Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 26.05.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 35 munum vel eftir þeim stórviðburði er Diddi var að koma í heiminn, og ekki síður er við vorum rétt búnir að missa hann úr kíghósta á fyrsta ári. Eftir það var hann þrælhraustur eft- ir því sem best er vitað og leitaði lítið til lækna. Diddi var alltaf ljúfur og góður drengur. Hann hafði svolítinn kæk sem sýndi hans saklausu sál. Ef hann gerði eitthvað sem hann vissi að ekki mátti, kom hann röltandi og stundi við, e-pú, e-pú. Kannski var nú misgjörðin ekki stærri en sú að leika sér á árbakkanum, en það var stranglega bannað, því þá var Rangá allt önnur en hún er í dag fyrir neðan Nes. Hún var bæði vatnsmeiri og lá í straumhörðum ál. Diddi hefur alltaf verið greiðvik- inn og hjálpsamur. Naut ég góðs af því þegar ég var að koma upp húsinu mínu. Þó ég reyndi að endurgjalda þetta síðar er hann byggði í næstu götu, næstur á eftir mér í túninu hans pabba, þá er ég hræddur um að á mig hafi hallað í okkar skiptum. Diddi lærði til smiðs enda smiður af Guðs náð eins og afkomendur hans margir. Naut ég samstarfs við hann í nokkur ár bæði á bílskúrs- verkstæði mínu og seinna í Tré- smiðjunni Rangá. Ég veit að fyrir önnur þau störf sem hann stundaði fær hann þá sömu einkunn, að vera traustur og góður verkmaður og ekki síður góður félagi með notalega nærveru. Það var gott að vita af Didda í næstu götu, segir konan mín, og ég tek undir það. Diddi var mikill fjölskyldumaður sem sárt verður saknað. En það er huggun harmi gegn að afkomendur þeirra Unnar og fjölskyldur þeirra standa þétt saman í stuðningi við hana og hvert annað. Svo heldur hún séra Guðbjörg okkar utan um allan hópinn og gefur ómældan og ómet- anlegan stuðning þessa erfiðu daga. Þökk sé þér. Guð styrki okkur öll. Jón Bragi. Föðurbróðir okkar Kristinn Gunnarsson er látinn langt fyrir ald- ur fram og viljum við minnast hans með fáeinum orðum. Diddi, eins og Kristinn var alltaf kallaður, var yngstur þriggja sona Gunnars og Guðrúnar í Nesi við Hellu. Það hall- ar ekki mikið á hina tvo bræðurna þó að sagt sé sem var að Diddi með sitt tinnusvarta hár og sín bláu augu var fríðastur þeirra allra. Á yngri árum sínum hafði Diddi sannarlega útlitið með sér til þess að geta talist mikill stælgæi, en það var eins og hann kærði sig ekkert um neinn töffara- skap af neinu tagi. Þetta var augljóst okkur litlu frænkum hans sem sáum frá fyrstu tíð að úr björtum augum frænda okkar skein góðvild og hlýja í meira magni en hjá flestum öðrum mönnum. Hann hló líka innilegar en aðrir. Ein af fyrstu minningum Lilju frá Nesi er um Didda að kútveltast af hlátri yfir litlu Reykjavíkurfræn- kunni sem ekki þorði of nálægt kún- um. Diddi kvæntist ungur lífsförunaut sínum, Unni Einarsdóttur. Við frænkur hans eigum minningar um að hafa í æsku starað löngum stund- um á svarthvíta brúðarmynd þeirra sem stóð á hansahillu í stofunni heima. Þau voru glæsileg eins og leikarapar, áreiðanlega flottasta parið á Hellu ef ekki í öllum heim- inum fannst okkur. Saman byggðu ungu hjónin sér hús á Nestúninu. Þau ræktuðu fallegan garð enda er Unnur annáluð blómakona. Diddi vann við smíðar fyrstu árin en seinna vann hann við ferðaiðnað og í glerverksmiðju á Hellu. Diddi og Unnur eignuðust fyrst þrjá drengi með tiltölulega stuttu millibili og voru tvær okkar (Gunna og Anna) barnapíur hjá þeim um skeið, Gunna tvö sumur og Anna eitt. Það var gott að vera í vist hjá Didda og Unni. Þau voru nær okkur í aldri en foreldrar okkar og þótt við værum bara 12 og 13 ára krakkar komu þau fram við okkur eins og jafningja, spjölluðu um heima og geima og urðu trúnaðarvinir okkar. Með þeim fórum við á hestbak og um Verslunarmannahelgar var bíllinn troðfylltur af krökkum og útilegu- dóti og haldið í ævintýraferðir í Galtalæk. Seinna þegar við frænk- urnar vorum komnar af barna- píualdrinum eignuðust Diddi og Unnur tvær dætur. Öll eru þessi frændsystkini okkar myndarfólk og bera foreldrum sínum gott vitni. Á