Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Bátar Pungapróf - Þórshöfn - júní. Pungapróf 30 brl. skipstjórnarnám- skeið haldið á Þórshöfn og byrjar 5. júní. Námskeiðsgögn innifalin. Upplýsingar og skráning punga- prof@skip-stjori.com Bílar Þessi glæsivagn er til sölu. Sóltjald, sjónvarp, ísskápur, örbylgjuofn, gaseldun, WC. Rúmgott svefnpláss, 8 sæti. Upplýsingar í síma 557 7160 og 693 2923. VW TOUAREG V6 07/2005 Hlaðinn aukabúnaði, m.a. topplúga, leð-ursæti, m. minni, Xenon ljós, fjarl.skyn. o.m.fl. Ekinn 19 þ. km. Einn eigandi. Verð 4.590 þús. Vel með farinn bíll. Uppl. í síma 660 7067. Til sölu Suzuki Swift árgerð 1996 ekinn 155 þús. km. Verð 140.000 kr. Upplýsingar í síma 695 2414. Suzuki jimny árg. '99 ek. 77 þús. km. Mjög vel með farinn Suzuki jimny og vel útlítandi. Einstak- lega lítið keyrður miðað við árgerð. Er að flytja til útlanda og vantar að losna við bílinn sem fyrst. Uppl. í síma 861 7927. SILVERADO - árg. '98 ek. 199 þús. km. Silverado 2500 6,5 dísel turbo árg 98 ek 199 þús km. 2 eig frá upp- hafi + smurbók.Góður bíll sem tekur auðveldlega 3 krossara á pall. Verð 1290 þús. Áhvílandi 660 þús. Sími 694 4887 Saab árg. '01, ek. 67 þús. km. Saab 9-5 árgerð 2001, sjálfskiptur og steingrár, ek. 67 þús. Nýskoðaður og í mjög góðu ástandi. Eðaleintak! Uppl. í síma 669 9553. Opel árg. '06, ek. 27 þús. km. Opel Astra Station, árg. 2006. Ekinn 27 þús. km. Sumar- og vetrardekk. Verð 1.750.000. Uppl. í síma 662 8655. MMC Pajero árg. 2003, ek. 60 þús. km. MMC Pajero 3,2 DID 2/2003. Ekinn 60 þús. Svartur. Dráttarbeisli, fjarstart. Einn eigandi. Verð 3.350. Uppl. í síma 899 0869. Mercedes Benz 200 Kompressor Árgerð. 2004. Ekinn 51 þús km. Ssk. Topplúga o.fl. Verð aðeins 3.493.255. Upplýsingar í síma 899 8236. Hyundai SantaFe árg. '02 ek. 97 þús. km. Gott eintak. Ný tímareim. Skoðaður 2008. Góð dekk og möguleiki á fleiri umgöngum. Ekkert áhvílandi. Ath. tilboð 1.650 þús. stgr. Uppl. í síma 822 1667 (Stefán). Ford Mustang árg. ’98 Vél 4,6. V8. Ekinn 63.000 mílur. Auka- felgur. Verð 1.200. Áhv. 350.000. Uppl. í síma 866 0532. Ford Escape XLT, árg. '03, ek. 38 þús. km. F. Escape des ‘03, svartur, leður, lítið ekinn, vel með farinn. Aukadekk og mottur. 6 diska spilari, þokuljós, air cond., skíðabogar o.fl. Verð aðeins 2,2 milljónir. S. 897 4465. Audi A4 2.0 S-Line Einstaklega vel með farinn, árg. 2005, ek. 23 þús.km. Topplúga. Leður, 18’’ felgur, sjálfskiptur með skiptingu í stýrinu, fleiri aukahl. Enginn skipti. Uppl. 897 4526, Þröstur. Ökukennsla Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla - akstursmat. Sigurður Jónasson Toyota Rav4 ‘06 822 4166. Snorri Bjarnason BMW 116i, bifhjólakennsla, 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '06 892 4449/557 2940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '06, 696 0042/566 6442. Gylfi K. Sigurðsson Suzuki Grand Vitara, 892 0002/568 9898. Kristófer Kristófersson BMW 861 3790 Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza 2006, 4 wd. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042. Oneway 1224 kanadískur trérennibekkur Alvöru bekkur fyrir vandláta. 