Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einn dag í október fékk égsímtal frá Björk Guð-mundsdóttur. Hún var stödd í snekkjunni sinni við Túnis og ég var nýbúinn að senda henni SMS sem hljómaði einhvern veginn svona: „Þátturinn var sýndur í fyrradag. Sástu hann? Þú varst bjútífúl …“    Þetta var sjónvarpsþáttaröðinTíu fingur sem ég átti við, en hún var undir minni umsjón. Björk var svo góð að segja nokkur orð í sjónvarpinu um Sigrúnu Eðvalds- dóttur fiðluleikara, sem fyrsti þátt- urinn fjallaði um. Sigrún var í strengjaoktettinum sem spilaði með Björk á leið hennar í kringum hnöttinn fyrir nokkrum árum og því tilvalið að fá hana í örstutt við- tal.    Nei, Björk hafði ekki séð þáttinnog var að hringja í mig út af öðru. Erindið var að spyrja mig hvort ég væri til í að ferðast með henni um heiminn í 12 til 18 mán- uði. Spila á orgel, sembal, klaví- kord, selestu og píanó, bæði einn með henni og líka í hljómsveitinni sem myndi leika með henni. Volta, nýja platan hennar, sem þá hét ekki neitt, átti að koma út um vorið og ferðalagið, eða túrinn, væri hugs- aður til að fylgja plötunni eftir.    Þetta kom mér ekki eins mikið áóvart og sumir kynnu að ætla. Við Björk unnum saman að því að gera tónlistina við Tetralógíuna hennar Gabríelu Friðriksdóttur, sem sýnd var á Feneyjatvíær- ingnum fyrir tveimur árum. Og í beinu framhaldi fékk Björk mig til að spila á diskinum Drawing Restraint 9, sem innihélt tónlistina við samnefnda kvikmynd eftir eig- inmann hennar, Matthew Barney. Loks spilaði ég á klavíkord (sem er einn af forfeðrum píanósins) í hinu innhverfa lagi á Volta „My Juve- nile“. Þannig að þetta lá einhvern veginn í loftinu, ég hálfpartinn fann það á mér.    Síðan ég fékk símtalið frá Túniser liðið rúmt hálft ár og þegar þetta er skrifað erum við öll stödd í Vancouver í Kanada. Fyrsti hluti túrsins er nánast á enda og ég er að koma heim eftir fáeina daga. Ég verð samt ekki lengi á Íslandi, að- eins í viku eða svo, þótt planið sé að vera aðeins á ferðalögum annan hvern mánuð, og eiga frí hina mán- uðina.    Hingað til hafa tónleikarnir tek-ist ótrúlega vel. Hvort sem Björk kemur fram í sjónvarpinu eða á tónleikum, þá er hún alltaf mögnuð. Tónlistarlega séð er hún svo mikill heimsborgari; hún bland- ar saman öllu mögulegu í lögum sínum, og samt virðist það ávallt ganga upp. Við í hljómsveitinni er- um afar ólík, en engu að síður held ég að það sé sterkur heildarsvipur á þeim hljóðheimi sem tónleika- gestum er boðið upp á. Mér finnst ég a.m.k. vera hluti af gríðarlega öflugum hópi. Með tónlist sinni sameinar Björk ekki aðeins svokall- aða há- og lágmenningu, heldur líka brot úr tónlistarhefðum ólíkra landa og sýnir að samvinna mis- munandi þjóða getur vel gengið upp, þó ekki nema í tónlistinni.    Í þessum pistlum, sem munu birt-ast vikulega, hyggst ég segja frá því helsta sem gerist á ferðalag- inu með Björk. Allt mögulegt áhugavert hefur komið upp sem tengist stærri málefnum tónlist- arheimsins, og einnig það verður umfjöllunarefni mitt hér á komandi vikum. Tónlistarheimurinn er stöð- ugt að breytast og ég er sífellt að læra eitthvað nýtt. Vonandi tekst mér að miðla einhverju af því hér. »Erindið var aðspyrja mig hvort ég væri til í að ferðast með henni um heiminn í 12 til 18 mánuði. Margt um Bjarkar-manninn Af sviðinu á tónleikum Bjarkar í Vancouver síðastliðið miðvikudagskvöld. senjonas@gmail.com Á TÚR MEÐ BJÖRK Jónas Sen „Þú varst bjútífúl“ eee V.J.V. TOPP5.IS WWW.SAMBIO.IS PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 2 - 4 - 6:15 - 8 - 10 - 11:10 - 11:30 B.i. 10 ára DIGITAL GOAL 2 kl. 3:40 - 5:50 B.i. 7 ára MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 1:50 LEYFÐ ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ DIGITAL 3D / KRINGLUNNI PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 1 - 2 - 4:30 - 6 - 8 - 10 - 11:30-POWER B.i.10.ára PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 VIP kl. 1:30 - 4:45 - 8 -11:10 ZODIAC kl. 6 - 8 - 9 - 11:30 B.i.16.ára THE REAPING kl. 5:50 - 10:10 B.i.16.ára SPIDER MAN 3 kl. 12:30 - 3 B.i.10.ára BLADES OF GLORY kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 B.i.12.ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:50 LEYFÐ / ÁLFABAKKA VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA Mesta ævintýri fyrr og síðar... ...byrjar við hjara veraldar „Besta Pirates myndin í röðinni! Maður einfaldlega gæti ekki búist við meira tilvalinni afþreyingarmynd á sumartíma.“ tv - kvikmyndir.is Á EFTIRTALDAR SÝNINGAR laugardag og sunnudag og mánudagSparBíó* 450kr PIRATES 3 KL. 2 Í ÁLFABAKKA SPIDERMAN 3 KL. 12:30 Í ÁLFABAKKA BLADES OF GLORY KL. 13:30 Í ÁLFABAKKA KL. 2 Í KEFL. www.SAMbio.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.