Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 33 Ármúla 42 · Sími 895 8966 mánudaga - föstudaga 10-18 laugardaga og sunnudaga 11-18Opið Mikið úrval af nýjum gjafavörum Opið alla Hvítasunnu- helgina Frábært verð Feng-Shui vörur í úrvali FIMMTUDAGINN 24. maí síðast- liðinn var frétt á baksíðu Morg- unblaðsins varðandi íslenska nið- urhalssíðu þar sem hneykslast var á að aðgangur væri að japönskum „nauðgunarklámtölvuleik“ á síð- unni. Ekkert var í téðri frétt til að benda á að þessi síða á lof skilið fyrir vel heppnað deilikerfi þar sem persónuvernd (notenda) og há- marksþægindi og hraðvirkni kerf- isins eru í fyrirrúmi. Ég vil líka benda á að kerfi síðunnar virkar þannig að á henni er einungis sam- antekt skráa sem notendurnir deila með samfélaginu, ekki safn leikja sem stofnendur hafa tekið saman. Síður eins og þessi hafa sitt eigið samfélag sem gengur út á að út- vega skemmtiefni, en sumir telja ýmislegt skemmtilegt sem aðrir telja ekki skemmtilegt, og stundum gengur það svo langt sem það gerði. En allir geta verið mér sam- mála um að það að loka fyrir heilt samfélag vegna nokkurra rudda er alls ekki réttlátt. GUÐBRANDUR MAGNÚSSON, Laugarnestanga 62. Samhengið alrangt Frá Guðbrandi Magnússyni Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is HVE það er hræðilegt að vera normal. Ég hef heldur aldrei af- borið það. Viðmið samfélagsins eru orðin svo óvistvæn náttúru manns- ins. Fólk er hlekkjað í félagslegt hegðunarmynstur sem hefur gert það að holdlegum vélmenum. Búið er að forrita fólk fyrir neyslu- samfélagslega hegðun sem felst í því að vinna lengur en frá níu til fimm og kaupa meira í dag en í gær. Búið er að eyðileggja mann- eskjuna frá blautu barnsbeini með því að gera hana að þræli þjóð- félagsins. Æðri og háleitari hug- sjónir eru taldar vera hjátrú, hind- urvitni og í versta falli geðveiki. Náttúrubörn eru litin hornauga og guðsmennirnir hafðir að athlægi og krossfestir fyrir lífstíð af lýðnum. Raunverulegt fólk er erfitt að finna nema þá helst sérvitringa sem mæla göturnar eða heilaga menn sem lokaðir eru inni á geð- deildum háskólasjúkrahúsa. En það er bara ekkert spennandi að vera normal. Það opnar nýja veröld að vera skrítinn. Það opnar tilveru hins sanna lífs að leyfa sér að vera raunverulegur, laus við forritun og gildi samfélagsins, stjórn- málastefnanna, heimspekinnar, trúarbragðanna og hinnar við- urkenndu heimsmyndar. Að þora að vera raunverulegur maður er ekki á allra færi enda fjöldinn skemmdur og þar af leiðandi ófær um að lifa eðlilegu lífi. Ég tek ofan fyrir skrítnu fólki, því sem samfélagið hefur sett til hliðar, stimplað í þriðja flokk og úthýst. Nútíma siðmenning er ómenning sem fer illa með manneskjuna og fórnar henni á altari fégræðginnar. Hún bannar fólki að gráta undan hinni illu meðferð. Hún bannar fólki að þreytast og lýjast undan svipuhöggum þrælahaldara. Hún bannar fólki að dreyma um raun- verulegt líf og raunverulegt fólk. Þeir sem þrá raunveruleikann verða að vera svolítið meir en geggjaðir. Þess vegna hef ég verið öðruvísi í mörg ár og uni mér best á meðal skrítna fólksins. Ég get lifað laus við blekkingu þrælahald- ara úti í óbyggðum langt frá ósið- menningu nútímans og ræktað andann sem Guð blés mér í brjóst er hann gaf