1HP mótor, stiglaus hraðastýring 0-4500 RPM, drif- & leguoddur, stronghold patróna. Mjög hljóðlátur. Uppl. trelist@simnet.is. S. 553 1580. Tómstundir Vélar & tæki Til leigu með/án manns. Gerum einnig tilboð í hellulagnir og drenlagnir. Upplýsingar í síma 696 6580. Mótorhjól Honda VTX 1300, árg. 2005, ekið 4.800 míl., fullt af aukahlutum, verð 1.250 þús. Upplýsingar í síma 863 2500. Hjólhýsi Til sölu vinsælasta hjólhýsið frá LMC, Dominant 560 RBD Árg. ‘06. Hjólhýsið er sem nýtt með Alde gólfhitakerfi,stórum ísskáp, útvarpi, markísu, sólar rafhleðslu o.fl. Uppl. í síma: 897 2737 og 696 6566. Til sölu 35 fermetra risahjólhýsi með öllu. Þrjú svefnherbergi , stofa, eldhús, wc og bað. Stærð 35 x 10 fet. Árgerð 2002. Verð aðeins 1850 þús. Upplýsingar í síma 893 6020 milli kl. 13:00 og 18:00 Hobby 540 UFE Excelsior m/leðri. Til sölu stórglæsilegt hjólhýsi m/ljósu leðri og fallegum innréttingum, árgerð 2007. Fæst á mjög góðu verði. Uppl. í síma 660 4568. Hjólhýsi til leigu Lengdu sumarið í leiguhjólhýsi frá okkur. Öll ný 2007 módel. Fullbúin og tilbúin í ferðalagið. Bæði á Íslandi og í Danmörku Sími 587 2200, 898 4500. www.vagnasmidjan.is Hjólhýsi til leigu Hjólhýsi með uppbúnum rúmum og öllu tilheyrandi. Helgarleiga eða viku- leiga. Sendum - sækjum. 6 gerðir hjólhýsa til sýnis hjá Gistiheimilinu Njarðvík. Geymið auglýsinguna. Símar 421 6053 og 898 7467 Húsbílar ECONOLINE HÚSBÍLL 6, 9D 9 m. svefnpl 6+ öll þægindi; vaskur, eldav. ísskáp, gasmiðst., heitt/kalt vatn. 220v 2rafg., wc, tv, dvd, 10 við 2 borð mikið pláss. Gott ástand v1200 þ. Uppl. í 6604888/reynirs@islandia.is Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Smáauglýsingar sími 569 1100 Í DAG hefjast í Elista, höfuðborg Kalmykíu, svokölluð áskorendaein- vígi FIDE sem hafa það að markmiði að velja fjóra keppendur á heims- meistaramótsið í Mexíkó í haust. 16 stórmeistarar eru mættir til Elista og verða tefld sex skáka einvígi með útsláttarfyrirkomulagi þar til fjórar verða eftir sem fá þátttökurétt Mexíkó. Teflt er eftir hinu svonefnda Wimbeldon-fyrirkomulagi, stiga- hæsti keppandi mætir nr. 16, nr. tvö teflir við nr. 15 o.s.frv. Verði jafnt eftir sex skákir taka við at-skákir. Vinni stigalægri keppendinn hlýt- ur hann rásnúmer þess sem hann sigraði. Átta einvígi byrja í dag í El- ista. Sigurvegararnir halda svo áfram og tefla um þátttökuréttinn á mótinu í Mexíkó 12.-30. september nk. Þar eiga sæti heimsmeistarinn Kramnik, Anand, Svidler og Moroze- vich. Eins og áður hefur komið fram á Venselin Topalov þessi ekki kost á að vera með í Mexíkó. Niðurröðun einvígjanna er þessi ásamt rásnúmerum: 1. Lev Aronian – 16. Magnús Carlsen 2. Peter Leko – 15. Mikhael Gurevich 3. lan Ponomariov – 14. Sergei Rublevsky 4. Boris Gelfand – 13. Rustam Kazimzhanov 5. Etienne Bacrot – 12. Gata Kamsky 6. Alexander Grichuk – 11. Vla- dimir Malakhov 7. Judit Polgar – 10. Evgenij Ba- reev 8. Alexei Shirov – 9. Michael Adams Hvernig keppendur eru fundnir í þetta mót er algerlega á reiki. Svæðamót hafa verið aflögð og einn- ig millisvæðamót. Þau skáksambönd sem eiga aðild að FIDE virðast ætla að láta gerræði Kirsan, Azmaparas- hvili og félaga yfir sig ganga. Hvað um það. Von er á skemmtilegri keppni og verður gaman að fylgjast með Judit Polgar sem ekki hefur teflt einvígi síðan hún mætti Borís Spasskí í Búdapest 1993 – og vann. Þá vekur þátttaka