seinni árum eftir að við bræðra- börnin vorum orðin fullorðin stóðu bræðurnir í Nesi fyrir ættarmótum Nesættarinnar á túni gamla bæjar- ins á bökkum Rangár. Nokkur sum- ur í röð komum við saman, slógum upp tjaldborg, átum og drukkum, spiluðum og sungum. Við krakkarn- ir sem áður lékum okkur „sæta langa sumardaga“ í túninu hjá afa og ömmu endurnýjuðum kynnin ásamt okkar eigin börnum og lífs- förunautum. Undanfarin ár hefur þó ekki orðið af þessum fundum Nesættarinnar, en samt hefur mikið verið talað um að taka upp þráðinn aftur. Það er sárt til þess að hugsa að þegar kemur að næsta ættarmóti verður Diddi ekki með í hópnum. Mikill missir er að góðum manni. Hans er sárt saknað. Elsku Unnur, Eiður, Guðni, Guð- laugur, Áslaug, Kristrún og fjöl- skyldur, ykkar missir er mestur og vottum við systkin ykkur okkar dýpstu samúð á þessum erfiða tíma. Guðrún, Lilja, Anna og Jóhann. Viðvera okkar manna hér á jörðu er ekki alltaf löng. Það er óréttlátt og ósanngjarnt, að okkur finnst, þegar maður missir góðan vin. Þannig var mér innanbrjósts þegar ég frétti af láti Kristins eða Didda í Nesi, eins og hann var kallaður. Hann var góður vinur, traustur fé- lagi og heiðarlegur maður í alla staði og rækti skyldur sínar af mik- illi samviskusemi, svo eftir var tek- ið. Ég átti því láni að fagna að kynn- ast Didda mjög vel fyrir um tveimur áratugum þegar hann fór að vinna hjá okkur í Glerverksmiðjunni Sam- verki á Hellu og reyndist hann strax með þeim albestu starfskröftum, sem þar hafa unnið, enda var Diddi einn af þeim mönnum sem gátu gengið í hvaða verk sem er, hvort sem um var að ræða bílstjórastarf, smíðar eða glervinnslu. Að öllum þeim störfum sem Diddi tók að sér gekk hann með sama jafnaðargeð- inu og rólegheitum, greinilega vel undirbúinn fyrir hvert atriði sem upp gat komið, engu skilaði hann af sér fyrr en búið var að ganga frá öll- um hnútum. Diddi var einn af þeim mönnum sem gátu unnið með næst- um hverjum sem var, hann naut þess að kenna okkur ýmislegt, til dæmis í sambandi við smíðar, þar sem hann var á heimavelli enda lærður smiður. Til marks um það traust sem Didda var sýnt er hægt að segja það af miklum heilindum, að ef um var að ræða erfið og vanda- söm verkefni, þá var ætíð leitað til hans. Ekki man ég það heldur að hann hafi nokkurn tíma neitað að taka að sér verk, sem aðrir treystu sér ekki í og höfðu ekki þá reynslu og útsjónarsemi til sem hann hafði. Diddi var einstakt ljúfmenni og maður sótti í að vera í návist hans og helst vinna sem mest með honum. Einbeiting við vinnu og glaðværð höfðu smitandi áhrif á alla þá sem áttu þess kost að vinna með honum. Fljótlega eftir að Diddi hóf störf í Samverki kom hann með okkur í slökkviliðið á Hellu og reyndist þar, eins og annars staðar, hinn besti fé- lagi, nákvæmur og traustur í öllum þeim hættulegu störfum sem fylgja slökkvistarfinu. Diddi var einn af innfæddu Hellubúunum. Þar bjó hann alla sína ævi, Hella átti allar taugar í honum, það vissi ég og fann að þaðan myndi hann aldrei flytja. Stundum finnst mér að Diddi hafi mótast nokkuð af Hellu. Hella stendur á yfirnáttúrulega fallegum stað, þar sem Rangáin liðast áfram að virðist á litlum hraða, en þó svo straumþung og ákveðin að skila sínu hlutverki. Diddi virtist heldur aldrei fara hratt yfir, en skilaði sínu, engu síður en þeir sem hraðar fara, þar skiptir mestu máli allur undirbún- ingur og iðjusemi. Með Didda er genginn maður sem reyndist okkur ákaflega hjálpsamur og leitaði ég oft til hans, er aðstoðar var þörf. Eins höfðum við oft sam- band símleiðis, bæði vegna vinnunn- ar og ef eitthvað var að gerast í Hellubyggð, aldrei var það svo að lausnir fundust ekki á öllum málum. Kærar þakkir fyrir langa og góða samfylgd kæri vinur. Megi guð blessa minningu góðs manns. Við færum Unni og fjölskyldunni dýpstu samúðarkveðjur og vonum að guð almáttugur styrki þau á þessum erf- iðu tímum, ykkar missir er mikill. Ólafur Hróbjartsson og Kristín Geirsdóttir. Dauðinn kemur okkur alltaf jafn- mikið á óvart. Kristinn