Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 25
tíska MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 25 Þ etta er hörkupúl og óhætt að segja að ég sé vakin og sofin í starf- inu,“ segir Elma Back- man á símalínunni frá París og hlær. „Ég hafði auðvitað heyrt margar hryllingssögur af bransanum í anda bókarinnar The Devil Wears Prada, sem svo var kvikmynduð, eins og af hrikalegri samkeppni og hræðilegum starfs- anda þar sem samstarfsfólk vílaði ekki fyrir sér að stela hugmyndum hvert annars og setja fram sem sín- ar eigin, svo ég vissi ekki hverju ég gæti átt von á.“ – Er hátískuheimurinn svona? „Já, að mörgu leyti, það er gríðarleg samkeppni og fólk svífst oft einskis til þess að koma sér á framfæri. Í heiminum er mikill fjöldi fatahönn- uða, sem flesta dreymir um að kom- ast til Parísar og eru tilbúnir að leggja mikið á sig til að fá tækifæri þar, jafnvel að vinna fyrir ekki neitt.“ – Og hvað varst þú tilbúin til að leggja á þig? „Ég fékk tækifæri án þess að biðja um það beinlínis, sem er auð- vitað frábært. Þetta er nánast eins og draumur. Við útskriftina í fyrra héldum við nemar í fatahönnun við Listaháskóla Íslands tískusýningu og á hana var boðið m.a. erlendum blaðamönnum. Í kjölfarið var birt viðtal við mig og mynd af hönnun minni í franska blaðinu Crash Ma- gazine en það er mjög þekkt tísku- blað hér í París og virt fagblað í þessum geira. Þá fóru í raun hjólin að snúast, ég fékk tilboð og ýmsar leiðir opnuðust. Ég væri hins vegar ekki hér ef ekki væri fyrir Lindu Árnadóttur, deildarstjóra fatahönn- unar Listaháskóla Íslands, sem hef- ur bæði verið mér innan handar og greitt mér leið í gegnum tengslanet sitt.“ Hefur gaman af U-beygjum Í efnisyfirliti blaðsins er Elma Backman ekki á meðal minni nafna í tískuheiminum en Chanel, Dior, McQueen, Laurent og Vuitton. „Ég ákvað að taka boði Martine Sitbon.“ Hönnuðurinn Sitbon fædd- ist árið 1951 í Marokkó, sem eitt sinn var frönsk nýlenda, móðir hennar var ítölsk og faðir franskur. Hún stofnaði sitt eigið tískuhús árið 1985 og sýndi þá í fyrsta sinn en í dag er hún einn af leiðandi hönnuðum Par- ísarborgar og hefur m.a. hannað fyr- ir Chloë. Elma segist hafa fengið að spreyta sig mikið í faginu sjálfu en það sé ekki alltaf sjálfgefið. „Meg- inverkefni fatahönnuða sem annarra sem eru að stíga sín fyrstu spor í há- tískunni hér geta snúist um að hella upp á kaffi eða sópa gólf. Ég hef fengið að spreyta mig, að teikna, skissa og hanna. Hjá Martine Sit- bone er mikið unnið í hópum að hug- myndum sem þar eru þróaðar áfram,“ segir hin 29 ára Elma sem hefur ef til vill víðtækari starfs- reynslu en margir sem eru að byrja í faginu. „Ég hef nokkrum sinnum tekið U- beygjur í lífinu og þetta er ein af þeim,“ segir hún. „Ég er alin upp í umhverfi skapandi fólks og lista- manna. Ég var grafískur hönnuður og vann við það í nokkur ár en ákvað svo að læra fatahönnun þrátt fyrir að hafa aldrei saumað neitt að ráði. Í Listaháskólanum kynntist ég sviðs- listum og hef unnið töluvert í leik- húsunum, sem mér finnst afskaplega heillandi. Stökkið til Parísar var mjög óvænt. Ég bjóst ekki við að vera hér núna en stundum er ekki annað að gera en skella sér í djúpu laugina. Ég get ekki annað en grætt á þessu,“ segir konan sem klæðist nú ekki lengur íslenskri lopapeysu og leðurstígvélum eins og fyrsta vinnu- daginn í París heldur kvenlegum sumarkjólum og hælaháum skóm. „Mér var nánast snúið við en ég er að hrífast af Parísartískunni,“ segir Elma Backman og hlær. Persónuleg Elma tengir saman ólíka strauma í hönnun en setur sitt persónulega mark á hana. Efnileg Elma Backman fatahönnuður fékk óvænt tækifæri til að starfa hjá hátískuhúsi í París sem svo marga dreymir um. Frönsk umfjöllun Elma heillaði blaðamann Crash Magazine sem sagði hana hafa alla burði til þess að ná langt á alþjóðlegum vettvangi. Mætti í lopapeysu í Parísartískuna Hús Martine Sitbone er ekkert venjulegt hús heldur hátískuhús í París en í því húsi vinnur Elma Back- man, nýútskrifaður fatahönnuður. Hún fór hraðleið- ina í Parísartískuna, beint úr hönnunar- og arkitekt- úrdeild Listaháskóla Íslands, og segir tískulífið jafnskrautlegt og spennandi og af er látið. Krínólínukjóllinn Frakkarnir voru hrifnir af útfærslu Elmu á hinum goðsagnakennda krínólínukjól Maríu Antonettu. Eftirsóknarverð eingangrun Landfræðileg einangrun hönn- uðarins var sögð koma í veg fyrir að verk hans þynntust út. „Niðurstaðan er sú að Elma Backman sker sig úr hópi samnemenda sinna á útskriftarári með línu sem sæmir frekar útskriftar- nema úr skóla einhverrar tískuháborgarinnar en skóla eyþjóðar þar sem íbúafjöldi höfuðborgar- innar er 150.000,“ segir í umsögn Crash Magasin. Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.