Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING JAPANIR munu í sumar veita Al- þjóðlegu Manga- verðlaunin fyrsta sinni, fyr- ir afrek á sviði teiknimynda- gerðar. Þessu greindi utanrík- isráðuneyti landsins frá í vikunni, en utanríkisráðherrann, Taro Aso, er mikill áhugamaður um Manga-teiknimyndasögur og -teiknimyndir. Aso líkti verðlaununum við Nób- elsverðlaunin í fyrra, þegar hann bar hugmyndina um verðlaunin fram. Verðlaunin munu þeir lista- menn hljóta sem búa á erlendri grundu, þ.e. utan Japans, sem tek- ist hefur best að breiða út hróður þessarar sérstöku og sér-japönsku gerðar teiknimynda. Manga-sögurnar einkennast af nokkuð flóknum söguþræði, sam- anborið við ofurhetjuteiknimynda- sögur Vesturlanda, og sérstökum teiknistíl. Mikil áhersla er lögð á að gera söguhetjurnar fríðar eða krúttlegar. Manga er í raun jap- anska orðið yfir teiknimyndasögur og hefur fest sig við ákveðna gerð þeirra. Þessar teiknimyndasögur eru afar vinsælar víða um heim en stíllinn sem þær eru þekktar fyrir var fullmótaður undir lok Seinni heimsstyrjaldar. Vinningshafar fá bikar Vinningshafar Manga-verð- launanna, þeir sem lenda í efstu þremur sætunum, munu fá við- urkenningarskjal og bikar hinn 2. júlí næstkomandi. Þeir munu dvelja í Japan í 10 daga og kynn- ast þar teiknurum og framleið- endum Manga-teiknimyndasagna. Utanríkisráðherrann telur að aðdáun á Manga í heiminum geti bætt ímynd Japans og utanrík- isstefnu landsins í kjölfarið. Hann hefur lagt það til að Manga- listamenn verði gerðir að menn- ingarsendiherrum og nefnd verið skipuð til að efla enn frekar út- breiðslu Manga og japanskrar menningar. Manga- verðlaun Utanríkisráðherra mikill aðdáandi Manga SJÖ BRESKAR bókabúðakeðjur hefja í dag mark- aðsherferð með bókum sem eiga að höfða til þel- dökkra og minni- hlutahópa í Bret- landi. 70 versl- anir munu bjóða upp á bækur eft- ir ríflega 200 höfunda sem höfða eiga til þessa lesendahóps. Þessar verslanakeðjur eru Bord- ers, Books Etc, WH Smith, WH Smith Travel, Waterstone’s og Foyles-bókabúðin í Lundúnum, auk BondsBooks í Birmingham. Bóka- búðirnar réðust í átakið í samstarfi við enska listaráðið, Arts Council of England, en það er hluti af átaki sem auka á fjölbreytni í listum í landinu. Átakið var gert í kjölfar könn- unar sem leiddi í ljós að aðeins 18% bókabúða í Bretlandi byðu upp á sérstakar deildir með lesefni fyrir minnihlutahópa í landinu. Slíkur markaður gæti þó aukið tekjur fyr- irtækjanna gríðarlega. Bækur fyrir minni- hlutahópa Books etc. Á HVÍTASUNNUDAG kl. 16 fer fram síðasta stofuspjallið um verk mánaðarins á Gljúfrasteini í bili. Að þessu sinni mun Haukur Ingvarsson skáld og einn af umsjón- armönnum Víðsjár á Rás 2 beina sjónum sínum að Guðs- gjafaþulu sem er síðasta eig- inlega skáldsaga Halldórs Laxness. Haukur mun rýna í áhugaverða kafla í skáld- sögunni og leitast við að varpa ljósi á samtíma- viðtökur bókarinnar sem og síðari tíma rann- sóknir á verkum Halldórs Laxness. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Bókmenntir Spjallað um Guðsgjafaþulu Halldór Laxness KAMMERKÓR Suð- urlands, ásamt Sig- rúnu Hjálmtýsdóttur söngkonu og Gunnari Þórðarsyni tónskáldi, heldur til Frakklands núna í byrjun júní og tekur þar þátt í ís- lenskri menning- arhátíð. Hátíðin er haldin í Alsace-héraði og mun kórinn meðal annars halda tónleika í kirkju heilags Tómasar í Strassborg. Kammerkór Suðurlands á 10 ára starfsafmæli á þessu ári. Stjórnandi hans er Hilm- ar Örn Agnarsson, tónlistarstjóri í Skálholti. Tónlist Kammerkór Suðurlands í víking Kammerkór Suðurlands NÝ ljóðabók er komin út frá JPV útgáfu. Kallast hún Á mörkum og er eftir Valgarð Egilsson, rithöfund og krabba- meinslækni. Valgarður er fæddur á Grenivík við Eyja- fjörð árið 1940. Hann hefur lengi iðkað skáldskap og gefið út ljóð, leikrit og skáldsögu. Ljóðin í þessari bók bera merki æviferils höfundar sem ólst upp í nánu samneyti við náttúruna en lagði síðar fyrir sig rannsóknir á frumeigindum lífvera – á mörkum. Bókin fæst í öllum betri bókabúðum og kostar 1.990 krónur. Bókmenntir Ný ljóðabók frá Valgarði Egilssyni Valgarður Egilsson Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is FYRSTI dómurinn sem kom var í Evening Standard og þar fékk sýn- ingin eina stjörnu af fimm mögu- legum. Gagnrýnandinn sagði að ein- hver ætti að fremja líknardráp á þessari sýningu,“ segir Gísli Örn