Gunnarsson skólabróðir minn og okkar allra sem með honum voru á Skógaskóla er fallinn í valinn langt um aldur fram. Á kveðjustund kvikna margar minningar. Hann Diddi okkar eins og hann var kall- aður var góður og einlægur félagi. Við skólafélagarnir fórum hvert í sína áttina eins og gengur og gerist eftir að skóla lauk, en tengslin milli okkar hafa alltaf verið sterk. Diddi var einn af strákunum á Hofi. Ég leit í gamni í minningarbókina mína og þar segir Diddi: „Margt hefur gerst bæði skemmtilegt og leiðin- legt og ætla ég að reyna að minna þig á eitthvað af hinu skemmtilega, en biðja þig að gleyma því leiðin- lega. Manstu eftir gönguferðunum, manstu eftir Jóni J.J., þegar þú fórst upp á háa Cið af hlátri, þegar þið Systa mösuðuð of mikið,“ og margt fleira sem hann minntist á úr skólanum. Satt að segja Diddi minn man ég bara það skemmtilega, leið- inlegt hefur aldrei verið til í minni orðabók. Kveð ég þig með söknuði ásamt skólasystkinum okkar og votta ættingjum þínum innilega samúð. Kristín Guðmundsdóttir. Elsku langafi. Ég veit að þú ert fallegasti engill á himnum og að þú passar mig alltaf. Ég skal passa langömmu og Gauta fyrir þig. Takk fyrir kexið sem var alltaf í skápnum. Þín María Björg. HINSTA KVEÐJA ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför hjartkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ARNDÍSAR PÁLSDÓTTUR, Barkarstöðum, Miðfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar- innar á Hvammstanga. Ragnar Benediktsson, Karl Georg Ragnarsson, María Rós Jónsdóttir, Ásta Pálína Ragnarsdóttir, Magnús Sverrisson, Jenný Karólína Ragnarsdóttir, Hilmar Sverrisson, Margrét Halla Ragnarsdóttir, Jón Gunnarsson, Benedikt Ragnarsson, Jóhanna Helga Þorsteinsdóttir, Álfheiður H. Árdal, Helga Berglind Ragnarsdóttir, Sigmar Benediktsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, HALLDÓRA MARGRÉT HERMANNSDÓTTIR frá Ysta-Mói í Fljótum, til heimilis á Hvanneyrarbraut 34, Siglufirði, verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju mánudaginn 28. maí kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Barnaspítalasjóð Hrings- ins, sími 543 3724. Margrét Lára Friðriksdóttir, Arngrímur Jónsson, Agnes Einarsdóttir, Ævar Friðriksson, Hjördís Júlíusdóttir og fjölskylda hinnar látnu. ✝ ELÍAS MAR rithöfundur er látinn. Fyrir hönd ættingja og vina, Óskar Mar. ✝ Maðurinn minn, faðir okkar, sonur minn, bróðir okkar og mágur, JÓN GAUTI JÓNSSON, landfræðingur og framhaldsskólakennari, andaðist á Landspítalanum þriðjudaginn 22. maí. Útför hans fer fram frá Neskirkju í Reykjavík föstudaginn 1. júní kl 11.00. Jarðsett verður í Skútustaðakirkjugarði í Mývatnssveit laugardaginn 2. júní að lokinni minningarathöfn kl. 15.00. Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Eiríkur Gauti Jónsson, Jón Ásgeir Gautason, Guðmundur Karl Gautason, Ragnhildur Jónsdóttir, Geirfinnur Jónsson, Hlíf Sigurjónsdóttir, Sólveig Anna Jónsdóttir, Edward Frederiksen, Herdís Anna Jónsdóttir, Steef van Oosterhout. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, INGÓLFUR ÁRNASON frá Krossgerði, lést á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 24. maí. Kveðjuathöfn verður í Fossvogskapellu fimmtudaginn 31. maí kl. 13.00. Útförin verður auglýst síðar. Alda Ingólfsdóttir, Einar Einarsson, Hanna Ingólfsdóttir, Aðalheiður Ingólfsdóttir, Þór Aðalsteinsson, Örn Ingólfsson, Inga Dagbjartsdóttir, Sigurður Ingólfsson, Kristín Ingólfsdóttir, Hansína R. Ingólfsdóttir, Kolbrún Ingólfsdóttir, Knud Jensen, Árni Ingólfsson, Þór Ingólfsson, Þórdís Tómasdóttir, Anna Hrefnudóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, GUNNAR HJÁLMARSSON, Víðihvammi 24, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju miðvikudaginn 30. maí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Þorbjörns Árnasonar, Í Hjartastað. Þórey Þórðardóttir, Sigurður Sigfússon Þórður Gunnarsson, Berglind Ósk Þráinsdóttir Magnús Gunnarsson, Guðni Rúnar Gunnarsson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.