mér lífið – hið raun- verulega líf. EINAR INGVI MAGNÚSSON, Heiðargerði 35, Reykjavík. Raunverulegt fólk Frá Einari Ingva Magnússyni MARGIR heimamenn við Þjórsá sjá nú fyrir sér bjartari framtíð eftir að ný ríkisstjórn Sam- fylkingar og Sjálfstæð- isflokks tekur við völd- um í landinu. Aftur vakna vonir um að ekki verði ráðist á sunn- lenska náttúru, um- hverfi og eignarlönd bænda. Vissulega hefur virkjanaáformum neð- an til í Þjórsá ekki enn verið aflýst. En vænt- ingar eru miklar. Skýr stefna forystu Sam- fylkingarinnar um að virkja Þjórsá ekki meira að sinni getur komið í veg fyr- ir stórtjón á samfélagi og náttúru í sunnlenskum byggðum. Efnahags- leg rök, þensla á Suðvesturlandi og þörf á framkvæmdum í öðrum byggðarlögum þar sem atvinnuleysi vofir yfir, hljóta líka að vega þungt þegar ný ríkisstjórn endurmetur stöðuna. Bændur og landeigendur eru þakklátir fyrir einarða afstöðu Björgvins G. Sigurðssonar, oddvita Samfylkingarinnar í Suður- kjördæmi, og mikilvægt framlag hans til umræðunnar í vor. Björgvin hafði forystu um að fá fram við- urkenningu stjórnmálamanna úr flestum flokkum um að eignarnám komi ekki til greina við Þjórsá. Unnendur Þjórsár fagna því heilshugar að hafa nú fengið góðan liðstyrk inn í ríkisstjórnina til að verja Þjórsá. Þórunn Sveinbjarnardóttir, nýr umhverfisráðherra, er líkleg til að umgangast náttúruna og fólkið í landinu af fullri virðingu. Björgvin á einnig þakkir skildar fyrir að vekja athygli á náttúruperlum við Þjórsá. Hann vill að þær verði kortlagðar nákvæmlega áður en ákvörðun verð- ur tekin um framhaldið. Sjálfur taldi hann líkur á því að sú athugun myndi leiða til friðlýsingar. Björgvin G. Sigurðs- son er heimamaður við Þjórsá og þekkir vel til. Það gera hins vegar ekki þeir sem talað hafa opinberlega um hve litlu sé fórnað með smávægilegum rennsl- isvirkjunum í mann- gerðu landslagi. Með innkomu Samfylkingar í ríkisstjórnina hljóta augu ráðherranna að opnast fyrir því sem réttara reynist. Við treystum því. Margir heimamenn við Þjórsá ætla að nota sumarið til að bjóða öll- um náttúruunnendum og þeim sem taka afstöðu til virkjana á Suður- landi heim til sín og í ferðir til að kynna náttúruna og mannlífið við Þjórsá. Fyrsta ferðin sem nær meðfram áætluðum virkjanasvæðum í byggð verður í byrjun júní. Farið er á hestum. Riðið verður með bökkum árinnar, skoðaðir fossar og flúðir og fallegt landslag. Það er sannarlega ekki manngert, ef frá eru talin all- mörg háspennumöstur sem helst þurfa að komast í jörð sem fyrst. Síðar í sumar verða í boði göngu- ferðir að fossunum Búða, fossinum Dynk inni á hálendinu og í Þjórs- árver. Heimilisfólk á bæjum og í sumarbústöðum við ána ætlar líka að bjóða ferðafólki til sín. Enginn Íslendingur ætti að sleppa því að kynnast Þjórsá og styðja við þá sem lifa við ána og vilja að hún streymi áfram til sjávar í friði. Með tilkomu Samfylkingar í ríkisstjórn vakna vonir um að ekki verði ráðist í virkjanir neðan til í Þjórsá segir Björg Eva Erlendsdóttir Björg Eva Erlendsdóttir Höfundur er félagi í samtökunum Sól á Suðurlandi. »Unnendur Þjórsárfagna því heilshugar að hafa nú fengið góðan liðstyrk inn í ríkis- stjórnina til að verja Þjórsá. Friður við Þjórsá flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.