Garðarsson sem fer með eitt af aðal- hlutverkunum í A Matter of Life and Death, leikriti sem byggt er á samnefndri mynd frá 1946. Verkið er sett upp á stóra sviðinu í Þjóð- leikhúsinu í Lundúnum um þessar mundir og hefur það valdið miklum ritdeilum milli gagnrýnenda og Nicholas Hytner þjóðleikhússtjóra. Að sögn Gísla birtust fleiri slæmir dómar um sýninguna í kjölfar þess sem birtist í Evening Standard. „Þá skrifaði þjóðleikhússtjórinn grein í The Times þar sem hann kallar gagnrýnendur „dead white men“,“ segir Gísli, og útskýrir að gagnrýn- endur á stóru blöðunum séu flestir karlkyns. „Hann telur að þeir þoli ekki kvenleikstjóra, leikstjórinn er nefnilega kona, Emma Rice. Það sýndi sig líka nokkrum dögum seinna þegar fimm stjörnu dómar frá kvenkyns gagnrýnendum birt- ust.“ Vekur mikla athygli Ekki voru allir ánægðir með skrif Hytners enda segir Gísli það ný- mæli að maður í hans stöðu skuli gagnrýna gagnrýnendur, hvað þá að hann skuli kalla þá „dauða hvíta menn“. „Leikhúsfólkið hérna gagnrýnir þjóðleikhússtjórann fyrir að hafa farið með þetta á þetta plan, því þetta snúist ekki um hvort þú sért kona eða karl, heldur um að gagn- rýnendur vilja fá meira af texta- leikhúsi. Þeir séu að hverfa frá því að fjalla vel um sýningar sem eru „líkamlegar“ og stórar, þeir hæli frekar sýningum þar sem bara er staðið á sviðinu og talað,“ segir Gísli, og bætir við að A Matter of Life and Death sé mjög sjónræn sýning. Gagnrýnendur hafa svarað grein leikhússtjórans og hefur ritdeilan vakið mikla athygli á sýningunni. „Þetta er búið að stútfylla húsið hjá okkur, menn mæta og svo er spurn- ing hvort þeir hata þetta eða elska. En þetta er allavega umtalaðasta sýningin hér núna þannig að það er pakkað á öllum sýningum.“ Verkið gerist í síðari heimsstyrj- öldinni og hefst á því að bresk her- flugvél hrapar til jarðar. Flugstjór- inn nær sambandi við bandaríska stúlku í gegnum talstöð og verður ástfanginn af henni áður en vélin ferst. Hann lifir hins vegar af þar sem engill sem sendur var til að sækja hann gerir mistök, en Gísli leikur einmitt engilinn. Gísli segir að myndin sé í miklu uppáhaldi hjá Bretum. „Mér fannst myndin hins vegar hundleiðinleg – sýningin er miklu betri.“ Gagnrýnendur gagnrýndir  Gísli Örn Garðarsson fer með eitt aðalhlutverkanna í umdeildri sýningu í Lund- únum  Þjóðleikhússtjórinn svarar gagnrýnendum fullum hálsi í The Times Líf og dauði Tristan Sturrock í hlutverki flugmannsins og Gísli Örn sem engillinn í A Matter of Life and Death. Þótt verkið hafi fengið misjafna dóma hafa leikararnir víðast hvar fengið lof fyrir frammistöðu sína í verkinu. Í HNOTSKURN » Nicholas Hytner þjóðleik-hússtjóri kallaði gagnrýn- endur „ dauða, hvíta menn“ í grein í The Times. » Gísli hefur áður unniðmeð leikstjóranum Emmu Rice en hann lék í Nights at The Cirkus sem sett var upp fyrir ári. » A Matter of Life andDeath verður sýnt til 21. júní. KVENNAKÓR Reykjavíkur mun næsta miðvikudag, 30. maí, kl. 11.30, halda tónleika í hinni víðfrægu og ægifögru Notre Dame-kirkju í Par- ís. Þar flytur kórinn kirkjuleg verk, flest íslensk, í hálfa klukkustund. Sigrún Þorgeirsdóttir kórstýra segir ekki hafa verið hlaupið að því að fá að halda tónleika í kirkjunni. „Það var ekki svo einfalt, við fengum dygga aðstoð í Frakklandi við að koma skilaboðum á milli,“ segir Sig- rún. Kórinn hafi sent umsókn með lýsingu á kórstarfinu og geisladiska með söng kórsins. Íslensk kona sem búsett er í París og kallar sig Kristínu Parísardömu var milliliðurinn. „Hún aðstoðar fólk með hitt og þetta og útvegaði fyrir okkur leyfi til að syngja í kirkjunni og fyrir utan hana. Það þarf leyfi borgaryfirvalda fyrir því,“ segir Sig- rún. Efnisskrá kirkjutónleikanna hafi kórinn sungið í nóvember síð- astliðnum. Fyrir utan kirkjuna verð- ur svo flutt veraldlegt efni, íslensk þjóðlög og fleira á færibandi. Kórinn heldur að Parísarferð lokinni til Mið- Ítalíu, fer þar á alþjóðlegt kóramót, Orlando di Lasso, kennt við sam- nefnt tónskáld. Kórinn fær að syngja í kirkju í borginni Loreto, sem er mikill píla- grímastaður. „Það er alltaf gaman að komast í kórferðir, það hvetur kórinn til að gera enn betur og hann heyrir um leið hvað aðrir eru að gera,“ segir Sigrún. Kvennakór Reykja- víkur í Notre Dame Frúarkirkjan Notre Dame stendur á eyju í miðri Signu í Parísarborg. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.