Morgunblaðið - 26.05.2007, Side 18
18 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Kufa. AFP. | Moqtada al-Sadr, rót-
tækur sjíaklerkur í Írak, kom aftur
fram á sjónarsviðið í gær og krafðist
tafarlausrar heimkvaðningar banda-
rískra hermanna í fyrstu ræðu sinni í
sjö mánuði.
Sadr, sem er leiðtogi einnar af öfl-
ugustu vopnuðu hreyfingum sjíta í
Írak, hélt ræðuna í mosku sinni í
bænum Kufa. Hann hafði ekki sést
þar frá því í október og bandaríski
herinn sagði í janúar að klerkurinn
hefði flúið til Írans vegna viðamikilla
hernaðaraðgerða sem miðuðu að því
að bæla niður vopnaða hópa sjíta og
súnníta. Síðan hafa stuðningsmenn
klerksins gengið úr ríkisstjórn Íraks
og þeir segjast nú hafa tryggt sér
stuðning meirihluta þingmanna
landsins við kröfu þeirra um að þing-
ið vísi bandarísku hersveitunum úr
landi.
Ekki er vitað hvers vegna Sadr
ákvað að koma fram á sjónarsviðið
núna. Hugsanlegt er að hann vilji
koma í veg fyrir að vopnuð hreyfing
hans, Mahdi-herinn, leysist upp.
Fjárveiting án skilyrða
Báðir deildir Bandaríkjaþings
hafa samþykkt fjárveitingu að and-
virði 120 milljarða dollara, sem svar-
ar 7.500 milljörðum króna, til hersins
vegna hernaðarins í Írak.
Fjárveitingin var samþykkt eftir
að demókratar féllu frá því skilyrði
að brottflutningur bandaríska her-
liðsins hæfist innan tiltekins tíma.
George W. Bush hafnaði skilyrðinu
og meirihluti demókrata er ekki
nógu stór til að þeir geti hnekkt neit-
unarvaldi forsetans.
Reuters
Þögnin rofin Íraski sjíaklerkurinn
Moqtada al-Sadr flytur fyrstu ræðu
sína í sjö mánuði.
Sadr snýr
aftur úr
útlegð
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
HÚN er snjall en flókinn persónu-
leiki, með ýmislegt vafasamt í fortíð
sinni, geysilega metnaðarfull, öðru
hverju virðist hún hafa umgengist
sannleikann mjög frjálslega. Þannig
er líklegu forsetaefni demókrata í
Bandaríkjunum, Hillary Rodham
Clinton, m.a. lýst í tveim bókum sem
rekja feril hennar, að sögn The
Washington Post í gær.
Liðsmenn kosningabaráttu Clint-
on hafa beðið áhyggjufullir eftir út-
komu þessara rita en segja nú að
ekkert nýtt komi þar fram. Báðar
eru bækurnar skrifaðar af þekktum
og virtum blaðamönnum, annars
vegar Carl Bernstein, sem á sínum
tíma fletti ofan af Watergate-
hneykslinu ásamt Bob Woodward,
hins vegar Gerth og Van Natta sem
hafa árum saman starfað fyrir The
New York Times. Þessar bækur
skipta því meira máli en það sem rit-
að hefur verið um Clinton af pólitísk-
um andstæðingum hennar.
Bernstein vann í átta ár að sinni
bók, A Woman in Charge: The Life
of Hillary Clinton og rekur þar
vandlega feril hennar, í hinu ritinu,
Her Way: The Hopes and Ambitions
of Hillary Rodham Clinton, er meiri
áhersla lögð á pólitískan feril hennar
eftir að hún var kjörinn öld-
ungadeildarþingmaður fyrir New
York. Er m.a. gefið í skyn að Clinton
hafi alls ekki lesið skýrslu leyniþjón-
ustunnar um meint gereyðing-
arvopn Saddams Husseins áður en
hún ákvað 2002 að styðja tillögu um
innrás ef önnur ráð brygðust. Ýmsir
fyrirvarar voru settir í skýrslunni
við fullyrðingar um vopnaeignina.
Bernstein lýsir stormasömu
hjónabandi Clinton-hjónanna og
þjáningunum sem ótryggð eig-
inmannsins olli Hillary. Rifjað er
upp að hún hafi fallið á prófi í Wash-
ington þegar hún reyndi að afla sér
málflutningsréttinda. Þetta sálræna
áfall hafi getað skipt máli um
ákvörðun hennar að giftast Clinton.
Hún þagði um fallið í þrjá áratugi,
ekki einu sinni bestu vinir hennar
fengu að vita um það.
Clinton-hjónin eru sögð hafa verið
samtaka um að reyna að þagga niður
allar frásagnir um framhjáhaldið.
En um hríð velti Hillary því fyrir sér
„vegna reiði og sárinda“ að bjóða sig
fram til ríkisstjóra 1990 þegar eig-
inmaðurinn hætti. Þegar mest gekk
á út af rannsókn saksóknarans Ken-
neth Starr á málum Clinton-
hjónanna óttaðist hún mjög að verða
ákærð vegna meintra fjársvika í
sambandi við fasteignir, White-
water-málsins svonefnda.
Snjöll en ofurmetnaðarfull
Nýjar bækur um Hillary Clinton draga upp fremur neikvæða mynd af henni og
sagðar geta valdið henni erfiðleikum í baráttunni um forsetaembættið
Í HNOTSKURN
»Bækurnar koma báðar útsnemma í júní. Útgefendur
búast greinilega við góðri
sölu, bók Bernsteins hefur
þegar verið prentuð í 275 þús-
und eintökum, rit Natta-
tvíeykisins í 175 þúsund ein-
tökum.