Magnúsar Carl- sen mikla athygli en hann á auðvitað við ramman reip að draga í fyrstu umferð. Á sama tíma fer fram Sarajevo í Bosníu öflugt alþjóðlegt skákmót. Eftir sex umferðir er Hellismaður- inn Serge Movsesian frá Slóvakíu efstur með 4½ vinning. Meðal þátt- takenda er tveir góðkunningjar Ís- lendinga þeir Nigel Short og Ivan Sokolov en skák þeirra úr fjórðu um- ferð fer hér á eftir. Short beitir óhik- að þeim byrjunum sem voru hvað vinsælust á 19. öld, kóngsbragði og Evans-bragði. Kasparov gerði 7. leikinn, Be2 vinsælan með því að vinna Anand á í aðeins 25. leikjum á alþjóðlegu móti í Ríga árið 1995. Hróksleikir Short, 18. Ha5 og 19. Hh5 flokkast undir stórskemmtileg- ar tilfærslur og spurning hvort Ivan hefði ekki átt að loka fyrir leiðina með 18. … c5 sem þó veikir d6-peðið. Þá kom til greina að leika 19. … Hxe4 strax t.d. 20. Df3 De7 21. Rf5 De6 og staðan er óljós. Það reyn- ist erfitt að valda f6-reitinn í t.d. 22. … De7 23. Bg5 o.s.frv. Handbragð Shorts eftir að drottn- ingarnar skella í kassann er snilld- arlegt, 26. Hf5 og 27. f4 er aðeins fyr- irboði þess sem koma skal. Ivan bindur greinilega miklar vonir við frelsingjann á a-línunni en hvítur heldur honum í skefjum með ná- kvæmum kóngsleikjum og hristir síðan fram glæsilega leikfléttu, 39. f6! og síðan kemur lokahnykkurinn 42. Hh8! Sarajevo 2007, 4. umferð: Nigel Short – Ivan Sokolov Ítalskur leikur – Evans bragð 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. b4 Bxb4 5. c3 Be7 6. d4 Ra5 7. Be2 exd4 8. Dxd4 d6 9. Dxg7 Bf6 10. Dg3 Re7 11. 0–0 Rg6 12. Rd4 De7 13. Rd2 Bd7 14. R2b3 Rxb3 15. axb3 0–0 16. Bg4 Kh8 17. Bxd7 Dxd7 18. Ha5 Hae8 19. Hh5 Bxd4 20. cxd4 Hxe4 21. Bh6 Hfe8 22. Df3 22. … f6 23. Dxf6+ Kg8 24. d5 Df7 25. Dxf7+ Kxf7 26. Hf5+ Kg8 27. f4 He1 28. g3 Hxf1+ 29. Kxf1 a5 30. Hg5 Kf7 31. f5 Re7 32. Hg7+ Kf6 33. g4 Rxd5 34. Hxh7 b5 35. Kf2 a4 36. bxa4 bxa4 37. h4 Ke5 38. Kf3 Kd4 39. f6 Rxf6 40. Bg7 Hf8 41. g5 a3 42. Hh8 – og svartur gafst upp. Héðinn efstur á Ítalíu Héðinn Steingrímsson er efstur á Capo d’Orso-mótinu sem nú stendur yfir á Ítalíu. Héðinn hefur hlotið 6½ vinning úr 7 skákum. Hann þarf að- eins ½ vinning úr tveim síðustu skák- um sínum til að tryggja sér sinn fyrsta áfanga að stórmeistaratitli. Hann tefldi við ítalska alþjóðlega meistaranum Luca Shytaj í næstsíð- ustu umferð í gær. Alls taka 149 skákmenn þátt í mótinu, þar af átta stórmeistarar. Röð efstu manna er annars sem hér segir: 1. Héðinn Steingrímsson 6½ v. 2.-3. Luca Shytaj, Ítalíu, og Jacko Aagaard 6 v. 4.-7. Mihail Marin, Rúmeníu, Lexy Ortega, Ítalíu, Fa- biano Caruana, Ítalíu, og Igor Naumkin, Rússlandi allir með 5½ v. Meistaramót Skákskóla Íslands Eitt best skipaða barna- og ung- lingamót sem fram fer hér á landi, Meistaramót Skákskóla Íslands, hófst í gær og lýkur á sunnudaginn. Tefldar verða sjö umferðir. Nær allir bestu ungu skákmenn Ísands taka þátt í mótinu sem er góð æfing fyrir verkefni sumarsins en fjölmargir taka þátt í mótum erlendis í sumar. Áskorendaeinvígi FIDE hefjast í dag Skákdrottningin Judit Polgar byrjar undankeppnina í Elista með því að heyja sex skáka einvígi við Baarev. Helgi Ólafsson SKÁK Elista 26. maí – 14. júní helol@simnet.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.