusalur fyr- ir ljósmyndara og starfsemin þar af leiðandi annarskonar. Fótógrafí er sölugallerí, undir stjórn Ara Sig- valdarsonar, sem væntanlega hyggst höfða til íslensks almenn- ings og ferðamanna. Að því leytinu er þetta tilraunaverkefni enda hef- ur listræn ljósmyndun aldrei náð þeirri stöðu sem henni ber á Íslandi og er fyrir löngu kominn tími til að skapa henni traust umhverfi hér á landi, borið t.d. saman við hin Norð- urlöndin, og þá sérstaklega Finn- land, þar sem ljósmyndagallerí eru í tugum talin. Í Fótógrafí eru tvö meginrými. Í því fremra eru ljósmyndir og ljós- myndabækur eftir marga af kunn- ustu samtímaljósmyndurum Íslands til sölu. En aftara rýmið er ætlað til sýningarhalds og er það Ragnar Axelsson sem vígir salinn með sýn- ingunni „Kuldi“. Ragnar er alger galdramaður með myndavél og vafalaust einn fremsti ljósmyndari landsins. Hann sækir á mið 19. aldar rómantíkur og ægifegurðar (sublime) og sýnir 12 svarthvítar myndir teknar á snævi þakinni jörð á Grænlandi, Ís- landi og Kanada. Myndirnar eru í hóflegri stærð og í ágætum takti við sýningarrýmið. En ég væri að plata ef ég viðurkenndi ekki að það væri til mikils að sjá þessar myndir í yf- irstærð þar sem myndefnið, eða hið eiginlega „sublime“, gleypti mann í sig. Því að þrátt fyrir nístandi kulda og óveður í óútreiknanlegri náttúru er einhver staðföst ró eða þögn í myndunum, eitthvað sem minnir mann á eigin smæð í stórbrotinni tilveru og framkallar um leið ein- kennilega öryggiskennd í þessari dimmu og kulda. Í stórbrotinni tilveru MYNDLIST Fótógrafí Opið virka daga frá 12-18 og um helgar frá 10-16. Sýningin stendur til enda júní. Aðgangur ókeypis. Ragnar Axelsson Morgunblaðið/ÞÖK RAX Ragnar Axelsson sýnir þessa dagana í Fótógrafí á Skólavörðustíg. Jón B.K. Ransu „FÖNNIN úr hlíðinni fór“ var und- irskrift 15:15-tónleika Caputs á sunnudag og vísaði í upphafslag fimm íslenzkra þjóðlagaútsetninga Johns Speights frá 2004 fyrir rödd og gítar. Lögin voru fremur óþekkt (og ber sízt að vanþakka) en heillandi og vel flutt. Eos og Selena, verk Snorra Birgissonar fyrir keppni píanónema á vegum EPTA, sameinaði hæfilegar nútíma- tæknikröfur og draumflögrandi áferð í þaulkunnugri túlkun. Að því loknu frumfluttu Marta og Snorri Um ástina, fjögur lög úr nýj- um 12 laga bálki eftir Finn Torfa Stefánsson við ljóð eftir Pál Ólafs- son. Kom mér satt bezt að segja í opna skjöldu hvað lögin virkuðu „spontön“ og aðgengileg, því þó að launtónalt tónferlið lægi fráleitt allt á yfirborði dró það aldrei þessu vant ekki úr frjálsu flæði tilfinninga. Öllu heldur minntu tjábrigðin í innlifaðri túlkun þeirra Mörtu á þá fornvirtu klassísku kúnst að láta listina fela listina. Góðs viti á módernískri skeggöld … Í frjálsu flæði TÓNLIST Norræna húsið Verk eftir John Speight, Snorra Sigfús Birgisson og Finn Torfa Stefánsson. Marta Guðrún Halldórsdóttir söngur, Snorri S. Birgisson píanó og Páll Eyjólfs- son gítar. Sunnudaginn 20. maí kl. 15:15. 15:15-tónleikar  Ríkarður Ö. Pálsson ORGELLEIKARINN, stjórnand- inn og tónskáldið Michael Radulescu (f. 1943), er hingað kom fyrir milli- göngu Kórs Langholtskirkju, List- vinafélags Hallgrímskirkju og Tón- skóla þjóðkirkjunnar og lék barokkverk í Langholtskirkju þrem dögum áður, hélt tónleika í Hall- grímskirkju á sunnudag. Radulescu hefur verið prófessor í organleik við Tónlistarháskólann í Vínarborg síð- an 1968 og átti að þessu rituðu eftir að stjórna tveim Bach-kantötum (BWV 21 & 193) í Langholtskirkju fjórum dögum síðar. Tvö í sjálfu sér minniháttar atriði ollu orgelfíklum smávonbrigðum í Hallgrímskirkju. Leikið var uppi, þannig að handa- og fótaburður snillingsins var úr augsýn hlustenda, og viðfangsefnin buðu ekki upp á neinar þær flugeldasýningar sem stundum hafa fyllt guðshúsið á Skólavörðuholti svartapúðursreyk, heldur voru flest í þyngri og/eða íhugulli kanti. Eina barokkverkið að þessu sinni var hin volduga c-moll Passacaglía Bachs er sakir fullmikils legatóspils fyrir Hallgrímskirkju varð ekki eins skýr og hefði getað orðið, auk þess sem pedalleikurinn var óþarflega sterkur, en skilaði sér annars af viðeigandi tign. Hvor- tveggi annmarki hefði e.t.v. minnkað á neðra leikborði þar sem flytjand- inn heyrir orgelið betur úr fjarlægð. Fjórir sálmforleikir Brahms frá 1896 komu bráðfallega út, einkum Schmücke dich, o liebe Seele í íðil- fögru raddvali. „EPIPHANIAI“ (1989) eftir organistann um tilvitnun úr Opinberun Jóhannesar (21,1) var býsna tilkomumikið verk með þrum- andi kosmískum heimsendablæ er eins hefði getað vísað fram á um- breytingu sólarinnar í rauðan risa að fimm milljörðum ára liðnum. Hinn kortérslangi 3. Kóral Césars Franck frá dánarári hans 1890 lauk þessum vönduðu tónleikum með ýmist kraft- mikilli dramatík eða paradískum un- aði. Heimslokaorgel TÓNLIST Hallgrímskirkja Verk eftir Bach, Brahms, Radulescu og Franck. Michael Radulescu orgel. Sunnudaginn 20. maí kl. 17. Orgeltónleikar  Ríkarður Ö. Pálsson EDEN - HVERAGERÐI Sýningu Bjarna Jónssonar listmálara lýkur að kvöldi annars í hvítasunnu. Fáðu úrslitin send í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.