» Í bók Natta er fullyrt aðClinton-hjónin hafi eftir
sigurinn 1992 gert áætlun um
að Bill yrði forseti í átta ár,
síðan tæki Hillary við næstu
átta árin.
Hillary Clinton Carl Bernstein
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
ALLAR líkur voru á því í gær að
Bertie Ahern, forsætisráðherra Ír-
lands síðastliðin tíu ár, yrði áfram við
völd á Írlandi en flokkur hans,
Fianna Fáil, hafði skv. útgönguspá
írska ríkisútvarpsins, RTÉ, tryggt
sér 41,6% atkvæða í þingkosningun-
um sem haldnar voru á fimmtudag.
Talning atkvæða gekk seint enda
notast Írar við flókið hlutfallskosn-
ingakerfi. Fyrstu tölur sem og út-
gönguspá RTÉ bentu hins vegar til
þess að staða Fianna Fáil væri sterk,
jafnvel að sá möguleiki væri fyrir
hendi að flokkurinn næði hreinum
meirihluta á þingi. Í gærkvöldi benti
flest til að flokkurinn fengi um 80
þingmenn kjörna en 166 sitja á írska
þinginu. Það er því ekki víst að það
komi að sök að flokkur Framsæk-
inna demókrata, sem átti aðild að
ríkisstjórn, galt afhroð; Fianna Fáil
er áfram með öll tromp á hendi.
Helsti stjórnarandstöðuflokkur-
inn, Fine Gael, hafði aukið fylgi sitt
um 4% skv. RTÉ, fær nú 26,3%.
Verkamannaflokkurinn, hinn helsti
stjórnarandstöðuflokkurinn, tapaði
hins vegar fylgi, fékk 9,9% skv. spá
RTÉ, en sem fyrr segir bentu fyrstu
tölur í gær til þess að spáin væri
býsna nærri lagi, en ljóst var að
heildarniðurstöður bærust seint.
Pat Rabbitte, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, viðurkenndi um
miðjan dag í gær að allt benti til þess
að Ahern yrði áfram forsætisráð-
herra en Enda Kenny, leiðtogi Fine
Gael, var hins vegar ekki tilbúinn að
játa sig sigraðan.
Fianna Fáil fékk lang-
mest fylgi á Írlandi
Næsta öruggt að Bertie Ahern verði áfram forsætisráðherra
AP
Vinsæll Bertie Ahern tókst vel upp
í kosningabaráttunni á Írlandi.
INDVERSKAR konur halda á kyndlum og hrópa slag-
orð á kröfugöngu kvennahreyfingar í Gauhati á Ind-
landi í gær. Hreyfingin berst fyrir því að stjórnvöld
geri þegar í stað ráðstafanir til að stemma stigu við út-
breiðslu alnæmis í landinu. Nær 5,7 milljónir Indverja
hafa smitast af HIV-veirunni, sem veldur alnæmi. Sex
sambandsríki Indlands hafa bannað kynfræðslu í skól-
um þrátt fyrir öra útbreiðslu sjúkdómsins meðal ungs
fólks og nýleg könnun bendir til þess að um 40% ind-
verskra kvenna viti ekki um alnæmissjúkdóminn.
AP
Krefjast fræðslu um alnæmi
ALAIN Juppé,
umhverfisráð-
herra Frakk-
lands, segir að
svo gæti farið að
Jacques Chirac,
fyrrverandi for-
seti, verði yfir-
heyrður vegna
gamalla ásakana
um svindl með
fjármuni flokks gaullista. Chirac
naut friðhelgi vegna embættis síns
en hún rennur út 16. júní. Auk þess-
ara gömlu mála er Chirac grunaður
um að eiga leynilega bankareikninga
í Japan með sem svarar rösklega
3.700 milljónum króna. Fundust ný-
lega skjöl í fórum fyrrverandi yfir-
manns leyniþjónustunar, DGSE, er
renna stoðum undir þann grun.
Chirac yfir-
heyrður?
Jacques Chirac
VALDABARÁTTA tveggja æðstu
embættismanna Úkraínu magnað-
ist í gær þegar Viktor Jústsjenkó
forseti gaf út tilskipun um að
40.000 hermenn innanríkisráðu-
neytisins heyrðu undir forsetaemb-
ættið.
Viktor Janúkóvítsj forsætisráð-
herra hafnaði tilskipuninni, sagði
hana brot á stjórnarskrá landsins
og „inngrip í starfsemi fram-
kvæmdavaldsins“.
Forseti Úkraínuþings, Oleksandr
Moroz, tók dýpra í árinni og sakaði
forsetann um „valdaránstilraun“.
Stjórnarerindrekar ríkja Evr-
ópusambandsins vöruðu við því að
það myndi hafa alvarlegar afleið-
ingar fyrir Úkraínu ef reynt yrði að
leiða deiluna til lykta með hervaldi.
Hernum beitt?
Reuters
Ólga Stuðningsmenn Úkraínu-
forseta mótmæla í Kíev.
FORSETI Tyrklands, Ahmet Necd-
et Sezer, beitti í gær neitunarvaldi
gegn stjórnartillögu um breytingar
á stjórnarskrá er kveða á um að
forseti verði framvegis þjóðkjörinn
en ekki af þinginu. Verði tillagan
aftur samþykkt á þingi getur Nezer
efnt til þjóðaratkvæðis um hana.
Sezer segir nei
JAPANSKA hátæknifyrirtækið
SONY hefur kynnt nýtt, örsmátt
sjónvarp sem gæti rutt brautina
fyrir næstu kynslóð sjónvarpa.
Skjárinn er aðeins 0,3 mm á breidd
og beygjanlegur eins og pappír.
Um fimm ár tók að þróa tæknina og
er rætt um að hana megi nýta sem
hluta framúrstefnulegs fatnaðar.
Sjónvarp í föt?